Morgunblaðið - 12.10.1958, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.10.1958, Qupperneq 24
VEDRIÐ Sauðaustan eða austankaldi. Frost 1—4 stig. Reykjavíkurbréf er á bls. 13. 233. tbl. — Sunnudagur 12. október 1958 Ætlar ríkisstjórain að skerða kaup- greiðsluvísitöluna um 19 stig f y rir 1. des.? Af hverju lagði Eysteinn fjdrlagafrum- varpið ekki fram fyrir helgi? ÞAÐ vakti nokkra athygli þing- manna við setningu Alþingis, að frjárlagafrumvarpinu var ekki útbýtt á þessum fyrsta fundi þmgsins, svo sem venja hefur verið, enda þótt frumvarpið væri fullprentað. Það hefir verið einkennandi fyr ir þessa ríkisstjórn að reyna eft ir megni að leyna óþægilegum i'essi mynd er tekin af hinu 50—60 metra háa gufugosi úr borholunni við Gufudal í Ölfusi, sem opnuð var í gær. (Ljósm. G. B.) Þessi mynd sýnir einn af starfsmönnunum við holuna, sem gaus í gær hjá Gufudal í Ölfusi. — Myndin er tekin nokkru áður en holan var opnuð. — VatniB og gufan nægir til að hita alla Reykjavík Örlugasta horholan hérlendis opnuð UM KLUKKAN 3,30 í gærdag opnuðu verkfræðingar Jarðhita- deildarinnar borholu þá, sem stóri jarðborinn hefur verið að gera austur við Gufudal í Ölfusi. Það kom þegar í ljós, að árang- urinn af borun þessari var miklu meiri en áður hefur þekkzt við borun eftir gufu og vatni hér á landi. Að lítilli stundu lið- inni, hafði gufusúlan náð nokkuð jafnri hæð, milli 50 og 60 m. Við lauslegan útreikning á gufumagn inu kom í Ijós að það virtist hvorki meira né minna en um 80 tonn á klukkustund. Dr. Gunnar Böðvarsson, for- stöðumaður Jarðhitadeildar var viðstaddur, er holan var opnuð, en auk hans voru þar Þorbjörn Karlsson, Sveinn S. Ein arsson, Rögnvaldur Finnbogason yfirverkstjóri og Charles Hen- ritte yfirverkstjóri, svo og all- margir verkamenn sem við stóra borinn vinna. Dr. Gunnar Böðvarsson var skiljanlega mjög ánægður með út komuna á mælingum þeim, er þegar voru gerðar á gufugosinu. Að þeim loknum gat hann þess við tíðindamann Mbl. að þessi nýja borhola væri sú langsamlega kraftmesta hér á landi. Fyrstu mælingar bentu til þess að hún væri fyllilega sambærileg við þær gufuholur, sem öflugastar eru í óðrum hveralöndum, t.d. Kommúnisiar í Trésmiða- félaginu gripnir kœruœði ÞAU einstæðu og furðulegu tíð- indi gerðust í gær, er kjörfundur hófst í Trésmiðaféiaginu, að um- boðsmaður kommúnistalistans lagði fram kærur, þar sem þess var krafizt að 19 fuilgildir með- limir Trésmiðafélagsins skyldu strikaðir út af kjörskrá við kjör fulltrúa á 26. þingi ASÍ. Að sjálfsögðu voru allar kær- ur þessar út í hött, en þær sýna þó glögglega hræðslu kommún- ista við að tapa fulltrúum Tré- smiðafélagsins á þingi ASÍ. Og eðli sitt og ómannúðlegan hugs- unarhátt sýndu kommúnistar glögglega með kærum þessum, því að menn þeir, sem kommún- istar vildu svipta þeim sjálfsögðu réttindum að fá að greiða atkvæði í stéttarfélagi sínu við kjör full- trúa til þings heildarsamtaka verkalýðsins, voru aðallega g?ml ir menn og sjúkir. Þessir meðlimir Trésmiðafélags ins skyldu gjalda þess, samkvæmt kæru kommúnista, að haía lokið löngum og heilladrjúgum síarfs- degi, eða forfallazt frá þvi að stunda iðn sína um sinn vegna slysa eða veikinda. Skýr og greinileg ákvæði eru þó í lögum félagsins um að í siík- um tilfellum, sem hér hafa verið nefnd, skuli félagsmenn ekki missa nein félagsleg réttmdi sín. En kommúnista varðar hér sem endranær ekkert um lög og regl- ur. Fyrir þá er höfuðatriði, að þjóna hinu kommúniska ofbeldis- og rangindaeðli. Trésmiðir! Svarið hinni lúalegu árás kommúnista á starfsbræðr- ur ykkar með því að vinna ötul- lega að sigri B-listans. GJÖGRI, 11. okt. — Nú er vetr- arlegt á Ströndum, öklasnjór nið ur í fjöru. Margir eiga hey úti, sem sleg- ið var um 20. september, en ekki hefur komið þurrkdagur síðan um miðjan sept. — Regína. Nýja-Sjálandi og Ítalíu, en þar suðurfrá eru örfáar gufuholur sem úr koma um 160 tonn af gufu á klst. Þessi nýja gufuhola virðist 7 sinnum öflugri en holan í Græna- dal, fyrsta gufuholan, sem stóri borinn gerði. Við mælingar, sem gerðar voru í þessari nýju holu, kom í ljós að vatnsmagnið, sem í hana streym- ir niðri á. 400 m. dýpi, er vart minna en 100 lít. á sekúndu og hitastig vatnsins er nærri því ótrúlegt, um 210 stig. Kvað dr. Gunnar heildar varmamagn þess- arar holu, vatn og gufa, mundu nægja, ef virkjað væri, til þess að hita alla Reykjavík upp, eins og hún er í dag! Dr. Gunnar lét í ljós mikla ánægju hversu borunin þarnar hefði gengið vel. Holan var boruð á 3 vikum, en borunardagar voru aðeins 10. Það sem mikils- vert er, sagði Gunnar, er að við leljum ekkur nú hafa yfirstigið marga þá erfiðleika, sem á því eru að bora eftir gufu. Tæki okk ar ráða fyllilega við þann hita og þrýsting sem þarna er. Að lokum gat dr. Gunnar Böð- varsson þess að nákvæmlega yrði fylgzt með holu þessari og væri næsta skrefið ný borhola fyrir neðan Menntaskólaselið í Ölfusi og síðan yrðu boraðar i viðbót 2 holur enn í tilraunaskyni á jarð hitasvæði þessu. Kosningaskrifstofur B-listans í ALÞÝÐUSAMBANDSKOSNINGUNUM, sem fram fara í dag verða kosningaskriistofur lýðræðissinna á eftirtöldum stöðum: Lýðræbissinnar i Dagsbrún: Breiðfirðingabúð efri hæð, símar 17343 og 13450. Lýðræðissinnar i Iðju: V.R., Vonarstræti 4, símar 14189 og 10530. Lýðræðissinnar i Trésmiðafélaginu: Bergs'taðastræti 61, símar 19113 og 14997. Lýðræðissinnar í framangreindum félögum eru hvattir til að hafa samband við kosningaskrifstofu síns félags og veita stuðningsmönnum B-listans alla þá aðstoð er þeir mega. Kjósið snemma. Kjósið B-listann staðreyndum, og þessi dráttur á að leggja fram frumvarpið, vakti grunsemdir um það, að í því væri að finna e.bthverar upplýsingai', sem fjártnálaráðherra teldi ekki heppilegt að opinberar yrðu fyrir helgi. Af tilviljun hefir blaðið komizt yfir fjárlagafrumvarpið og leiðir greinargerð frumvarpsins glöggt í ljós, af hverju talið var heppi- legt að ljúka kosningum í verka- lýðsfélögunum áður en frv. væri lagt fram. Frárlagafrumvarpið er miðað við kaupvísitölu 183, sem er sú vísitala, sem reiknað var með í „bjargráðalögunum“. Ástæðan fyrir þessari óraunhæfu viðmið- un er í greinargerð frv. sögð þessi: „Ríkisstjórnin tók því fram í athugasemdum við frum- varpið (þ.e. bjargráðafrv.), að til þess að leysa þau efnahags- vandamál, sem hér er við að etja, væri „nauðsynlegt að taka sjálft vísitölukerfið til at hugunar, þ.e. þá skipan, að allt kaupgjald og afurðaverð breyt ist sjálfkrafa við breytingu á framfærsluvísitölu". Var það ennfremur tekið fram, að ríkisstjórninni væri ljóst, að slíkt mál verður að leysa í nánu samstarfi við stéttarsam tökin í landinu og mun beita sér fyrir samstarfi við þau um þetta efni. Munu mál þessi verða tekin til nánari athug- unar, þegar þessi samtök halda þing sín síðari hluta þessa árs“. Þessi ummæli í greinargerð frv. bregða skýru ljósi yfir fyrir- ætlanir ríkisstjórnarinnar í þessu efni og þarflaust að skýra það nánar. 19 stiga hækkun kaupgreiðsluvísitölu 1. des. Ljóst mun nú vera, að hinar miklu verðhækkanir að undan- förnu valda 19 stiga hækkun á kaupgreiðsluvísitölunni strax 1. des. Fjárlagafrumy. gerir ekki ráð fyrir neinni fjáröfiun til þess að standa straum af þeirri vísi- töluhækkun, hvað þá þeim hækk unum, sem augljósar eru eftir áramót til viðbótar. Eina úrræði ríkisstjórnarinnar er því það, að knýja fram þá fyr- irætlun að binda vísitöluna eins og ráðgért hefir verið í sam- komulagi Hermanns, Hannibals og Gylfa, sem miðar að því að lítill hluti verkalýðssamtaka >na fái aðstöðu til þess að segja öll- um fjöldanum fyrir verkum, svo sem var við afgreiðslu „bjarg- ráðanna“. Fjárlagafrv. er því enn ein sönnun fyrir þeim upplýsingum sem Mbl. hefir skýrt frá undan- farna daga um ákvörðun Fram- sóknarbroddanna að ná með pen- ingavaldi SÍS úrslitaráðum í AI- þýðusambandi íslands. Þar telja þeir sig eiga örugga bandamenn í Hannibal og Gylfa Þ. Gíslasyni og treysta á fylgispekt kommún- ista þegar á reynir vegna þess að þeir vilji umfram allt lafa í rikisstjórninni. □- -□ Nafn tekið í ólevfi ÉG undirritaður lýsi því yfir, að nafn mitt er tekið í óleyfi á A-listann í Dagsbrún og mótmæli ég harðlega slíkri misnotkun á nafni mínu. Rósmundur Tómasson, Laugarnesvegi 66. □- -□

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.