Morgunblaðið - 16.08.1958, Qupperneq 16
VEÐRIÐ
Norðan kaldi léttskýjað.
HITAVEITAN
Sjá grein á bls. 9.
Keppendur íslands
á EM halda utan
ÍSLENZKU þátttakendurnir sem
kepþa eiga í Evrópumeistaramót-
inu í frjálsíþróttum sem hefst í
Stokkhólmi eftir helgina áttu að
halda utan í dag (laugardag) með
flugvél Loftleiða til Gautaborg-
ar. Þaðan fer hópurinn með lest
til Stokkhólms. Viku eftir EM
hefst landskeppni við Dani í Kan
ders á Jótlandi. Megniþorri
landsliðsins heldur ekki utan
fyrr en rétt fyrir þá keppni.
Þrír íþróttafréttamenn verða í
Stokkhólmi og í Randers. Eru
það Örn Eiðsson frá Alþýðublað-
inu, Sigurður Sigurðsson frá út-
varpinu og Atli Steinarsson frá
Morgunblaðinu.
Maður slasast
í Kísilnámunní
AKRANESI, 15. ágúst. — Á
sjötta tímanum síðdegis í gær var
kallað á sjúkrabílinn og hann
beðinn að koma inn í kísilnám-
una á Hvalfjarðarströnd. Einn
námumannanna hafði meiðzt, en
þó ekki alvarlega. Datt stigi ofan
á höfuðið á honum og hafði hann
fengið heilahristing. Maðurinn
heitir Kristján Thorlacius og er
úr Reykjavík. Hann er nú hér í
sjúkrahúsinu. — Oddur.
1 DAG kl. 3,45 verður lagður
hornsteinn rafstöðvarhússins við
Efra-Sog. Framkvæmdirnar við
hina nýju virkjun hafa staðið i
rúmt ár, og áætlað er, að þeim
verði lokið haustið 1959. Bætast
þá 27.000 kílóvött við Sogsvirkj-
unina, svo að afl stöðvanna við
ána verður alls 73.000 kilóvött.
Má síðan enn bæta við vélum í
Sementsverksmiðjan að
stöðvast vegna skorts
á rafmagni
Stjórn Sogsvirkjun-
arinnar hleypur
undir bagga i bili
Blaðinu barst í gær eftir-
farandi frá Sogsvxrkjun-
inni:
STJÓRN Sogsvirkjunarinnar hef
ur verið tjáð. að Sementsverk-
smiðja ríkisins verði að stöðva
framleiðslu á sementi innan sólar
hrings vegna skorts á rafmagni
frá Andakílsárvirkjun, nema
verksmiðjan fái nú þegar raf-
orku frá Sogsvirkjuninni. Enn-
fremur sé sementslaust í landinu
og muni byggingarframkvæmd-
ir því að mestu stöðvast.
Stjórn Sogsvirkjunarinnar tek
ur ekki endanlega afstöðu til
beiðni um sölu á raforku til Sem-
Iíuldatíð
DALVÍK, 15. ágúst. — Versta
tíð hefir verið hér síðan á sunnu-
dag. Norðan kaldi og rigning í
byggð, en snjóað hefir til fjalla.
Allir bátar, sem legið hafa hér
i höfn héldu út á miðin í dag.
Enn mun þó slæmt veiðiveður á
nærliggjandi miðum en sjómenn
gera sér vonir um, að síldin gefi
sig til, ef lygnir og sjór gengur
niður.
Mikið annríki hefir verið hér
undanfarna daga við að flokka og
pakka síld á austur-þýzkan og
rússneskan markað.
★
S.l. miðvikudag sýndi leikflokk
ur Lárusar Pálssonar hér gaman
leikinn „Haltu mér — slepptu
mér“ við góða aðsókn og undir-
tektir. Var aðsókn svo mikil, að
sýna varð leikinn tvisvar við hús
fylli í bæði skiptin. Létu menn
liið bezta yíir leiksýningunni.
— S. J.
entsverksmiðjunnar, fyrr en eítir
að bæjarstjórn Reykjavíkur hef-
ur fjallað um málið á fundi 21.
ágúst næstk., en til þess að firra
vandræðum samþykkir stjórn
Sogsvirkjunarinnar að láta Sem-
entsverksmiðjunni í té raforku
frá Sogsvirkjunni dagana 16.—20.
ágúst, enda verði lokað fyrir
strauminn 21. ágúst kl. 9 árdegis.
stöðvarnar við írafoss og Ljósa-
foss, svo að alls fáist 96.000 kíló-
vött frá Soginu. Er afl fljótsins
þá fullvirkjað.
Stöðvunarhúsið við Efra-Sog
stendur á nyrðri bakka Úlfljóts-
vatns. Undir því eru tveir vatns-
hverflar, í húsinu er rafalar fyrir
hvorn hverfil og frá þaki þess
verður rafmagnið leitt til fra-
foss-stöðvarinnar og þaðan til
notenda.
Vatnið kemur til stöðvarhúss-
ins gegnum þrýstivatnsæðar úr
þró í miðri Dráttarlilíð. í þróna
kemur vatnið eftir 380 m löngum
jarðgöngum, sem grafin hafa ver-
ið úr Þing vallavatni. Fallhæðin
er 22 m.
Athöfn verður við Efra-Sog,
þegar forseti tslands leggur horn-
stein stöðvarhússins. Auk hans
taka til máls, Gunnar Thorodd
sen borgarstjóri og Hermann
Jónasson raforkumálaráðherra.
Athöfninni verður útvarpað.
Myndin hér að ofan sýnir lík-
an af rafstöðvarhúsinu.
(Ljósm. vig.).
Tveir Danir slasast,
dráttarvél hvolfir
er
AKRANESI, 15. ágúst. — Eftir há
degi í dag varð það slys við mjólk
urpallinn á þjóðveginum upp í
Þverárhlíð, undan afleggjaran-
um, sem liggur frá bænum Helga
vatni, að dráttarvél með mjólk-
urvagni aftan í steyptist á hvolf
ofan x skurð við veginn. Verið
var að flytja mjólk frá Helga-
vatni og gerðu það tveir danskir
vinnumenn á bænum. Var annar
þeirra að kenna hinum á dráttar-
vélina, er þetta skeði. Stóðu þeir
á dráttarvélinni, er henni hvolfdi
og mörðust báðir illa í baki.
Sá, sem minna meiddist, staul-
aðist heim og sagði frá slysinu og
var félagi hans þegar sóttur. Sím
að var til Þórðar læknis á Klepp-
járnsreykjum. Er hann hafðiskoð
að meiðsli mannanna bað hann
um sjúkrabíl héðan, sem þegar
var sendur af stað upp að Helga-
vatni ásamt hjúkrunarkonu.
Hingað í sjúkrahúsið var svo
komið með hina slösuðu menn
kl. 7,30 í kvöld.
Frá Portoroz
SAMKVÆMT útvarpsfregn frá
Belgrad í gærkveldi var aðeins
einni skák lokið í 7. umferð á
skákmótinu í Portoroz.
Var það skák Matanovic og de
Greiff, sem varð jafntefli.
Páll Gíslason yfirlæknir sagði,
er hann hafði gert að sárum
þeirra að annar hefði hlotið mik
inn áverka á brjóstkassann,
þannig, að fimm rif hefðu brotn-
að. Hinn maðurinn er og mikið
marinn en óbrotinn. — Oddur.
Þjóðviljinn játar för
Einars á flokksþingið,
sem Krúsjeff sótti
Var Berlínarför Lúðvíks vegna viðurkenn-
ingar á austur-þýzku stjórninni
ÞJÓÐVILJINN rýfur í gær þögn-
ina um för Einars Olgeirssonar á
flokksþing kommúnista í Austur-
Þýzkalandi, — hið sama og Krú-
sjeff sjálfur sótti.
Blaðið birtir langt viðtal við
Einar um ferðalagið og segir í
fyrirsögn þess:
„Tímabært að ísland viður-
kenni alþýðulýðveldið, eitt bezta
viðskiptaland fslendinga, segir
Einar Olgeirsson í viðtali um
fimmta þing Einingarflokksins
þýzka“.
Síðar í viðtalinu segir Einar:
„Eðlilegast væri að taka nú
upp stjórnmálasamband við
Þýzka alþýðulýðveldið, eitt bezta
viðskiptaland íslendinga, byggt
þjóð, sem stendur nærri okkur
menningarlega og sýnt hefur
skilning á lífsnauðsyn þjóðar
okkar, á sama tíma og Adenauer-
stjórn Vestur-Þýzkalands gefur í
skyn að hún vilji ekkert með
okkur hafa að gera. Síðustu til-
tæki Adenauers-stjórnarinnar í
garð Islendinga eru eins og hún
sé að benda okkur á meiri skipti
og opinber — við Þýzka alþýðu-
lýðveldið“.
Ekki segir Einar frá því, hvort
ferðalag Lúðvíks Jósefssonar til
Austur-Þýzkalands stóð í sam-
bandi við þessar bollaleggingar.
En eftirtektarvert er, að sam-
kvæmt fréttatilkynningunni, sem
á sínum tíma var gefin þaðan að
austan um heimsókn Lúðvíks þá
var hann að semja um viðskipti
við stjórnarvöld þar í landi. Mun
það a. m. k. mjög fátítt, að ráð-
herrar fari í slíkar opinberar
heimsóknir og til samninga við
stjórnarvöld, sem ríkisstjórnir
þeirra hafa ekki viðurkennt.
Um þetta sem annað í sam-
bandi við ferðalag Lúðvíks
Jósefssonar keppeast stjórnar-
blöðin við að þegja eins og þau
eigi lífið að leysa.
Lampar til götulýsingar
fást ekki fluttir
í DAGBL. Vísi 12. þ.m. er skýrt
frá umferðarslysi, er varð á
Laugavegi við Höfðatún Að
venju var légleg götulýsing talin
ein af orsökum slyssins. Eigi skal
um það deilt.
Götulýsing á þessum stað er þó
tiltölulega góð, enda lagfærð fyr-
ir nokkrum árum. Hitt er Raf-
magnsveitunni kunnugt um, að
hinar nýrri gerðir lampa í bæn-
um (kvikasilfurlampar, bláhvítir,
og natríumlampar, gulir) eru
víða orðnir lélegir af of langri
notkun. Þeir „brenna“ ekki eins
og venjulegir glólampar, þegar
réttum notkunartíma þeirra er
lokið, heldur minnkar ljós þeirra
jafnt og þétt eftir sem áður. Þess
vegna þarf að skipta um þá eftir
vissan tíma.
Þessari meginreglu hefur ekki
verið unnt að fylgja undanfarið
vegna innflutningstregðu. Skal
nú nánar greint frá því.
Snemma s.l. haust var lögð
fram umsókn um innflutnings-
leyfi fyrir lömpum og fékkst
tæpur helmingur af því, sem
beðið var um. Greiðsluheimild í
mn
banka fékkst ekki og rann leyfið
út um áramót. Eftir tveggja
mánaða tilraunir fékkst það end
urnýjað. Greiðslheimild fékkst
þó ekki og hefur ekki fengizt enn.
Greiðsluheimild fyrir lampabún-
aði til götuljósa, sem ekki þarf
innfl.leyfi fyrir, hefur heldur
ekki fengizt.
Nú fer óðum að dimma og horf
ir óvænlega í þessum álum. Kom
ið hefur til tals að taka niður alla
þessa lampa í bænum og setja
venjulega glólampa í staðinn.
Slíkt er þó algert neyðarúrræði,
því að glólampar nota margfaít
meiri rafstraum (og þurfa því
gildari leiðslur), og ending þeirra
er aðeins fimmti hluti af „end-
ingu“ hinna nýrri lampa.
Æskilegt væri að geta notað
hina nýju lampa í öllum nýjum
götuljósakerfum, a.m.k. við mikl
ar umferðargötur. En lágmarks-
krafa er, að innflutningsyfirvöld
sjái svo um, að halda megi nú-
verandi kerfum sómasamlega við,
þar til úr kann að rætast í inn-
flutningsmálum þjóðarinnar.
(Frá Rafmagnsveitu R.-víkur),
sœta flugvél
í nauðlendingu við
Tveir menn, sem i vélinni voru,
hlutu nokkur meibsl
UM HÁLF SEX leytið í gærkvöldi vildi það slys til uppi við
Hafravatn skammt frá Reykjavík, að lítil tveggja sæta flugvél,
sem ætlaði að nauðlenda þar vegna skyndilegrar vélarbilunar, rakst
á húskofa í lendingunni og stórskemmdist. Tveir xnenn, sem í
vélinni voru hlutu nokkur meiðsl.
réttindi. Farþeginn var Pétur
Ætluðu í hálftíma flug
frá Reykjavík
Samkvæmt upplýsingum, seni
Mbl. fékk hjá Finnboga Guð-
mundssyni, lögregluþjóni í
Reykjavík, sem af tilviljun var
staddur þarna uppfrá, er slysið
vildi til, var hér um að ræða
litla flugvél frá Flugskólanum
Þyt, merkta TF/KAP. Eðvarð
Guðmundsson, Njálsgötu 59 í
Reykjavík, var við stjórn vélar-
innar og hefir hann flugmanns-
Farþeginn var
Jónsson, Hólsvegi 15, Reykjavík.
Höfðu þeir félagar áætlað um
hálfrar klukkustundar flug frá
Reykjavík.
Rakst á húskofonn
Flugmaðurinn skýrði svo frá,
að vélin hafi allt í einu „misst
mótor“ eins og kallað er á máli
flugmanna — þ.e. vélin hætti
skyndilega að ganga. Ætlaði
hann þá að nauðlenda á túninu
stórskemmist
Hafravatn
við Óskot, sem er bóndabær sunn
an við Hafravatn, en rakst í
lendingunni á lítinn húskofa þar
í túninu með ofangreindum af-
leiðingum.
Finnbogi lögregluþjónn, sem
var þarna nærstaddur kom þeg-
ar til hjálpar hinum slösuðu
mönnum og gerði að meiðslum
þeirra til bráðabirgða, en hann
er þaulvanur slíkri hjálp í við-
lögum frá um 20 ára starfi í lög-
reglunni. Flugmaðurinn hafði
meiðst illa á vinstra hné og hlot-
ið minni háttar meiðsl á höfði,
en farþeginn, Pétur Jónsson,
slapp með kúlu á enni og skrámu
á olnboga.
Finnbogi ók síðan með menn-
ina í bæinn, Eðvarð á slysavarð-
stofuna, en Pétur var það hress,
að Finnbogi ók með hann út a
flugvöll, þar sem hann geymdi
bíl og ók Pétur honum hjálfur
heim.