Morgunblaðið - 23.10.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.10.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ SV-kaldi, skúrir. Hiti 3—5 stig. Landhelgisgœzlan Sjá ræðu Sigurðar Bjarnasonar á bls. 11. 242. tbi. — Fimmtudagur 23. október 1958 Ríkisstjórnin dró framkvæmd tillögunnar um nýtt varðskip í tvö i tvo ar Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til aukningar bátagæzlunni ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA Sjálfstæffismanna um eflingu landhelgisgæzlunnar og aukna vernd íslenzkra fiskiskipa var til umræðu í sameinuðu Alþingi í gær. Fylgdí Sigurður Bjarnason tillögunni úr hlaði með ytarlegri ræðu, sem er birt á öðrum stað hér í blaðinu. Að ræðu Sigurðar lokinni kvaddi Hermann Jónas- son, forsætisráðherra sér hljóðs og skýrði hann frá því, að þegar ákveðið var að færa út land- helgina, hefði hann snúið sér til tjárveitinganefndar til að fá heim ild til að kaupa flugvél t.'I land- helgisgæzlunnar og eins til að fá upplýsingar um hvort heimihl til að kaupa nýtt varðskip, sem veitt var á Alþingi 1956, væri enn í gildi. Síðan hefði hann snúið sér til framkvæmdastjóra landhelgis gæzlunnar og falið honum að undirbúa kaup skips og flugvélar. í júlí hefði hann skýrt svo frá í bréfi, að um tvær tegundir flug- véla væri að ræða, en viðvíkjandi varðskipinu hefði hann lagt fram skýrslu um bráðabirgðatilboð um skip, svipað og Þór, en þó vand- aðra, smíðað í sömu skipasmíða- stöð og Þór. Kvaðst forsætisráð- herra þá hafa beðið um lægsta tilboð. Hefði svo umboðsmaður frá skipasmíðastöðinni komið hing- að í september og hefði ríkis- stjórnin leitað til Hjálmars Bárð- arsonar, skipaverkfræðings, eftir umsögn um tilboðið. Lægi um- sögn Hjálmars nú fyrir þar sjm hann teldi vafasamt að skipið fengist ódýrara annars staðar, eða með styttri afhendingartíma. Hefði því verið afráðið að kaupa skipið og yrði það tilbúið til af- hendingar á næsta ári. Þá sagði forsætisráðherra að lokum að haldið yrði áfram að leita fyrir *ér um hagkvæm kaup á land- helgisgæzluflugvél. Sigurður Bjarnason tók artur til máls og þakkaði forsæcisráð- herra upplýsingar hans og undir tektir við tillögu Sjálfstæðis- manna. — Ráðherrann hefði upp- lýst, að á siðasta sumri hefði hann hafizt handa um fram- kvæmd þá, er þingsáiyktunartil- lagan frá 1956 gerir ráð fyrir um byggingu nýs varðskips. Kvað Sigurður það góðra gjalda vert, en kvaðst þó harma, að ekki skyldi hafizt handa fyrr um að hrinda þessu verki í framkvsemd, ! því það hefði getað sparað ríkis- I sjóði mikið fé og stuðlað að bættri landhelgisgæzlu. Hálft þriðja ár væri nú liðið írá sam- , þykkt tillögunnar. Þó bæri að fagna undirbúningi þeim. sem haf inn væri. Kaup á einu skipi væri stórt spor í rétta átt, en nægði þó engan veginn og væri nauðsynlegt, að ríkis- stjórnin hefði samráð við land- helgisgæzluna um aukinn skipa- kost. Minntist ekki á bátagæzluna. Sigurður Bjarnason kvaðst hafa saknað þess í ræðu forsætis- ráðherra, að hann hefði ekki minnzt einu orði á eflingu vélbáta gæzlunnar. Nú vofði stórkostleg hætta yfir vélbátaflotanum og veiðarfærum hans á vertíðinni, sem er framundan. Kynni svo að fara, að sjór yrði lítt sækjanlegur í sumum landshlutum, ef ekkert yrði að gert. Lagði hann til, að ríkisstjórnin og fjárveitinganefnd tækju mál þetta til rækilegrar athugunar. Kvaðst Sigurður hafa rætt þetta mál við fjölda útgerðarmanna og sjómanna og væri óhjákæmilegt að gera ein- hverjar ráðstafanir nú þegar. Haustvertíð byrjaði á næstunni í sumum landshlutum og því yrði að hraða þessum ráðstöfunum svo sem framast væri unnt. Bœrinn kaupir eina loftmálverkið sem til er eftir ísl. listamann VITAÐ er um aðeins eitt loft- málverk, sem íslenzkur lista- maður hefur málað. Málverk þetta er eftir Þórarin B. Þorláks son. Málaði hann það á lofti stofu sinnar að Laufásvegi 45 fyrir rúmlega 40 árum. Er málverkið skrautlegt minstur og stærð þess um 3%x2V2' m. Er það málað á striga og hefur varðveitzt furðu vel í öll þessi ár. Nú býr í hús- inu Þórhallur Stefánsson, bíl- stjóri hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar. Hefur bæjarráð ákveðið að láta Minjasafn bæj- arins kaupa þetta loftmálverk. Verður það tekið niður úr loftinu að Laufásvegi 45 og flutt í safnið. SAMKV. Washingtonfregnum aetluðu Bandaríkjamenn að skjóta fyrsta plast-gervimánan- nm á loft í gærkv. með Júpíter •ldílaug. Mun Eggert Guðmundsson list- málari aðstoða forstöðumenn safnsins við flutning listaverks- ins. Kvöldvaka Nor- ræna f élagsins N O R R Æ N A félagið efnir til kvöldvöku í Tjarnarkaffi annað kvöld kl. 20.30. Olav Söndet, námsstjóri frá Ósló, flytur erindi, Karl Guðmundsson leikari skemmtir og sýnd verður kvik- mynd. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn og gesti þeirra Sér- staklega eru þeir kennarar, sem tekið hafa þátt í kennaranám- skeiði Gagnfræðaskólakennar- anna boðnir velkomnir á skemmt un þessa. Fulltrúafundur félagsdeilcia Norræna félagsins verður hald- inn árdegis á morgun og verða fulltrúarnir gestir félagsins á kvöldvökunni. Skipið ódýrara nú! Forsætisráðherra tók aftur til máls. Varðandi kostnað við varð- skipskaupin, kvað hann skipið ódýrara nú, en það hefði verið fyrir nokkrum árum! Þá taldi hann verndun bátaflotans meira mál en svo, að rætt yrðj um það á þingi nú, en kvaðst reiðubúinn að koma og ræða það mál við fjárveitinganefnd ásamt forstjóra landhelgisgæzlunnar. Meiri umræður urðu ekki um málið. Var tillögu Sjálfstæðis- manna vísað til 2. umr. með 32 samhlj. atkv. og til fjárveit- inganefndar með 35 samhljóða atkvæðum. Sjómaður látinn setja 100 þús kr. tryggingu í GÆRMORGUN gerði einn af mönnum þeim, sem komu við sögu í smyglmálinu mikla í sum- ar, því sem kennt hefur verið við „Tungufoss", tilraun til þess að laumast á brott af landinu og komast á þann hátt undan allri ábyrgð og afleiðingum vegnaþátt töku sinnar í því máli. Rannsóknardómari málsins hafði fyrirskipað mönnum þeim, er þátt tóku í spíritussmyglinu, að halda sig innan lögsagnarum- dæma sinna þar til dómur væri genginn í málinu. Fyrir nokkrum dögum kom einn þessara manna í lögreglu- stöðina hér í Reykjavík og fékk þar endurnýjað vegabréf sitt. Þá keypti maðurinn farseðil með flugvél til útlanda. Sakadómara- embættið hafði gert útlendinga- eftirlitinu aðvart um að vera vel á verði, ef einhver mannanna reyndi að komast úr landi. í gærmorgun hringdi starfs- maður útlendingaeftirlitsins í sakadómaraembættið, þar eð einn þeirra manna, sem kyrrsett ir höfðu verið, hygðist taka ser far utan með flugvél sem þá var að leggja af stað frá Reykja- víkurflugvelli. Var skjótt brugð- ið við og var maður þessi hand- tekinn í flugstöðinni. Flugvélin fór nokkru síðar af stað, þá orðin lítils háttar á eftir áætlun vegna þessa atviks. Maðurinn var settur í gæzlu, en mál hans tekið fyrir síðdegis í gær. Uruðu þau málsúrslit að maðurinn sem er einhleypur, var látinn setja tryggingu að upphæð 100,000 krónur til greiðslu sekt- ar og málskostnaðar þá er dóm- ur gengur í málinu. Er það í því fólgið, að tveir menn tóku á sig ábyrgð á manninum og fellur fé þetta til ríkissjóðs geri maðurinn tilraun til stroks á ný eða ef honum tekst að komast undan. Þess munu fá dæmi og jafn- vel ekkert um langt árabil að ís- lendingur hafi orðið að setja tryggingu sem þessa, til greiðslu sakarkostnaðar og dómssektar vegna tilraunar til stroks. Dagskrá Alf>ingis í DAG er boðað til funda í sam- einuðu þingi og báðum deildum. Á dagskrá sameinaðs þings er eltt mál, fyrirspurn um togara- kaup. Hvort leyfð skuli. Á dag- skrá efri deildar eru tvö mál: Tollskrá o. fl. og bifreiðaskatt- ur o. fl. Bæði málin eru til 2. umr. Á dagskrá neðri deildar er eitt mál, frumvarp til laga um eftirlit með happdrættum. Er það til 1. umr. Vatnsþróin endurbyggð FULLTÍÐA Reykvíkingar muna allir eftir vatnsþrónni, sem var þar, er nú heitir Hlemmur. Þótti mörgum mikil eftirsjá í hinni gömlu vatnsþró. Á fundi sínum á þriðjudaginn var ákvað bæj- arráð að iáta endurbyggja gömlu vatnsþróna. Einnig samþykkti bæjarráð, eftir tillögu listaverka nefndar að fela Sigurjóni Ólafs- syni myndhöggvara, að gera mynd af klyfjahesti. Var bæjar- ráðsmönnum sýnt líkan af högg- mynd þessari og fylgir hér með mynd af því. Það var aftur öllu erfiðara að fá ljósmynd af vatnsþrónni gömlu og varð ljósmyndari blaðs ins að fara inn í skjalasafn Reykjavíkurbæjar og taka þar neðri myndina af þeirri einu ljós mynd, sem til er í safninu af vatnsþrónni gömlu, en hún sýnir ferðalanga brynna hestum sinum í vatnsþrónni, er þeir koma ríð- andi til borgarinnar. Minja- og skjalasafn bæjarins tekur fegins hendi hverri þeirri mynd, er því berst af hinni gömlu vatnsþró við Hlemm. Þorfmnur Karls- efni fluttur til STYTTA Þorfinns Karlsefnis, verður flutt úr litla hólmanum í syðri Tjörninni samkvæmt ákvörðun bæjarráðs s.l. þriðju- dag. Var samþykkt að flytja högg myndina úr hólmanum og upp í Öskjuhlíðina og láta koma henni fyrir sunnan Hafnarfjarðarvegar í slakkanum þar. Var þessr til- flutningur myndarinnar hug- mynd listaverkanefndar og féllst bæjarráð á hana. Höggmyndin er gerð af Einari Jónssyni. Smygluðu blöðrurnar voru óseljanlegar 1 FYRRAHAUST keypti maður nokkur, er var á ferðalagi í Dan- mörku, 4000 gúmblöðrur, sem hann smyglaði inn í farangri sín- um, er hann kom að utan. — Nú er búið að leggja halda á flestar blöðrurnar, með því að maður sá, er ætlaði að selja þær, kom þeim ekki í verð. Það leiddi til þess að upp komst um smygl þetta. Ferðamaðurinn, sem blöðrurn- ar keypti, seldi þær allar kaup- manni einum hér í bænum á sl. vori og hugðist sá er keypti selja þær fyrir 14—15 krónur stk. — Hann hafði borgað fyrir þær all- ar 35 þús. kr. Vegna þessa háa verðs seldust blöðrurnar ekki, því þær sem á boðstólum eru, og ekki eru illa fengnar, kosta mikla minna. — Maðurinn vildi nú fá seljandann til þess að rifta kaupunum, en hann var ekki til viðtals um það. Þá snéri kaupmaðurinn sér til verðgæzlunnar út af blöðrunum óseljanlegu og vildi verðgæzlan þá ná tali af seljandanum. — Hann neitaði að koma. — Var þá málið sent sakadómaraemb- ættinu, sem kallaði seljandann fyrir rétt. Þar gerði hann grein fyrir sínu máli við frumrann- sóknina. Þá var jafnframt lagt halda á allar blöðrurnar og þær afhentar tollgæzluyfirvöldunum og heldur nú rannsókn málsins áfram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.