Morgunblaðið - 03.10.1958, Page 3
Föstudagur 3 október t958
W GnCVTSBL 4 Ð1Ð
3
Siglingrakeppni Brt>ta og Bandaríkjamanna um hinn svonefnda Ameríkubikar vakti mikla at-
hygli víða um lönd. Bandaríska seglskipið Columbia sigraði með miklum yfirburðuim. Vann
það f jóra riðla í röð, svo að óþarfi var að keppa lengur. En ef skipin hefðu verið jöfn mátti keppa
í sjö riðlum. Þessi mynd var tekin úr lofti af keppinautunum, hinni bandarísku Columbiu og
• brezku Sceptre.
Rœða Ragnhildar Anderssen Rysst
er jarðneskar leifar föður hennar
Vetrarstarf Þor-
steins Ingólf ssonar
að hefjast
HEYKJUM 28. september. —
Vetrarstarf félagsins er nú að
hefjast og hefir stjórnin þegar
lagt grundvöllinn að því. í fyrsta
lagi er ákveðið að halda héraðs-
mót sennilega í nóvembermán-
uði. Þá hyggst stjórnin koma á
almennum umræðufundum um
mál er snerta hreppsfélögin sam-
eiginlega, t.d. skipulagsmál sýsl-
unnar, vegamál, skólamál, fjall-
skilamál og einnig ýms vandamál
er skapazt þar sem er að mynd-
ast þéttbýli. Fyrsti fundur af
þessu tagi er ákveðinn að Klé-
bergi um miðjan október og
vinnur stjórnin að undirbúningi
hans. Verður reynt að fá góðan
ræðumann með sérþekkingu á
umræðuefninu, en síðan hug-
myndin að 2—3 innanhéraðs-
menn, undirbúi sig sérstaklega til
þátttöku í umræðunum.
Stjórn Þ. I. skipa nú: Formað-
ur Jón M. 'Guðmundsson, Reykj-
um; varaform. Oddur Andrésson,
Hálsi; ritari Magnús Jónasson,
Stardal; gjaldkeri Ásbjörn Sig-
urjónsSon, Álafossi og meðstjórn-
endur þeir Páll Ólafsson, Braut-
arholti; Jóhann Kr. Jónsson, Dals
garði og Sigsteinn Pálsson, Blika-
stöðum.
STAKSTIIMAR
„Svífa í lausu lofti“
Það er fátt, sem stjórnarblöð-
unum kemur saman um ann-
að en það eitt að reyna að
láta V-stjórnina lafa áfram eitt-
hvað enn. Um árangurinn af
starfi hennar og hvers af henni
sé að vænta eru þau hins vegar
gersamlega ósammála. Alþýðu-
blaðið gerir t.d. í gær að umræðu
efni hugmyndir stjórnarliðsins
um „endurskoðun á núgildandi
fyrirkomulagi vísitölunnar“.
Blaðið segir m.a.:
„Hannibal Valdimarsson er
þessa dagana á ferðalagi í tilefni
af kosningunum til næsta Al-
þýðusambandsþings og hefur
ekki farið í neina launkofa með
þá skoðun, að hann telji endur-
skoðun á núgildandi fyrirkomu-
lagi vísitölunnar mjög koma til
greina. Hér er með öðrum orð-
um um að ræða þá sakargift, sem
Þjóðviljinn ber á Alþýðuflokkinn
og Framsóknarflokkinn. Munur-
inn mun helzt sá, að hugmyndir
Hannibals svífa í lausu lofti, en
það er verkalýðshreyfingunni
naumast farsælt“.
„Ef upp væri fundið“
komu til Ósló
FYRIR hönd móður minnar og
okkar systkinanna vil ég leyfa
mér að bera fram beztu þakkir
til fulltrúa norska utancíkisráðu-
neytisins og til sendiherra íslands
í Noregi, Haralds Guðmundsson-
ar, fyrir þá miklu sæmd, sem
þeir hafa sýnt föður mínum með
því að koma hingað í dag, er
jarðneskum leyfum hans, sem
fluttar voru með íslenzkri flug-
vél, er veitt móttaka á norskri
grund. Af hálfu íslenzku þjóðar-
innar hafði hann verið kvaddur
með virðulegri athöfn í Reykja-
vík.
I dag er allt öðru vísi en áður.
Ég hef oft staðið hér úti á Forn-
ebu-flugvölli og séð föður minn,
hressan og glaðan, legga af stað
til íslands eða koma þaðan. Svo
mikill sem lífsþróttur hans var,
hefur hann áreiðanlega ekki hugs
að sér að skilja þannig við lar.d-
ið, sem hann elskaði. Þegar hall-
aði að kvöldi og að því kom, að
hann léti af embætti sínu, gerði
hann ráð fyrir því að halda á-
fram stórfum hér í Noregi við
ýmis þau verkefni, sem hann
hafði hafið á íslandi og gei’ði
sér vonir um að leiða farsællega
til lykta hér.
Ég hef nýlega farið í gegnum
skjöl og bréf föður míns, sem
safnazt hafa á langri ævi hans
sem baráttumanns á svo mörgum
sviðum. Ég sé, að þegar hann sem
miðaldra maður kemur til ís-
lands, ef til vill fyrir duttlunga
örlaganna, hefur hann, sem mað-
ur, tekið út nýjan persónulegan
þroska, er gerði hann auðugri og
hamingjusamari einstakling en
nokkru sinni fyrr. Hver dagur
varð gleðidagur — reynsla, sem
gaf mikið í aðra hönd. Því betur
sem hann kynntist hinni íslenzku
Tónleikum Þórunnar
Jéhannsdóttur mjög
vel fagnað
AKUREYRI, I. október. —
Fjórðu tónleikar Tónlistarfélags
Akureyrar á þessu ári voru haldn
ir í Nýja Bió í gærkvöldi. Voru
það píanótónleikar Þórunnar Jó-
hannsdóttur. Á efnisskránni voru
verk eftir Bach, Busoni, Beet-
hoven, Taneiev, Prokofieff, Lizst
og Chopin. Húsfyllir var og lista-
konunni afbragðsvel tekið. Barst
henni fjöldi blóma og varð hún
að leika aukalag. — Magn.
þjóðarsál, því fleira fanr. hann
þar af varanlegum og ágætum
verðmætum. Samskiptf hans við
íslenzku þjóðina leystu hann úr
viðjum þeirrar einmanakenndar,
sem við verðum svo oft að búa
við hér á jörðu og getur gex-t allt
svo tilgangslaust.
Hann vann að því af lífi og sál
að tengja þjóðir þessara tveggja
landa sem traustustum böndum.
Jafnvel í sumarfríum sinum hér
í Noregi þráði hann að hverfa
aftur til íslands. Síðast í vor sat
hann hjá Lillehammer og virti
fyrir sér Valdresfjöll, sem hann
nefndi ísland — og þar lifði hann
að nýju hinar björtu nætur við
Tjörnina í Reykjavík, svanasöng
Kosnir 15 menn í
sjó- og verzlunar-
dóm
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær fór fram kosning 15 manna
í sjó- og verzlunardóm til 4ra ára.
Samþykktur var samhljóða listi
með eftirtöldum nöfnum:
Axel Björnsson, vélstjóri.
Bjarni Jónsson, skipstjóri.
Einar Guðmundsson, skipstjóri.
Geir Sigurðsson, skipstjóri.
Guðbjartur Ólafsson, fyrrv.
hafnsögumaður.
Halldór Sigurþórsson, stýrim.
Ingvar Vilhjálmsson, útgm.
ísleifur Högnason, framkvstj.
Jóhann Ólafsson, forstjóri.
Jón Axel Pétursson, forstjóri.
Jón Sigurðsson, framkvstj.
Nikulás Jónsson, skipstjóri.
Steindór Árnason, vélstjóri.
Sveinn Helgason, stórkaupm.
Þorsteinn Árnason, vélstjóri.
Þorsteinn Loftsson, vélfræði-
ráðunautur. -
Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv.
hagstofustj ór i.
580 tunnur til
Keflavikur i gær
KEFLAVÍK, 2. sept. — 13 bátar
komu inn í gær með samtals 580
tunnur af síld, 7—80 tunnur á
bát, Afli var ákaflega rýr og
komu ekki alir bátar inn.
— Fréttaritari.
inn, storminn, músikina og þó
var honum fólkið, þjóðin efst í
huga af þessu öllu. Allt hans líf
var hjá henni. Nú hefir hann beð-
ið ósigur fyrir dauðanum — en
hann komst hjá því að glata ís-
landi —. og okkur finnst að hann
muni verða þar að eilífu og hafi
fundið þar frið.
Ég vil leyfa mér að þakka full-
trúum norska utanríkisráðuneytis
ins fyrir hina góðu samvinnu þess
og föður míns um margra ára
skeið. Hann var fullur áhuga og
bjartsýni, þegar hann kom úr
ráðuneytnu, þar sem hann mætti
skilningi á þeim viðfangsefnum,
sem áttu hug hans og hann sneri
aftur til íslands með nýjum
þrótti.
Svo vil ég biðja Harald Guð-
mundsson sendiherra að skila
þakklæti til hinnar gáfuðu,
hraustu og andríku íslenzku þjóð
ar, fyrir hið auðuga líf, alla þá
gleði og vináttu, sem föður mín-
um féll í skaut á íslandi, og sem
einnig við hans nánustu fengum
okkur til mikillar gleði að taka
þátt í.
Og svo vil ég að lokum lýsa
friði yfir minningu föður míns.
VETRARÁÆTLUN Flugfélags ís
lands í innanlands- og millilanda-
flugi gekk í gildi 1. okt. og fækk-
ar ferðum þá frá því sem verið
hefir í sumar.
Innanlandsflug
Til Akureyrar og Vestmanna-
eyja verður flogið alla daga, en
auk þess eru tvær ferðir til Ak-
ureyrar þriðjudaga og föstudaga.
Til Egilsstaða eru áætlaðar ferð
ir þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga. í þriðjudagsferðinni
er komið við á Akureyri í báðum
leiðum.
Til ísafjarðar eru ferðir alla
daga nema sunnudaga og þriðju-
daga og til Blönduóss og Sauðár-
króks eru ferðir á þriðjudögum
og laugardögum.
Siglufjarðarferðir eru á mánu-
dögum, en ferSir til Kirkjubæjar-
klausturs og Fagurhólsmýrar á
föstudögum.
Til Hornafjarðar eru ferðir á
mánudögum eg föstudögum.
Ferðir til Húsavíkur eru á mið-
vikudögum og til Kópaskers á
fimmtudöguM.
Ferðir til Patreksfjarðar og
Skólar á Akureyri
teknir til starfa
AKUREYRI, 1. okt. — Gagn-
fræðaskóli Akureyrar var settur
kl. 5 síðd. í dag. Starfar skól-
inn nú í 17 bekkjardeildum og
bættust við fjórar nýjar kennslu-
stofur í viðbyggingu skólans. I
vetur verða um 420 nemendur
í skólanum og er það nokkru
fleira en í fyrra. Nýr kennari
hefur verið ráðinn Þórður Gunn-
arsson og nýir stundakennarar
Ingvar Gíslason og Erlendur
Konráðsson.
Barnaskólinn var settur í dag
og starfar hann í 29 bekkjar-
deildum. Um 800 börn verða í
skólanum í vetur. Tvær hljóm-
sveitir munu starfa í skólanum,
fiðluhljómsveit og lúðrahljóm-
sveit. Oddeyrarskólinn var settur
í dag og verða í honum 260 börn
í 11 bekkjardeildum. Þá var
Glerárskólinn settur og verða
þar 98 börn í sex bekkjardeild-
um. Þar verða skólastjóraskipti.
Hjörtur L. Jónsson hefur fengið
frí frá störfum í vetur og í hans
stað verður Árni M. Rögnvalds-
son skólastjóri.
Bíldudals eru á fimmtudögum og
til Þingeyrar og Flateyrar á
þriðjudögum.
Til Hólmavíkur og Þórshafnar
er flogið á föstudögum.
Alls eru þrjátíu brottfarir á
viku frá Reykjavík í þessari á-
ætlun inaanlandsflugs. Flugtími
er áætlaíur 86 klst. og 25 mín.
Flugferðum milli landa fækkar
einnig frá því sem var í sumar-
áætluninni og sú breyting verð-
ur, að ekki er flogið fram og aft
ur samdægurs, svo sem venja
hefir verið.
Þetta hefir þann kost í för með
sér, að komutími flugvélanna frá
útlöndum verður ekki síðar en
kl. 3—5 síðdegis.
Til Kaupmannahafnar eru fjór-
ar ferðir í viku, þar af þrjár með
viðkomu í Glasgow og ein um
Osló, Tvær ferðir í viku verða til
Hamborgar og ein til London.
Til Glasgow og Kaupmannahafn-
ar er flogið mánudaga, miðviku-
daga -og föstudaga, en mánudags-
ferðin er einnig til Hamborgar.
Fimmtudaga er flogið til Lon-
don og laugardaga til Osló, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Eftir þessu mætti ætla, að hug-
myndir Alþýðuflokksins og Fram
sóknarflokksins um þetta „svifu
ekki í lausu lofti“. En býsna lítið
fer fyrir greinargerð Alþýðu-
blaðsins um hvað fyrir þeim
kumpánum vakir. Um það er þar
skýrast að orði kveðið svo:
„Satt að segja virðist engin
goðgá að taka þessi mál til at-
hugunar, ef upp væri fundið ný
og farsælli skipun, sem leiddi til
réttlætis og lagfæringar fyrir al-
þýðustéttirnar".
Óneitanlega minna þessi speki-
orð býsna mikið á boðskap Al-
þýðublaðsins frá því í vetur, þeg
ar tímamót áttu að verða í is-
lenzkum stjórnmálum — eftir
páska.
„Ekkert að óttast“
„Vinnukonur Hermanns“, eins
og þeir Gylfi Þ. Gíslason og
Hannibal Valdimarsson eru nú
kallaðir af samflokkamönnum
sinum, munu komast að þvi að
slík hálfyrði nægja þeim ekki til
langframa. Tortryggni almenn-
ings eykst og stórlega við þá einu
tryggingu, sem Alþýðublaðið býð
ur upp á, þegar það segir:
„Kommúnistablaðið ætti að
muna, að verkalýðshreyfingin
þarf ekkert að óttast í þessu sam-
bandi eins og stefnu núverandi
ríkisstjórnar er háttað“.
Sú huggun, að menn geti bara
verið rólegir af því að ríkisstjórn-
inni megi treysta, kann að duga
við bitlingahjörðina umliverfis
Eystein Jónsson en fær áreiðan-
Iega ekki hljómgrunn hjá alþýð-
unni.
„Holskefla
dýrtíðarinnar“
Þetta Iætur Þjóðviljinn sér og
skiljast, þegar hann segir í gær:
„Að undanförnu hefur hol-
skefla dýrtíðarinnar á nýjan leik
steypzt yfir landslýðinn og kjörin
hafa rýrnað“.
Engum dylst, að það var sjálf
V-stjórnin, sem hleypti þessari
holskeflu af stað. Á sama veg er
alveg ljóst við hverjum Þjóð-
viljinn er að vara með þessum
orðum:
„Verkalýðssamtökin verða
einnig að leggja á ráðin um það
hvernig þau geti bezt hrundið
fyrirætlunum þeim sem nú eru
uppi um það að afnema með öllu
vísitölukerfið og láta launþega
bera dýrtíðina bótalaust og festa
grunnkaupið með lögbuixdnum
heildarsamningum, eins og „and-
stæðingar vcrkalýðssamtakanna“
hugsa scr að sögn Tímans“.
Flugferðum fœkkar
yfir vetrarmánuðina