Morgunblaðið - 29.08.1958, Page 15
Föstudagur 29. ágúst 1958
MORGUNBLAÐIÐ
15
— íþróftir
Framh. af bls. 9
maðurinn sem íslendingar
„skírðu“ en viðurnefni hafa nær
allir sænskir íþróttamenn í sænsk
um blöðum. Evrópumeistarinn
frá 1954 Yulin, Rússlandi varð að
láta sér nægja 5. sæti, en landi
hans Lituev vann sigurinn og
þar með gullið. Svisslendingur-
inn Galliker kom mjög á óvænt
og náði 3. sæti.
í kringluk'asti kvenna var
keppt til úrslita og þar stóð bar-
áttan eins og í flestum hinna
kvennagreinanna milli Rússlands
og Þýzkalands, en Tékkóslóvakía
blandaði sér í málin þennan dag.
Rússneska stúlkan Press sigraði,
en síðan fylgdu fast á eftir hin
tékkneska og þýzka. Þarna var
Ataðir aur
til ilja eftir
STOKKHÓLMI, 23. ágúst — Það
urðu fleiri votir af hellirigningu
dagsins, en þrístökkvarar og
kúluvarparar, sem þegar hefur
verið sagt frá. Það, sem hélt
fólkinu lengst í spenning, var
greinin, sem var síðust á dag-
skránni, 5000 m hlaupið. Tólf
keppendur áttu þessa þraut
fyrir höndum. — Til að létta
þeim svolítið var látið hlaupa á
3 brautum og heljarmikil slanga
sett á hlaupabrautirnar til að af-
marka þennan stærri hring, en
nokkurt langhlaup á Evrópu-
meistaramóti hefur farið fram á.
En þegar þeir höfðu hlaupið 2—3
hringi höfðu þeir hrært svo í
efsta lagi brautarinnar að þeir
óðu for.
Bernard, Frakklandi, tók for-
ystuna og fór fyrsta hring á
65,5. Fast á eftir fylgdu Zimny,
Póllandi og Iharos, Ungverja-
lanai. Eftir 1500 metra hafði Ar-
tynuk, Rússlandi, tekið foryst-
una og tíminn var 4:21,6. Um
mitt hlaupið var Zimny í farar-
broddi, en fast á sóttu Iharos,
Kriskowiak, Pirie og Bernard.
Og nú kom alvaran.
Þegar kílómetri er eftir hafa
Pólverjarnir Zimny og Krisko-
wiak forystu, en Pirie og Clarke,
Englandi, koma á eftir og þá
tekur Clark sprett og nær for-
ystu. Þessu svöruðu Pólverjarnir
fljótt og brunuðu fram fyrir.
Þetta var ensk-pólskt stríð. Pól-
verjarnir geystust fram saman,
náðu um 30 m forskoti, þar voru
Englendingarnir saman og höfðu
álíka langt forskot á þá næstu.
Á síðasta hringnum var Kris-
kowiak sterkari Zimny, sem þó
átti bezta Evróputímann í ár, og
Pirie skyldi Clark eftir, en röðin
hélzt óbreytt. Kriskowiak hefur
þá leikið það sem Zatopek gerði
og varð frægur fyrir. Zatopek á
þó metið enn — gullverðlaunin
þrjú á Helsingforsleikunum.
En útgangurinn á mönnunum
eftir hlaupið á þessari braut var
ferlegur. Þeir voru ataðir aur-
slettum frá hvirfli til ilja.
Fólkið hélt að þessu hlaupi
loknu heim — ánægt yfir afrek-
um dagsins, en hálfóánægt með
blautt umhverfið, blautan völl,
sem aldrei gaf Svíþjóð neitt gull-
ið. —
En við skulum minnast lítil-
lega á aðrar greinar þennan dag.
í kúluvarpi kvenna varð
hörkukeppni. Langmesta athygli
vakti rússneska stúlkan Tyshke-
vich, sem vegur 112 kg. Kúlan
var eins og smábolti í höndum
eins og algengt er orðið sett nýtt
Evrópumet.
50 kílómetra göngukeppni var
fyrsta greinin sem hófst þennan
dag en ekki sú fyrsta sem lauk.
Göngumennirnir gengu 1 km. á
vellinum en kvöddu síðan og
komu ekki aftur fyrr en eftir
rúma fjóra tima. Þá var í farar-
broddi Maskinskov, Rússlandi, en
skammt á eftir komu Pamich,
Ítalíu og Weber frá Þýzkalandi.
Enn einu sinni fengu menn að
heyra rússneska þjóðsönginn sem
allir eru nú farnir að kunna og
geta vel trallað með þegar hann
er leikinn 2—4 sinnum á dag.
í dag fóru einnig fram undan-
keppni og milliriðlar í ýmsum
greinum, en umtal um þær grein
ar látum við bíða þar til úrslit
fara fram.
frá hvirfli
5000 m. hl.
hennar. En nú var hún stöðvuð
á sigurgöngu sinni. Þýsk stúlka,
Werner, varpaði 20 sm lengra og
kom „rússneska fjallinu“
jafnvægi. Vakti þetta óskaplegan
fögnuð áhorfenda, einkum Þjóð-
verja og þegar þær stóðu á verð-
launapallinum og þýzki fáninn
var dreginn að hún, sungu hinir
mörgu Þjóðverjar hér, „Deutseh-
land iiber alles“, en hér var
þjóðsöngur Þjóðverja ekki leik-
inn. Stafar það af því að A- og
V-Þýzkaland senda sameiginlega
til keppninnar, en mótsstjórn
viðurkennir ekki nema einn þjóð
söng. Komu A- og V-Þjóðverjar
sér ekki saman um hvorn þjóð-
sönginn ætti að leika, svo að
ákveðið var að blásturssveit
blési á lúðra meðan fáninn væri
dreginn að hún. En nú ómaði
þjóðsöngurinn og gerði það eftir
þetta, þegar Þjóðverji stóð á
efsta palli.
í 200 m hlaupi kvenna sigraði
pólska stúlkan Janiszewska á
24,1. Hún er af ýmsum talinn
fegursti kvenkosturinn meðal
keppenda á móti þessu. En
hlaupið varð annars hálfgerð
sorgarsaga. Stubnik, hin fræga
þýzka hlaupakona, haltraði í
mark í 5. sæti. Hún var meidd
er hún gekk til hlaupsins. Og
brezka stúlkan Paula tognaði í
miðju hlaupi og var borin út af
Stadion á börum, sýnilega mikið
Þjúð.
200 m hlaup karla var æsi-
spennandi grein. Eftir tvö þjóf-
stört voru hlaupararnir orðnir
kaldir og votir í rigningunni.
Þáð hlaut því að verða sá, sem
bezt þyldi slíkt, sem ynni. Og
það reyndist Germar, Þýzka-
landi. Létt og örugglega hljóp
hann vegalengdina og sigraði
með miklum yfirburðum. Keppn-
in um annað sætið var mjög tví-
sýn og varð mynd úr að skera.
Silfrið fór til Englands (Segal)
en bronsið til Frakklands (Dela-
cour).
Þá fóru fram undanrásir í boð-
hlaupunum öllum. Þar skeði það
markverðast, að Svíar féllu úr
keppninni í 4x100 m hlaupinu.
Við fyrstu skiptingu urðu þau
mistök að Trallsðs og Malmroos
náðu ekki saman. Trollsás reyndi
að henda keflinu til hans, en það
féll til jarðar og þýddi ekki eftir
það að reyna að halda áfram. í
sama riðli var Ungverjaland
dæmt úr leik vegna rangrar
skiptingar. Hið sama henti
frönsku sveitina í 4x100 m boð-
hlaupi kvenna.
A. St.
Kristín Einarsdóttir frá
ísafirði, sjötug
KRISTÍN S. Einarsdóttir frá ísa-
firði á í dag sjötugsafmæli.
Hún fæddist að Hríshóli í Reyk
hólasveit hinn 29. ágúst árið 1888.
Foreldrar hennar voru Einar
bóndi Pétursson og kona hans
Elin Jóhannesdóttir ættuð frá
Blárnýrum í Ögursveit við ísa-
fjarðardjúp. Pétur afi Kristínar
var Gestsson, Einarssonar úr
Rauðseyjum. En bróðir Gests var
Sturlaugur hinn ríki úr Rauðseyj
um. Systir Péturs var Ragnheið-
ur móðir Gests Pálssonar.
Pétur Gestsson, afi Kristínar,
var kvæntur Ástríði Magnúsdótt-
ur en móðir hennar var Sigríður,
systir Þóru í Skógum móður Matt
híasar Jochumssonar.
Kristín giftist árið 1911 hinum
annálaða dugnaðar og drengskap
armanni Eiríki Br. Finnssyni,
sem þá var verkstjóri hjá stærsta
fyrirtæki íslendinga, hinni frægu
Hún og fjölskylda hennar nutu
vinsælda og virðingar á ísafirði
meðan hún bjó þar. Börn þeirra
hjóna eru öll einkar myndarlegt
og vel gert fólk. Þessar merku
konu munu í dag berast árnaðar-
óskir frá stórum hópi vina og
venzlamanna.
Hún dvelst í dag á heimili
Braga sonar síns að Miklubraut
20.
Vestfirðingur.
Sem ný
hrærivél
(Sunbeam), til sölu á Vestur-
götu 30. Verð 1500,00. Til sýn-
is föstudagskvöld, milli 7 og
10 og laugardagsmorgun.
Elliot setti glœsilegt
heimsmet
GAUTABORG, 28. ágúst. —
Ástralíumaðurinn Elliot setti
nýtt glæsilegt heimsmet í 1500 m
hlaupi á miklu frjálsíþróttamóti,
sem fram fór hér í kvöld. Tími
hans var 3.36,0 mín., eða 2,1 sek.
betri en fyrra heimsmetið, sem
Tékkinn Jungwirth setti í fyrra.
Árangur annarra hlaupara var
einnig mjög góður, enda voru
þarna samankomnir flestir mestu
1500 m hlauparar heimsins.
Annar var Jungwirth, Tékkósló-
valcíu, 3,39,0 mín. 3. Halberg Nýja
Sjálandi, -3,39,4 mín.,4. Rózsa
völgyi, Ungverjalandi, 3.40,0
mín., 5. Dan Waern, Svíþjóð,
3.40,9 mín., 6. Lewandowski, Pól-
landi, 3.42,1 mín., 7. Ulf Bertil
Lundh, Noregi, 3.42,1 mín., Ing-
var Eriksson, Svíþjóð, 3.47,3 mín.
og 9. Ibbotson, Bretlandi, 3.50,5
mín. — NTB.
Ásgeirsverzlun á ísafirði. Þau
hjón áttu sex börn: Jóhann, yfir-
fiskimatsmann í Vestfirðinga-
fjórðungi, Baldur, bæjarfulltrúa
á Siglufirði og forseta bæjar-
stjórnar þar, Braga, starfsmann
hjá Samlagi Skreiðarframleið-
enda, Arnfríði, sem búsett er í
Minneapolis, gift Harry Berg-
ström, Iðunni, kaupkonu á ísa-
firði, gift Böðvari Sveinbjarnar-
syni framkvæmdastjóra þar, og
Einar Hauk, kennara við Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja og rit
stjóra Fylkis, blaðs Sjálfstæðis-
manna í Eyjum.
Ásamt manni sínum gekk
Kristín í I.O.G.T. regluna, stúk-
una Vöku á ísafirði, árið 1928 og
hefur verið virkur félagi ávallt
síðan og gegnt þar fjölda trúnað-
arstarfa og verið fulltrúi stúku
sinnar á stórstúkuþingum.
Frú Kristín Einarsdóttir er
mannkostakona, drengileg og
prúð í framkomu og dugmikil að
hvaða starfi sem hún gengur.
Vinna
Þýzk, reglusöm stúlLa
(20 ára), óskar eftir vist. —
Irene Noelle, Nordseeinsel Baltrum
Haus Cordes, Deutschland.
Nýir, gullfallegir
svefnsófar
á aðeins kr. 2.900,00. Gamla
verðið. — Grettisgöiu 69, kl.
2—9. —
Babmottusett
í litúrvali á kr. 170. — Stakar
setur á kr. 65,00. — Einnig fal
legir og góðir dömusundbolir
á kr. 271,10. Fiðurhelt léreft
frá kr. 23-—35 meterinn. Tvist-
tau. Einlit léreft, rósótt sirz
frá kr. 10,00 meterinn. Hand-
klæði á kr. 16,25. Hvítur dreg-
ill 90 cm. breiður á kr. 28,65.
Barnagammosíur, margar gerð
ir. Bleyjur á kr. 6. Einnig
bleyjugas, tvíofið o. fl. o. fl.
Verzluniii ÓSL
Laugavegi 82.
NE8TLE
— permanent
— hárskol
— hárlagn-
ingavokvi
Austurstræti 7.
1 herbergi, eldhús og köid
geymsla er
TIL LEIGU
rétt við Miðbæinn 1. sept. Tilb.
sendist afgr. blaðsins merkt:
„Rólegt — 6875“.
Ný
steypuhrærivél
rafknúin, 150 1. (poka'-él), til
sölu. — Upplýsingar eftir kl.
5, í síma 3-23-81.
Hugheilar hjartans kveðjur og þakkir sendi ég ykkur
öllum, elsku vinir mínir, sem glöddu mig á margvíslegan
hátt á 75 ára afmæli mínu 12. ágúst.
Bið Guð að blessa ykkur og launa allt frá öllum liðn-
um tímum. Ykkar
Margrét Jónsdóttir frá Brunnastöðum.
Si m i
-24-80
Hjartans þakklæti sendum við ykkur, sem glödduð
okkur með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 75
ára afmæli okkar 18. ágúst síðastliðinn.
Guð blessi ykkur og gleðji á allan hátt.
Guðrún og Ingibjörg Ölafsdætur,
frá Þórustöðum.
Ástkær eiginmaður minn, okkar elskulegi faðir, tengda-
faðir og afi
GUÐMUNDUR EINARSSON
Lönguhlíð 13, sem andaðist í Landspitalanum 25. þ.m.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 30.
þ.m. kl. 10.30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Blóm vin-
samlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hins látna
skal bent á að Breiðfirðingafélagið hefur stofnað Minn-
ingarsjóð með hans nafni og verða minningarspjöld seld
í verzlun Ólafs Jóhannessonar, Grundarstíg 2, Verzlun-
inni Þórsmörk, Laufásvegi 41 og Hattabúð Reykjavíkur,
Laugavegi 10.
Gunnjóna Jensdóttir,
Anna Guðmundsdóttir Allen
Jens Guðmundsson,
Marta Hagalínsdóttir
og barnabörn.
Þökkum innilega samúð og hluttekningu við andlát og
útför föður okkar
GUÐNA VTGFUSSöNAR
Vatnahjáleigu.
Sérstaklega þökkum við heimilisfólkinu Svanavatni,
Miðey og Borgareyrum frábæra hjálpsemi í veikindum
hins látna og við útför hans.
Jóhann G. Guðnason. Haraldur Guðnason.
Þökkum innilega öllum þeim er auðsýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu
GUÐRÚNÁR jónsdóttur
frá Löndum
Sérstaklega viljum við þakka Kvenfélagi Grindavíkur
og þeim félagskonum, sem aðstoðuðu við jarðarför hinnar
látnu.
Vilmundur Árnason, börn, tengdabörn og barnaböm.