Morgunblaðið - 27.07.1958, Side 1
20 siður og Lesbok
wMotíp
45. árgan^w
168. tbl. — Sunnudagur 27. júlí 1958
frcntsmiðia Morgunblaðsins
Svar Macmillans í sama
anda og bréf Eisenhowers
LUNDÚNUM, 26. júlí. — Búizt
er við því, aS Macmillan sendi
Krúsjeff svar sitt um ríkisleið-
togafund í öryggisráðinu síð-
degis í dag. Ekki er vitað um
efni svars Macmillans, en frétta-
menn segja, að það sé í sama
anda og bréf Eisenhowers Banda
ríkjaforseta ,sem birt var í gær.
Eins og kunnugt er, lýsti Banda-
ríkjaforseti því yfir, að nauðsyn-
Ræða við fiilltrúa SS>
BEIRUT, 26. júlí: — Murphy
hefur átt viðræður við fulltrúa
S.Þ. í Líbanon. Áður vildu fuil-
trúarnir ekki tala við Murphy
og aðstoðarmenn hans, því að
þeir sögðust ekki hafa heimild
til að ræða við aðra en Líbanons
menn. Nú hafa þeir sennilega
fengið ný fyrirmæli í þessum
efnum.
legt væri, að fundur „toppanna“
væri rækilega undirbúinn í
Öryggisráðinu. Jafnframt segir
Eisenhower, að ekki verði unnt
að efna til fundarins á mánu-
dag, það sé of stuttur tími til
undirbúnings.
Búizt er við, að franska stjórn-
in afhendi Ráðstjórninni svai'
sitt í dag.
VIII leysa þing-
mennina úr haldi
BEIRUT, 26. júlí: — Forseti
þingsins hefur krafizt þess, að
stjórnin láti lausa 5 þingmenn,
sem handteknir voru fyrir að-
stoð við uppreisnarmenn. Segir
forsetinn, að menn þessir verði að
fá tærkifæri til að taka þátt í for-
setakosningunum á fimmtudag-
inn kemur.
Hussein vígreifur —
œtlar að frelsa Irak
ÞaB eru kammúnistar, en ekki þjóðerns-
sinnar sem við eigum í höggi við, segir hann
LUNDÚNUM — Hussein konungur hefur sagt í samtaii í
Drezka sjónvarpinu, sem tekið var í Amman, að hann hefði
vonii um að ná aftur völdunum í írak, en sem kunnugt er.
vai hann varakonungur landsins, á meðan írak og Jórdanía
voru í ríkjasambandi. „Ég mun gera allt sem í mínu valdi
stendur til að koma á aftur friði og reglu í irakska hluta
konungdæmis míns“, sagði hinn ungi konungur.
feni, sem landið er fallið í —
hinu kommúníska feni. And-
stæðingar okkar eru ekki ara-
bískir þjóðernissinnar, heldur
flugumenn kommúnista, sem
hafa það eitt takmark að gera
Arabalöndin að rússneskum
sagði konungurinn
Þegar konungur var að því
spurður, hvernig hann hygðist
frelsa írak, sagðist hann ekki
vilja um það ræða af öryggis-
ástæðum. Við ráðfærum okkur
við vini okkar í hinum frjálsu
löndum, sagði konungur, og ekki
mun líða á löngu áður en við
höfum bjargað írak upp úr því
leppríkjum,
að lokum.
— Syrgjandi prinsessa —
Fazile beið eftir Feisal - en hann kom ekki
LUNDÚNUM. — Það hvílir öm-
úrlegur svipur yfir gömlu herra-
setrj í Surrey í Englandi. Glugga
tjöld hafa verið dregin niður og
húsið stendur tómt og eyðilagt.
Yfir því hvílir sorg. Þetta hús
er herragarður íröksku konungs-
fjölskyldunnar. Það var hér, sem
Feisal konungur hugðist hitta
ástmey sína um síðustu helgi.
Hún heitir Fazile prinsessa og
er aðeins 17 ára gömul.
Hinn ungi konungur íraks ætl-
aði að fara til Lundúna éftir Bag
dadfundinn í Tyrklandi. En hann
kom ekki eins og allir vita.
Komnir lil Lundúna
LUNDÚNUM, 26. júlí. — Mac-
millan tók í morgun á móti for-
sætisráðherra írans á Lundúna-
flugvelli. Forsætisráðherrann er
kominn til Lundúna að sækja
fund Bagdad-bandalagsins, sem
hefst þar í borg á mánudag. Full-
trúar Tyrkja og Pakistansmanna
koma til Lundúna á morgun, en
Dulles kemur til Lundúna í kvöld
frá Bonn, þar sem hann hefur
rætt við Adenauer kanslara
í síðustu viku lauk prinsessan
skólagöngu sinni í Heapfield við
Ascot, sem er einn bezti kvenna-
skóli Bretlands. Þau Feisal hugð
ust eyða nokkrum dögum í Eng-
landi, en eins og kunnugt er,
hafði konungur miklar mætur á
því landi, enda hlaut hann mennt
un sína í Harrow. f síðustu viku
ætlaði konungurinn svo að fljúga
aftur til Bagdad og prinsessan
heim til sín, en hún býr í Tyrk-
landi. í haust átti svo að gefa
þau saman í hjónaband. Skömmu
eftir að tilkynnt hafði verið um
byltinguna í Bagdad, kom prins
Said el Hussein, sem er frændi
Frh. á bls. 15.
Þessi mynd var tekin nýlega af þeim Ingrid Bergman og Lars Schmidt. — Þau dveljast í sumar
á klettaey nokkurri fyrir utan Gautaborgar-sker jagarðinn — og bíða eftir því, að Ingrid fái
skilnað. Þau ætla nefnilega að gifta sig við fyrsta tækifæri og fréttamenn segja, að Ingrid hafi
ekki hlegið eins mikið undanfarin fimm ár og hú n gerir nú á einni viku. Hún virðist sem sé Vera
— hamingjusöm. Og augljóst er, að hún er ákaf lega hrifin af Lars sínum. — í samtali við blaða-
mann frá Dagens Nyheter sagði Ingrid nýlega: „Líf mitt hefur verið dásamlegt ævintýri“.
Dulles í Borrn, ræðir þar vib
Adenauer um heimsmálin
V-þýzka stjórnin fylgir banda-
mönnum sinum af festu
f SAMBANDI við heimsókn heldur erfitt um vik með að
Dulles, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til Bonn, skrifar Björn
Heimar, fréttaritari Aftenpostens
þar í borg fréttagrein í blað sitt.
Fréttaritarinn segir, að Dulles og
Adenauer muni hittast í Bonn
til að ræða um deiluna í Aust-
urlöndum nær. Bandaríski utan-
ríkisráðherrann, sem um helgina
á að taka þátt í ráðstefnu Bagdad-
bandalagsins í Lundúnum, kem-
ur í skyndiheimsókn til vestur-
þýzka höfuðstaðarins og verður
þar aðeins í nokkrar klukku-
stundir. í opinberri tilkynningu
hefur verið skýrt frá því, að báð-
ir aðilar, Bandaríkjamenn og
Vestur-Þjóðverjar, leggi mikið
upp úr því, að Dulles og Aden-
auer hittist persónulega. Skömmu
áður en opinber tilkynning hafði
verið gefin út um það í Bonn,
að Dulles mundi heimsækja borg-
ina, var birt yfirlýsing vestur-
þýzku stjórnarinnar um afstöðu
hennar til deilunnar í Austurlönd
um nær. Yfirlýsingin varð ekki
til fyrr en eftir langar og erfiðar
fæðingarhríðir, enda munu stjórn
málamensirnir í Bonn hafa átt
semja hana. Vestur-þýzka stjórn-
in segir í yfirlýsingunni, að hún
styðji aðgerðir Bandaríkjamanna
og Breta í Libanon og Jórdaníu
enda eru Vestur-Þjóðverjar
bandamenn fyrrgreindra ríkja.
En jafnframt segist stjórnin vera
þeirrar skoðunar, að hún efist
um, að Rússar hafi einlægan á-
huga á því að deilumálin verði
leyst.
í þessari yfirlýsingu stjórnar-
innar eru mörkuð allmerkileg
tímamót. Bonn hefur nefnilega
lýst því yfir frá fyrsta degi deil-
unnar, að Adenauer og aðstoð-
armenn hans væru algerlega hlut
lausir í þessari deilu og myndu
ekkert um hana segja. Þó héldu
góðir heimildarmenn því fram í
Bonn, að enginn ágreiningur ríkti
milli Vestur-Þjóðverja annars
vegar og Bandaríkjamanna og
Breta hins vegar. Áður en Bonn-
stjórnin gaf út yfirlýsingu sína,
hafði hún setið á fundi í margar
klukkustundir. Adenauer kanzl-
ari sat sjálfur í forsæti á fundi
þessum og áður en hann hófst,
heimsótti brezki sendiherrann í
Framh. á bls. 2
1700 voru settir í fanga-
búðir Brefa á Kýpur
Morðöldinni haldið áfram — 72 myrtir
það sem at er júlí
NICOSÍU, 26. júlí. — Eins
og kunnugt er, hefur ástand-
ið á Kýpur farið hraðversn-
andi undanfarna daga. Brezki
landstjórinn greip til sér-
Þrjú forsetaefni í Líbanon — tveir
fyrrverandi forsetar og herráðsforingi
BEIRUT, 26. júlí. — Þrátt fyrir
þær hótanir uppreisnarleiðtog-
anna, að ekki verði efnt til for-
setakosninga í Líbanon fyrr en
Chamoun hefir sagt af sér og
Bandaríkjamenn eru farnir með
herlið sitt úr landinu, er vonazt
til, að kosningarnar geti farið
fram á fimmtudaginn eins og ráð
gert er. Nú munu þrír menn
koma til gx’eina. Þeir eru: Nacc-
ache, sem var forseti landsins frá
1941—1943, og eftirmaður hans
Khoury. Einnig hefur Sheab for-
seti herráðsins verið nefndur en
hann hefur ekkj lagt kapp á að
verða forseti, því að hann telur
sig hafa sterkari aðstöðu innan
hersins, ef hann lætur stjórn-
mál afskiptalaus.
stakra öryggisráðstafana og
lét handtaka fjölda Kýpur-
búa, einkum af grískum
stofni. Nú segir talsmaður
grísku stjórnarinnar, að Bret-
ar hafi látið handtaka um
1700 gríska Kýpurbúa og auk
þess sitji um 500 í fangelsi,
ákærðir fyrir hermdarverk.
Þá herma fregnir, að morð-
öldin á Kýpur hafi kostað 72
mannslíf á eyjunni það sem
af er þessum mánuði. í gær
var síðasta morðið framið.
Tyrkneskur maður fannst
veginn, en félagi hans hafði
verið særður. Voru grískir
Kýpurbúar hér að verki.