Morgunblaðið - 24.10.1958, Blaðsíða 6
6
MORC, VNTiLAÐIÐ
Föstudagur 24. okt. 1958
Sigurður
maður á
Sjötugur i dag
ÞAÐ er staðreynd, að sérhvert
byggðarlag ber meiri og minni
svip þeirra, er það byggja, en
einkum þó þeirra, er mest áhrif
•hafa með störfum sínum og at-
höfnum. Þeir hafa, ef svo mætti
orðum haga, verið samferða nú
um tæprar hálfrar aldar skeið,
Sigurður Kristjánsson og Siglu-
fjörður.
Sigurður hefur með störfum
sínum sett svip á Siglufjörð.
Þegar saga Siglufjarðar verður
rituð verður þáttur Sigurðar
Kristjánssonar ríkur á þeim
blöðum. Svo miklu hefur hann
komið í verk og svo margháttuð
hafa störf hans verið um ævina,
hér í þessu byggðarlagi.
I dag er Sigurður sjötugur.
Það eru að vísu mörg ár miðað
við mannsævina, en verður stutt
skeið þegar litið er til baka um
ævi athafnamanns, sem hefur
lagt af mörkum eljuríkt, fram-
sýnt og merkilegt starf í þágu
byggðarlags síns og samborgara.
Sigurður Kristjánsson er
fæddur hinn 24. okt. 1888 að
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs-
strönd. Foreldrar hans voru
hjónin Kristján Sigurðsson frá
Kollugerði í Kræklingahlíð og
Doróthea Friðrika Stefánsdóttir
frá Grímsnesi við Eyjafjörð, af
Grýtubakkaætt. Bjuggu foreldr-
ar hans lengst að Skeiði í Svarf-
aðardal, en þangað fluttist hann
með þeim þriggja ára að aldri og
þar ólst hann upp, að þeirrar
tíðar hætti við öll algeng sveitar-
störf.
Átján ára að aldri hleypir
hann heimdraganum og ræðst til
Ásgeirs Péturssonar, hins þjóð-
kunna athafnamanns og vinnur
hjá honum, aðallega við búðar-
störf, en árin 1906—1907 stundar
hann nám í Gagnfræðaskólanum
á Akureyri, en tók á næsta hausti
inntökupróf í Verzlunarskólann
í Reykjavík og lauk þar burtfar-
arprófi vorið 1909. Að loknu
burtfararprófi í Verzlunarskól-
anum stundaði hann verzlunar-
störf um eins árs skeið hjá B. H.
Bjarnasyni í Reykjavík. Þaðan
fór hann aftur til Ásgeirs Pét-
urssonar og var í þjónustu hans
til ársins 1915, fyrst á Akureyri
en frá 1912 á Siglufirði. Árið
1915 keypti hann verzlun þá er
Ásgeir átti hér á Siglufirði og
rak Sigurður verzlunina til 1929,
að hann seldi hana. Um áramótin
1920 og 1921 varð Sigurður for-
stjóri Sparisjóðs Siglufjarðar.
Var það starf raunar til að byrja
með algert aukastarf, en brátt
jókst Sparisjóðnum ásmegin und
ir forystu Sigurðar og viðskiþtin
jukust svo, að frá 1940 hefur for-
stjórn Sparisjóðsins verið aðal-
starf Sigurðar.
Árið 1933 stofnaði hann sam-
eignarfélagið ísafold, er rekur
síldarsöltun og síl arverkun og
var hann forstjóri þess um ára-
bil. Útgerð rak hann og um nokk
urt skeið.
í félagi við Snorra Stefánsson,
verksmiðjustjóra, rak hann síld-
arverksmiðjuna „Gránu“ um 10
ára skeið og 1927 tekur hann við
umboðsstörfum fyrir hf. Shell
og hafði þau á hendi rúman ald-
arfjórðung.
Árið 1926 var Sigurður skipað-
ur sænskur vararæðismaður og
er það enn. Hafa Svíar kunnað
að meta þau störf hans, því hann
er riddari Vasaorðunnar af
fyrsta flokki.
Þegar kosið var til bæjarstjórn
ar á Siglufirði í fyrsta skipti eft-
ir að Sigluíjörður hlaut kaup-
staðarréttindi var harin einn
þeirra, er kosnir voru, og er sá
eini þeirra sem enn er á lífi. Sat
Sigurður í bæjarstjórn frá kjör-
degi 7. júní 1919 til 2. júní 1923
og aftur frá 15. 10. 1924 til 22. 1.
1927 og sat alls á 127 fundum
bæjarstjórnar á því tímabili.
í skattanefnd átti hann sæti
Kristjánsson ræðis-
Siglufirði
um langt skeið og var fulltrúi
skattstjórans á Akureyri frá
1947 til 1954 að skipan þeirra
mála var breytt.
Hann átti og sæti í Sildarút-
vegsnefnd um 12 ára skeið, sex
ár formaður og hin sex árin vara
formaður.
Þá hefur hann og haft með
höndum ýmis félagsleg störf.
Starfaði m. a. alllengi í IOGT og
ýmsum margþættum trúnaðar-
störfum hefur hann gegnt, þó
ekki sé upptalið hér.
1911 kvæntist Sigurður Önnu
Vilhjálmsdóttur frá Þorsteins-
stöðum í Laufássókn, en þau
slitu samvistum. Eru þrjú barna
þeirra á lífi: Þráinn, útgerðar-
maður og forstjóri á Siglufirði,
Sigurjóna, húsfreyja í Hafnar-
firði, og Vilhjálmur, skrifstofu-
ma.ður hjá SÍF í Reykjavík.
1942 kvæntist Sigurður öðru
sinni, Þórörnu Erlendsdóttur frá
Hvallátrum við Patreksfjörð.
Eru þau barnlaus.
Sigurður var kjörinn heiðurs-
borgari Siglufjarðarkaupstaðar
á 1000. fundi bæjarstjórnar Siglu
fjarðar 13. marz 1957.
Hér hafa verið rakin í megin-
dráttum helztu atriði starfssamr-
ar og athafnamikillar ævi Sig-
urðar Kristjánssonar og má af
því marka að hann hefur komið
víða við, enda maðurinn vart
einhamur. Ágætar gáfur, góð
menntun og víðtæk reynsla sam-
fara óvenjulegri glöggskyggni og
dugnaði hafa markað öll hans
störf og athafnir.
Þegar Sigurður kom hingað
árið 1912, að vísu til stuttrar
dvalar, að því er hann hefur
sjálfur frá sagt, að hefði verið
áform sitt, voru framtakssamir
íslendingar ásamt Norðmönnum
að leggja grundvöllinn að nýrri
og tekjumikilli atvinnugrein,
síldveiðunum, síldarsöltun og
síldarbræðslu. Árið 1918 voru hér
t. d. fjórar síldarbræðslur. Sig-
urður tók virkan þátt í þeim
athöfnum með sínum alkunna
dugnaði og áhuga. Kauptúnið
var ört vaxandi, vegna þessa
framtaks og atvinnufjörs, sem
fór vaxandi ár frá ári. Siglfirð-
ingar og forystumenn þeirra
vildu losna úr tengslum við
Eyjafjarðarsýslu og verða sjálfs
sín ráðandi. Vildu ekki „láta
önnur byggðarlög hafa atvinnu-
rekstur í bænum að féþúfu“,
eins og það var orðað á þeim
tíma. Sigurður Kristjánsson var
einn þessara forystumanna, enda
kjörinn í hina fyrstu bæjarstjórn,
svo sem fyrr er getið. Átti hann
því sinn hlut að þeim grunni er
lagður var að framtíð Siglufjarð-
ar í hinni fyrstu bæjarstjórn og
enn leggur hann grundvöll að
framtíð Siglufjarðar með starfi
sínu sem forstjóri Sparisjóðsins.
Þegar hann tók við Sparisjóðn-
um 1921 var velta hans 73.469,00
krónur og varasjóður 4.864,00 kr.
I árslok 1935 var varasjóðurinn
orðinn 239.712,00 krónur og nú
við áramótin 1957 og 1958 var
hann orðinn 2,5 milljónir króna
og veltan um 150 milljónir.
Aðeins þessar tölur sýna, að
ekki hefur verið setið auðum
höndum á liðnum árum og allir
vita, að ekki hafa verið einskær
góðæri á þessu tímabili. Árin
1931 til 1935 voru örðug fyrir
síldarsaltendur og voru lána-
stofnanir tregar til þess að lána
fé í þennan atvinnurekstur og
var svo komið árið 1936 að bank-
anrir voru ófúsir að lána fé út á
síldina þótt búið væri að selja
fyrirfram allmikið af íslenzkri
matjessíld. Þá hafði Sparisjóðn-
um undir stjórn Sigurðar vaxið
svo fiskur um hrygg, að hann
bauðst til þess að lána út á
matjessíldina. Margir töldu nú,
að sparisjóðurinn hefði reist sér
hurðarás um öxl og álitu honum
stjórnað af lítilli fyrirhyggju. En
forstjóri hans sá betur. Spari-
sjóðurinn hagnaðist á viðskipt-
unum og síldarsöltuninni var að
því leyti bjargað það árið. Þá er
Sigurður hafði með fjármála-
glöggskyggni sinni brotið ísinn
var tregðu bankanna rutt úr vegi
að veita rekstrarlán til þessa þýð
ingarmikla atvinnurekstrar. Það
má því með sannindum segja, að
Sigurður hafi með dugnaði sín-
um, hyggindum og margþættri
reynslu samfara skarpskyggni
og glöggskyggni, bjargað síldar-
söltuninni úr öngþveitinu 1936.
Þó þetta dæmi sé eitt tekið hér
má margt fleira fram telja er lýs
ir manninum nokkuð, en bezta
lýsingin á honum verður við-
kynningin við hann sjálfan, per-
sónu hans og mannkosti, sem
hann er svo ríkur af.
Allir, sem nokkuð þekkja Sig-
urð Kristjánsson, vita, að hann
er skrumlaus maður, en þeim
mun reyndari að dugnaði og
fjármálaglöggskyggni og honum
er það manna ljósast, að grund-
völlur allrar framtíðar og fram-
fara er öruggur og traustur fjár-
hagur einstaklinga og þjóðfélags-
ins í heild.
Hann er ráðhollur og skyggn
á úrræði og leiðir, hlaðinn orku
og starfsgleði. Kvikur á fæti,
léttur og hýr í lund með hlýjan
þela til alls og allra. Geðríkur,
en kann vel með að fara. Mann-
kosta- og gjörvileikamaður mik-
illa hæfileika.
Sigurður ■ hefur nú á undan-
förnum áratugum goldið Siglu-
firði vel fósturlaunin og þá ósk
veit ég hann eiga heitasta á þess-
um tímamótum, að Siglufjörður
megi eflast og blómgast og far-
sæld og hagsæld ríkja hér í
byggð og í bæ.
Sjálfstæðisflokkurinn sendir
honum í dag kveðjur og þakkir
fyrir margvísleg trúnaðarstörf
og árnar honum allra heilla á
óförnum vegi.
Sjálfur sendi ég honum hug-
heilar kveðjur og árnaðaróskir
og þakkir fyrir alla góða kynn-
ingu og vináttu nú um margra
ára skeið.
Fyrir hönd bæjarstjórnar
Siglufjarðar sendi ég heiðurs-
borgaranum kveðjur, árnaðar-
óskir og þakkir fyrir öll störf í
skrifar úr
daglegq lifinu
Dagur Sameinuðu
þjóðanna
DAG er dagur Sameinuðu þjóð
anna, nokkurs konar einingar-
tákn meira en 80 þjóða. Á slík-
um tímamótum finnst mér vel við
eiga að staldra við og reyna
að átta sig ofurlítið á því, hvaða
skoðun við höfum í rauninni á
gildi þessara samtaka, sem varða
okkur öll, hvort okkur finnst þau
hafa komið að gagni á starfsferli
sínum eða hvort þau hafa brugð-
izt vonum okkar.
Samtök Sameinuðu þjóðanna
eru ekki fullkomin, það eru víst
flestir sammála um. En var í
rauninni nokkurn tíma hægt að
ætlast til þess að öll vandamál
heimsins leystust á einum 13 ár-
um? Og það er ekki lengra síðan
þjóðirnar byrjuðu hver af annarri
að staðfesta stofnskrá samtak-
anna. Það er ekki langur tími í
sögu mannkynsins. Mér skilst að
það taki stpndum langan tíma
fyrir tvo einstaklinga að verða
samstiga á lífsbrautinni og læra
að koma sér saman í tveggja her-
bergja íbúð. Hvað þá þegar yfir
80 ólíkar þjóðir með ólíka menn-
ingu, ólíka siði og ólíkar skoðan-
ir á næstum öllum hlutum eiga I
að fara að búa saman á einu
kærleiksheimili, sem tekur yfir
hálfan heiminn — ekki sízt þeg-
ar margar þeirra eru fyrirfram
tortryggnar í garð annarra eftir
aldagamlar væringar?
Önnur tilraun
EG lít svo á að þetta sé aðeins
önnur tilraunin til að gera
sjálfa hugsjónina um samstarf
allra þjóða að veruleika, ef til vill
sú síðasta og e. t. v. ein af mörg-
um. Allir vita hvernig fór um
fyrstu tilraunina. Þjóðabandalag-
ið beið ósigur fyrir einræðisöfl-
um, og tókst ekki að koma i veg
fyrir hræðilega styrjöid. Sumir
kenna um of mikilli bjartsýni
forráðamannanna, og flestir eru
sammála um að ófullnægjandi
þátttaka og vanmáttur stofnunar-
innar til að fylgja eftir samþykkt
um hafi átt mikinn þátt í hvernig
fór.
Menn misstu þó ekki kjarkinn,
og jafnvel áður en heimsstyrjöld-
inni síðari lauk, var hafinn undir-
búningur að öðrum alþjóðlegum
samtökum, sem gegna skyldu
sama hlutverki. En nú voru menn
reynslunni ríkari og ekki alveg
eins bjartsýnir. Þeir fóru varlega
af stað, en vonuðu að allt stæði
til bóta. Stofnskráin hafði sína
galla, hana varð að sníða þannig
að allir gætu samþykkt hana.
En það sem mest er um vert,
er að við eigum í Sameinuðu þjóð
unum samtök, þar sem deilumál
þjóða í milli eru tekin til umræðu
á fundum, og reynt að leysa þau
með samþykktum. Á þessum
stutta starfstíma samtakanna hafa
þau hvað eftir annað firrt vand-
ræðum, þó að þeim hafi ekki allt-
af tekizt að leysa málin á full-
nægjandi hátt. Stafar það mest
af því að samtökin hafa ekki bol-
magn til að ganga í berhögg við
þær þjóðir, sem af sér hafa brotið
samkvæmt sáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Er þess skemmst að
minnast þegar samtökin fengu
ekki einu sinni að kynna sér
Ungverjalandsmálið af eigin
raun, hvað þá heldur að for-
dæming þeirra á innrás Rússa í
landið væri að nokkru höfð.
Ómetanlegt starf á sviði
mannúðarmála
EGAR okkur berast fréttir af
störfum Sameinuðu þjóðanna,
eru fregnir af deilum „hinna
stóru“ á þingum langmest áber-
andi og skyggja oft á önnur störf
samtakanna, svo sem tækniaðstoð
við þjóðir, sem eru skammt á
veg komnar, flóttamannafyrir-
greiðslu, barnahjálp, aukningu
matvælaframleiðslunnar, menn-
ingarmiðlun o. m. fl. Á sviði
slíkra mannúðar- og menningar-
mála hafa Sameinuðu þjóðirnar
ekki sízt unnið þjóðum heims ó-
metanlegt gagn, og þó ekkert
annað hefði komið til, réttlætti
það tilveru þeirra.
þágu Siglufjarðar og framtíðar
hans. Baldur Eiríksson.
★
I dag er einn af helztu framá-
mönnum Siglufjarðar, Sigurður
Kristjánsson, sparisjóðsstjóri, sjó
tugur. Segja má að saman fari
saga Siglufjarðar og saga hans,
því að allt frá því að Sigurður
lauk ungur námi í Verzlunar-
skólanum, hefur hann dvalizt og
starfað á Siglufirði. Sigurður
hóf fyrst starf hjá Ásgeir heitn-
um Péturssyni, hinum mikla
sæmdar- og athafnamanni. —
Stjórnaði Sigurður verzlun fyrir
Ásgeir um nokkurt órabil, en hóf
síðan sjálfstæðan atvinnurekst-
ur, fyrst verzlun, sem var um
tíma ein af stærstu verzlunum
bæjarins. Seinna bættist við út-
gerð, síldarsöltun og um árabil
leigði Sigurður síldarverksmiðj-
una Gránu og rak hana. Forstjóri
Sparisjóðs Siglufjarðar varð
hann 1920, sænskur vísikonsúll
hefur hann verið um langt ára-
bil. Þegar Síldarútvegsnefnd
var stofnuð, var hann kosinn í
hana og starfaði hann í nefndinni
alllengi og um tíma sem for-
maður hennar. Þegar Siglufjörð-
ur fékk kaupstaðarréttindi árið
1918 var hann kjörinn í fyrstu
bæjarstjórn kaupstaðarins. Um
árabil var hann umboðsmaður
skattstjóra á Siglufirði og auk
alls þessa var hann í mörg ár
umboðsmaður og fulltrúi fjölda
fyrirtækja og stofnana á Siglu-
firði. Nægir upptalning þessi, þó
engan veginn sé hún tæmandi,
til þess að sýna hvílíkur af-
kastamaður Sigurður er og það
traust sem menn hafa borið til
hans, enda er hann hamhleypa
til allrar vinnu, skjótur til á-
kvarðana og framkvæmda.
Fyrir allmörgum árum lót
Sigurður af stjórn atvinnu-
fyrirtækja sinna að mestu og
tók við þeim sonur hans, Þrá-
inn, hinn frægi skákmaður, sem
er hinn mesti dugnaðar- og at-
hafnamaður.
Síðan hefur aðalstarf Sigurðar
verið stjórn Sparisjóðs Siglu-
fjarðar en eins og að framan
getur tók hann við stjórn sjóðs-
ins árið 1920. Sparisjóðurinn var
þá lítið annað en nafnið eitt, en
eins og annað sem Sigurður tók
að sér, dafnaði Sparisjóðurinn
skjótt í höndum hans og varð
snemma mikil peningastofnun
með ört vaxandi innlögum og
umsetningu. Má með sannindum
segja, að Sparisjóður Sigíufjarð-
ar sé fyrsti vísirinn að eins kon-
ar prívatbanka úti á landsbyggð-
inni, því óvenjusnemma fór
Sparisjóðurinn að reka almenna
bankastarfsemi. Sigurður hafði
sjóðinn opinn til afgreiðslu alla
virka daga, notaði sér ekki upp-
sagnarfrest á innstæðufé, sem
var sjaldgæft á þeim tímum,
enda er Sparisjóðurinn nú eftir
nær fjörutíu ára stjórn Sigurð-
ar, einn stærsti og öflugasti
sparisjóður landsins og sífellt í
vexti.
Sigurður er fjölhæfur gáfu-
maður, árvakur og traustur í
hvívetna. Það sem einkennir
hann, er vingjarnleg framkoma
við alla, lipurð og léttleiki í
starfi.
Fyrir tveimur árum var
Sigurður kjörinn heiðursborgari
Siglufjarðar, og er fyrsti mað-
urinn sem verður þess sóma að-
njótandi. Er það mál manna, að
það hafi verið mjög að verðleik-
um, að Sigurði var veittur þessi
heiður, því hann hefur löngum
reynzt traustur og gegn borgari
Siglufjarðar og unnið giftusam-
lega að vexti og viðgangi kaup-
staðarins.
Um leið og ég þakka þessum
holla og trausta fornvini mín-
um alla hans miklu vinsemd á
liðnum árum, árna ég honum
allra heilla og blessunar í fram-
tíðinni. Jón G. Sólnes.
STOKKHÓLMI, 22. okt. —.
Sænsku blöðin staðhæfa, að
kjarnorkutilraunir Rússa hafi
mikla hættu í för með sér fyrir
íbúa N.-Svíþjóðar. Hefur sænsk-
um vísindamönnum tekizt að
finna það út, að sprengingarnar
hafa verið gerðar við Novaja
Semlja.