Morgunblaðið - 03.10.1958, Síða 18

Morgunblaðið - 03.10.1958, Síða 18
le MORGVTSBL AÐ1Ð Föstudagur 3. október 1958 Tékkneskatr Loftþjöppur útvegum vér með stuttum fyrirvara. HEÐINN Vélaumboð — sími 2 42 60 (10 línur). Sfíndisveinn óskast strax. Sveinn Björnsson & Asgeirsson Hafnarstræti 22. AöstaBa til verklegrur kennslu í Vélskólanum hetur stórbatnað Frá setningu skólans 7. október Blikksmiðir plötusmiðir og lagtækir menn óskast. Blikksmiðjan Grettir Brautarholti 24. Stúlkur — Atvinna Tvær stúlkur óskast í verksmiðjuvinnu að Álaíossi. Mikil eftirvinna. Fæði — húsnæði — hátt kaup. Upplýsingar í ÁLAFOSS Þingholtsstræti 2. VÉLSKÓLINN í Reykjavík var settur 1. okt. að viðstöddum kenn urum, nemendum og gestum. Skólastjórinn Gunnar Bjarnason flutti setningarræðu, þar sem hann gat ýmissa þeirra atriða sem skólann varða mestu nú í upphafi skólaárs. Nemendur í vetur verða 131 og er það með allra mesta móti. 119 nemendur eru í vél- stjóradeild, þar af 42 nýsveinar. 12 nemendur eru í rafvirkjadeild. Skólastjóri kvað kennaralið að mestu óbreytt. í hópinn bætist einn fastakennari, Bjarni Einars- son, sem kemur í stað Steingríms heitins Pálssonar. Þá hefur og kennslu Bernhard Hannesson, sem kennir eimvélafræði, véla- teikningu og fleira. Kennsla verður með svipuðu sniði og áður, en auknar verða verklegar æfingar í rannsóknar- stofu skólans, einkum olíurann- sóknir. Áhaldaleysi hefur áður hamlað þessari kennslu, en Olíu- verzlun fslands og Olíufélagið hafa nú látið skólanum í té tæki og von er á viðbótartækjum sem Skeljungur gefur. Þakkaði skóla- stjóri félögum þessum fyrir skiln ing þeirra á mikilvægi þess að vélstjórar beri skyn. á eiginleika olíunnar. Rannsóknarstofa skólans var tekin í notkun i jan. 1957. Með til- komu hennar varð bylting á kennsluháttum skólans, og hefur hún m.a. sannað að kennsla hag- nýtra fræða verður margfalt ár- angursríkari ef'tilraunir og verk- legar æfingar styðja bóknámið. Er stöðugt unnið að bæta úr rúm- og áhaldaleysi til verklegrar kennslu og hafa verið veittar sl. 2 ár tiltölulega háar upphæðir til áhaldakaupa. Kvað skólastjóri það örvun að mæta þeim skilningi og góðvild sem skólinn nyti þetta varðandi og minnti kennara og nemendur á þá ábyrgð sem slíkar fjárveitingar leggja þeim á herð- ar — að sýna í verki að skólinn og nemendur geti nýtt þessi áhöld með góðum árangri. Skólastjóri lýsti viðbótarbygg- ingu við vélasal skólans sem er 450 fermetra hús. Er ráðgert að þessi bygging dugi skólanum 20 til 25 ár. Allt pláss er þó þar þegar notað, enda fær Veðurstof- an inni fyrir skrifstofur sínar í hluta hússins. Byggingarnefnd Sjómannaskólans stendur straum af byggingarkostnaði og flutti skólastjóri henni þakkir fyrir lið- sinni við málið einkum Friðriki Ólafssyni skólastjóra. En því miður hefur nefnd þessi takmarkað fé, sagði skólastjóri. Er því helzt útlit fyrir nú að tafir verði á að fullgera bygging- una, sem þegar er fokheld. Væri mikið áfall fyrir skólann og trufl- un á þróun hans, ef ekki rætist úr og byggingiri verði fullgerð. Þegar staekkun vélasalar er lok ið verður þar komið fyrir frysti- vélum, eimvélum og dieselvélum og öðrum móturum. Mest rými verður undir mótora alls konar, enda eru þeir aðalaflvélar nú á tímum til sjós og lands. Eins og nú er standa vélar svo þétt í salnum að erfitt er að komast að þeim og fyrir nemendur að fylgjast með kennslu. Auk þess er ómögulegt að koma að þeim mælitækjum alls konar. Reynsla sem fengizt hefur af kennslunni, jafnvel við þessar aðstæður, sann ar að óhætt er að vænta mjög mikils af verklegu æfingunum við bætt skilyrði. Þá kvað skólastjóri að fram- undan væri að endurskipuleggjá tilraunasal rafmangsdeildar. Einn kennari skólans, Jóhann Pétursson, fór til Englands á skól- ans vegum til að kynna sér allt þar að lútandi, ef kostur væri. Ár angur af þeirri för mun fljótt koma í ljós við kennsluna sagði skólastjóri. Skólastjóri lýsti þakklæti til Hvals h.f. sem gefið hefur skól- anum eimknúna ljósavél. Einnig þakkaði hann tveim nemendum skólans frá í fyrra, Ragnari Sveinssyni og Gústav Nilssyni fyrir eimvél sem þeir gáfu skól- anum. Að lokum hvatti skólastjóri nemendur til dáða og sagði m.a. að tilgangur veru þeirra í skól- anum væri ekki einungis að læra vélfræði, rafmagnsfræði og s. frv., heldur einnig að öðlast al- menna menntun og þroska, sem á að vera veganesti til ábyrgðar- mikilla starfa að námi loknu. RÝMINCARSALAN Caröastrœti 6 Selur í dag: Telpuúlpur á 10—15 ára 200,00 Karlmannarykfrakkar 495,00 Karlmannavinnuskyrtur 75,00 Kvenskór með hælum 60,00 VERZLUNIN CARDASTRÆTI 6 Hey lítil og léleg á NorÖ- ur- og Noröausturlandi FRÉTTARITARI blaðsins á Ak- ureyri símar að heyskapur hafi gengið vel inni í Eyjafirði í sum ar. Hann hefur haft tal af bænd um víðsvegar um Norður- og Norðausturland og gekk hey- skapur yfirleitt illa framan af sumri. 1 september brá þó víðast til þurrka og hefur því rætzt bet ur úr en á horfðist. í Svarfaðardal er heyskap nú lokið hjá flestum bændum. Eitt- hvað mun þó enn úti af heyjum hjá bændum til dala. Heyskap- artíð var óvenju hagstæð allan septembermánuð, svo betur rætt ist úr en á horfðist framan af sumri. Heybirgðir eru því í með- allagi að vöxtum og gæðum hjá þeim bændum, sem súgþurrkun hafa, en minni hjá öðrum og hjá þeim eru hey einnig nokkuð hrakin. Bændur munu sennilega eitt- hvað skerða fjárstofn sinn og FITAN meÖ HVERFUR freyÖandi FLJÓTAR VIM Öll fita hverfur á augabragði með freyðandi VIM. Stráið aðeins örlitlu á rakan klút, nuddið rösklega eina yfir- ferð og hin fituga panna er tandurhrein. Það er svo auðvelt! Hið freyðandi VIM hreinsar öll óhreinindi. Hinar þrálátu fiturákir í vöskum og baðkerum hverfa. Pottar, pönnur, baðker, flísar og mál- aðir hlutir verða tandurhreinir. Cljáinn kemur fyrr með freyðandi V I M verður slátrað um 10 þús. fjár á Dalvík. 1 fyrra var slátrað 8 þús. íjár þar. Vinna hefur verið óvenjumik- il í Dalvík í sumar við síldar- vinnslu, húsbyggingar og aðrar framkvæmdir. Dalvíkurbátar eru nýkomnir heim af reknetjaveiðum og var afli yfirleitt ágætur hjá þeim. Á Ólafsfirði telja menn þetta sumar eitt hið versta sem komið hafi. í byrjun september gerði þó góða kafla, og náðu bændur þá nokkru af heyjum, sem voru búin að iiggja í sex vikur og orðin hrakin. Fest hafa verið kaup á 350 hestum af heyi úr Eyjafirði, og er ætlunin að skipta því milli bænda, sem verst eru staddir, svo að þeir þurfi ekki að farga kúm. Búast bændur við að fækka stórlega fjárstofni sínum. 1 Fljótum í Skagafirði hefur heyskapur gengið heldur betur en á Ólafsfirði, en þó er engan veginri gott ástand þar. I Þingeyjasýslu er heyskap lokið hjá flestum og eru hey mjög misjöfn. Má segja að tíð- arfarið í septerúber hafi verið nokkuð gott og hefur rætzt úr með heyskap á þeim tíma. Ann- ars eru hey frekar léleg að gæð- um og búast bændur við að þurfa að nota mjög mikið af fóðurbæti. En hann er mjög dýr og vonast bændur til að við- komandi yfirvöld sjá sér fært að miðla bændum einhverju, þann- ig að þeir fái ódýrt fóður, sem verst eru staddir. I Axarfirði hefur heyskapar- tíð verið sæmileg, og ágæt í september, en heyfengur er þó í minna lagi. Sumir bændur voru búnir að ná upp dálitlu af heyj- um áður en óþurrkarnir byrjuðu í sumar, en aðrir fengu hrakin heyin. Menn búast við að setja lítið á af lömbum á þessu hausti. I Axarfirði var göngum frestað vegna heyanna. Bændur eru nú að gera það upp við sig hvort þeir fargi af heyjum eða auki kaup á fóðurbæti og er hvorug- Urlíosturinn góður. í Vopnafirði var slæm tíð framan af, en skipti til hins betra um höfuðdag. Eru hey lé- leg, en flestallir eru búnir að heyja. —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.