Morgunblaðið - 24.10.1958, Page 1
'0 siður
45. árgangur.
243. tbl. — Föstudagur 24. október 1958
Prentsmiðja MorgunbTaðslns
Upplýsingar Guðmundar #. Guðmundssonar:
Ný raðstefna til a& setja almennar reglur
um fiskveiðilögsögu verður ákveðin
Tillaga Islands um aó allsherjar-
þingið leysi málið fœr ekki undirtektir
ALLSHERJARÞING Sam-
einuðu þjóðanna mun ekki
sjálft setja reglur um víð-
áttu landhelgi og fiskveiði-
lögsögu, eins og íslenzka
ríkisstjórnin hefur lagt til,
heldur verður ný ráðstefna
um málið ákveðin.
Þessar upplýsingar gaf
Guðmundur í. Guðmunds-
sön utanríkisráðherra í út-
varpserindi, sem hann hélt
í gær vegna dags Samein-
uðu þjóðanna. Orðrétt sagði
ráðherrann um þetta í er-
indi sínu<
Af umræðum í Allsherjar-
þlnginu og af viðræðum við svo
til allar sendinefndir á þing-
inu er Ijóst, hver afgreiðslan
verður. Hugmyndin um að. Alls-
Sjang vægir
★ TAIPEI, 23. okt. NTB-Reu-
ter. — Þjóðernissinnar hafa fall-
izt á að kalla smám saman til
Formósu 15—20.000 hermenn frá
eyjunum á Formósusundi. Þeir
eru einnig fúsir til að hætta við
fyrirætlanir sínar um að vinna
meginland Kína úr höndum
kommúnista. Þetta er haft eftir
góðum bandarískum heimildum
í Taipei í kvöld. Þetta voru veiga
mestu atriðin í viðræðum þeirra
Sjang Kaí-Sheks og Dullesar.
Viðræðunum lauk í morgun, en
þær höfðu staðið 3 daga. í dag
sendu þeir Sjang og Dulles út
sameiginlega yfirlýsingu, og
skömmu síðar hættu kommúnist-
ar skothríðinni á Kvemoy.
herjarþingið finni efnislega
lausn á málinu fær ekki undir
tektir, næstum allar þjóðir vilja
nýja ráðstefnu og treysta henni
betur en þinginu. Tvímælalaust
er því, að það eitt gerist, að
ný ráðstefna verður ákveðin.
Spurningin er, hvenær hún verð-
ur og hvar hún verður. Líkur
benda til að ráðstefnunni verði
flýtt og þá ekki hvað sízt vegna
þess ástands, sem hér ríkir. Ef
til vill verður hún haldin fyrri
hluta næsta árs.
Sá kafli ræðu Guðmundar í.
Guðmundssonar, sem fjallaði um
landhelgismálið fer hér á eftir:
Ekkert af núverandi verkefn-
um Sameinuðu þjóðanna snertir
Frh. á bls. 19.
Arftaki Larsens talaði
undir rússnesku eftirliti
KAUPMANNAHÖFN, 23. okt. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
MARGIR bjuggust við því, að
Aksel Larsen, sem nýlega var
rekinn úr embætti formælenda
kommúnistaflokksins í danska
þinginu, mundi taka til máls sem
almennur þingmaður í stjórn-
málaumræðum þingsins í gær,
en sæti hans var autt.
Það er haft fyrir satt, að leið-
togar kommúnistaflokksins hafi
tilkynnt honum, að hann yrði
rekinn úr flokknum og fengi
ekki að sækja flokksþingið sem
hefst 31. okt., ef hann tæki þátt
í umræðum þingsins.
Arftaki Larsens sem formæl-
andi flokksins, Fuglsang, hélt
jómfrúræðu sína í gær undir
rússnesku eftirliti. Rússneskir
sendiráðsmenn sátu á þingpöll-
unum í stúku erlendra stjórnar-
erindreka og hlustuðu á ræðuna
af miklum áhuga.
Miðstjórn Kommúnistaflokks-
ins hefur samþykkt, að Aksel
Larsen, sem verið hefur formað-
u flokksins í 30 ár, megi aðeins
tala einn stundarf jórðung á
flokksþinginu eins og aðrir al-
mennir fulltrúar. Fyrir þingið
má Larsen ekki hafa tal af öðr-
Grœnlendingar vilja
öflugri strandgœzlu
KAUPMANNAHÖFN, 23. okt. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
— í umræðum danska þingsins
í gær tók grænlenzki þingmað
urinn Augo Lynge til máls og
lagði ríka áherzlu á kröfur
Grænlendinga um 12 mílna fisk-
veiðilögsögu. Hann sagði, að
Grænlendingar lifðu fyrst og
fremst á sjávarafurðum. Eftir að
Islendingar hefðu fært út fisk-
veiðitakmörk sín mætti búast
við stórum fiskiflotum á Græn-
landsmið, en fiskimergðin þar
væri engan veginn ótakmörkuð.
Hann sagði, að nauðsynlegt
væri að endurskipuleggja land-
helgisgæzluna og fá ný, hrað-
skreið varðskip. Margir erlendir
togarar gerðu sér leik að því að
rjúfa núgildandi þriggja mílnna
landhelgi, en hins vegar þyrði
enginn að rjúfa 12 mílna land-
helgi Rússa. Svo væri að sjá sem
réttur aflsins væri í fullu gildi.
Grænlandsráðherrann Lind-
berg kvað stjórnina mundu efla
strandgæzluna við Grænland. —
Hún styddi kröfur Grænlend-
inga um 12 mílna fiskveiðilög-
sögu, en biði eftir endanlegri
niðurstöðu um fiskveiðilögsögu
íslands og Færeyja.
um flokksfélögum eða eiga
blaðaviðtöl.
Búizt er við, að aðeins einn
þriðji hluti flokksþingsins muni
styðja Larsen. Þá er einnig gert
ráð fyrir, að samkvæmt óskum
frá Moskvu verði horfið frá því
að gera Jespersen að formanni
flokksins.
Boris Pasternak
Boris Pasternak fékk Nóbels-
verðlaunin 1958
Skáldsaga hans er bönnuð i Sovét-
rikjunum
S/ENSKA akademían veitti í
gær rússneska skáldinu Boris
Pasternak bókmenntaverðlaun
Nóbels fyrir árið 1958. Er hann
fyrsti sovétborgarinn sem hlýtur
þessa viðurkenningu. Pasternak
hlaut alþjóðafrægð fyrir skáld-
sögu sína „Zivago lækni“, sem
hann skrifaði fyrir þremur ár-
um. Hefur bókin verið þýdd á
mörg tungumál, en útgáfa henn-
ar var bönnuð í Sovétríkjunum
á þeim forsendum, að „bók-
menntagildi hennar væri ekki
nægilega mikið“. Margir gagn-
rýnendur hafa jafnað bókinni við
stórverk Tolstojs, „Stríð og frið“.
Morgunblaðið hefur fregnað, að
Almenna bókafélagið hafi tryggt
De Gaulle býður grið
PARIS, 23. okt. NTB-Reuter. —
De Gaulle forsætisráðherra
Frakklands bauð í dag leiðtogum
uppreisnarmanna í Alsír grið, ef
þeir vildu koma til Parísar til að
semja um vopnahlé í Alsír.
Hann sagði jafnframt að stríðið
í Alsír væri tilgangslaust og hét
\ á uppreisnarmenn að hætta
vopnaviðskiptum.
Ummæli de Gaulles hafa vak-
ið athygli í Túnis, Marokkó og
London. í París er sagt, að tilboð
hans til leiðtoga uppreisnar-
manna sé djarfasta skrefið sem
hann hefur stigið í Alsír-mál-
inu.
í Reutersskeyti frá Kaíró seg-
ir, að stjórn uppreisnarmanna
undir forsæti Fehrats Abbas
hafi strax komið saman til að
ræða boð de Gaulles. Fulltrúi
Abbas í Túnis lét svo ummælt,
að orð de Gaulles fælu f sér stírt
skref fram á við og að þau væru
mjög athyglisverð.
í Lundúnum eru menn mjög
ánægðir með tilboð de Gaulles
til uppreisnarmanna og benda á,
að nú hafi uppreisnarmenn gull-
ið tækifæri til að ganga úr
skugga um, hver sé hin raun-
verulega stefna frönsku stjórn-
arinnar til Alsír.
sér útgáfurétt á „Zivago Iækni“
og ætli að gefa hana út á næsta
ári.
Um skeið var svo að sjá sem
skáldsagan yrði gefin út í Sovét-
ríkjunum, en kommúnistaflokk-
urinn bannfærði hana, og reyndi
þá Pasternak, að sögn, að fá
endursent handritið, sem hann
hafði sent ítölskum útgefanda.
Útgefandinn var góður kommún-
isti, en betri fésýslumaður, svo
hann ákvað að gefa út bókina.
Mesta skáldverk Sovétríkjanna
Pasternak hefur verið eitt af
mestu Ijóðskáldum Rússa undan-
farin 40 ár. í tilvitnun sænsku
akademíunnar er hann lofaður
fyrir „hin miklu afrek hans í
lýrískum nútímaljóðum og á vett
vangi hinnar miklu rússnesku
epísku bókmenntahefðar".
í „Zivago lækni" er rakin saga
40 ára í Sovétríkjunum. Þar segir
frá lækni úr miðstéttunum og
fjölskyldu hans allt frá árum
byltingarinnar fram á fimmta tug
aldarinnar. Sagan er talin mesta
skáldverk, sem komið hefur frá
Sovétríkjunum í fjöldamörg ár.
Fordæmir marxismann
Pasternak er mjög gagnrýninn
á sovétskipulagið í bók sinni. Á
einum stað fordæmir Zivago
læknir marxismann harðlega og
kallar hann einn mesta glæp sovét
þjóðfélagsins. En Anders Öster-
ling, ritari sænsku akademíunn-
ar sagði nýlega, að þetta snilld-
arverk væri fyrir utan og ofan
allar flokkslínur og í rauninni
væri bókin andpólitísk
mannlega viðhorfi sínu.
í hinu
Lýsing á reynslu einnar fjöl-
skyldu
Pasternak hefur sjálfur neitað,
að bókin sé fordæming á sovét-
þjóðfélaginu. Samkvæmt fregn-
um frá Moskvu sagði hann, að
bókin væri aðeins „lýsing á
reynslu einnar fjölskyldu, ein
hlið á lífinu“. Hann kvaðst
harma það, að ýmis atriði bók-
arinnar hefðu verið tekin úr
samhengi og notuð sem einkunn
fyrir bókina í heild.
Ætlaði að verða tónlistarmaður
Boris Pasternak, sem er 68
ára gamall, býr með konu
sinni í Peredelkino, rithöfunda-
nýlendu skammt frá Moskvu.
Faðir hans, Leonid Pasternak,
var þekktur listmálari, en móðir
hans var píanóleikari. Upphaf-
lega ætlaði Boris Pasternak að
leggja út á tónlistarbrautina, en
hóf í stað þess að skrifa árið
1912.
í lok fyrri heimsstyrjaldarinn-
ar var hann þegar viðurkenndur
sem eitt fremsta Ijóðskáld Rússa,
og árið 1922 vann hann sér al-
þjóðarhylli með ljóðabók, sem
Framh. á bls. 2
JttorgimÞÍitftib
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Skýrsla S. 1». um Ungverja-
landsmálið verði gefin út á ís-
íslenzku (þingfrétt).
— 8: Æskan og framtíðin (Síða SUS)
— 10: Forystugreinin: Sameinuðu
þjóðirnar. — Morgan og frúrn-
ar í götunni (Utan úr heimi).
— 11: Dagur Sameinuðu þjóðanna.
— 18: íslenzkur klerkur fer til
Kanada.