Morgunblaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. sept. 1958
— Hvernig lýsir
þjödareining sér
Framh. af bls. 1
íngur milli stjórnarflokkanna
sjálfra í málinu. Illindin, sem
þar blossa upp æ ofan í æ, sýndu
að verulega skorti á um næg
heilindi innbyrðis í stjórnarher-
búðunum. Úr þessu yrði að bæta
með birtingu ýtarlegrar greinar-
gerðar, þar sem öll gögn máls •
ins væru lögð fram, svo að al-
menningur gæti sjálfur dæmt
um, hvernig á málum hefur verið
haldið.
Hafi nokkur efazt um rétt-
mæti þessara ábendinga Sjálf-
stæðismanna, þá þarf hann ekki
annað en lesa Þjóðviljann og
Tímann síðustu dagana. Engum
getur dulizt, að herhlaup Breta
er Þjóðviljanum mikið fagnaðar-
efni. Með því telur hann vel á
veg komið það, sem kommúnist-
ar ætíð sóttust eftir samhliða
stækkun fiskveiðilandhelginnar,
að til fjandskapar drægi milli
íslendinga og a. m. k. þessarar
bandalagsþjóðar okkar.
Morgunblaðið harðast
fordæmt herhlaupið
Ekkert íslenzkt blað hefur
harðar fordæmt framferði Breta
en Morgunblaðið. Bæði á undan
herhlaupinu og eftir að það hófst.
Meira en það, Morgunblaðið
hafði gagnstætt stjórnarblöðun-
um raunsæi til þess að sjá, hvað
verða vildi. Einmitt það raun-
sæi hefur af andstæðingunum
verið notað til að rægja blaðið
og halda því fram að það væri
að hræða landsmenn með tilbún-
um grýlusögum.
Ríkisstjórnin og lið hennar
lokaði fram á síðustu stund aug-
unum fyrir því, sem ótvíræð gögn
voru fyrir um, að Bretar hefðu
í hyggju. Gagnstætt þeim strúts-
leik litu Sjálfstæðismenn raun-
hæft á málið og bentu á líkleg-
asta ráðið til að koma í veg fyrir
hið óhæfilega herhlaup Breta.
Sjálfstæðismenn vildu
hindra ofbeldi Breta
Af þessum sökum báru Sjálf-
stæðismenn fram tillögu sína um,
að ráðherrafundur Atlantshafs-
bandalagsins ýrði kvaddur sam-
an vegna fyrirsjáanlegrar ógn-
unar Breta við íslenzkt land-
svæði. Rúmum tveimur vikum
fyrir 1. september var Guðmundi
f. Guðmundssyni utanríkisráð-
herra bent á það af hálfu Sjálf-
stæðismanna að hætt væri við,
að umræðurnar í París mundu
ekki í því formi, sem þær þá
voru, afla hins nauðsynlega skiln
ings og viðurkenningar á stækk-
un fiskveiðilandhelginnar. Hér
yrði að taka til annarra ráða, ef
forða ætti vandræðum, og hið
líklegasta væri að knýja fram
utanríkisráðherrafund. Hinn 22.
ágúst var þetta formlega áréttað
og lagt til í munnlegu samrali,
að forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra færu á fundinn. Þeg-
ar engin svör fengust, var bréfið
loks sent 27. ágúst. Við því barst
svar hinn 29. ágúst, sem sýndi,
að utanríkisráðherra var gersam-
lega úti á þekju í málinu, enda
er það hið eina embættisverk
Guðmundar í. Guðmundssonar,
sem kunnugt er, að kommúnistar
hafi lýst blessun sinni yfir.
Skammvinn ánægja
kommúnista með
Guðmund í.
Sú ánægja stóð þó ekki lengi,
því að árásirnar á hann hafa
aldrei verið harðari en tvo síð-
ustu dagana. í gær segir t. d.
Þjóðviljinn:
„Menn eins og Bjarni Bene-
diktsson og Guðmundur í. Guð-
munsson eru hættir að geta hugs-
að eins og íslendingar, hvorki
tilfinningar þeirra né skynsemi er
lengur af íslenzkum toga---
Þetta segir Þjóðviljinn um Guð
mund í. Guðmundsson, sem er
utanríkisráðherra í stjórn. sem
blaðið styður, þegar tii meðferðar
er ofbeldisbrölt Breta, hið mikil-
vægasta utanríkismál, sem núver
andi ríkisstjórn hefur fjallað um.
Hvernig sambúðin er innan ríkis-
stjórnarinnar, þegar þannig er
talað í almanna áheyrn, þarf ekki
að fjölyrða um.
Skammir, sem sýna til-
gang kommúnista
Skammir kommúnista um
Bjarna Benediktsson eru annars
eðlis. Alkunnugt er, að hann hef-
ur ekki samvinnu við kommún-
ista, er ekki í trúnaðarstöðum
fyrir þeirra tilverknað og nýtur
hvorki trausts þeirra né stuðn-
ings. — Væri það og meiri
nýlunda, ef hann nyti sannmælis
í blaði þeirra en hitt, þó að hann
sé borinn æruleysissökum, ein-
mitt sömu dagana og Þjóðviljinn
fer í öðru orðinu fegurstu orðum
um nauðsyn þjóðareiningar.
Að þessu sinni má Bjarni Bene-
diktsson vera sérstaklega stoltur
yfir fúkyrðum Þjóðviljans, því að
tilefnið er einmitt það, að Bjarni
Benediktsson og aðrir Sjálfstæð-
ismenn gerðu tilraun til að af-
stýra því ofbeldi, sem við höfum
nú verið beittir. Eðlilegt er, að
þeir, sem telja herhlaup Breta
sigur fyrir sig, svívirði alla, sem
reyndu að koma í veg fyrir það.
Þeir einir, sem telja Hermann
Jónasson vísan til eftirgjafar á
rétti íslendinga, geta haldið því
fram, að tillaga Sjálfstæðismanna
um ráðherrafund Atlantshafs-
bandalagsins hafi haft undan-
hald í landhelgismálinu í sér
fólgið. Því að það hefði verið
Hermann Jónasson, ásamt Guð-
mundi I Guðmundssyni, sem
hefði farið með umboð íslend-
inga á þvílíkum fundi.
Maðurinn, sem ætíð er
að minnka
Einmitt þessi tillaga sýnir svo
skýrt að ekki verður um deilt, að
Sjálfstæðismenn hafa ekki hug
á að nota sér málið til flokkslegs
ávinnings.
Að svo vöxnu máli tekur því
út yfir, að Eysteinn Jónsson fjár-
málaráðherra skuli sl. sunnudag
hafa haft geð í sér til að bera
rangar sakir á Sjálfstæðismenn
og birta það hugarfóstur sitt í
Tímanum í gær, hinn 3. septem-
ber.
Þessi óhróður ráðherrans er
birtur sama daginn og Tíminn
fer fjálglegum orðum um nauð-
syn þess að láta „sundrungu og
úlfúð vikja“.
í ræðu sinni tekur Eysteinn
undir þau ósannindi Hermanns
Jónassonar sem Hermann hafði
flutt viku áður, að Sjálfstæðis-
menn hefðu ekki fengizt til að
svara þeim málaleitunum, sem til
þeirra hefði verið beint í land-
helgismálinu. Ekki nefndi Ey-
steinn frekar en Hermann eitt
einasta dæmi máli sínu til stuðn-
ings. Er það ekki von, því að hér
er um að ræða uppspuna frá rót-
um. Eysteinn lét þó hafa sig til
þess að segja, að vinnubrögð
Sjálfstæðismanna væru „mjög
hættuleg og sorglegt að minnast
þeirra, enda vafalaust þegar gert
þjóðinni mikið tjón“.
Þvílík ummæli gera þeim sjálf-
um, sem þau viðhefur nú að til-
efnislausu, verðuga sæmd. Þann
sóma mega Framsóknarmenn
vera einir urn.
Sjálfstæðismenn munu ekki
láta slík skattyrði á sig fá.
Þeir berjast fyrir sigri fslendinga
í landhelgismálinu vegna hins
góða málefnis og velferðar þjóð-
arinnar. Þess vegna setja þeir
þjóðareiningu um málið öllu ofar
og láta lítilmennskunöldur and-
stæðinganna sem vind um eyru
þjóta.
Fulltrúar á aðalfundi Stéttarsambands bænda.
13. aðalfundur Sféttarsamhands bænda:
Miklar umræður um verðlags-
grundvöll landbúnaðarvara
BIFRÖST, Borgarfirði, 2. sept. —
Aðalfundur Stéttarsamb. bænda,
hinn 13. í röðinni var settur hér
klukkan rúmlega 10 í morgun.
Formaður samtakanna, Sverrir
Gíslason bóndi í Hvammi, setti
fundinn og nefndi Jón Sigurðs-
son, alþingismann og bónda á
Reynistað til fundarstjóra. Tók
hann síðan við fundarstjórn
og stakk upp á varafundar-
stjóra, Sigurði Snorrasyni og
riturum Guðmundi Inga Krist-
jánssyni og séra Gísla Brynjólfs-
syni. Voru þeir allir samþykktir.
Síðan gaf fundarstjóri for-
manni sambandsins orðið og
flutti hann skýrslu stjórnarinnar.
í upphafi máls síns ræddi for-
maður um samninga þá sem að
undanförnu hafa staðið yfir um
nýjan verðlagsgrundvöll. Hag-
stofustjóri hefur reiknað út verð-
grundvöll síðastl. árs og hefur
hann hækkað um 10,35 prósent.
Báðir viðkomandi aðilar hafa lagt
fram breytingartillögur, er ekki
hefur orðið fullt samkomulag um.
Kvað hann fulltrúa bænda hafa
lagt til að því sem á milli ber
yrði vísað til yfirnefndar til
úrskurðar, en fulltrúar nevtenda
mæltust eindregið til að um-
ræðum yrði haldið áfram og
reynt að ná samkomulagi.
Þá ræddi formaður samræm-
ingu á verði kjöts og mjólkui og
sýndi tölulega fram á hver væri
mismunur á verði þessara vöru-
tegunda fyrir stríð og nú í dag. —
Benti hann á að nú fengi verka-
maður 4,1 lítra af óniðurgreiddri
mjólk fyrir hverja vinnustund,
en hefði fyrir stríð fengið 3,6
lítra. Af kjöti hefði verkamaður
fengið fyrir stríð 906 grömm fyrir
j vinnustundina, en fengi nú 679
! grömm af óniðurgreiddu kjöti. f
þessu sambandi benti ræðumað-
ur á breytingar sem hefðu verið
gerðar á síðastliðnu ári til hags-
bóta fyrir kjötframleiðendur, en
þær fólust í verðjöfnun á flutn-
ingskostnaði innanlands.
Framleiðsluaukning
Næst tók Sverrir Gíslason
til umræðu framleiðsluaukningu
íandbúnaðarvara á síðastliðnu ári
svo og útflutning þeirra. Fram-
leiðsla mjólkur jókst um 7.000 000
lítra árið 1957. Á þessu ári hefur
hins vegar aukningin orðið
nokkru minni en á sama tíma í
fyrra. Neyzlumjólkursala jókst
um 3,5 prósent. Útflutningur af
framleiðslu ársins 1957 var: 2700
tonn af kjöti, enda eru kjötbirgð-
ir í landinu nú svo til uppurðar
og mun Ijúka fyrir slátrun í
haust. Þá voru flutt út 170 tonn
af osti og enn stendur yfir út-
ílutningur á nokkru magni af
osti og þurrmjólk, sumpart af
þessa árs framleiðslu. Þa ræddr
formaður nokkur vandamál fram
leiðenda og ósk margra þeirra um
að koma upp sameiginlegu sölu-
kerfi. Fór hann þess á leit að
fundurinn tæki það mál til með-
ferðar.
★
Síðan tók Sverrir Gíslason til
umræðu byggingu hins nýja stór-
hýsis landbúnaðarins og benti á
nauðsyn fjáröflunar til að hægt
væri að halda framkvæmdum
áfram. Að síðustu ræddi formað-
ur um bústærð bænda og athug-
anir í því sambandi. Benti hann
á nauðsyn þess að koma þeim til
aðstoðar sem hefðu minnst búin
og lakasta aðstöðu.
Reikningar og kveðjur
Næstur tók til máls fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands-
ins, Sæmundur Friðriksson, Las
hann reikninga þess og skýrði þá.
Aðaltekjuliðirnir eru hlutur sam-
bandsins úr búnaðarmálasjóði kr.
802 þúsund, tekjuafgangur á
gjaldalið nemur tæpl. 654.000
krónum sem ráðgert er að gangi
til byggingar landbúnaðarins
gegnum ýmsa sjóði samtakanna.
Niðurstöður á efnahagsreikningi
nema 2.644 milljónum króna.
Sæmundur gerði að lokum grein
fyrir framkvæmdum við bygg-
ingu landbúnaðarhússins og benti
á hina brýnu nauðsyn þess að
bændur stæðu saman um þetta
stóra hagsmuna- og metnaðarmál
stéttarinnar.
Um hádegi var gert fundarhlé
en klukkan 2 síðdegis hófst fund-
ur að nýju. Landbúnaðarráðherra
Hermann Jónasson ávarpaði fund
inn og gerði verðlagsmál m. a. að
umræðuefni. Hann benti á nauð-
syn þess að gera ráðstafanir til
uppbyggingar landbúnaðarins er
miðuðust við slæmt árferði, þann-
ig að hægt væri að mæta skakka-
föllum, er yfir dyndu og benti í
því sambandi á vísindalegar
rannsóknir á heyverkun og þá
sérstaklega votheysgerð.
Eðvarð Sigurðsson varaforseti
Alþýðusambands Islands súur,
fund Stéttarsambandsins sem j
gestur, og ávarpaði hann fundar- j
menn og árnaði þeim heilla í i
starfi.
Umræður
Allmiklar umræður urðu um
skýrslu stjórnarinnar og ýmis
önnur rnál er sérstaklega varða
bændastéttina. Of langt mál yrði
að.rekja að nokkru ráði þær um-
ræður, aðeins skal bent á nokkur
atriði.
Garðar Halldórsson gerði sam-
anburð á verðlagsgrundvellinum
og hinum raunverulega kostnaði
og starfi að meðalbúi í heima-
sveit sinni í Öngulstaðahreppi í
Eyjafirði. Vildi hann með þessu
sanna að verðlagsgrundvöl'urinn
væri ekki byggður á réttum for-
sendum. Ólafur Bjarnason íBraut
arholti, lýsti ánægju sinni yfir að
Framleiðsluráð hefði með athug-
un sinni skorið úr þeirri deilu
frá síðasta aðalfundi hvort kjötið
eða mjólkin nyti hagstæðari
verðlagningar. Niðurstaðan hefði
orðið sú að kjötið væri betur
verðlagt. Taldi Ólafur að hin nýju
„bjargráð" væru hagstæðari sjáv
arútveginum en landbúnaðinum.
Þar virtust allar tegundir fram-
leiðslu fá fullt grundvallarverð.
Að vísu næði 1. flokks kindakjöt
sæmilegu verðlagsgrundvallar-
verði, þegar við bættist það verð,
sem fæst fyrir ull og gærur. Hins
vegar væri það að segja um
mjólkurafurðirnar sem seidar
væru á erlendum markaði, að
þær gæfu samkv. uppl. Árbókar-
innar sem svaraði 50 aurum á
lítra. Tveir siðastl. fundir hafa
óskað eftir þvi að ríkisvaldið
greiddi það miklar verðba>tur á
mjólkurafurðir sem seldar væru
á erl. markaði, að fyrir þær
fengist fullt grundvallarverð.
Þetta hefði ekki enn fengizt. Fá
ist ekki betri kjör verður hvert
verðjöfnunarsvæði að taka á sig
hallann af útflutningnum. Að
síðustu deildi ræðumaður á
skattlagningu fóðurbætis og
fleira. Gunar Guðbjartsson gerði
mjög að umtalsefni þær verð-
hækkanir sem orðið hefðu á
rekstrarvörum landbúnaðarins
og sýndi fram á að þær kæmu
harðast niður á þeim sem
lakast væiu staddir með bú-
skap sinn og þá fyrst og
fremst ungum bændum, sem
væru að berjast áfram til bjarg-
álna. Kvað hann þörf aðgerða
þessu til úrbóta. Séra Gísli Brynj-
ólfsson benti á afturför er nú
væri í framleiðslu kartaflna og
að það stafaði af röngum aðgerð-
um hins opinbera. Auk fyrr-
greindra ræðumanna töluðu
Benedikt Líndal, Hafsteinn Pét-
ursson, Guðjón Hallgrímsson,
Bjarni Bjarnason, Sverrir Gísla-
Frh. á bls. 15.