Morgunblaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 6
€ MORCVWBT AÐ1Ð Föstudagur 11. júlí 1958 Á aefingu: Helga, Lárus og Rúrik. Leikhus Heimdallar: ,Haltu mér - síeppfu mér' Camanleikur etfir Claude Magnier Leikstjóri Lárus Pál*son LEIKHUS HEIMDALLAR hóf starfsemi sína sumarið 1955 og eru leiksýningar þess nú orðnar snar þáttur í slcemmtanalííi borg- arinnar á sumrin. Hafa vinsældir þessa fyrirtækis aukist með ári hverju, enda hefur leikhúsið lagt áherzlu á að sýna létta og skemmtilega gamanleiki við skap sumarglaðra leikhúsgesta. Gamanleikurinn „Haltu mér — slepptu mér", sem leikhúsið sýnir að þessu sinni, og frumsýnt var í Sjálfstæðishúsinu sl. þriðju- dagskvöld er eftir franska rit- höfundinn Ciaude Magnier. Hef- ur leikurinn verið sýndur í Paris og London við geisilega aðsókn og hrifni áhorfenda, enda er hann ágætlega saminn og bráðskemmti legur. Er þetta tvímælalaust snjallasti gamaleikurinn, sem leikhúsið hefur sýnt til þessa og bezt leikinn. — Efni leiksins segir nokkuð til um hinn franska upp runa hans, en þó bera einkum vinnubrögð höfundarins greini- legan svip franskrar leikritunar af þessu tagi. Samtölin eru létt og fyndin og alltaf gætt fyllsta velsæmis í orðum og athöfnum enda þótt fjallað sé um hin við- j kvæmustu einkamái millj karis og konu. — Hér er sem sé um að ræða hinn gamalkunna þrí- , hyrning: eiginmanninn, eigin- konuna og elskhugann og öl! þau átök og fiækjur. sem sú samstill- j ing hafur jafnan í för með sér. Að sjálfsögðu reynir þarna mest á taugaKerfi eiginmannsins, enda fer Georg Maxwell ekki bein- linis mjÚKum höndum um eigin-. konu sina né talar við hana tæpi- j tungu, er hann kemur heim tii sín í sumarbústaðinn og sækir i heldur óheppilega að. En málið j skýrist þó eftir því, sem á leik- j inn líður og reynist ekki eins saknæmt og virðist við fyrstu sýn. Atburðarásin og málalok verða hér ekki rakin, enda eng- um gerður greiði með því, en „boðskapurinn“ er eitthvað á þessa leið: Það er allt annað en gaman að eiga unga og friða j konu, sem þráir ástúð og róman- ! tík í hjónabandinu, en fær aðeins steina fyrir brauð. Leikstjórn Lárusar Pálssonar og sviðsetning, er með ágætum. Er hraði leiksins góður og heiid- arsvipurinn prýðilegur ,etida leik endurnir þrír allir mikiihæfir leikarar. — Lárus leikur jafn- framt eiginmanninn, Georg Max- well, og fer mjög skemmtiiega með það hlutverk — Helga Val- týsdóttir leikur eiginkonuná, Jane, og gerir hlutverkinu af- bragðs góð skil hvort heldur er í átökunum við eiginmanninn eða í hinu stigbreytilega viðmóti sínu við Mervin Browne, hinn heiðarlega kvenaabósa, sem Rúrik Haraldsson túlkar ágæt- lega, — með léttri og góðri kímrii. Leiktjöld Magnúsar Pálssonar eru björt og falleg og fara einkar vel við leikinn. Lárus Pálsson hefur þýtt leik- leikritið á lipurt mál en þó með nokkrum óþarfa dönskuslettum, enda þótt þýtt hafi verjð efiir enskum texta. Húsið var þéttskipað og var auðheyrt að áhorfendur skemmtu sér konunglega, enda hylltu þeir leikendur með b;ómum og dynj- andi lófataki að leikslokum. Sigurður Grímsson. 50 ára í dag ÓLAFUR Tómasson fyrrverandi stýrimaður er fæddur í Reykja- vík 11. júlí 1908, og er því fimmt- ugur í dag. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Ólafvía Bjarna- dóttir og Tómae Snorrason skó- smiður. Þau eru nú bæði látin. Ólafur byrjaði til sjós á gömlu Esju og fór þaðan á eldri Gull- foss. Árin 1927—1930 sigldi hann á norskum og dönskum skipum, en kom þá heim og hóf nám í farmannadeild Stýrimanna skóla íslands. Þar láu leiðir okkar Ólafs fyrst saman, og atvikin höguðu því þannig, að við sátum saman báða veturna. I skólanum voru verkefnin nóg, til að halda manni föstum við kennsluna, en í frímínútunum kl. 10 á degi hverjum bauð Ólafur mér í kaffi heim til sín, og oft fleirum af okkur skólafélögun- um. Móðir Ólafs tók okkur opn- um örmum, sem bezta móðir væri og svo var það jafnt síðasta dag- inn, sem hinn fyrsta, þessa tvo vetur sem við vorum í skólanum. 1 Alla tíð síðan, meðan foreldrar Ólafs lifðu létu þau sér annt um velgengni okkar skólafélaga og fylgdust af áhuga með því hvern ig okkur vegnaði. Að loknu námi, sem Ólafur lauk með ágætum, fór hann á skip Eimskipafélags Islands og var stýrimaður á e.s. Dettifossi, er hann var skotinn niður norður af íslandi, í síðustu heimstyrjöld. Árið 1947 var Togaraafgreiðsl- an stofnsett og hætti Ólafur þá til sjós og tók að sér að veita henni forstöðu fyrstu 9 árin eða til 1956, er hann réðist til Lands- símans, þar sem hann starfar nú. Allir sem til þekkja, vita hve ónæðissamt það starf var og er að sjá um afgreiðslu íslenzku tog aranna og svo til viðbótar því að vera að byggja upp togaraaf- greiðslu og koma henni á fastan starfsgrundvöll, bættist uppskip- un Hvalfjarðarsíldarinnar með öllu því aukna starfi, sem við það skapaðist. Þetta allt tókst Ólafi að leysa, með hinni mestu prýði, enda er hann mjög vel til þess fallinn, að taka að sér erilsöm og erfið verk- efni vegna skapgerðar sinnar og góðrar framkomu. Kvæntur er Ólafur Benediktu Þorláksdóttur hinni ágætustu konu og eiga þau tvær mann- vænlegar dætur, Ólafíu Hrönn og Gerði, báðar Uppkomnar. Mér er óhætt að fullyrða, að margur leggur leið sína að Hof- teigi 10 í dag, því þar ræður vinsæll maður húsum. Gamli skólabróðir og vinur! Ég árna þér og fjölskyldu þinni allra heilla á afmælisdaginn og þakka þér margra ára gott sam- starf í stjórn Stýrimannafélags íslands. Lifðu heill! Theodór Gíslason, sbrifar úr dagleqa lífinu Óbyggðaferðir vinsælar ÞAÐ virðist sífellt færast í vöxt að bæjarfólk fari í sumarleyf isferðir inn á hálendið, ýmist i bílum eða ríðandi. Á síðari ár- um hafa ferðaskrifstofurnar og aðrir skipulagt slíkar ferðir cg gert óferðavönum einstaklingum þar með auðveldara fyrir um að komast inn í óbyggðir. Sjálfsagt eiga betri ferðabílar og betri ferðaútbúnaður sinn þátt í þess- um aukna áhuga fyrir fjallaferð- um. Þegar rætt er um slík ferðalög má ekki gleyma Ferðafélagí ís- lands, sem í þessum efnum hefur unnið ómetanlegt brautryðjsnda- starf. Um þetta leyti árs er einmitt hentugasti timinn til öræfaferða, fjallvegir orðnir sæmilega fær- ír og dagurinn enn langur. Ný- lega áti ég tal við ferðaflokk, sem leggur upp eftir rúma viku- í þriggja vikna ferðalag um ör- æfin, með fyrsta áfanga i Veiði- vötnum. Þessi flokkur var að gera innkaup og ákveða hvað borða skyldi á hverjum degi. Þa vakn- aði mikilvæg spurning: Átti ferðafólkið að vanda að borða dósamat kvöldið sem það stanz- aði við Veiðivötn og horfa á sil- unginn leika sér í vatninu á með- an það tyggði kjötið? Það bótti illur kostur. Eða var hægt að fá leyfi hjá einhverjum aðila til að veiða nokkra silunga í svang- inn? Mönnum kom saman urn að | eftir blaðafregnum að dæma I væri hvergi slík leyfi að tá. Aft ; ur á móti ættu ferðalangarnir | á hættu að verða dregnir fyrir lög og dóm í Reykjavík, ef þeir j fengju sér í soðið og þá yrði lítið úr vel undirbúnu ferðalagi Já, það er vissulega hart að þurfa að borða dósamat við Veíðivötn. xiesturinn orðinn hállfgerð lúxusskepna. HESTURINN getur líklega tæp lega lengur talizt þarfasti þjónninn, hann er orðinn hálf- gerð lúxusskepna — og það eftir sótt lúxusskepna. Nú er greini- lega að vakna aftur áhuei fyrir útreiðum hér á landi. Bæði er það, að fleiri bæjarmenn en áður munu nú eiga hesta og skreppa á bak í frístundum sínum, og fleiri ferðamenn fara ríðandi um landið i sumarfríinu sínu. Sumir koma sér líka fyrir í Varmahlíð í Skagafirði eða á Varmalandi í Borgarfirði, og leigja sér þar hesta til útreiða á daginn. Ég brá mér sjálfur á hestbak um daginn og áhuginn var meira að segja svo mikill að ég lét mér ekki nægja minna en 11 tíma hoss, reið úr Gnúpverjanreppn- um og inn að Stöng í Þjorsárdal og til baka sama daginn. Hafið þið nokkurn tíma séð blaðamann standandi við ritvélina sína? Sú mynd sveif fyrir hugskotssjónum mínum alla leiðina, með þeim af- leiðingum að ég ákvað að verja botninn fyrir áföllum extir því sem frekast væri kostur ,og hafði þvíiíka tilburði við að haida hest inum á töltinu seinni hluta ferð- arinnar, að ég tók út við að vél- rita allan næsta dag — vegna eymsla í öxlunum. Já, það er margt vítið að varast. Börnin og barnaheiinilin. UM daginn kvartaði kona noxk- ! ur yfir þeirri meinsemi dag- 1 heimilanna í Reykjavik, að leyfa utanaðkomandi börnum ekki að leika sér á leikvöllunum, þegar þeir væru ekki notaðir af öðrum. j Nú hefur Velvakandi fengið of- urlitla skýringu á málinu hjá for- stöðukonu eins dagheimilisins. Sagðist hún stundum leyfa börn- um að koma inn á sinn leikvöll, ef hún væri heima við eða mætti vera að því að fylgjast með þeim. Aftur á móti sýndi reynslan, að engin leið væri að leyfa þeim að vera þar einum. Þau skemmdu leikföngin, brytu perur og rifu niður girðinguna, bæru burtu það sem lauslegt er og jafnvel hefði komið fyrir að brotizt hefði verið inn í lokaðan skúr um helgi til að ná í leikföng þar. Ekki væri óhætt að skilja neitt lauslegt eftir úti, meðan barnaheimilis- börnin drykkju síðdegismjólkina sína, nema þess væri gætt. Hún kvaðst ekkert hafa á móti því, að litlu greyin fengju að leika sér á völlunum, en það yrði bara að gæta þeirra þar. Starfsfólkið gæti ekki tekið það að sér í frístund- um sínum. Það yrði einhvern tima á fá frið. Skógræktarför i Þórdisarlund HIN árlega gróðursetningarferð Skógræktarnefndar Húnvetninga félagsins í Þórdísarlund í Vatns- dalshólum, var farin laugardag- inn 14. júní s.l. og lokið við að gróðursetja þá um kvöldið. Um helgina næst á undan fór Kristmundur J. Sigurðsson fyrir hönd skógræktarnefndar norður, til að láta laga tvö stórþýfð stykki í lundinum, sem gróður- sett var nú í. Hjálpuðu honum bændurnir Halldór Jónsson, Leys ingjastöðum, Ingþór Sigurðsson, Uppsölum og Pétur Ólason, Mið- húsum. Þessir sömu bændur hafa alltaf frá því byrjað var að gróð- ursetja í lundinum unnið að því með skógræktaiíiópnum að sunn- an, börn þeirra og starfsfólk hafa einnig unnið að gróðursetn- ingunni. Kristján Vigfússon bóndi í Vatnsdalshólum hefur alltaf gefið áburð til að setja með plöntunum og' flutt hann í lund- inn. Unglingar, sem hjá honum voru, unnu að gróðursetningunni. Þessir sæmdarbændur hafa lánað áhöld, sem þurft hefur til gróðursetningarinnar og veitt skógræktarnefndinni margs kon- ar fyrirgreiðslu og skógræktar- fólkinu höfðinglegar móttökur. Ingþór Sigurðsson, sem er um- sjónarmaður með lundinum, hef- ur lagfært girðingu lundarins, er þurft hefur og einnig hlúð að plöntum að vorinu og vökvað, ef þurrkar hafa gengið fyrst eftir gróðursetningu, allt án endur- gjalds. Garðyrkjumennirnir Agn- ar Gunhlaugsson og Pétur Ágústs son hafa annast um plöntuval og leiðbeint um gróðursetningu. Er gróðursetningu var lokið bauð Halldór Jónsson skógrækt- arfélögunum að sunnan ásamt öðrum, sem að gróðursetningunni unnu, heim til sin. Er það í fjórða sinn, sem skógræktarfólkið situr í boði hans og konu hans, Oktovíu Jónasdóttur. Var setið í góðum fagnaði fram eftir kvöldinu Vill skógræktarnefndin og skóg græðslufélagarnir að sunnan, færa öllum, sem unnu með þeim, sínar beztu þakkir og hjónunum á Leysingjastöðum fyrir framúr- skarandi móttökur, svo og öðr- um, sem þeir heimsóttu. Einn úr hópnum. Ólafur Tómasson stýrim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.