Morgunblaðið - 12.10.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.1958, Blaðsíða 10
10 MORCTJTSULAÐIÐ Sunnudagur 12. okt. 1958 JHringbraut Miklclbraiit AKREINAKERFI á Mikla- torgi er ætlað það hlutverk að auka tölu þeirra ökutækj.a, sem geta samtímis verið á ferð um torgið. Akreinaskipt- ingin hefir það í för með sér, að ökumaður hefir einungis helming akbrautarinnar til um ráða. Þegar skipt er um rein, ber að fara eftir leiðbeining- um, sem málaðar eru á ak- brautina. Þegar ekið er inn á Mikla- torg frá Hringbraut, Miklu- braut eða Reykjanesbraut, Miklubraut EÐA halda áfram í hringnum. Óheimilt er að aka yfir ó- brotna línu, nema þar sem brotin lína er við hlið hennar. Þar má aka yfir heilu linuna frá þeirri hlið, sem brotna lín- an er en gæta verður þó fyllstu varúðar gagnvart öku- tækjum, sem koma úr innri akrein. Að öðru leyti sýna örvar á akbrautinni, hvernig aka skal. Námskeið í áhalda- fimleikum VETRARSTARFSEMI Fimleika- deildar Ármanns er nú hafin. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp, að efna til námskeiða í áhalda- fimleikum á þessum vetri. Und- anfarin ár hafa æfingar farið fram í þessari skemmtilegu í- þróttagrein hjá félaginu og vin- sældir hennar farið sívaxandi. Til þess að gefa sem flestum tæki færi til að kynnast áhaldafimleik um hefur verið ákveðið að efna til áðurnefndra námskeiða. Áætl- að er að hafa 2 námskeið og mun það fyrra hefjast um miðjan þenn an mánuð og standa í 3 mánuði. Kennsla verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum kl. 8—9. Kenndir verða fimleikar á tvíslá, svifrá, í hringjum og á dýnu. Aðalkennari verður Vigfús K U má aka á hvorri akrein sem er. Ef röð bifreiða hefir mynd azt í akreinum þessara gatna við torgið, er rétt að velja þá akrein, sem röðin er styttri í, en meginreglan er þó, að öku- mönnum ber að nota ytri ak- rein á torginu, ef ætlunin er að aka einungis milli tveggja gatnamóta. Ef ekið er inn á Miklatorg af Snorrabraut, er nauðsyn- legt að velja akrein. Sá, sem velur vinstri akrein, verður að aka inn í Miklubraut. Hægri akrein veitir hins veg- ar möguleika til að aka inn í Nauðsynlegt er að gefa stefnumerki áður en skipt er um akrein eða ekið út úr hringtorginu. Guðbrandsson, fimleikakennari, , og honum til aðstoðar verða 2 ■ fimleikamenn úr meistaraflokki j félagsins, sem sóttu námskeið í fimleikum, er haldið var í Hort- en í Noregi sl. sumar, þeir Ingi Sigurðsson og Jóhannes Halldórs son. Áðurnefnt námskeið var sótt ® <S bandbox sham poo fæst í flestum verzlunum Ef hár yöar er óeöllleta þurrt. þá mun Bandbox Cre&m ihampoo leysa vandræði yðar. Eí f>aö aftur á mótl er eðlilega fit- ugt. þá skuluð þér nota fljótandi Bandbox ahampoo. af um 400 manns víðs vegar að I af öllum Norðurlönuum. Þar sem vitað er að mikil að- sókn verður að námskeiði þessu eru væntanlegir þátttakendur beðnir að hafa samband við skrif stofu félagsins Lindargötu 7, en hún er opin á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum frá kl. 8—10 síðd. sími 13356. Þar sem íþrótt þessi er allmiklu erfiðari en íþróttir gerast venju- lega hefur verið ákveðið að miða aldurinn við ungmenni á aldrin- um 15—25 ára. Félagið leggur áherzlu á, að allir sem taka ætla þátt í nám- j skeiðunum séu með frá byrjun. Höfðingleg gjöf til S.V.F.Í. hentugra. Nægi gjöfin ekki til kaupa á aðkallandi björgunar- tækjum á fyrrnefndu svæði, má fella hana inn í önnur fjárfram- NYLEGA hefur Slysavarnafélag- inu borizt dánargjöf frá Þor- steini Jóhanni Jóhannssyni, kpm., Bergþórug. 29, sem lézt 10. apríl sl.. Nemur gjöf þessi um j lög í sama skyni. kr. 100.000,00. Hafði Þorsteinn heitinn gert ráð fyrir að S.V.F.Í., yrði afhent gjöf þessi að sér látn- um og skyldi fénu varið til kaupa á björgunartækjum, einu eða fleirum til starfsrækslu á sjó eða landi á Breiðafirði eða við Snæfellsnes eða þá annars staðar við Vestfirði ef það þykir Kínversk kvennáttföt Einnig náttkjólar og náttföt á börn og fullorðna Þýzkir barnanáttsamfestingar Verð frá kr. 44.85. Þýzk barnannorföt í stærðum 32—40 Verð kr. 20,00 pr. sett. Barnaheilsokkar Riflað flauel í mctrgum litum. Morgnn^Ionnaefni Verð frá kr. 9,75. Nælonsokkar í úrvali. J. Jóhannssvi Þorsteinn Jóhann Jóhannsson var fæddur 19. 8. 1875 í Ólafsey á Breiðafirði. Foreldrar hans voru hjónin Þorbjörg Ólafsdóttir og Jóhann Guðmundsson, er bjuggu í Ólafsey um 30 ára bfl. Ólst Þorsteinn heitinn upp i for- eldrahúsum í Ólafsey fram að tvítugs-aldri. Eins og allir vita, var mikil sjósókn stunduð á Breiðafirði á þeim árum jafnhliða búskapnum. Þorsteinn heitinn hóf snemma að stunda sjó og fór síðan á Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk prófi þaðan árið 1897, þá aðeins 22 ára gamall. Settist hann þá að í Stykkishólmi þar sem hann átti heima í 10 ár, og stundaði þaðan sjóinn sem skipstjóri á ýmsum skipum. Frá Stykkishólmi flutti hann til Narf- eyrar á Skógarströnd og bjó þar í 6 ár, en fluttist þaðan til Reykja víkur þar sem hann setti á stofn verzlun sem hann starfrækti um 20 ára skeið. Þorsteinn heitinn var mikilsvirtur ágætismaður, sem á uppvaxtarárum sínum kynntist hinni höi’ðu lífsbaráttu þjóðar sinnar, bæði á sjó og landi, við Breiðafjörð. Honum var það því mjög hugleikið að geta á einhvern hátt, með þessari gjöf sinni, stuðlað að bættum öryggis- framkvæmdum er gætu orðið til að forða slysum og bæta öryggi fólksins á æskuslóðunum við Breiðafjörð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.