Morgunblaðið - 23.10.1958, Síða 2
2
MORGINBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 23. okt. 1958
— Varðarfundur
Frh. af t>ls 1
flýja verðbólguöldu. Sijórnarliðið
hefði sagt að verðlagið myndi
hækka um 14—19 vísitölustig
vegna „bjargráðanna“. Það hefði
nú þegar hækkað um sem næmi
25 stigum og hlyti að halda á-
fram að hækka.
Ólafur Björnsson kvaðst engu
vilja spá um það til hvaða úr-
ræða vinstri stjórnin myndi nú
reyna að grípa. Vandamál efna-
hagslífsins yrði nú stöðugt vand-
leystari og auðsýnt væri að þau
yrðu ekki leyst undir forystu
vinslri stjórnarinnar.
Hvernig
á að afstýra voðanum?
En hvaða möguleikar eru á að
afstýra þeim voða, sem nú blasir
við?, spurði Ólafur Björnsson.
Kvaðst hann í því sambandi að-
eins vilja benda á nokkur grund-
vallaratriði án þess að flytja
sundurliðaðar tillögur um það,
sem gera skyldi. Komst þing-
maðurinn síðan að orði á þessa
leið:
Eins og ég mintist á er að mínu
áliti þýðingarlaust að ætla sér
að framkvæma einhvers konar
stöðvun fyrr en búið er að koma
á innbyrðis samræmi milli mis-
munandi þátta verðlagsins.
Reynslan af ráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar 1956—1957 staðfest
ir m.a. þá skoðun. En í hverju
þyrfti sú samræming að vera
fólgin? Það þarf í fyrsta lagi að
skrá íslenzka krónu á réttu gengi.
Meðan það er ekki gert er tómt
mál að tala um stöðvun verð-
bóigunnar
Það, að bent er á nauðsyn þess
að skrá rétt gengi er þó ekki
það sama og segja að gengislækk
un sé nauðsynleg. Þá leið er auð-
vitað hægt að fara, en það væri
líka hægt að halda núverandi
gengi óbreyttu. En þá yrði auð-
vitað að færa innlenda verðlagið
niðuft til samræmis við það.
Ný og verðmeiri mynt.
Þá væri sú leið hugsanleg, að
taka úpp nýja og verðmeiri mynt,
en þá yrðu menn auðvitað að
sætta sig við það, að fá færri ein-
ingar af hinni verðmæta>-i mynt
í kaup en nú er. Hver þessara
leiða, sem farin yrði, væri í öli-
um tilfellum óhjákvæmilegt, að
kaupmáttur launa og annarra
peningatekna gegn erlendum vísi
töluvörum kæmi til með að
minnka. Metið á vísitölukvarðann
yrði því um kjaraskerðing i að
ræða. Og það er ekki hægt að
gera sér neinar tálvonir um það
að hún yrði ekki talsverð.
Ólafur Björnsson ræddi síðan
nokkuð um ýmsar hliðarráð-
stafanir, sem kæmi til greina að
gera í fjármálum, bankamáium
og gangvart erlendum lántökum,
og dregið gætu úr kjaraskerðing-
unni. Varpaði hann síðan fram
þeirri spurningu, hvort almenn-
ingur fengist til þess að sætta sig
við þau óþægindi er slíkar ráðstaf
anir hefðu í för með sér. Þar væri
vissuiega um þýðingarmikið
atriði að ræða. Ráðstafanir í efna-
hagsmálum væru óframkvæman-
legar nema þær nytu stuðnir.g.i
almennings, eða hann sætti sig
að minnsta kosti við þær. Hann
kvað brýna nauðsyn bera til þess
að segja þjóðinni sannleikann um
ástand efnahagsmálanna og sýna
almenningi fram á, hverra kosta
væri völ. Það hefði núverar.di
ríkisstjórn gersamlega vanrækt.
Ræða Ólafs Björnssonar var
hin fróðlegasta og var henniágæt
lega tekið af fundarmönnum.
Urðu um hana miklar umræður.
Verðbólgan og ríkisstjórnin
Fyrstur tok til mais Magnús
Jónsson, alþm., og ræddi aðal-
lega áhrif verðbólgu„i.efnu ríkis-
stjórnarinnar á rikisbúskapinn.
Sýndi hann fram á nið fullkomna
jafnvægisleysi, sem nú ríkti í
fjármálum ríkisins og hvernig
stöðugt sígi á ógæfuhliðina í
þeim efnum. Þrátt fyrir gífurleg-
ar skattaálögur væri nú um
greiðsluhallabúskap að ræða hjá
ríkissjóði. Ræudi hann siðan ýms
ar leiðir til þess að koma á jafn-
vægi á ný. Hann kvað nú horfur
á að fjárlögin færu í fyrsta skipti
yfir milljarð kr.
Guðlaugur Einarsson, lögfræð
ingur, talaði næstur og ræddi
um nauðsyn þess að ákveðnar
tillögur um lausn efnahagsvanda
málanna yrðu lagðar fyrir þjóí.1
ina.
Þá talaði Svavar Pálsson, end-
urskoðandi. — Kvað hann ástand
efnahagsmálanna svo geigvæn-
legt orðið, að þjóðarbúskapurinn
nálgaðist gjaldþrotabarm. Lagði
hann áherzlu á nauðsyn þess, að
þjóðin miðaði eyðslu sína við arð
inn af störfum sínum. Hann
kvað ríkisstjórnina verða að
hafa traust þjóðarinnar til þess
að geta leyst verðbólguvanda-
málið. Ein fremsta skylda stjórn
arinnar væri að tryggja gjald-
miðilinn. Svavar komst m. a.
þannig að orði, að andlegt frelsi
gæti þvi aðeins þrifizt þar sem
efnahagskerfið væri frjálst. Að-
alhætta verðbólguþróunarinnar
væri einmitt í því fólgin að hún
reyrði efnahagskerfið í harðar
viðjar. Meðal leiða til úrbóta
taldi hann fyrst og fremst aukn-
ingu þjóðarframleiðslunnar. Enn-
fremur yrði að gera þjóðarbú-
skapinn eins hagkvæman og
frekast væri unnt.
Að lokum töluðu Jóhann Haf-
stein, alþm., Guðlaugur Einars-
son og Sveinn Helgason, stór-
kaupmaður.
Kreml sendir Pospelof út af örkinni til að
Síðustu hermennirnir fara
herja niður titoismann
í danska kommúnista-
fiokknum
KAUPMANNAHÖFN, 22. okt. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
— Framkvæmdastjórn danska
kommúnistaflokksins hefur nú
veitt Axel Larsen „lausn“ frá
formannsembætti í flokknum
„um stundarsakir". Ástæðan er
m. a. sögð sú, að framkoma Lar-
sens hafi verið furðuleg undan-
farna daga. Þó mun mesta at-
hygli hafa vakið atburður, sem
átti sér stað í fyrrakvöld að lok-
inni leiksýningu í Avenyteatret.
Larsen fór upp á sviðið, þegar
tjaldið hafði fallið, og lét ljós-
mynda sig þar undir gálga með
snöruna um hálsinn — og einn
leikaranna togaði í kaðalinn með
böðulssvip. — Þetta er ástandið
í dag, sagði Larsen.
Information segir í dag, að
Rússar ætli nú aldeilis að grípa
í taumana í Larsensmálinu. —
Segir blaðið, að þeir sendi full-
trúa á flokksþingið — og er mað
urinn Pjotr Pospelof. Oft hafi
Rússar sent fulltrúa á þing
danskra kommúnista, en aldrei
jafnvaldamikinn mann og nú.
Pospelof stjórnar herferðinni
gegn Titó og endurskoðunarstefn
unni svonefndu.
Athyglin beinist nú ekki leng-
ur að Larsen einum, því að hann
virðist algerlega úr sögunni sem
leiðtogi danskra kommúnista. —
Nú beinist athyglin fremur að
hinum „harða kjarna" flokksins,
sem ekki er talinn nógu „harður'1
hafa ekki margir tslendingar átt
rískir hermenn í Beirut. Þetta | um þennan flugvöll upp á
r u.'f.im v n.m voru íuou Danaa
af Moskvumönnum. „Harði
kjarninn“ er engan veginn nógu ,
fylgispalcur við Moskvuvaldið!
og í því íilliti er ekki fullt sam- 1
komulag innan hans.
Larsen á þar nokkra fylgis-
menn, sem krefjast óháðari
stefnu gagnvart Moskvu, nokkr-
ir fylgja Moskvu í blindni, en
fáeinir vilja málamiðlun. Pospe-
lof er nú sendur til þess að berja
niður alla andstöðu við Moskvu-
valdið — og málamiðlunarmenn-
ina líka.
Fullvíst er talið, að Larsen
verði rekinn úr flokknum á
flokksþinginu, sem hefst 31. þ. m.
voru leifar þess herafla Banda-
ríkjanna, sem sendur var til
Líbanon í júlí samkvæmt beiðni
forseta landsins, vegna ótryggs
ástands þar. — Áætlað var, að
þessir 1000 hermenn yrðu fluttir
úr landinu í nótt — annaðhvort
flugleiðis til Þýzkalands eða um
borð í eitthvað af skipum sjötta
bandaríska flotans. Holloway, yf-
irmaður bandaríska herliðsins í
Líbanon, hitti Chehab forseta að
máli í dag og fleiri af forystu-
mönnum landsins. Tilkynnt hef-
ur verið, að matvælabirgðir þær,
sem herinn átti eftir í landinu,
verði afhentar líknarstofnunum í
Líbanon. Þessi mynd var nýlega
tekin á flugvellinum í Beirut af
bandarískri flutningaflugvél og
tvCimur hermönnum. Sennilega
Agreiningut
og Chiang
TAIPEÍ, Formósu 22. okt. — Tal-
ið er, að töluverður ágreiningur
sé með með þeim Dulles utan-
ríkisráðherra og Chiang Kai
Sliek, en þeir ræddust við í
þriðja sinn í dag.
Þrátt fyrir það að því hefir ver
ið lýst yfir af hálfu Bandaríkja-
stjórnar, að hún vænti þess ekki,
að þjóðernissinnar dragi úr er-
afla sínum á smáeyjunum við
meginlandsströndina að sinni —
úr því að kommúnistar hafa
hafið skothríð á ný — hefur
Chiang Kai Shek ekki getað fall-
izt á þá afstöðu Dulles, að slík
ráðstöfun komi til greina til þess
Vlscounl ióist með 31 munni
RÓM 22. okt. — Vicountflugvél
frá brezka flugfélaginu BEA fórst
í dag um 50 km suður af Róm
eftir árekstur við orrustuþotu
ítalska flughersins af gerðinni F
86. Fórust allir, sem með Vis'
countflugvélinni voru, 31 maður,
en orrustuflugmanninum tókst að !
bjarga sér í fallhlíf. !
Brezka flugvélin var í 23,000
feta hæð (um 7 km) á leið frá t
London til Napólí. Fgrþegar \
voru 26, en áhöfnin var fimm
manna.
Heiðskírt var, „og sögðu sjón-
arvottar, að andartaki eftir að
áreksturinn varð hafi geysimikili j
sprenging orðið í Viscountflugvél ,
inni, hafði hún tætzt í sundur
— og dreifðist brakið yfir 10 j
mílna svæði. Fullvíst er talið, að
allir innanborðs hafi farizt sam-
stundis, að einum farþega und-
anteknum, sem fannst með liis-
marki, en hann lézt á leið í sjúxra
hús. Svo smátt var brakið, að
stærsti búturinn, sem fundizt
hafði, þegar síðast fréttist, var að
eins tæplega meters langur.
Þotan skaddaðist minna, hún
flaug stutta stund beint áfram,
en cteyptist síðan í sjóinn. Flug-
maðurinn hafði þá stokkið út í
falihlíf sinni. Var honum bjargað
úr sjó. Hafði hann hlotið tauga-
áfall og meiðst í baki.
Öll voru líkin mjög lemstruð
Mikið af hænuungum var i r.utn
ingi vélarinnar og lifðu flestir,
þótt undarlegt megi virðast. Eit- 1
ust björgunarmenn við trítlandi
unga yfir hæðir og hó!a fram í
svarta myrkur.
Meðal farþeganna með flugvél
inni var liðlega tvítug tiskusýn-
ingarstúlka frá London, Jane
Buckingham, sem myndir voru
af í slúðurdálkum Lundúnablað-
anna í morgun. Var það í sam-
bandi við heitrof, sem hún sagðist
hafa orðið fyrir. Indverskur prins
Shiv að nafni, sem leikkonan Eva
Bartok sagðist í fyrradag ætla að
giftast, var búinn að biðja sýn-
ingarstúlkunnar samkv. hennar
eigin sögn — og var hún
að fara skyndiför til Napolí til
þess að hitta prinsinn og fá stað-
festingu á bónorðmu.
Samkv. síðari fregnum mun
slysið nafa borið þannig að hönd-
um, að ítalskar þotur, sem voru í
hópflugi skýjum ofar, steyptu sér
skyndilega niður úr skýjahul-
unni. Viscountflugvélin flaug
rétt undir skýjunum og kom aft
asta þotan niður úr skýjunum
rétt framan við farþ.flugvélina.
Flugmaðurinn kvaðst ekki hafa
séð hana fyrr e* svo að segja um
leið og hann rakst á hana Þotan
var á 500 mílna hraða. en Vis-
countinn á 300 mílna braða —
og mættust flugvélarnar.
með Dulíes
að draga úr viðsjánum. Mislíkar
Chiang og *ú ráðstöfun Banda-
ríkjamanna að hefja viðræður
við fulltrúa kommúnista í Varsjá.
Dulles ræðir enn við Chiang
á morgun, en annað kvöld heldur
hann heimleiðis.
Enn hefir ekki upplýstst hvort
Bandaríkjamenn hyggist veita
flutningaSkipum þjóðernissinna
vernd upp að smáeyjunum en
ákvörðun verður tekin um það,
þegar tímabært þykir, sagði tals-
maður Bandaríkjastjómar.
Samkv. síðari fregnum hefur
stjórn Filippseyja í hyggju að
reyna að fá Formósumáiið rætt
á vettvangi S.þ.
Skothríð kommúnista á Que-
moy og Matsu er ekki jafnofsa-
leg og áður. Kommúnistar sögðu
í dag, að enn hefðu bandarísk
herskip farið inn fyrir landhelgi
Kína — í 40. sinn. Þá hermdu
og Pekingfregnir, að „óvinaflug-
vél“ hefði flogið inn yfir megin-
landið.
síðkastið, en myndina tók samt
sem áður Islendingur, Magnús
Óskarsson, sem var þá á heimleið
frá Indlandi.
Ólvmpíuskák-
mótið
í 9. UMFERÐ tefldu íslendingar
við Hollendinga. Guðmundur
Pálmason gerði jafntefli við
Euwe. Freysteinn og Ingimar töp
uðu fyrir Donner og Prins og
Arinbjörn gerði jafntefli við
Kramer.
Úrslit: Holland — ísland
3:1; ísrael — Belgía 3:1; Kolum-
bía — Frakkland 2 Vi :1 %;
Pólland — Danmörk 2y2:lV2;
Ungverjaland — Finnland
2 %: 1 %; Kanada — Svíþjóð
2%:1%. í 8. umferð höfðu úrslit
orðið þessi: ísland — Belgía
2%:1%; Kolumbía — ísrael 3:1;
Pólland — Frakkland 3:1;
Kanada — Danmörk 2%:1%; Hol
land — Finnland 3:1; Ungverja-
land — Svíþjóð 2V2:1%. — í 7.
umferð vann Pólland ísrael með
2%:1% en ekki 3:1 sem misritáð-
ist.
Vinningastaðan eftir 9. um-
ferð: Ungverjaland 2614; Holland
j23y2; Kanada 21; Kólumbía 20y2;
lísrael 20, Pólland 18; Svíþjóð
117%; Danmörk 1614; ísland
15V2; Finnland 14y2; Frakkland
12; Belgía 1014.
í 10. umferð í fyrrakvöld
mættu íslendingar Ungverjum
Ingi R. tapaði fyrir Barcza en
Freysteinn, Ingimar og Arin-
björn gerðu allir jafntefli. Er
114:2% mjög sómasamleg út-
koma.
í A-riðli hefur gengið svo sem
við mátti búast, Sovétríkin hafa
unnið hvert einvígið á fætur
öðru með miklum mun nú síð-
ustu umferðirnar og mega heita
örugg um sigur.
//
Vikari' í nýjum búningi
Á 20 ára afmœli um þessar mundir
UM þessar mundir eru liðin 20
ár frá því að heimilisblaðið
„Vikan“ hóf göngu sína. í tilefni
af afmælinu verður gefið út af-
mælisblað — 60 síður með lit-
prentaðri kápu. Fyrir nokkru
urðu eigendaskipti að blaðinu og
hefur starfsliðið verið aukið og
aðstæður allar mjög breytzt til
batnaðar.
Hinn nýi eigandi „Vikunnar“
er Hilmar A. Kristjánsson og er
hann jafnframt framkvæmda-
stjóri. Ritstjóri er Jökull Jakobs-
son en þrír nýir blaðamenn hafa
verið ráðnir, Karl ísfeld, Bragi
Kristjónsson og Hrafn Pálsson.
Auglýsingastjóri verður Ásbjörn
Magnússon.
Blaðið verður stækkað í 28 síð-
ur, efni þess aukið og útliti
breytt. Höfuðáherzla verður lögð
á innlent efni en blaðið hefur
einnig orðið sér úti um erlent
lesefni. M.a. má nefna 6 mynda-
sögur, tízkuþætti o. m.fl. Lit-
myndir verða framvegis á for-
síðu blaðsins, ljósmyndir og
teiknimyndir jöfnum höndum.
Meðal efnis afmælisblaðsins
má nefna nýja smásögu „Vor
fyrir utan“ eftir Ástu Sigurðar-
dóttur og smásögu eftir Indriða
G. Þorsteinsson, er nefnist „Saga
úr kalda striðinu". í blaðinu eru
allmargar ljósmyndir úr nætur-
lífi Reykjavíkur og fylgir þeim
lýsing á ýmsum skemmtistöðum.
Ennfremur má nefna grein um
hjónaskilnaði á íslandi, viðtöl
við hjón sem hafa skilið og frá-
sagnir um þau efni. Gunnar Her-
mannsson, húsameistari sér um
húsbyggingaþátt. Nýr þáttur
hefst í afmælisblaðinu, Foreldra-
þáttur, sem dr. Matthías Jón-
asson sér um. Þá er frímerkja-
þáttur, bridgeþáttur o. m.fl. —
Vikan hefur efnt til verðlauna-
getraunar í sambandi við 20 ára
afmæli sitt. Verðlaunin verða
flugferð til Kaupmannahafnar
og heim aftur.