Morgunblaðið - 03.10.1958, Side 8
i
MORGllSfíLAÐIB
Föstudagur 3. október 1958
Stúdentaráð gegnir mjög um-
fangsmiklum störfum
segir Birgir Isl. Gunnarsson formadur
rábsins i vibtali v/ð siðuna
SXÚDENTAR voru eitt sinn snar
þáttur í borgarlífinu. Bar þá mjög
á stúdentum, ekki aðeins í
skemmtanalifinu, heldur og hvar
sem þeir fóru. Fannst mörgum
nóg um fyrirferð þessarar „stétt-
ar“. Óhætt er að fullyrða, að
nú sé blaðinu snúið við. Fæstir
vita orðið neitt af stúdentunum.
Margir halda eflaust, að þeir sitji
inni allan veturinn yfir þurrum
og leiðinlegum bókum og séu þvi
sem næst lokaðir frá umheimin-
um. Þessu er þó síður en svo
þannig varið, enda starfa stúdent-
ar mikið og kjósa á hausti hverju
Stúdentaráð, er ráða skal málum
þeirra. Til þess að fræðast ofur-
lítið um ráð þetta, starf þess og
vinnuaðferðir, gekk ég um dag-
inn á fund formanns Stúdenta-
ráðs, Birgis Isl. Gunnarssonar.
Og spyr ég þá Birgi fyrst:
— Hvað er Stúdentaráð?
— Stúdentaráð er kjörið
til að „gæta hagsmuna
stúdenta í hvívetna og vera
fulltrúi þeirra innan háskólans
og utan“ eins og segir í lögum
um Stúdentaráð Háskóla Islands.
Stúdentaráð er skipað 9 fulltrú-
um, sem kosnir eru leynilegum,
hlutbundnum kosningum af öll-
um háskólastúdentum á hausti
hverju.
— Hvert er upphaf Stúdenta-
ráðs?
— Stúdentaráð var stofnað ár-
ið 1920 og fyrsti formaður þess
var Vilhjálmur Þ. Gíslason, nú-
verandi útvarpsstjóri. Kosningar
til Stúdentaráðs voru upphaflega
ópólitískar. Fulltrúar voru þá
frá hverri háskóladeild, sem þá
voru fjórar, 2 frá hverju deildar-
félagi, en oddamaður var kos-
inn af öllum stúdentum innan
háskólans. Upphaf þess, að kosn-
ingarnar urðu pólitískar var það.
að í háskólanum voru stofnuð tvö
félög til þess að ná völdum i
Stúdentaráði. Það voru félög
kommúnista og nazista. Síðar var
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta stofnað, til þess að
hnekkja valdi þessara öfgaafla,
sem höfðu hreiðrað óhugnanlega
um sig innan'háskólans. Félagið
efldist skjótlega og varð brátí
stærsta félagið innan háskólans.
— Hver er helztu verkefni
Stúdentaráðs?
— Þau eru mjög fjölbreytt og
aukast með ári hverju vegna vax
andi stúdentafjölda og samstarfi
Stúdentaráðs við erlend stúdenta
samtök. ^
— Hvernig er sambandi við er-
lenda stúdenta háttað?
— Stúdentaráð er »ú aðili að
einu alþjóðasambandi stúdenta,
ISC — COSEC, en það er sam-
band hinna frjálsu stúdentasam-
taka. Illu heilli. tókst kommún-
istum, sem löngum hafa mótað
stefnu vinstri félaganna innan
háskólans, að draga Stúdentaráð
inn í hið kommúnistíska stúd-
entasamband, IUS, en það hefur
aðsetur í Prag og er algjörlega
stjórnað frá Moskvu. Stúdenta-
ráð losaði sig úr þessum tengsl-
um á síðastliðnu ári fyrir for-
ystu Vökumanna í háskólanum.
Ennfremur hefur Stúdentaráð
samtök á Norðurlöndum. Stúd-
entaráð tekur m. a. þátt í árlegri
ráðstefnu forystumanna stúdenta
samtaka á Norðurlöndum. Síðasta
samtök á Norðurlöndum. Síðasta
ráðstefna var haldin í Reykjavík
í febrúar sl. Samskipti við er-
lenda stúdenta hafa aukizt mjög
á síðustu árum og í kjölfar þess
eru aukin bréfaviðskipti. Stúd-
entaráði berst fjöldi bréfa og fyr-
irspurna í viku hverri auk tíma-
rita, bæklinga o. fl. Þá skiptist
Stúdentaráð á gjöfum við erlenda
stúdenta. M. a. fékk Stúdenta-
ráð nýlega gefið vandað hljóm-
plötusafn frá Minnesotaháskóla.
Að sjálfsögðu liggur mikil vinna
í þessu og til þess að svara fyrir-
spurnum hefur Stúdentaráð sér-
stakan utanríjfisritara. Því starfi
hefur Ólafur Egilsson gegnt und-
anfarin 2 ár. Bréfin koma frá öli-
um heimshornum og t. d. höfum
við fengið bréf frá Súdan, þar
sem við erum beðnir um vissar
lögfræðilegar upplýsingar. Sömu-
leiðis fengum við bréf frá Norð-
ur-Kóreu, þar sem farið er fram
á samstöðu íslenzkra og norður-
kóreanskra stúdenta gegn Syng-
man Ree!
— Hvað geturðu sagt mér frá
starfi Stúdentaráðs vítt og
breitt?
— Fyrsta starf Stúdentaráðs á
hverju kjörtímabili er að semja
hátíðadagskrá fyrir 1. desember,
en Stúdentaráð hefur jafnan haft
forgöngu um að minnast þess
dags. Mikið starf fer að sjálf-
sögðu til undirbúnings þessara
hátíðahalda. Stúdentaráð heldur
nokkrar fleiri skemmtanir á ári
hverju, s. s. áramótafagnað og
sumarfagnað og jafnvel fleiri
skemmtanir. Annað kvöld heldur
Stúdentaráð t. d. dansleik í
Tjarnarcafé, þar sem ætlazt er
til að nýstúdentar komi saman
og blandi geði hver'jir við aðra.
Vonumst við til að sjá annað
kvöld norðlenzka stúdenta stíga
í vænginn við sunnlenzkar
blómarósir.
Þá er einnig orðin föst venju,
að Stúdentaráð sjái um dagskrá
í Ríkisútvarpinu síðasta vetrar-
dag Stúdentaráð heldur einnig
uppi bókmenntastarfsemi og tón-
listarkynningu. Þá stendur nú
yfir smásagnasamkeppni á veg-
um Stúdentaráðs.
Stúdentaráð gefur út málgagu
allra stúdenta, Stúdentablað,
sem kemur a. m. k. út 1. desem-
ber ár hvert, en hefur að und-
anförnu komið allmiklu oftar út.
Undanfarin ár hefur Stúdenta-
ráð undirbúið þátttöku íslenzkra
stúdenta í Alþjóðaskákmóti stúd-
enta.
Stúdentaráð beitir sér fyrii
því, að fá erlenda menntamenn
til þess að flytja erindi fyrir
stúdenta og svara fyrirspurnum.
Það Stúdentaráð, sem nú situr,
hefur fengið tvo fyrirlesara.
Stúdentaráð heldur geysi-
Ritstjórar handbókar stúdenta, Logi Guðbran-i'con stud. jur.
og Sigmmndur Böðvarsson stud
Magnús Þórðarson stud. j'ur. afhentUr ^ihióðlegt ferðaskírteini
stúó
Formaður Stúdentaráðs athugar póstinn
marga fundi á hverju kjörtíma-
bili, venjulega einn í hverri
viku. Þar eru einkum rædd hags-
munamál stúdenta.
Stúdentaráð veitir stúdentum
þjónustu eftir því, sem við verð-
ur komið. T. d. starfar vinnu-
miðlun á vegum þess. Ólafur
Björgúlfsson stud. med. hefur
veitt henni forstöðu að undan-
förnu.
Ferðaþjónusta stúdenta tók til
starfa í júnímánuði 1957 og hefur
starfað samfleytt síðan. 1 sumar
hefur Magnús Þórðarson stud.
jur. veitt henni forstöðu.
Stúdentaráð gefur út stúdenta-
skírteini, sem hverjum stúdent er
gefinn kostur á að kaupa. Skír-
teini þessi veita stúdentum ýmis
konar fríðindi, s. s. afslátt af
miðum í leikhús, að tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar o. fl.
Á síðastliðnu vori aflaði Stúd-
entaráð sér heimildar til þess að
selja alþjóöleg ferðaskírteini
stúdenta, sem veita stúdentum
margvísleg fríðindi víða um
heim.
1. september sl. tók Stúdenta-
ráð upp algjört nýmæli í starfi
sínu að forgöngu Vökumanna.
Er það húsnæðismiðlun stúdenta.
Hefur starf hennar gengið mjög
vel undir öruggri handleiðslu
Magnúsar Þórðarsonar stud jur.
Er bersýnilegt, að mjög brýn
þörf er á slíkri þjónustu.
Eitt af því, sem Stúdentaráð
hefur beitt sér fyrir er handbók
stúdenta. Benedikt Blöndal stud.
jur. hefur unnið að útgáfu bók-
arinnar undanfarið, en Logi Guð-
brandsson stud jur. og Sigmund-
ur Böðvarsson stud jur. hafa nú
tekið við ritstjórn hennar.
Stúdentaráð hefur beitt sér
fyrir því af alefli, að styrkur til
Stúdentaráðs verði aukinn og
framlag hins opinbera til lána-
sjóðs, en sjóðurinn getur engan
Framhald á bls. 19.
Fjölntennur nðnlfnndur „Neistu”
í Vestur - Burðustrundursýslu
AÐALFUNDUR „Neista", félags
ungra Sjálfstæðismanna í Vestur-
Barðastrandarsýslu var haldinn
á Patreksfirði laugardaginn 20.
sept sl. og var hann mjög vel
sóttur, minni salur samkomuhúss
ins þéttskipaður.
Formaður félagsins, Jóhannes
Árnason, stud. jur. setti fundinn
og stjórnaði honum, en fundar-
ritari var Anna Gísladóttir,
símastúlka.
í upphafj fundarins voru sam-
þykktar 16 inntökubeiðnir, sem
borizt höfðu, og eru félagsmenn
nú 70 að tölu.
Þá fóru fram venjuleg aðal-
fundarstörf, formaður flutti
skýrslu, Sveinn Þórðarson, Innri-
Múla, las upp endurskoðaða
reikninga félagsins, sem voxu
samþykktir, og kosin var vara-
stjórn fyrir næsta starfsár.
í skýrslu formanns kom fram,
að félagið sem var stofnað á sl.
ári, hefur farið vel af stað.
Haldnir hafa verið nokkrir fund-
ir, fulltrúaráðsfundur og almenn-
ir félagsfundir, ennfremur dans-
leikir. Á árinu var haft nokkuð
samstarf við Sjálfstæðisfélagið
„Skjöld“ á Patreksfirði. Haldnir
voru sameiginlegir fundir, þar
sem m. a. var rætt um sveita-
stjórnarmál, staðið fyrir félags-
vist, „þriggja hvílda keppni“, og
1. des. skemmtun á Patreksfirði
og farnar voru tvær hópferðir,
önnur í Bjarkarlund og hin í
Vatnsfjörð á Barðaströnd. Þá er
í athugun að hafa stjórnmá'.a-
námskeið og málfundastarfsemi
á félagssvæðinu.
í stjórn voru kosin, Jóhannes
Árnason, Patreksf., formaður,
Anna Gísladóttir, símast., Ing-
veldur Á. Hjartardóttir, frú, og
Sigfús Jóhannsson vélstjóri, Pat-
reksfirði, Eyjólfur Þorkeisson,
nem. og Örn Gíslason frá Bíldu-
dal og Sveinn Þórðarson Innri-
Múla, Barðaströnd. — Varastjórn
skipa, Ólafur Lárusson, bóndi,
Stökkum, Rauðasandi og Sjöfn
A. Ólafsson, sýsluskr., Patreksf.
Endurskoðendur eru Gylfi Adoifs
son og Helga Guðjónsdóttir, Pat-
reksfirði.
Að afloknum aðalfundarstörf-
um flutti Jóhannes Árnason ræðu
um stjórnmálaflokkana í landinu,
stefnur þeirra og baróttuaðferð-
ir. Þá talaði hann um landheigis-
málið og efnahagsmálin og lagði
áherzlu á, að fólk fylgdist sem
bezt með gangi stjórnmálanna,
sem væru í órjúfanlegum tengs!-
um við lífsbaráttuna í þjóðféiag-
inu og það skipti þess vegna meg-
inmáli fyrir hvern einasta mann,
hvernig til tækist um skipan
þeirra.
Að lokum voru svo lagðar fram
og ræddar nokkrar tillögur stjórn
ar félagsins um starfsemina á
komandi vetri, og hafði. Anna
Gísladóttir framsögu í mái.nu.
Samtök ungra Sjálfstæðis-
manna í Barðastrandarsýslu eru
stöðugt að eflast. Tvö félög eru
nú starfandi í sýslunni og eru fé-
lagsmenn samtals um 120. Sýnir
það ótvírætt fylgi unga fólksins
við hugsjónir sjálfstæðisstefn-
unnar og traust þess ó Sjjálfstæð-
isflokknum til að róða á farsælan
hátt fram úr þeim margvíslegu
vandamólum, sem við blasa, og
vinstri flokkarnir með harðsvír-
aða stéttabaráttu og sundrung að
leiðarljósi hafa gefizt upp við að
leysa.