Morgunblaðið - 04.09.1958, Side 16
Nýju fiskveiöa-
t&kmörkin
Sjá grein á bls. 9.
Sigurður Bjarnason
Eggert G. Þorsteinsson
Þórarinn Þórarinsson
Magnús Kjartansson
Útiúmdur úm íondhelgismálið ú
Lœkjat forgs kí. sex í dag
Á FIJNDI í stjórn fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
sem haldinn var í gærmorgun,
var samþykkt einróma, að full-
trúaráðið gangist fyrir almenn-
um utifundi um landhelgismál-
ið, á Lækjartorgi kl. 18 í dag.
Einnig var samþykkt einróma,
að fara þess á leit við eftirtalda
menn, að þeir verði ræðumenn á
fundinum: Eggert G. Þorsteins-
son alþm., Magnús Kjartansson,
ritstj., Sigurð Bjarnason ritstj.
og Þórarin Þórarinsson ritstj. All
ir þessir menn hafa orðið við
beiðni fulltrúaráðsins og verða
þeir því ræðumenn á fundinum.
Fundarstjóri verður Guðgeir
Jónsson.
Utanrikisráðherra krafðist þess að
íslendingarnir verði aff-
ur seftir um horð í togar-
ann Norfhern Foam
Þá hefur utanríkisráðherra látið
í ljós við sendiherra Breta, að
sér þætti leitt, að steinum skyldi
hafa verið kastað að húsi sendi-
ráðsins í Reykjavík og rúður
brotnar.
Skýlaust brot
a a
gum
VEGNA fréttarinnar um að einn
brezku togaranna, „Lord Betty“
frá Huil, hefði breytt yfir nafn
og númer í fyrrakvöld þegar
varðskipið „Þór“ kom að honum,
hringdi einn erlendu fréttamann-
anna hér í brezka sendiráðið og
fékk þær upplýsingar hjá einum
starfsmanní þess, að ef fréttin
væri rétt, þá væri hér um ský-
iaust brot á alþjóðalögum að
ræða, hvort sem togarinn hefði
verið fyrir utan eða innan Iand-
helgi.
Rannsókn
heldur áfram
LÁTLAUST er unnið að því að
upplýsa smyglmál, ný og eldri.
Er unnið að þessum málum hér í
Reykjavík og í Hafnarfirði. Þó
rannsóknin hafi þegar náð til
mikils fjölda manna, þá er hún
ekki komin á lokastigið. Enn
sitja margir menn í gæzluvarð-
haldi.
Árás á lífsliags-
muni þjóðarinnar
Frá Stúdentaráði Háskólans:
STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands
fordæmir harðlega þær aðgerðir
brezkra stjórnarvalda að vernda
með ofbeldi og yfirgangi lögbrot
brezkra fiskiskipa mnan íslenzkr-
ar landhelgi.
Þær aðgerðir, að fótumtroða
með valdi ótvíræðan rétt vopn-
iausrar smáþjóðar eru bein árás
á lífshagsmuni þjóðerinnar og
híjóta að verða fordæmdar sem
hið mesta ódrengskaparbragð.
Stúdentaráð fagnar því að þjóð
areining skulj ríkja um mál þetta
og hvetur til einingar meðal
þeirra, sem með mál þetta fara
af hálfu þjóðarinnar.
Stúdentaráð lýsir sig fylgjandi
hverjum þeim aðgerðum, er miða
að því, að halda uppj fullri lög-
gæzlu innan 12 mílna landhelg-
innar og þakkar löggæzlumönn-
um þá einurð og stillingu, sem
þeir hafa hingað til sýnt í starfi
Frá utanríkisráðurieytinu í gær:
SENDIHERRA Breta hefir í dag
afhent utanríkisráðherra, Guð-
mundi í. Guðmundssyni tvær
mótmælaorðsendingar út af deil-
unni um fiskveiðilandhelgina.
Fyrri orðsendingin er mótmæli
Breta gegn afskiptum landhelg-
isgæzlunnar af togaranum North
ern Foam. Stinga Bretar í orð-
sendingunni upp á því, að þeir
skili íslendingunum, sem teknir
voru úr togaranum, um borð í
íslenzkt skip í rúmsjó, og biðj-
ast svars utanríkisráðureytisins
við þeirri uppástungu eða óska
annarrar tillögu frá ráðuneytinu
í því sambandi.
Utanríkisráðherra gaf sendi-
herranum það svar, að hann
krefðist þess, að íslendingarnir
yrðu settir um borð í Northern
Foam sem þeir hefðu verið að
handtaka að morgni 2. september
svo að þeir gætu framkvæmt
skyldustörf sín óhindrað og hand
tekið togarann, sem hafði verið
að fremja landhelgisbrot.
Síðari orðsendingin er mót-
mæli Breta gegn mótmælum ís-
lendinga út af afskiptum brezka
flotans af störfum landhelgis-
gæzlunnar. Telja Brtar 12 mílna
landhelgina með öllu ólöglega og
aðgerðir landhelgisgæzlunnar
því einnig ólöglegar.
Valdbeiting Breta gagn-
rýnd í Englandi
MEÐAL brezku blaðamannanna,
sem hér eru staddir þessa dagana
er Sylvain Mangent fréttaritstj.
„News Chronicle“ sem er óháð
dagblað og mikið lesið í Bret-
landi. Fréttamaður Mbl. hitti
hann á förnum vegi í gær og
innti hann eftir áliti hans á víð-
burðum síðustu daga. Honum
fórust orð á þessa leið:
— Landhelgismálið er ekkert
stórmál í Bretlandi af þeirri ein-
földu ástæðu að það skiptir að-
eins lítinn hóp manna nokkru
máli. Almenningur í Bretlar.di
hefur hér engra beinna hags-
muna að gæta, enda eru fiskveið-
ar aðeins örlítið brot af brezkum
atvinnuvegum, þar sem það er aft
ur á móti lífsspursmál íslendinga.
Áður en ég fór til íslands var það
tiltölulega almenn skoðun bæði
blaða og einstaklinga í Bretlandi,
að það væri rangt að beita valdi
gegn bandalagsþjóð sem auk þess
er óvopnuð. Þessi almenna skoð-
un snertir ekki spurninguna hvor
aðilinn hafi á réttu að standa,
heldur er hér um að ræða ai-
menna andstyggð brezks almenn-
ings á valdbeitingu gegn vopn-
lausum ríkjum.
— Að því er snertir sjálfa deil-
una, þá er hér um að ræða hags-
munamál lítiis hóps brezkra út-
gerðarmanna, sem reynir að sjálf
sögðu að gera sem mest úr mál-
inu. Togaraeigndur í Bretlandi
hafa sýnilega ötula auglýsinga-
deild og hafa með hennj náð á-
heyrn víða. Þeir buðu t. d. öllum
blöðunum að senda menn með
togurunum til að fylgjast með
gangj málanna. Blað mitt þáði
þetta boð og sendi einn frétta-
ritara með togara til íslandsmiða,
og auk þess ákvað ég að koma
hingað til að kynnast báðum hlið
um á málinu.
— Ég vil endurtaka, að sú
skoðun var mjög útbreidd í Bret-
landi að það væri í hæsta máta
vafasamt að senda herskip hing-
að. Blöð stjórnarandstóöunnar
hafa gagnrýnt þessa ráðstöfun
harðlega, og mörg blöð önnur,
t. d. „News ChronicIe“ hafa tekið
í sama streng.
Mynd þessa tók ljósmyndari Morgunblaðsins um tíu-Ieytiö í fyrrakvöld á Laufásveginum, fyrir
framan bústað brezka sendiherrans. Nokkrar rúður höfðu þegar verið brotnar í húsinu og á
myndinni sést bjarmi eins svifblyssins, sem kastað var í garð sendiherrans, en þegar þessi ó-
læti gerðust stóð yfir boð sendihcrrans fyrir bre zka blaðamenn og starfsfólk sendiráðsins.
Enn urðu óspektir
við brezka sendiherra-
bústaðinn
AFTUR í gærkvöldi, annað
kvöldið í röð, voru framin
skemmdarverk á heimili brezka
sendiherrans, að Laufásvegi 33.
Um klukkan 9,30 í gærkvöldi
var brotin rúða í sendiherrabú-
staðnum, en fram að þeim tíma
hafði ekki dregið til sérstakra
tíðinda, að því er Guðbjörn
Hansson varðstjóri tjáði frétta-
manni Mbl., en Guðbjörn var á-
samt nokkrum lögreglumönnum
öðrum á götunni framanvið
sendiherrabústaðinn. Um kl. 11
var búið að mölva fleiri rúður og
þá hafði götunni nokkru áður
verið lokað.
íslendingum er þaS til lítil*
sóma að veita gremju sinni út-
rás gegn Bretum með þeim hætti
að ráðast að heimili sendiherrans
þar sem hann býr með konu og
börnum. Þvílíkt athæfi er til þess
eins fallið að skaða hinn góða
málstað þjóðarinnar. Verður aS
vona að menn sjái sóma sinn í að
láta af slíkri framkomu.
Lögreglan tók allmarga ungl-
inga 14—16 ára og færði þá nið-
ur á lögreglustöð, en síðan átti
að flytja þá heim til sín.