Morgunblaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 12
12 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. sept. 1958 > Höfum flutt skrifstofui vorur að Laugaveg 105. Inngangur frá Hlemmtorgi. Brunabótafélag íslands 502IE U/ONCi EF'Tlfc RUHARO Vefna&arvörubúð Óskum eftir röskri og samvizkusamri afgreiðslu- stúlku í vefnaðarvörubúð sem fyrst, helzt ekki yngri en 20 ára. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 8. þ.m. merkt: „Vefnaðarvörubúð — 6954“. ISIauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 46. og 48 tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1958, á v.b. Haraldi K.O. 16, eign Guðmund- ar Péturssonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Ásmundssonar hrl., þar sem skipið er á skipasmíða- stöð Daníels Þorsteinssonar & Co. hf., við Bakka- stíg, föstudaginn 5. september 1958, kl. 10,30 árdegis Borgarfógetinn í Reykjavík. Miðstöðvardælur ®s Olíubrennarar fyrirliggjandi Sighvatitr Einarsson & Co. Garðastræti 45, sími 24133 og 10628 — Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu — um hálfan mánuð að ræða, og ég yrði eflaust kominn aftur til Hong Kong í tæka tíð. áður en málið kæmi fyrir rétt. Ég fór út úr garðinum og inn í póstskrif- stofu Imperial-gistihússins. Það an sendi ég Suzie skeyti og sagði henni að leita aðstoðar lögfræð- ings, Haynes að nafni, sem var eini lögfræðingurinn í Hong Kong, er ég fyrir einskæra til- viljun vissi hvað nét, þótt ég hefði aldrei séð hann. Ég hafði einhvern tíma lesið blaðafrétt um mál, þar sem hann liafði verið verjandi sakbornings. Klukku- stundu síðar hafði ég séð nafnið aftur á framhlið skrifstofubygg- ingar í borginnt, og þar af leið- andi hafði það festst mér í minni. Ég sagði henni að hafa engar áhyggjur og sendi henni ástar- kveðjur. Ég sendi einnig skeyti til Hay- nes, og um leið minntist ég þess, að mér hafði láðst að geta þess í skeytinu til Suzie, hvenær ég kæmi aftur. Ég flýtti mér því að afgreiðsluborði B.O.A.C. flugfé- lagsins í gistihúsinu til þess að fullvissa mig um. að ég væri skráður farþegi eftir hálfan mán- uð, fór síðan aftur í póstaf- greiðsluna og sendi henni annað skeyti varðandi heimkomudag minn. Ég bætti einnig við nokkr- um hughreystandi ástarorðum og sagði henni frá bleiku regnhlíf- inni. Síðan tók ég bifreið heim til gistihússins, lét niður farang- ur minn og ók út á flugvöll, tíu mínútum áður en flugvélin til Hokkaido átti að leggja af stað. ÞRIÐJI KAFLI. „Já, lögreglan fór illa ineð mig. Já! Þeir héldu mér í tukthúsinu alla nóttina! Ekki í aðaltukthús- inu, heidur litla tukthúisinu á lög- reglustöðinni, sem er enn verra!“ Við stóðum fyrir utan flugvall- arbygginguna og biðum eftir bif- reiðinni, sem ók farþegunum til Hong Kong. Flugvélin frá Jap- Allskonar nærfatnaður fyrir börn og fullorðna frá Tékkóslovakíu. Tiger Brandvörumerkið tryggir yður góða vöru og gott verð: Hclsi^cux G.QJaLoiacu^ f Hverfisgata 4—6, Reykjavík Einkaumboðsmenn fyrir pr jónavörudeild: an hafði verið þrem klukkustund- um á eftir áætlun, en um leið og ég steig á útgöngubrúnna úr flug vélinni, kom ég auga á Suzie, sem tyilti sér á tá hinum megin við girðinguna og veifáði, rétt eins og hún hefði staðið þarna síðan ég fór fyrir tveim mánuðum. Meðan á fjai’veru minni stóð, hafði sum arið gengið í garð í Hong Kong, og hafði það í för með sér hita- svækju og mollu, sen var jafn- vel enn meiri en sú, sem ég hafði kynnzt í Malaya. Svitinn bogaði af mér innan undir skyrtunni, og ég strauk mér með vasaklútnum um enni og háls, meðan Suzie iét dæluna ganga um hina hræðilegu meðferð, sem hún hafði sætt hjá lögreglunni. „Ó, það var hræðilegur staður — fullur af hræðilegu, skítugu fólki! Já, þessir hryllilegu lög- reglumenn, þeir fóru með mig al- veg eins og ég væri götustelpa!“ „Hvað segirðu mér um Betty, Suzie?“ sagði ég. „Er henni batn- að?“ „Cánton-stelpan?“ sagði Suzie. „Já, þú þarft ekki að hafa áhyggj- ur af henni“. „Ég hef eingöngu áhyggjur þin vegna. Ég hef verið svo hræddur um afleiðingarnar fyrir þig, sé hún hættulega særð. Er hún enn í spítala?" „Já, ég býst við því“, sagði hún kæruleysislega. „Veiztu það ekki?‘ „Jú, hún er í spítalanum — en ég er ekki enn búin að segja þér frá því, hvað það var hræðiiegt í tukthúsinu. Já, það var skelfilegt! Ég sagði við þá: „Hleypið mér út! Ég er ekki vond stúlka! Kær- astinn minn er Englendingur. — Hann er bara í Japan núna — fór fyrir stórt amerískt fyrirtæki og fær meiri peninga á einni viku en ykkar maður, númer 1 fær á mánuði, eða jafnvel á ári. Sjáið bara, hann gaf mér þessa ávísana bók, og ég þarf ekki annað en skrifa á eina af þessum ávísunúm, hve mikið ég vil fá og þá lætur bankinn mig hafa það. Já, vinur minn er mikill maður, og þegar hann kemur aftur mun hann áreið anlega taka í lui-ginn á ykkur! Hann mun sjá um að þið komizt í vandræði!“ En þeir héldu mér alla nóttina á þessum hræðilega stað — ég svaf ekki dúr!“ Ég greip fram í fyrir henni: „Ég vildi óska, Suzie, að þú byrðj aðir á byrjuninni og segðir mér, hvað það var sem kom fyrir“. „Ég sagði þér það. Canton- stelpan sagði dálítið ljótt við mig og ég stakk hana þá bara með skærunum". „Hvað var það, sem hún sagði?“ „Ég man það ekki glöggt", sagði ajtitvarpiö Fimmtudagur 4. september: 8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10 Veðurfregnir. 12.50—14,00 „A frívaktinni", sjómannaþáttur (Guðrún Erlendsdóttir) 19.30 Tón leikar: Harmónikulög (plotur). 20.00 Erindi: Búnaðarháskólinn í Kaupmannahöfn 100 ára (Gísli Kristjánsson ritstjóri). 20.43 Tón leikar (plötur): Atriði úr óper- unni „Vald örlaganna“ eftir Verdi 21.05 Upplestur: Gunnar Dal skáld les öðru sinni úr þýðingu sinni á ljóðabókinn „Spámaður- inn“ eftir Kahlil Gibran. 21.20 Tónleikar (plötur): „Suite Pro- vencale" eftir Milhaud. 21.35 „Þar mætast stálin stinn“, erindi um millisvæðamótið í skák (Guð- mundur Arnlaugsson menntskóla kennari). 22.10 Kvóldsagan: „Spaðadrottningin" eftir Alex- ander Pushkin; III. (Andrés Björnsson). 22,30 „Kulnaður eld- ur“: Yves Montand svngur frönsk dægurlög (piötur). 23,00 Dag- skrárlok. Föstudagur 5. septeniber: Fastir liðir eins og venjulega. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 19,30 Tónleikar: Létt lög (plöt- ur). 20,30 Hugleiðingar við lestur íslenzkrar bókar (Eggert Stef- ánsson söngvari). 20,50 Islenzk tónlist: Tónverk eftir Jón Þórar- insson og Þórarin Guðmundsson, (plötur). 21,35 Útvarpssagan: „Konan frá Andros“ eftir Thorn- ton Wilder; V. (Magnús Á. Árna- son, listmálari). 22,00 Fréttir, íþróttaspjall og veðurfregnir. —- 22.15 Kvöldsagan: „Spaðadrottn- ingin“ eftir Alexander Pushkin; IV. — sögulok (Andrés Björns- son þýðir og les). 22,30 Frægar hljómsveitir (plötur). — 23,00 Dagskrárlok. IIPPBOÐ sem auglýst var í 59., 60. og 61. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1958 á 2ja herbergja risíbúð á Hraunteig 15, hér í bænum, eign Steinunnar Þorkelsdóttur o. fl., til slita á sameign, fer fram eftir kröfu Kristjáns Eiríkssonar hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 15. september 1958, kl. 3,30 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík. Bíllinn Sími 18-8-33 Til sýnis og sölu mjög vel með farinn VOL VO-ST ATION 1954 BÍLLINN VARDARHIJSIIVU við Kalkofnsveg — Sími 18-8-33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.