Morgunblaðið - 11.07.1958, Page 14
14
MORarwnr 4ðið
Föstudagur 11. júlí 1958
I kvöld er fyrsti leikur úr-
valsliðsins frá Sjálandi
Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum
I KVÖLD fer fram fyrsti leikur-
inn í heimsókn úrvals danskra
knattspyrnumanna frá Sjálandi.
Kom liðið hingað í gær í boði
Fram, sem kunnugt er fara Fram
arar með liðinu utan og leika 4
leiki á Sjálandi.
Ungir menn og reyndir
Sjálenzka úrvalsliðið er skipað
ýmsum kunnum dönskum knatt-
spyrnumönnum, bæði úr hópi
hinna reyndari og eins ungum
mönnum sem vakið hafa mikia
athygli og komist í unglinga-
landslið og úrvalslið. Danirnir
hafa hér í blaðinu verið kynntir,
en í kvöld gefst tækifæri til að
sjá þá í reynd.
Síðast er sjálenzkt úrvalslið var
hér á ferð vann það alla sína
leiki. Hvort sem svo verður nú
eða ekki má búast við góðum
leikjum.
Fokheldar íbúðir
tvær fokheldar íbúðir 132 ferm. að stærð til sölu, á góð-
um stað í Hraunsholti við Hafnarfjörð. Kjallari með
bílgeymslu. Verð kr. 145 og 175 þús.
GUÐJÓN STEINGRlMSSON hdl.
Reykjavíkurvegi 3, Hafnarfirði. — Sími 50960.
Gunnar Huseby er fyrsti íslend-
ingurinn í ár semv arpar 16 m,
en það er árangur sem FRÍ krefst
til þáttöku í EM
Opnum ■ dag
VERZLIJIM
að Ægisgötu 10 með hvers konar olíukynditæki vaira-
hluti til þeirra. Ennfremur fiöl margar af hinum viðurkenndu
Shell framleiðsluvörum í smærri umbúðum, Flintkote, Shell-
gas og Shellgastæki.
G/or/'ð svo vel oð llta ínn
Notið:
Kynnið yður verð
Shellsmurningsolíur i og gæði:
og
Sheilgus
Vulkun-ketilsins
09
nuuninuuaiq-ioqoinqx
Olíufélagið Skeljungur hf.
Huseby náði tilskildum
árangri til þáttöku í EM
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN okkar
virðast nú komnir í góða æfingu,
flestir, ef dæma má eftir árangri
þeim, sem náðist á fyrra degi ÍR-
mótsins, en þrátt fyrir óhagstætt
veður og þungan völl.
Mesta athygli vakti okkar
gamalkunni Evrópumeistari,
Huseby, en hann hefur ekki ver-
ið í betra formi síðan 1950, er
hann setti metið (16.74) og er
það nú í yfirvofandi hættu.
Huseby varpaði nú nákvæm-
lega þá lengd, sem tilskilin er
sem lágmark fyrir E. M. 1 síð-
asta kastinu var mestur kraftur
(15.61), en jafnvægi skorti í út-
kastið.
Hilmar sýndi, að hann er enn
í framför og þrátt fyrir óvenju
slæmt start, náði hann góðum
tíma. Guðjón var á undan fyrstu
metrana og hélt nokkuð vel í
framan af, en Hilmar „stakk af“
á síðustu metrunum.
400 m. hlaup:
1. Svavar Markússon KR 50.1
2. Hjörtur Lárusson KR 51.8
3. Björgvin Hólm ÍR 52.0
Sleggjukast: m
1. Þórður B. Sigurðsson KR 49.67
2. Jóhannes Sæmundss. KR 34.11
Kúluvarp: m
1. Gunnar Huseby KR 16.00
Hástökk:
1. Jón Pétursson KR 1.90
2. Sig. Lárusson Á 1.80
3. Heiðar Georgsson ÍR 1.80
Tugþraut (fyrri hluti).
1. Pétur Rögnvaldsson (11.3 —
6.68 — 13.15 — 1.70 — 54.0)
= 3412 stig.
K-o-r-m-á-k-r.
Meistaramót
Hástökkið er að koma til, en
sú grein hefur verið hálfgert
„gat“ og aldrei fyrr notið veru-
legrar breiddar. Það er því vissu-
lega ánægjulegt að sjá þrjá menn
fara yfir 1.80 m og einn þar af
yfir 1.90 m. Jón er enn í fram-
för og líklegur til að fara hærra
í sumar.
Sigurður Lárusson hefir mik-
inn kraft ,en nýtir hann ekki rétt.
Hann getur strax stokkið mun
hærra með bættri atrennu.
Einar Frímannsson sigraði í
langstökkinu og var nú öruggari
á plankann en áður, en það hef-
ur hingað til verið hans stærsti
galli, hversu óviss hann er jafnan
og gerir oft ógilt. Einar hefur
nægan kraft til að stökkva yfir
7 metra ,ef hann æfir reglulega.
Arangur Péturs í fyrra hluta
tugþrautarinnar er mjög góður
og sennilegt, að hann nái 6000
stigum ef veður hamlar ekki.
Úrslit í einstökum greinum.
100 m. hlaup: sek.
1. Hilmar Þorbjörnsson Á 10.5
2. Guðjón Gyðmundsson KR 11.1
3. Björgvin Hólm ÍR 11.5
Langstökk: m.
1. Einar Frímannsson KR 6.75
2. Helgi Björnsson IR 6.44
3. Ólafur Unnsteinsson ölf. 6,42 í
Reykjavíkur
Boðhlaup Meistaramótslns,
4x100 m boðhlaup og 4x400 m
boðhlaup, fara fram á íþrótta-
vellinum þriðjud. 15. júlí n. k.
kl. 8.30 e. h.
Aðalhluti Meistaramótsins fer
fram á Melavellinum laugardag-
inn 19. og sunnudaginn 20. júlL
A laugardag er keppt í þessum
greinum:
200 m, 800 m og 5000 m hlaup-
um, 400 m grindahlaupi, há-
stökki, langstökki, kúluvarpi og
spjótkasti.
A sunnudag er keppt í þessum
greinum:
100 m, 400 m og 1500 m hlaup-
um, 110 m grindahlaupi, stangar-
stökki, þrístökki, kringlukasti og
sleggjukasti.
Mótið er stigakeppni milli
Reykjavíkurfélaganna, og eru
reiknuð stig fyrir 6 fyrstu menn.
Það félag, sem flest stig vinnur,
hlýtur sæmdarheitið: Bezta frjáls
íþróttafélag Reykjavikur 1958.
Það félag, sem flest stig fær fyrir
boðhlaupin ,hlýtur farandbikar,
sem gefinn var af Kristjáni L.
Gestssyni.
Þátttökutilkynningar ber a8
senda Þórði B. Sigurðssyni í
Pósthólf 215, Reykjavík, í síðasta
lagi þann 14. júlí n. k.
Hérgreiðslustofa til sölu
Ein af stærstu hárgreiöslustofum í bænum til sölu
ef viðunandi tilboð fæst. Verð og greiðsluskilmálar
eftir samkomulagi. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir mánudagskvöld merkt: „Hárgreiðslustofa í
miðbænum — 6438“.
1 Skrifstofustúlka
vön vélritun, ósKast. Umsóknir með upplýs-
ingum um fyrri störf skulu vera komnar á skrifstof-
ur vorar fyrir 15. þ.m.
tJTFLUTNNSSJÓÐUR
LÓÐ
á mjög góðum stað í bænum til sölu, ásamt teikn-
ingum og ýmsu fleiru. Ákjósanlegur staður fyrir
léttan iðnað eða verzlun á neðstu hæð. Miklir mögu
leikar fyrir peningamenn. Tilboð sendist Morgun-
blaðinu fyrir 13. þ.m. merkt: „Lóð — 64$0“.
i
i Ungur skrifstofumauur óskast
! Útflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða ungan mann á
skrifstofu nú þegar til vélritunarstarfa o. fl. Umsókn er
tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins merkt: „B — 6440“ fyrir helgi.