Morgunblaðið - 11.07.1958, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.07.1958, Qupperneq 16
V EÐRIÐ Austan gola. Dálítil rigning fram eftir nóttu. Skýjað, úrkomulaust 154. tbl. — Föstudagur 11. júlí 1958 ' .. — 1 "TT” —1 1 “ 11 Halfu mér — slepptu mér. — Sjá bls. 6. Helmingur kartöflufarmsins reyndist gerónýtur KARTÖFLULEYSIÐ hefur verið mál málanna undanfarnar vik- ur. Var það von manna, að það yrði farsællega til lykta leitt nú um helgina, en nú hefur sannazt í því máli, að sjaldan er ein bár- an stök og lengi getur vont versn að. Hið langþráða og margumtal- aða kartöfluskip lagðist að bryggju hér í Reykjavík í gær. Var það nokkru seinna en ráð hafði verið fyrir gert í upphafi, því að eins og lesendum Mbl. mun kunnugt hefur skipið tek- ið á sig krók á leiðinni og tafizt af fleiri sökum. M.a. tók skipið á sig krók til Gautaborgar að sækja vélar, sem raðað var á þilfar. En þegar fagnandi hendur kartöfluhungraðra verkamanna iyftu hlerum af lestinni i ðdegis í gær lagði á móti þeim hinn versta fnyk. Er ekki að orðlengja af hverju sá óþefur stafaði, og er betur var að gáð reyndist um helmingur kartöflufarmsins ger ónýtur. Eins og kunnugt er var Dísarfellið með 400 tonn af nýj- um kartöflum frá Belgiu, og fara nú 200 tonn beina leið í sjóinn. Eins og skýrt hefur verið frá hafði Samband smásöluverzlana ákveðið að skammta þessi 400 tonn, sem til landsins komu, en fullvissuðu fólk jafnframt um að engin ástæða væri að óttast-kar- töfluskort framar á þessu sumri. Er leiðinlegt að verða að skýra Farmannadeilan Sáttasemjari boðaði fund í far- mannadeilunni kl. 9 í gærkvöldi, en laust fyrir miðnætti hafði ekk- ert komið fram, sem benti í sam- komulagsátt. Hjónaband Ingi- rióar og Rossel- linis ógilt RÓM, 10. júlí. — NTB — Reuter. — Hjónaband kvikmyndaleik- konunnar Ingiríðar Bergmann og kvikmyndaleikstjórans Roberto Rossolini var í dag úrskurðað ógilt af ítölskum dómstól, þar sem skilnaður Ingiríðar við fyrri mann sinn, Lindström lækni, hafi ekki verið löglegur, er hún gift- ist Rossolini. Ef úrskurðinum verður ekki áfrýjað innan mán- aðar, getur Ingiríður gengið að eiga leikritaútgefandann Lars Schmidt. GENF, 10. júlí. — NTB — Reuter. í dag komu kjarnorkusérfræðing- ar austur og vesturs saman til fundur í Genf í áttunda sinn. í tilkynningu, er gefin var út að fundinum loknum, segir, að sér- fræðingarnir hafi í niðurstöðum sínum orðið sammála um hag- kvæma notkun hljóðbylgja til að uppgötva kjarnorkusprengingar. frá því, að sú fullyrðing stendur ekki lengur, og væntanlega verð. ur hinn áætlaði skammtur helm- ingi minni en til stóð. Mbi. er kunnugt um verzlun hér í bæ, sem átti von á 25 kartöflupokum, en fær nú aðeins 12. Þess er að vænta að Grænmetis verzlun ríkisins muni gera gang- skör að því, að upplýsa hvernig á þessu stórtjóni stendur og húort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það, og ef svo er, hver ber ábyrgð á því. Þoldu kartöflurnar ekki Krók- inn, sem skipið tók til Gauta borgar? Eða var frágangur í lest ekki sem skyldi? Eða voru þessar kartöflur ekki það þroskaðar, að þær þyldu flutning landa í milli? Það eru litlar en sanngjarnar sárabætur fyrir allan almenning, ef greið svör verða gefin við þessum spurningum, og rannsak- að til hlítar hvers vegna helm- ingurinn af kartöflufarminum gerónýttist. Á þessum síðustu og verstu tímum er ekkert ánægju- efni að eyða gjaldeyri í kaup á vöru, sem kastað er í sjóinn. Héraðsmót Sjálfsfœðis- manna í Dalasýslu HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Dalasýslu verður haldið í Búð- ardal annað kvöld og hefst kl. 8. — Ræðumenn á héraðsmótinu verða þeir alþingismennirnir: Jon Pálmáson og Friðjón Þórðarson. Skemmtiatriði annast listamennirnir: Kristinn Hallsson, Ævar Kvaran, Steinunn Bjarnadóttir og Fritz Weisshappel. Flytja þau ieikpátt og syngja einsöng og tvísöng og fara með gamanvísur. Að síðustu vtrður svo stiginn dans. HAFNARFIRÐI — Hér gefur að líta tvö líkön eða módel, sem ungur bifreiðastjóri á Nýju bíla- stöðinni, Magnús Kristinsson, vann að þar á stöðinni milli þess Sæmilegar horfur á samkomulagi EINS og kunnugt er af fréttum höfðu mjólkurfræðingar boðað verkfall á miðnætti í nótt sem leið, ef ekki hefði náðst sam- komulag fyrir þann tíma. Hófst fundur með aðilum kl. fimm síðd. í gær og stóð hann enn er blaðið fór í prentun laust fyrir mið- nætti. Síðast er fréttist af fund- inum á tólfta tímanum í gær- kvöldi voru taldar sæmielgar líkur á að samkomulag næðist. 100 þús. kr. á heil- miða í happdr. Hásk. í GÆR var dregið í 7. flokki Happdrættis Háskólans. Hæsti vinningur kom á nr. 31116, heil- miða sem seldur er á Akureyri. Næsthæsti vinningur 50 þús. kr. kom á miða 10658 sem er hálf- miði seldur hjá Helga Sivertsen og hjá Frímanni í Reykjavík. 10 þús. kr. vinningar komu á miða 7670, 9000, 15826, 18724, 32107 og 32342. — 5 þús. kr. komu á miða 257, 1955, 2358, 11133, 21541, 26436, 28458 og 32530. Norrœnu póstmálaráð- stefnunni lokið NORRÆNU póstmálaráðstefn- unni, sem haldin hefir verið á Islandi, lauk í dag. Rædd voru ýmis póstmál, sem sameiginleg eru Norðurlöndunum fimm. en höfuðviðfangsefni ráðstefnunnar var uppkast að samningi varð- andi norræna póstmálasamband- ið, sem danska póstmálastjórnin gerði Gert er ráð fyrir að hinn nýi samningur komi í stað þess, sem gerður var árið 1946. Um- ræður um þetta mál leiddu í ljós, að fulltrúar þátttökulandanna voru í meginatriðum sammála um nýja samninginn. Rætt var um loftpóstmál við fulltrúa frá Flug- félagi íslands, Loftleiðum og Skipin að fara út SIGLUFIRÐI 10. júlí. — í dag hefur veður batnað og sjór geng- ið niður, en ekki hefur hlýnað. Skipin hafa verið að fara út í dag, en engar fréttir hafa borizt um að síld hafi sézt. Á lóðningu hefur orðið vart við síld 10—15 mílur út af Siglufirði. — Guðjón. Eldur í fiskimjölsverk- smiðjunni á Eyrarbakka SELFOSSI, 10. júlí. í morgun kom upp eldur í fiskimjölsverk- smiðjunni á Eyrarbakka 'Slökkvi Skákmótið: íslendingar í B-riðli Töpuðu fyrir Albönum með 1 v gegn 3 SAMKVÆMT fréttum, sem bor- izt hafa af stúdentaskákmótinu, sigruðu Albanir íslendinga í fyrradag með 3 vinningum gegn einurn. Úrslit einstakra skáka urðu sem hér segir: Pustina og Freysteinn gerðu jafntefli. Durali vann Stefán. Omari vann Braga. Siligi og Árni gerðu jafntefli. íslendingar hafa því fengið 2 Vz vinning eftir leikina við Bulgaríu Bandaríkin og Albaníu. Munu ís- lendingar því tefla í B-riðli, en þar tefla að auki Albanía, írland, Svíþjóð, Holland, Rúmenía, Mong olia og Pólland. íslendingar tefla fyrst við íra. liðið kom strax á staðinn og tók nokkurn tíma að ráða niðurlög- um eldsins. Kviknað hafði i hum- armjöli því, sem verksmiðjan hefur verið að framleiða undan- farnar vikur. í mjölhúsinu voru um 50 tonn af mjöli og skemmdist meira en helmingur þess. Einnig brann húsið sjálft töluvert að innan, allar rafmagnsleiðslur ónýttust, en trúlegt að allar vélar verksmiðjunnar hafí sloppið ó- skemmdar. Er verksmiðjan óstarfhæf um ófyrirsjáanlegan tíma. Vigiús jónsson, framkvæmdastjóri, taldi öruggt, að um sjálfsíkveikju væri að ræða, enda er mjölinu, sem verksmiðjan framleiðir, mjög hætt við íkviknun, vegna þess hve feitt það er. Ekkj er vitað hve mikiu tjónið nemut. — G G. SAS. Þá var og rætt um nánari samvinnu póstmálastjornanna á sviði tækninnar. Var litið svo á, að norrænu póstmálastjórnirnar gætu aðstoðað hver aðra og skipzt á reynslu. Næsta reglulega norræna póst- málaráðstefna verður haldm í Danmörku. Da Silva vann - 15,62 EINVÍGI þeirra da Silva og Vilhjálms Einarssonar lauk með sigri da Silva er stökk 15.62 m. en Vilhjálmur 15.42. Margt var áhorfenda en veður óhagstætt. ísl. meistari í tugþraut varð Pétur Rögnvaldsson er hlaut 6116 stig. Hilmar tognaði í 200 m hlaup- inu en sigurvegarar urðu: Svavar Markússon í 1500 m hlaupi 3:53,5; Valbjörn Þorláks- son í stangarstökki 4,20 m, Jóel Sigurðsson í spjótkasti 57,52 m. Friðrik Guðmundsson í kringlu- kasti 46,86 m, Þórir Þorsteinsson í 200 m hlaupi 23,1, Guðjón Guð- mundsson í 400 m gr.hl. 55,0. sem hann var kallaður út 1 akst- ur. Eru þau bæði úr krossviðar- plötum, sem hann hefir ýmist tappað eða límt saman, en það er mjög seinlegt og vandunnið verk. Við smíði þessara módela, sem gerð eru eftir teikningu 1:50 að stærð ,hefir Magnús einungis not- að útsögunarsög, hníf og platínu- þjpl, er hann hefir í bílnum sín- um. En þrátt fyrir fá og ófull- komin verkfæri, eru bæði módel- in mjög vel úr garði gerð og bera vott um mikinn hagleik. — Bæði eru þau máluð af mikilli smekkvísi af Magnúsi, en hann er málarameistari að mennt og stundaði þá iðn, þar til fyrir nokkrum árum að hann varð sök- um vanheilsu að láta af þeim störfum. Húsin, sem módelin eru af, eru Sjónarhóll við Reykjavíkurveg og hús, er Magnús hefir í smíðum- um í Arnarhrauni. Bifreiðasmiðir fá kjarabætur í GÆR tókust samningar milli Félags bifreiðasmiða og Sam- bands bílaverkstæða á íslandi, en bifreiðasmiðir höfðu sagt upp samningum. Samkvæmt hinum nýju samningum fá bifreiðasmið. ir sömu kjarabætur og bifvéla- virkjar og járnsmiðir fengu, er þeir sömdu við vinnuveitendur 4. júlí sl. Samningarnir voru und irritaðir með venjulegum fyrir- vará, þ. e. með því skilyrði að félagsfundur bifreiðasmiða og Vinnuveitendasamband íslands samþykki þá. Hin árlega ökuferð með gamla fólkið á morgun EINS og lesendur Mbl. ef til vill minnast kom Víkverji þeirri hug mynd á framfæri fyrstur manna, að íslenzkir bifreiðaeigendur gleddu gamalt fólk með því að bjóða því í ökutúra. Undanfarin ár hefur Félag íslenzkra bifreiða- eigenda gert þetta og verður svo einnig í ár. Verður ekið með gamla fólkið suður til Keflavíkur flugvallar á morgun og .nun log- reglustjórinn á Keflavíkurflug- velli sjá svo um, að fólkinu gefist kostur á að skoða völlinn og ýmis mannvirki þar Félagsmenn, sem hafa aðstöðu til að fara þessa ferð eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins sem er opin kl. 1—4, sími 15659 og eftir kl. 6 í síma 33588 og síma 32818. Einnig vill félagið beina því til annarra bifreiðaeigenda, að aka gamla fólkinu, ef þeir hafa tæki_ færi til. Sumarferð Varðar ÁKVEÐIÐ er að hin árlega sumarferð Varðar verði að þessu sinni farin sunnudaginn 27. júlí n. k. Nánar auglýst síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.