Morgunblaðið - 23.10.1958, Page 19

Morgunblaðið - 23.10.1958, Page 19
Fimmtudagur 23. okt. 1958 19 MORCinSBL 4 ÐIB Framsóknarfpingmenn lýsa van- trausti á rikisst/órnina Leggja til oð mál sé tekið frá stjórn- inni og lagt fyrir nefnd Rœtt um lífeyrissjóð í Alþingi í gœr í GÆR var fyrri umræða í sam- einuðu Alþingi um tillögu til þingsályktunar um skipun r.efnd ar til að gera athugun á stofnun lífeyrissjóðs fyrir bátasjómenn, verkamenn, bændur, útvegs- menn og aðra þá, sem ekki njóta lífeyristrygginga hjá sérstökum lífeyrissjóðum. Fyrsti flutnings- maður tillögunnar, Halldór E. Sigurðsson, gerði grein fyrir henni. Gat hann þess, að tillaga svipaðs efnis hefði verið flutt á Alþingi 1956—57, en í þeirri til- lögu hefði þó ekki verið gert ráð fyrir nefndarskipun. Skýrði hann frá því, að þegar tillaga þessi hefði verið fullbúin, hefði verið lagt fram frumvarp í þinginu, um lífeyrissjóð bátasjómanna. Kvað hann enga ástæðu til að það fólk, sem tillagan gerir ráð fyrir að öðlist lífeyristryggingar, búi við ótryggari kjör en sjómennirnir. Tryggingakerfið endurskoðaff Að ræðu flutningsmanns lok- inni kvaddi Magnús Jónsson sér hljóðs. Kvað liann það rétt hjá framsögumanni, að nauðsynlegt væri, að fólk byggi við öryggi í ellinni. Um það atriði væri held- ur engin ágreiningur. Hins veg- ar væru það gallar á trygginga- kerfi, að ekki skyldi vera gert ráð fyrir hærri ellilaunum, en nú er gert. Bæri þó að öðru jöfnu, að láta eldra fólk sitja fyrir yngra fólki, sem hefði fleiri möguleika til að sjá sér farborða. Nú bætt- ust sífellt fleiri stéttir í hóp- inn, sem vildu stofna með sér lífeyrissjóð og væri engin ástæða til að setja þær stéttir, sem til- lagan fjallar um, hjá, en það væri nokkrum vandkvæðum bundið, að stofna sjóði fyrir sum- ar þeirra. Ef lífeyriskerfið ætti að ná til allra stétta hlyti um leið að verða að endurskoða ellitrygg ingakerfi almannatryggingalag- anna. Hlyti því að líða að því, að tryggingakerfið í heild yrði endurskoðað. Vantraust á ríkisstjórnina Það er ekki vegna efniságrein- ings um málið að ég hef kvatt mér hljóðs, sagði Magnús. En til- laga þessi er efnislega samhljóða tillögu, sem flutt var á Alþingi 1956, að því einu breyttu, að nú er lagt til að nefnd verði falið málið, en í fyrri tillögunni var ríkisstjórninni falið að rannsaka það. Skilst mér því, að þessi tillaga bendi ótvírætt í þá átt, að ríkisstjórnin hafi ekki unnið þetta verk og flutningsmönnum þyki málinu því betur borgið í nefnd. Veit ég að ekki stendur á engan veginn tefja afgreiðslu þingsályktunartillögunnar, en kvað heldur enga ástæðu til að þingsályktunin yrði til að tefja fyrir frumvarpinu. >á tók Eggert undir þau ummæli Magnúsar Jónssonar að hann væri undrandi yfir flutningi þessarar þingsá- iyktunartillögu, þar eð samhljóða tillaga hefði verið flutt fyrir | tveimur árum. >á talaði Lúðvík ! Jósefsson, sjávarútvegsmálaráð- herra. Hann kvað þetta mál ekki heyra undir sitt ráðuneyti og skýrsla um málið yrði því að bíða. Hins vegar mundi málið vera í góðum undirbúningi, en tillögur og frumvörp, sem nú kæmu fram, væru aðeins áhuga- merki einstakra þingmanna um að hraða málinu! Vaxandi verðbálga rýrir kjör styrkþega >á kvaddi Ólafur Björnsson sér hljóðs. Vék hann fyrst að því atriði I greinargerð fram- sögumanns, kversu miklu betri væri hagur þeirra starfshópa, sem hefðu komið á hjá sér líf- eyrissjóði. Kvaðst hann vilja vekja athygli á því, að stærsta starishópnum, sem nyti slíkra réttinda, opinberum st.arfsmönn um, hefðu verið ákveðin lægri laun, einmitt vegna þeirra hlunn inda, sem þeir nytu af lífeyris- sjóðnum. >á fór Ólafur nokkr- um orðum um kjör gamla fólks- ins, sem sífellt yrðu lakari sakir vaxandi verðbólgu. Fyrir stríð hefði verið gert ráð fyrir 100,00 kr. lífeyri á mánuði, en nú væri gert ráð fyrir um 800,00 kr. — >essar 800,00 kr. myndu þó sízt meiri að verðgildi en 100,00 kr. fyrir strið, en styrkþegarnir hefðu þannig ekki fengið neina hlutdeild í aukningu raunveru- legra þjóðartekna, sem hefðu a. m. k. tvöfaldazt á þessum tíma. Ólafur sagði, að hér væri hreyft góðu máli, en kvaðst þó vilja benda á, að ef lífeyrissjóðs- tryggingar yrðu eins almennar og þingsályktunartillagan gerir róð fyrir og næðu til allra þeirra, sem nú njóta ekki sérstakra líf- eyristrygginga, þá væri óeðlilegt, að almennum lífeyrissjóði yrði haldið uppi sem sérstakri stofn- un. Væri því eðlilegt að ákvæð- in um ellilífeyri yrðu endurskoð- uð og e. t. v. einnig ákvæði um aðra tryggingastarfsemi. Virtist sér því rétt að gerð yrði álykt- un um endurskoðun almanna- tryggingalaganna almennt. Stöðugt verðgildi peninganna >á tók Ólafur undir þau um- mæli Magnúsar Jónssonar að inganna, því 25 stiga hækkun á framfærsluvísitölu væri 13% skattur á alla sjóði. Að lokum tók Halldór E. Sig- urðsson aftur til máls. Kvað hann þetta eðlilega málsmeðferð í alla staði og hefði hann kynnt sér það sérstaklega. Kvað hann flutn ingsmenn aðeins vilja hraða mál- inu og þá væri þessi leið eðlileg. >á sagðist hann bera langtum meira traust til stjórnarinnar en stjórnarandstöðunnar og ekki að ástæðulausu!! Fleiri tóku ekki til máls. Var þingsályktunartillagan samþykkt til 2. umr. og fjárveitinganefndar með 27 samhljóða atkvæðum. Yfir 12,000 manns hafa bandarísku bóka- Sjaifstæðismonnum að stuðla að e8m t væri að Alþingi kysi þvi, að malið se tekið ur hond- alla nefndarmennina. Kvað hann um rikisstj ornarinnar. Hms veg-, annað ranglátt og óviðunandi. _ ar tel eg astæðulaust, að nkis- Þá vék hann nokkrum orðum að stjornm se latin skipa mann i vexti verðbólgunnar og benti á, nefndma Alþingi a að kjosa að grundvoiIur allrar trygging- hana alla. Stjornarliðum þykir arstarfsemi hlyti alltaf að vera það hentugt fyrirkomulag, að Al- ^ stöðugt verðgildi peninganna. — þingi kjósi fjóra menn í nefnd- Það Væri óskynsamleg ráðstöfun ir, en stjórnin skipi síðan odda- á fé að kaupa sér tryggingu, ef mann, því með því móti hafa þeir verðgildi peninga færi stöðugt fjóra menn af fimm. En eftir að minnkandi. >yrfti því framar ríkisstjórnin hefur brugðizt öðru að tryggja verðgildi pen- sinni skyldu í þessu máli, tel ég rétt að Alþingi taki að sér að leysa það. .‘^hugamerki einstakra þingmanna! Næstur tók til máls Eggert G. >orsteinsson. Svaraði hann Hall- dóri E. Sigurðssyni varðandi frumvarpið um lífeyrissjóð báta- sjómanna, sem flutt er í efri deild og skýrt var frá hér í blaðinu i gær. Kvað hann það frumvarp — Þegar kommúnistar Framh. af bls. 1 og frjáls útvarpsstarfsemi yrði heimiluð, að Staiinstyttan, tákn harð- stjórnar og kúgunar, yrði taf- arlaust fjariægð. A Hinn 23. október 1956 hófst T hin raunverulega bylting gegn einræði kommúnismans með fjöldafundum, sem hundruð þúsund Ungverja tóku þátt í. >egar hinir lafhræddu AVO-ar hófu skothríð á mannfjöldann við útvarpshúsið skar þjóðin öll upp herör gegn rússnesku kúg- urunum og ungverskum hand- bendum þeirra. Um skeið virtist svo sem mál staður hinnar ungversku þjóðar ætlaði að sigra, hún eygði nýja og betri tíma — stjórnmálaflokk arnir voru endurreistir og fengu að starfa óáreittir, líka kommún istaflokkurinn — frjáls dagblöð hófu þegar í rtað göngu sína. Ákveðið var að efna til frjálsra kosninga og Imre Nagy tók við forsætisráðherraembætti um stundarsakir. Eina krafa ung- versku þjóðarinnar var sú, að hún fengi að lifa frjáls og rúss- neski herinn yrði fluttur úr land- inu. Jk Aðfaranótt sunnudagsins 4. T nóvember var óheillanótt. — Kommúnistar köstuðu grímunni og sýndu heiminum hvernig hið kommúníska réttlæti er í fram- kvæmdinni. >eir höfðu setið á svikráðum við forystumenn ung- versku þjóðarinnar, sem voru handteknir við samningaborðið, leiddir út og síðan skotnir. Hví- líkar hugsjónir, sem verja verð- ur með slíkum ráðum! Heimurinn þekkir málalokin, hvernig ungverska þjóðin var brotin á bak aftur og fjötruð á ný. Fjöldahandtökur, nauðungar- flutningar og aftökur. >að er saga þessarar þjóðar síðustu tvö árin. Margir hafa flúið land, nokkrir þessara ógæfusömu karla og kvenna hafa leitað til íslands í von um að finna hér varanlegan samastað — þar sem einræði óg ofbeldi ógnaði ekki lífi þeirra og frelsi. ▲ Við íslendingar höfum lært T mikið af þessum hildar- leik, við kunnum betur að meta frelsi og hamingju — og við skiljum nú betur en áður, að framtíð íslenzka lýðveldisins byggist á því, að við séum öll vakandi á verðinum um frelsið, látum ofbeldisöflin aldrei ná undirtökunum, svo að ísland verði aldrei einræði kommún- ismans að bráð og íslendingar þurfi aldrei að flýja land sitt í leit að frelsi. synmguna BANDARÍSKU bókasýningunni á Laugavegi 18 átti að ljúka í gærkvöldi, en vegna gífurlegrar aðsóknar verður hún opin fram til helgarinnar. Um miðjan dag gær höfðu yfir 12.000 manns séð sýninguna, og er það meiri að- sókn en að nokkurri annarri bóka sýningu. Pétur Ólafsson forstjóri ísafoldar tjáði blaðinu, að á fyrri bókasýningar hefðu komið þetta 5—6 þús. manns, sem hefði þótt ágætt, en aðsóknin að þessari sýningu hefði farið frai.i úr öll- um vonum manna. >ess skal getið, að eintökin, sem á sýningunni eru, verða til sölu frá deginum í dag. Geta menn því farið beint á sýninguna og keypt þar þær bækur, sem þeir hafa mestan hug á að eign- ast. Sýningin er opin daglega frá kl. 10 til 10. Innilegt þakklæti til barna minna og tengdabama, barnabarna og annarra ættingja og vina, sem glöddu mig á níræðisafmælinu 16. okt. sl. með heimsóknum, gjöfum og skeytum, og gerðum mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Kristín Jónsdóttir, Bakka, Sv£U'faðardal. Frumvarp um kirkjugarða rœtt á kirkjuþingi í gœr Merkur lagabálkur Á DAGSKRÁ kirkjuþings í gær var frumvarp til laga um kirkju- garða. — Flutningsmenn voru biskup og kirkjumálaráðherra. Fylgdi biskup frumvarpinu úr hlaði en á eftir urðu nokkrar umræður. Fögnuðu fulltrúar frumvarpinu og kom það fram, að hér er um merkan og mik- inn lagabálk að ræða. Frum- varpið var til fyrri umræðu og vísað til kirkjumálanefndar. >á var tillaga til þingsálykt- unar um kostnað við byggingu kirkjuhúss þjóðkirkjunnar, flutt af Gísla Sveinssyni, til fyrri um- ræðu. — Var henni vísað til alls- herjarnefndar. Tillaga til þings- ályktunar um skilgreiningu á tak mörkum milli fríkirkju- og þjóð- kirkjusafnaða, einnig flutt af Gísla Sveinssyni, var til fyrstu umræðu og vísað til allsherjar- nefndar. í gær var kjörim þingfarar- kaupsnefnd á kirkjuþinginu og eiga í henni sæti séra Friðrik A. Friðriksson, prófastur, Húsa- vík, Jón Jónsson, bóndi, Hofi og Steingrímur Benediktsson, kenn- ari, Vestmannaeyjum. I dag verður til umræðu áskor- un um að hækka styrk til kirkju- byggingarsjóðs úr hálfri í eina millj. kr. Áskorun um að stofna til verðlaunasamkeppni um upp- drætti að sveitakirkjum og áskor un um fjárveitingu til eflingar kristilegri og kirkjulegri starf- semi í landinu. England vairn Rúss land með 5:0 f GÆR háðu England og Sovét- ríkin landsleik í knattspyrnu, og lyktaði leiknum með sigri 3ng- lendinga, sem skoruðu 5 mörk en Rússar ekkert. í fyrri hálfleik var leikurinn nokkuð jafn, en rétt áður en flautað var til hálf- leiks, skoraði Johnny Haynes fyrsta markið. í síðari hálfleik léku Englend- ingarnir mun betur og skoruðu 4 mörk. Haynes bætti tveimur við, Charlton skoraði úr víta- spyrnu og Lofthouse bætti því fimmta við, mjög glæsilega á 87. mínútu. * >etta er mesti sigur Englands í knattspyrnu síðan á.lö 1947, en þá unnu Bretar úrval úr Evrópu- löndum með 6 mörkum gegn 1. Loknð í dng fró kl. 12—4 vegna jarðarfairar. Verzlun B. H. Bjarnason Lokað í dag kl. 12—4 vegna jarðarfarar Parísarbúðin Sfarifstofur okkar verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar. — é Heildverzlun Arna Jónssonar H.f. Aðalstræti 7. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar GUÐJÓN JÓNSSON kaupmaður, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. október kl. 2 e.h. Sigríður Pétursdóttir og börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.