Morgunblaðið - 11.07.1958, Síða 3
Föstudagur 11. júlí 1958
mnpnr\nr 4»ið
3
Stúdentaráð vill styrkja
Alsír-stúdent til náms
Greinagerð frá stúdentaráði um
vandamál Alsír-stúdenta
EIN af mörgum afleiðingum
stríðsins í Alsír er sú staðreynd,
að íbúunum verður æ erfiðara
að leita sér menntunar. Kemur
þetta ekki sízt niður á stúdent-
um, en flestir þeirra hafa orðið
að stunda nám I Frakklandi, þar
eð þeir hafa orðið að þola margs
konar misrétti af hálfu hinna
frönsku yfirvalda við háskóiann
í Algeirsborg.
Árið 1955 stofnuðu stúdentar
frá Algeirsborg samband sin á
milli, og nefnist það UGEMA —
Union Générale des Etudiants
Musulmas Algériens. Á fyrsta
þingi sambandsins, sem haldið
var í París í júlí 1955, settu þeir
sér m. a. það markmið:
„Að tryggja og vernda hið al-
sírska þjóðerni með því að
berjast fyrir viðurkenningu
arabísku, sem hinu opinbera
máli landsins;berjast fyrir
þjóðlegri menntun; fyrir
frelsi Múhameðstrúar og fyrir
því, að Alsírbúar fái hiutdeild
í stjórn landsins“.
Frönsk stjórnarvöld höfðu
snemma horn í síðu UGEMA. —
Hófust ofsóknir í garð sambands-
jns, einkum eftir að það sendi
Éíðasta allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna yfirlit um vanda-
mál Alsírbúa, frá sínum sjónar-
hóli séð, og sögu landsins frá því
það komst undir yfirráð Frakka.
í nóvember sl. var aðalritari
UGEMA, Mohammed Khemisti,
handtekinn. Hann hafði numið
læknisfræði við háskólann í Mont
pellier og ekki komið til Alsír í
fimm ár. Engu að síður var hann
handtekinn að kröfu herréttarins
íAlgeirsborg. Frönsk yfirvöld
lýstu því að vísu yfir, að hann
hefði ekki verið handtekinn sem
stúdentaleiðtogi, heldur vegna
annarra athafna. Þrátt fyrir það
vakti handtakan óhemju athygli
meðal stúdenta um allan heim,
og rigndi mótmælum hvaðanæva
yfir frönsk yfirvöld frá stúdenta
samtökum. Þessi mótmælaalda
jókst nú um allan helming tveim
ur mánuðum síðar, er frönsk
yfirvöld leystu UGEMA upp og
bönnuðu frekari starfsemi þess.
11 forystumenn þess voru hand-
teknir og yfirheyrðir. UGEMA
starfar samt áfram, en auðvitað
í leyni eða utan franska heims-
veldisins.
Allt þetta hefur orðið til þess,
að alsírskum stúdentum er ekki
lengur vært við franska háskóla,
nema þeir, sem kalla mætti
„danska íslendinga“. Hafa þeir
því flestir leitað til annarra landa
til að halda áfram námi sinu.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Stúdentaráði Háskóla fslands
hafa borist, eru nú um 1300 al-
sírskir stúdentar iandflótta í
Túnis og Marokkó og auk þess
a. m. k. 300 stúdentar í Frakk-
landi, sem neyðast munu til að
hverfa þaðan af pólitískum
ástæðum. Nokkrir hafa leitað til
Sviss og sumir til Belgíu en í
þessum löndum báðum fer
kennsla fram á frönsku í nokkr-
um háskólum. Að sjálfsögðu
skortir stúdentana algjörlega fé
til að geta haldið áfram námi
sínu við þessar breyttu aðstæður.
Fyrir því hefur UGEMA heit-
ið á stúdenta um heim allan að
hjálpa sér í þessum vanda. Hafa
ýmsir brugðizt vel við, m. a. hafa
stúdentasamböndin í Marokkó og
Túnis þegar boðið 20 namsstyrki
hvort og stúdentasamböndin í
Guatemala og Noregi 1 styrk
hvort.
Stúdentaráð Háskóla fsiands
hefur ákveðið að leggja hér hönd
á plóginn og freista þess að safna
fé til að geta styrkt einn alsírsk-
an stúdent til nóms. Talið er,
að £ 200 myndu nægja einum
stúdent í eitt ár.
Fé þessu hyggst Stúdent.aráð
safna með því að leita til ýmissa
félaga um framlög og að sjálf-
sógðu verða framlög frá almenn-
ingi vel þegin. Einnig kemur til
mála að dansleikur verði haldinn
í fjáröflunar skyni.
(Frá Stúdentaráði).
Héraðslœknisskipti
á Húsavík
HÚSAVÍK, 10. júlí. — Um síðast
liðinn mánaðarmót lét Þorgeir
Gestsson af embætti sem héraðs-
læknir á Húsavík og flytur nú
búferlum og sest að sem héraðs-
læknir á Hvolsvelli.
Þorgeir hefur starfað sem
héraðslæknir í Húsavík í 7 ár og
unnið sér vinsældir og traust í
starfi. í tilefni af brottför hans
úr kaupstaðnum heimsótti bæjar
stjórn Húsavíkur hann að kvöldi
1. júlí og afhenti Jóhann Her-
mannsson, varaforseti bæjar-
stjórnar, honum málverk að
gjöf frá Húsvíkingum sem þakk-
lætisvott fyrir vel unnin störf.
Málverkið er af Mývatnssveit,
málað af Sveini Þórarinssyni.
104 farþegailugvél-
ar um Keflavík
í JÚNÍMÁNUÐI 1958 höfðu sam-
tals 104 farþegaflugvélar við-
komu á Keflavíkurflugvelli. —
Eftirtalin flugfélög höfðu flestar
viðkomur: Pan American World
Airwáys 39 vélar, British Over-
seas Airways 13 vélar, Trans
World Airlines 8 vélar, KLM-
Royal Dutch Airlines 7 vélar. —
Samtals fóru um flugvöllinn 3787
farþegar, 85094 kg. vörur, 10466
kg. póstur.
Himmler taldi
gasklefana
mannubEega
66
Fegurðardrottningin, Sigríð-
ur Þorvaidsdóttir er hún
steig út úr Gullfaxa á Lund-
únaflugvelli á mánudaginn.
»9
ULM, 9. júlí. Himtnler varð illt
af því að horfa á Gyðinga skotna
niður í stórhópum, þess vegna
voru gasklefarnir teknir í notk-
un, sagði fyrrverandi storm-
sveitarforinginn Erich von dem
Zelewski fyrir rétti í Ulm í gær,
en í Ulm standa yfir yfirheyrsl-
ur yfir stríðsglæpamönnum.
Sagði hann, að yfirmaður storm-
sveitanna Heinrich Himmler
hefði verið viðstaddur, er Gyð-
ingar og kommúnistar hefðu
verið skotnir niður „til reynslu"
í Minsk. Himmler var sá eini af
öllum viðstöddum, er varð óglatt
af að horfa á aftökurnar. Á eftir
sagði hann skefldur á svip: „Nei,
þetta gengur ekki. Við verðum
að finna nýjar og mannúðlegri
aðferðir til að framkvæma fjölda
aftökur“.
STAK8TEINAR
Voru boðin á frumsýn-
ingu víkingamyndarinnar
í London
í FYRRAKVÖLD kom flugleiðis
heim frá London Njáll Símonar-
son, fulltrúi Flugfélags Islands,
en honum hafði verið bóðið utan
til þess að vera viðstaddur frum-
sýningu víkingamyndarinnar,
sem bandaríski kvikmyndaleik-
arinn Kirk Douglas og félagar
hans tóku í Noregi í fyrra. Þá
var fegurðardrottningu íslands
boðið utan í sama skyni — og
urðu þau samferða héðan á mánu
daginn.
Á þriðjudagskvöldið fór frum-
sýningin fram í einu stærsta
Ferðafélag íslands efnir til ferba um öræfir
Á MORGUN efnir Ferðafélag ís-
lands til fimm daga skemmti-
ferðar um Kjalveg og verður gist
í sæluhúsum félagsins við Haga-
Jarlshettu, Bláfell og Kerlingar-
fjöllum og á Hveravöllum. í
þessari ferð gefst þeim, sem vilja,
tækifæri til að ganga þar á nær-
liggjandi fjöll, t.d. Langjökul,
Jarlshettur, Bláfell o gKerlingar-
fjöll. Einnig verður efnt til eins
og hálfs dags ferðar í Landmanna
laugar, á Þórsmörk og göngu- og
skíðaferða á Eyjafjallajökul'og
verður þá gengið á jökulinn frá
Stórumörk.
Þann 19. júlí verður efnt til 9
daga ferðar í Herðubreiðarlindir
og verður þá einnig komið að
Dettifossi, Ásbyrgi, Hljóðaklett-
um, Mývatni og Hólum í Hjalta-
dal. 19. júlí verður farin önnur
9 daga ferð um Fjallabaksleið
nyrðri. Verður gist fjwstu nóttina
í Landmannalaugum, en síðan
farið um Kýlinga, Jökuldali, Eld-
gjá og síðan niður í Skaftártung-
ur, austur að Lómagnúpi og inn
í Núpstaðaskóg. Þá er ráðgerð
7—8 daga ferð á hestum. Verður
þá farið upp úr Þjórsárdal og
norður til Arnarfellsins mikla og
víðar um öræfin.
kvikmyndahúsi Lundúna, sem
var þéttskipað. Fréttamaður Mbl.
hafði tal af Njáli í gær og sagði
hann, að þar hefðu íslenzku sendi
herrahjónin verið stödd ásamt
sendiherrum fjölmargra ríkja og
óðru tignarfólki — og þar var
og Filip prins, maður Breta-
drottningar.
Sagði Njóll myndina hafa verið
fallega á köflum, sérstaklega
voru fallegar svipmyndir af
norsku náttúrufari, en á hinn bóg
inn kvað hann myndina hafa ver-
ið dálítið reifarakennda og fannst
honum umstangið og viðhöfnin
einum of mikil í samanburði við
ris myndarinnar.
A eftir hélt Kirk Douglas mikla
veizlu á Mayfairhótelinu. Þangað
var boðið 1000 manns — og sögðu
Lundúnablöðin, að þar hefði ekki
verið haldin önnur eins veizla
sxðan Mike Todd hélt hina eftir-
minnilegu veizlu sína er „80
dagar umhverfis hnöttinn" var
frumsýnd.
Voru veizlusalir skreyttir mjög
— að fornum sið, víkingar gengu
ljósum logum meðal veizlugesta
og hljómsveitin, sem lék fyrir
dansinum, hafði mikið víkinga-
skip til umráða.
Fegurðardrottningin íslenzka
var þarna í íslenzkum skautbún-
ingi og stúlkur voru þar og frá
hinum Norðurlöndunum í þjóð-
búningum. Kirk Douglas var
þarna hrókur alls fagnaðar, dans-
aði mikið — m. a. við íslenzku
fegurðardrottninguna. Veitingar
voru góðar fram bornar á nor-
ræna vísu, og samkvæmið allt hið
dýrlegasta.
Njáll sagði að lokum, að Sig-
riður hefði komið fram í sjón-
varpi, hún hefði ekki komið heim
jafnt honum, heldur dveldist um
hríð hjá systur sinni og ömmu,
sem búsettar eru í London.
OSLO, 7. júlí. — NTB. í dag
komu saman til fundar í Osló
viðskiptamálaráðherrar Norður-
landanna fjögurra, til þess að
fjalla um frjólsa verzlun milli
ríkjanna og um sameiginlega
stefnu í sambandi við hinn
frjálsa markað Evrópu.
„Spilla sem mest“
Stjórnarblöðin halda áfram í
gær á sinn sérstæða hátt aS
„auka eininguna í landhelgismál-
inu“. Alþýðublaðið segár t. d.
með stórum stöfum á fremstu
síðu:
„Þjóðviljinn gerði í gær enn
eina svívirðilega árás á utanrikis
ráðherra, Guðtmind f. Guðmunds
son, út af landhelgismálinu, og
er greinin sýnilega liður í þeirri
starfsemi Moskvukommúnista, að
nota landhelgismálið til að spilla
sem mest sambúð íslendinga og
annarra þjóða, nema Rússa. Þjóð-
viljinn kallar Guðmund bréflat-
an, þumbaralegan, durtslegan,
telur að hann hafi „ekki geð í
sér til að verja aðgerðir íslend-
inga“, og loks að hann sé „auð-
sjáanlega ekki fær um að gegna
því starfi sem honum hefur verið
falið“.
„Handvömm Lúðvíks“
Forsíðugrein Alþýðublaðsins
lýkur svo: „Árásargrein Þjóð-
viljans sýnir glögglega, að for-
ráðamenn kommúnista vita ekk-
ert hvað gert hefur verið á þessu
sviði og hafa ekkert vit á, hvern-
ig meðferð utanríkismála gengur
fyrir sig.
Hefur Þjóðviljinn til dæmis
hugsað um það, að utanríkisráð-
herra er spurður, þegar hann er
að kynna málið erlendum þjóð-
um, hvzð Islendingar ætli að
gera við togarana og grunnlín-
urnar? Heldur Þjóðviljinn, að
handvömm Lúðvíks Jósefssonar
í meðferð málsins, hjálpi til á
þessum vettvangi? Eða er það
ætlun kommúnista, að hjálpa
ekkert til og nota þetta viðkvæm
asta mál þjóðarinnar til að spilla
sambúð íslendinga við aðrar þjóð
ir? Skrif Þjóðviljans benda ein-
dregið i þá átt. Og loks: Finnst
Þjóðviljanum að slíkar árásir á
utanríkisráðherra að tilefnislausu
verði til þess að auka einingu
þjóðarinnar í landhelgismálinu?“
..Leitt tvæir
viiinudeilur yfir
hafnarverkamenn“
Á önustu síðu ræðir Alþýðu-
blaðið i feitletraðri rammagrein
um verkíallsmálin. Þar segir:
„ — — — að kominúnistar
ætla að geyma sér rétt til þess
að gera verkfall i haust til þess
að geta leitt tvær vinnudeilur
yfir hafnarverkamenn á þessu
ári. Þannig lýsir ábyrgðartilfinn-
ing kommúnista sér í verki. Um
hitt þarf ekki að fjölyrða, að
kommúniotana í Dagsbrún gildir
það einu þótt verkamenn fái ekki
kjarabætur fyrr en 2—3 mánuð-
um seinna en aðrar stéttir. Verka
menn geta beðið, eins og Eðvarð
Sigurðsson sagði í vetur.“
Aðalbankastjóri
kommúnista
Þjóðviljinn helgarViljálmi Þór,
aðaibankastjóra af náð kommún-
ista, sérstakan ramma á forsíðu
sinni. Þar er fyrirsögnin þessi:
,Af hverjum keypti Vilhjálm
ur Þór lúxusbílinn?"
Greinarlokin eru:
„En í sambandi við þetta fá-
ránlega bruðl Vilhjálms a kostn-
að almennmgs er eitt dularl'ulltat
riði. Seðlabankkinn hefur ekki
fengið neitt innflutningsleyfi fyr
ir bifreið. Vilhjálmur Þór hefur
eklti fengið neitt innflutnings-
leyfi fyrir bifreið. Af hverjum
keypti Vilhjálmur Þór bíl fyrir
næstum hálfa milljón króna af
almenningsfé — og hvað er eðli-
i legt verð bílsins?“