Morgunblaðið - 16.08.1958, Síða 13

Morgunblaðið - 16.08.1958, Síða 13
Laugardagur 1G. ágúst 1958 MORGVNBLAÐIÐ 13 Frá garðyrkjudeild land- búnaðarsýningarinnar á Selfossi Jarðhitasvæðin í Hveragerði og víðs vegar í Árnessýslu, hafa gert það að verkum, að óvíða hér á landi stendur gróðurhúsa garðyrkja með meiri blóma og er í örari vexti, en í þessum sveitum. Þótti því viðeigandi að þessi þáttur landbúnaðarins kæmi fram á afmælissýningu Búnaðarsambands Suðurlands. Það er Garðyrkjubændafélag Árnessýslu, sem stendur fyrir garðyrkjusýningunni, og var Ingimar Sigurðssyni í Fagra- hvammi falið að sjá um fram- kvæmdir vegna sýningarinnar, ásamt þeim Páli Mikkelsen í Hveragerði og E. B. Malmqvist á Stóra-Fljóti. í Árnessýslu eru um 60—65 garðyrkjustöðvar, en þar af lang- flestar í Hveragerði, eða 33. Þá koma Biskupstungur næstar með 17 garðyrkjustöðvar, en hinar eru dreifðar víðs vegar um sýsl- una, svo sem í Hrunamanna- hreppi, Grafningi, Laugardal og víðar. Stærð garðyrkjustöðvanna er frá 400 m2 til 5000 m2. Alls munu um 500 manns eiga lífsafkomu sína undir þessari framleiðslugrein hér í sýslu, að mestu eða öllu leyti. Fyrsta garðyrkjustöðin í Ár- nessýslu var sett á stofn í Hveragerði árið 1929 af Sigurði Sigurðssyni, fyrrv. búnaðarmála stjóra, svo gróðurhúsaræktin í sýslunni er því nær 30 ára, sem atvinnugrein til markaða. Grænmeti, svo sem tómatar, gúrkur, gulrætur og fleira, mun vera ræktað í um % hluta af því, sem ræktað er undir gleri í sýsl- unni, en pottablóm og „afskorin“ í V3 hluta. Alls er gróðurhúsastærðin í landinu rúmlega 30 vallardag- sláttur, en þar af eru um 20 dag- sláttur (?) í Árnessýslu og þó er ekki hagnýttur nema mjög lítill hluti af því heitavatnsmagni, sem í sveitum hennar er. Á þeim garðyrkjusýningum, sem haldnar hafa verið hér á landi óður, og Garðyrkjufélag ís- lands hefur oftast staðið fyrir, hafa garðyrkjuafurðirnar verið sýndar sameiginlega, af garð- yrkjubændum. Á þessari sýn- ingu er tekin upp sú nýbreytni, eins og tíðkast á hliðstæðum sýningum erlendis, að láta hvern framleiðanda sýna afurðir sínar út af fyrir sig. Eftirtalin fyrir- tæki og aðilar taka þátt í sýn ingunni: Sölufélag gar'ðyrkjumanna, Reykjavík, sem sýnir grænmeti frá bændum í Árnessýslu og enn- fremur fræ, jurtalyf, garðyrkju- áhöld og fleira er varðar garð- yrkjuna almennt. — Sem kunn- ugt er starfar sölufélagið sem samvinnufélag garðyrkjubænda víðs vegar á landinu. Annast það sölu og dreifingu til neytenda á garðyrkjuafurðum. Útvegar fræ, lyf, verkfæri og fleira er þarf til rekstrar garðyrkjustöðvanna. Alaska-gróðrarstöðin, Reykja- vík, sem rekur einnig trjáupp- eldisstöð í Hveragerði. Stöðin sýnir trjáplöntur og annað er varðar skrúðgarðarækt. Garðyrkjustöðin Fagrihvamm ur hf., Hveragerði, sýnir rósir. Garðyrkjustöð Guðjóns Sig- urðssonar í Gufudal sýnir afskor- in blóm og pottablóm. Garðyrkjustöð Gunnars Björns sonar, Álfafelli, Hveragerði, sýn- ir pottablóm og afskorin blóm. Garðyrkjustöð Hannesar Arn- grímssonar, Garði, Hveragerði, sýnir pottablóm og afskorin blóm. Garðyrkjustöð l. Christiansens í Hveragerði sýnir pottablóm og afskorin blóm. Garðyrkjustöð Páls Mikkelsens í Hveragerði sýnir blómaskreyt- ingar og pottablóm. Garðyrkjustöð Skafta Jósefs- sonar, Hveragerði, sýnir potta- blóm og afskorin blóm. Þorsteinn Jónsson, vél- virki — minningarorð ÞORSTEINN fæddist í Neskaup- stað 23. ágúst 1934. Foreldrar hans eru hjónin Þór- stína Pálsdóttir og Jón Einars- son, búsett í Neskaupstað. Þorsteinn ólst upp hjá foreldr- um sínum og bjó hjá þeim unz hann stofnaði eigið heimili. Konu sinni, Ólínu Jóhgnnu Hlífarsdótt- ur, kvæntist hann á jólum 1955, og eiga þau tvö börn, Hlífar og Láru Jónu. Ég kynntist Þorsteini, er hann hóf vélvirkjanám hjá Dráttar- brautinni h. f. í Neskaupstað. Hann var kappsamur og ágætlega gefinn og gekk því námið vel. Sveinsprófi lauk hann með ágæt- um vitnisburði haustið 1956. Að námi loknu starfaði hann hjá Drátarbrautinni h.f. og var einn hinn fjölhæfasti og bezti starfsmaður vélaverkstæðisins. Hann var mjög röskur við alla vinnu og ósérhlífinn. Þorsteinn var maður hrein- skilinn og einarður og hélt ótrauð ur fram sinni skoðun. Vann hann sér traust og vináttu allra sam- starfsmanna sinna, og munu þeir oft minnast hans og sakna. Nehru hafnar tillögunni um fastan friðarher SÞ. Vill ekki láta neyða hlutleysi upp á nokkra Arabaþjóð NÝJU DELHI, 14. ágúst. — Reu- ter. — Indverski forsætisráð- hrrann Nehru hafnaði í dag til- lögu Eisenhowers Bandaríkjafor- seta um að koma á fót föstum friðarher á vegum SÞ, er vernda skyldi sjálfstæði ríkjanna í Mið- austurlöndum Hann kvaðst einn ig vera andvígur því, að hlut- leysi væri neytt upp á nokkra Arabaþjóð. Lýsti Nehru yfir þessu í indverska þinginu, þar sem margir þingmenn Congress- flokksins og stjórnarandstöðunn- ar höfðu farið fram á, að hann tæki að nokkru afstöðu til áætl- unar Eisenhowers um lausn vandamálanna í Miðausturlönd- um. ítrekaði hann, að stjórn hans myndi fyrst taka endanlega af- stöðu til áætlunarinnar eftir ná- kvæma íhugun. Lagði hann áherzlu á þá skoð- un indversku stjórnarinnar, að engin lausn fengist á vandamál- unum fyrr, en erlendar hersveit- ir hefðu verið fluttar burt frá Jór daníu og Líbanon. Hins vegar Málflutningsskrifstofa Einar B. Guðmundsson Cuðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Aðalstræti 6, III. hæS. Símar 12002 — 13202 — 13602. kvað hann indversku stjórnina hlynnta þvi, að eftirlitslið SÞ í þessum ríkjum yrði eflt — með samþykkti hlutaðeigandi ríkja. Þorsteinn annaðist mjög vel um heimili sitt og var það kært, enda var það ungu hjónunum til mikils sóma. Ég kom þar oft og var alltaf tekið með slíkri gestrisni og hlýju, að ég mun ætíð minnast þess. Þorsteinn fórst af slysförum við vinnu sína í síldarverk- smiðjunni í Neskaustað hinn 17. júlí sl. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því, að jafnungur og lifsglaður maður sé horfinn af sjónarsviðinu svona skyndilega. En við örlögin ráðum við ekki. Ég kveð Þorstein með söknuði og þakka gott samstarf og marg- ar ánægjustundir og votta konu hans, börnum og öllu venzlafólki hans mína dýpstu samúð. Reynir Zoega. Skrifstofuhúsnæði 45 til 80 ferm., helzt á jarðhæð við aðalgötu, óskast til leigu eða kaups. Upplýsingar í síma 34173 og 18141. Framkvœmdastjóri Iðnfyrirtæki sem framleiðir byggingarefni, óskar að ráða framkvæmdastjóra. Umsækjendur leggi nafn sitt á afgr. blaðsins merkt: „Framtíð — 6726“. SÚTUÐ OG ÓSÚTUÐ Selskinn kaupir baðstofa Ferðaskrifstofu ríkisins. Mörg verðlaun verða veitt á sýningunni, ef framleiðsla og uppsetning sýningadeilda verð- ur nægilega góð, að áliti dómnefndar, en hana skipa: Óli V. Hansson, ráðunaut ur, formaður; Ólafía Einarsdótt- ir, kaupkona, Reykjavík, og Jó- hann Kr. Jónsson, Dalsgarði, Mos fellssveit. Hafa m. a. öll stærri dagblöð í Reykjavík og mörg önnur fyr- irtæki gefið góða verðlaunagripi til sýningarinnar, og vill fram- kvæmdanefndin þakka þær góðu undirtektir og þann skilning, sem hún hefur mætt hjá ýmsum aðilum varðandi undirbúning garðyrkjusýningarinnar. Auk framkvæmdanefndarinn- ar hefur Áage Foged, frá Blóma- búðinni Hrauni, Reykjavík, ann azt skreytingu og uppsetningu á sýningunni í heild, en annars hafa hinir einstöku sýnendur annazt uppsetningu hver fyrir sig á sínum deildum. Stjórn Garðyrkjubændafélags Árnessýslu skipa nú þessir menn: Guðjón A. Sigurðsson, Gufudal, formaður; Ingimar Sigurðsson, Fagrahvammi, og Helgi Kjart- ansson, Hvammi, Hrunamanna- hreppi. Höfum til sölu: 3-400 BIFREIÐAR Bifrcidar við yðar hæfi. B if reiðasalan AÐSTOÐ við Kalkofnsveg. Sími 15812. Næturvörð HÓTEL SKJALDBREIÐ Upplýsingar í síma 16482. Laugarás Ný vönduð 4ra herb. íbúð til sölu í Laugarásnum. Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudag merkt: „Laugar ás — 6713“. Toilettpappír hvítur og mislitur Eggert Kristjánsson €r Co. hf. Eignarlóð 2000 fermetra eignarland í Garðahreppi (hrauninu) er til sölu nú þega. Upplýsingar í síma 33374 milli kl. 1—3 e.h. Húsgagnasmiðir Viljum ráða 2 húsgagnasmiði og húsasmið vanar. inni vinnu. Uppl. gefur Nývirki h.f. sími 18909 og Sveinn Kjarval húsgagnaarkitekt, sími 15307. BOLSÖNES VERFT MOLDE - NORGE M.s. Björnsund, úthafsfiskiskip af 110 feta standardgerð Skipasmíðastöðin hefir afgreitt 7 skip af þessari gerð síðan 1955. Skipin eru óvenju sterkbyggð með skrokk- plötur 20% yfir kröfu norska Veritas, og hafa sýnt sjó- hæfni sína við úthafsveiðar. —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.