Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 1
20 síðuv 45. árgangur. 247. tbl. — Miðvikiidagur 29. október 1958 Frentsmiðja Morgtmblaðsins Bls. 3: ísl. rithöfundar ræða um Past- ernak, sænsku akademíuna og rússneskt vald. — 6: Allir synir mínir (Leikdómur). — $: Frímerkjaþáttur. — 9: Bókaþáttur (Á erlendum bóka- markaði). — 10: Forystugreinin: „Laxness og Pasternak“. „Sonorama" — tímarit á hljóm- plötum (Utan úr heimi). — 11: Skáldskapurinn er eins og grænt eitur í blóðinu (afmælis- viðtal við sr. Sigurð í Holti). — 13: Matvörur og gjaldeyrisspárn- aður. Landhelgismálið. 18: íþróttir. ★---------------------------★ Kairo, 28. okt. — Nasser einræðis herra tilkýnnti í dag, að nú skyldi undirbúningur að bygg- ingu Aswan-stíflumiar hafinn. Sem kunnugt er hafa Egyptar fengið allmikið lán hjá Rússum til stíflubyggingarinnar, en það mun skammt hrökkva. Búizt er við, að nauðsynlegasta undirbún- ingsstarfi verði lokið eftir ár, Dulles sagði í dag, að rússneska lánið væri áróðursbragð, sem ekki hefði komið á óvart. Fjár- hagslegt gildi lánsins væri minna en menn hefðu gert sér grein fyrir. hann mikið fyrir réttindum for- eldra til að senda börn sín í skóla þeirrar trúar, er þau tiiheyrðu. Þess skal einnig getið, að 13. nóv. 1952 talaði hann til fulltrúa frá 40 löndum í París og mælti meðal annars: „Yfir sigurvímu vísindanna gnæfir og skín friðarboðskapur Krists, sem hefir að geyma grund yallaratriði menningarinnar. — Katólskur maður mun stöðugt í starfi sínu hjá UNESCO minnast þessara sanninda og þaðan staf- ar styrkur hans“. Hann hvatti þar til hreinskilni, sanngirni og bróðurkærleika. „Nýjustu uppfinningar og aðlög- unarhæfni þeirra", sagði hann, „eru mikilvægar og vekja aðdá- un. En það eitt nægir ekki mönn unum til farsældar. Ekki til tím- anlegra heilla og því siður til eilífra heilla“. Angelo Giuseppe Roncalli var útnefndur patríarki Feneyja 19. jan. 1953 og gjörður kardínáli 29. okt. sama ár. Nú hefir hann tekið við yfirstjórn katólsku kirkjunnar og tekið sér nafnið Jóhannes XXIII. Vér biðjum fyr- ir honum og óskum honum allr- ar blessunar í þessu göfuga starfi, sem jarl Krists hér á jörð. Samkv. síðustu fregnum hafði fréttamönnum í Moskvu ekki tekizt að ná sambandi við rússn esku vísindamennina — og af opinberri hálfu hafði þar ekki verið minnzt einu orði á úthlut- un verðlaunanna. Nóbelsverðlaun STOKKHÓLMI, 28. okt. — Brezki vísindamaðurinn Friedrik Sanger hlaut Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Jóhannes páfi XXIII. MOSKVU, 28. okt. — Það var upplýst í Moskvu í gær- kvöldi, að Nóbelsverðlauna- skáldið Boris Pasternak hefði verið sviptur nafnbótinni Sovét-höfundur. Jafnframt hefði hann verið rekinn úr rithöfundasambandi Ráð- stjórnarríkjanna, svo og sam- tökum þýðenda, sem nátengd eru rithöfundasambandinu. Tilkynningin um brottvikn- ingu Pasternaks var siðan birt í morgun í bókmenntatímaritinu Gazeta. Ástæðan var sögð sú, að atferli Pasternaks væri ósam- rýmanlegt því að vera Sovét- höfundur. Ákvörðunin hafi ver- ið tekin í ljósi siðferðilegrar og pólitískrar niðurlægingar hans, svika hans við Sovét-þjóðirnar, sósíalismann, friðinn og fram- farirnar, sem greidd hafi verið með Nóbels-verðlaunum — í þeim tilgangi að auka „kalda stríðið“. Vilja réttlæta árásina TOKYO, 28. okt. — Japanskt kvikmyndafélag er *ú að hefja undirbúning að töku kvikmynd- ar, sem á að verja þátttöku Japans í síðustu heimsstyrjöld. Meðal annars verður lögð áherzla á það, að árás Japana á Pearl Harbour hafi ekki verið skyndi- árás af þeirra hálfu. Ástæðan fyrir því að hún kom Bandaríkja- mönnum á óvart segja Japanar seinagang japanska sendiráðsins í Washington við þýðingu úr- slitakosta Japans til Bandaríkj- anna. Skömmu áður en tilkynning þessi var birt höfðu pólsku rit- liöfundasamtökin sent Pasternak heillaóskir vegna verðlaunanna. ★ Ólíklegt er talið, að Paster- nak verði leyft að fara til Stokkhólms til að veita Nóbels-verðlaununum við- töku hinn 10. desember nk. Hann hefur nú verið sviptur öllu vegtyllum, sem hefðu auð- veldað honum að fá fararleyfi rússneskra stjórnarvalda. Enda þótt Pasternak' hafi nýlega lýst því yfir, að hann mundi hvergi geta starfað annars staðar en í heimalandinu, er fullyrt, að Ráðstjórnin muni ekki veita hon- um fararleyfi. ★ Síðari fregnir herma, að Moskvu-fréttaritari norska kommúnistablaðsins í Ósló hafi símað, að kvisazt hafi Frh. á bls. 19. Roncalli kardináli — Jóhannes páfi XXIII. Páfakjör tókst í II. atkvœðagreiðslu RÓMABORG, 28. október — Eftirmaður Píusar XII. á páfa- stóíi hefur verið kjörinn — og hefur hann tekið sér nafnið Jóhannes páfi XXIII. Það var 76 ára kardínáli frá Feneyj- um, Angelo Giuseppe Roncalli, sem kjörinn var páfi, en Jóhannes XXII. sat * páfastóli árin 1316—1334. íu 25. nóv. 1881. Hann verður því 77 ára í næsta mánuði. Hann var prestvígður 10. ágúst 1904 síðan gerður að nafnbótarerkibiskupi Airopolis, 3. marz 1925, og um leið preláti páfastólsins. Vígsla hans fór fram í Róm í Santo- Carlo kirkjunni á Korsó, og vígði Tache kardínáli hann. Roncalli var sendur í postullega vísitasíu til Búlgaríu sama ár, og 16. okt. 1931 var hann gerður postullegur fulltrúi. Síðan var hann sendur til Tyrklands og Grikklands 15. nóv. 1934 og var gerður að að- stoðarmanni latneska patríarkans í Konstantínópel, Miklagarði. 30. nóv. 1934 varð hann nafnbótar- biskup af Mitsemtbría og tók sér bólfestu í Istanbul. Hann var gerður að sendifulltrúa páfa, Nunsíus, í París í igúst 1952 og fulltrúi hans hjá UNE'SCO, það er Menningar- og fræðslustofnun Sameinuðu þjóðanna. Þar barðist Eftir 11. atkvæðagreiðslu kardinálanna 51, sem lokaðir höfðu verið inni í Sixtinsku kapellunni í Páfagarði síðan á ■ laugardag, tókst páfakjör loks- ins. Mikill mannfjöldi hafði safnazt saman framan við kapell- una þegar von var á reykmerk- inu, sem ekki var gleggra í 11. sinn en svo oft áður. Voru menn á báðum áttum hvort reykurinn væri hvítur eða svartur, en sum- ir þóttust þó greina, að hér væri um hvítan reyk að ræða — og meðal þeirra voru fréttamenn út- varpsstöðvar Páfagarðs. ★ Tilkynnti útvarpsstöðin, að páfakjör hefði tekizt og var það orð að sönnu. Hátt á þriðja hundrað manns hafði safnazt saman á Péturstorginu, er einn af kardínálunum gekk fram á svalir Péturskirkjunnar og lýsti páfakjöri. HABEMUS PAPA hrópaði hann og mannfjöldinn hrópaði lengi og ákaft í fögn- uði. Síðan kallaði kardínálinn nafn þess starfsbróður síns, sem kjörinn hafði verið og laust mannfjöldinn upp löngu fagnað- arópi. Stundu síðar gekk hinn ný- kjörni páfi fram í fullum skrúða og blessaði mannfjöldann, sem meðtók blessunina með miklum fagnaðarlátum. ★ Páfi verður vígður sunnudag- inn 19. nóvember, en fyrir þann tíma mun hann skipa utanríkis- ráðherra Páfagarðs. Roncalli, hinn nýkjörni páfi, á að baki sér mjög merkt starf í þágu kirkju sinnar og rakti Jóhannes Gunn- arsson Hólabiskup embættisferil hans í fréttaauka útvarpsins í gærkvöldi. Ummœli Hólabiskups Habemus Papa — Nýr páfi hef- ir verið kosinn. Um allan hinn katólska heim hljóma þessi orð, sem tilkynna að vér höfum eign- azt nýjan andlegan föður, er IstQórnar kirkjunní, sem eftijr- maður Péturs postula. Hinn nýi páfi er Angelo Giuseppe Roncalli, fæddur í Sottoil Monte í Berg- amó-biskupsdæmi á Norður-ítal- JHorcjtmliIfiíiiþ Miðvikudagur 29. október. Efni blaðsins er m.a.: Verðo jbe/r úrskurðaðir svikarar STOKKHÓLMI, 28. okt. — Þrír rússneskir vísindamenn hlutu í ár Nobelsverðlaunin fyrir eðlis- fræðistörf. Þeir eru P. A. Tsjer- enkov, Igor Tamm og I. M. Frank. Hafa þeir að nokkru leyti unnið saman, en þó mikið hver í sínu lagi — og er verðlauna- veitingin aðallega byggð á upp- götvun Tsjerenkov-fyrirbrigðis- ins svonefnda. (Samkv. upplýs- ingum, er Þorbjörn Sigurgeirs- son lét blaðinu í té er hér um að ræða fyrirbrigði, ljósgeisl- un, er kemur fram þegar agnir fara í gegn um eitthvert gegn- sætt efni með meiri hraða en ljósið hefur í sama efni. Er með sérstakri aðferð hægt að mæla agnirnar og er þessi aðferð eink- um notuð við mælingu geim- geisla). Mjög er nú hugleitt hvort Ráð stjórnin muni leyfa Rússunum þrem að fara til Stokkhólms til þess að veita Nobelsverðlaunun- um viðtöku eða hvort vísinda- mennirnir verða sekir fundnir um landráð. Þykir mönnum Ráð- stjórnin hafa komizt í slæma klípu. Aswan £M;j Í Mj'ndin var tekin á heimili Pasternaks í Moskvu kvöldið sem honum barst fregnin um að Nóbels- verðlaunin hefðu verið veitt honum. Við borðið situr Chuvoskij, barnabókahöfundur, og skálar við Pasternak og óskar honum til hamingju, en frú Pasternak horfir á þá frá borðsendanum. Pasternak útskúfaður Fær sennilega ekki að fara til Stokk- hólms til að veita Nóbelsverð- /aununum viðtöku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.