Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 2
MORCVNBL4Ð1Ð Miðvik'udagur 29. okt. 1958 Bœjarfélög megi leggja veltuútsvar á gjaldendur er selja vörur eða þjónustu Útsvarið megi hœst vera 3 prósent af veltu t GÆR var útbýtt á Alþingi frumvarpi til laga um veltuút- svör. Flm.: Björn Ólafsson. Segir í frumvarpinu m. a., að bæjar- og sveitarfélög hafi rétt til að leggja veltuútsvör á þá gjald- endur, sem selja vörur eða þjón- ustu, þó misjöfn eftir tegund vinnu og ekki nema einu sinni á sömu veltu. Hámark útsvars skal vera 3% af veltu. Gjaldendur veltuútsvara skulu senda skýrslu um veltu sína mánaðarlega til viðkomandi bæjar- eða sveitar- félags, og greiðist útsvarið mán- aðarlega til bæjar- eða sveitar- sjóðs. 1 greipargerð fyrir frumvarp- inu segir m. a. á þessa leið: Tvo síðustu áratugi hefur lög- gjafinn stöðugt bætt á bæjar- og sveitarfélögin nýjum gjöldum í félagslegum efnum án þess að sjá þeim fyrir nýjum tekjustofn- um. Verða þau enn að mestu að sjá sér farborða með hinum gamla og einhæfa tekjustofni sín- um, útsvörunum, sem enn eru lögð á „eftir efnum og ástæðum“. En þessi tekjustofn hefur sín tak mörk, og fyrir fáum árum var svo komið, að hann var orðinn gersamlega ófullnægjandi, ef mæta átti þeim kröfum, sem nú eru gerðar um þjónustu bæjar- og sveitarfélaganna. Til þess að geta haldið rekstri sínum gangandi og staðið undir hinni öru þróun í félagslegum efnum urðu bæjarfélögin að afla sér tekna umfram það, sem hægt ,var að ná með hinu venjulega sveitarútsvari. Var þá af bæjar- félögunum gripið til þess örþrifa ráðs að leggja á nokkurn hluta gjaldendanna sérstakt útsvar á veltu og þjónustu án nokkurs til lits til tekna þeirra eða efnahags, í viðbót við venjulegt sveitarút- svar og lögboðna skatta til ríkis ins. Á þennan hátt er á nokkurn hluta skattgreiðenda lagður þung ur og ósanngjarn aukaskattur til sveitarsjóðs, sem nú tekur að mestu það, sem sveitar- útsvar og ríkisskattar skilja eftir af nettóárstekjum gjaldend- anna, en margir verða að greiða miklu meira en tekjunum nem- ur, og verður þá veltuútsvarið beinn skattur á eignir þeirra. Eru dæmi um, að á þennan hátt hafi verið lagt á gjaldendur svo að hundruðum þúsunda króna skipti umfram tekjur þeirra. Er nauðsynlegt að breyta nú þegar þessari tekjuöflun bæjar- félaganna í það horf, að þau geti til frambúðar haft veltuútsvar sem tekjustofn, án þess að gengið sé í berhögg við gjaldþol skatt- greiðendanna og allar viðteknar reglur um opinbera skattheimtu. Alþingi getur ekki lengur daufheyrzt við kröfum bæjar- og sveitarfélaga um nýjan, heil- brigðan tekjustofn til viðbótar sveitarútsvarinu. Með frumvarpi þessu er bent á leið fyrir bæjar- og sveitarfélögin til eðlilegrar tekjuöflunar, sem staðið getur til frambúðar. Hins vegar er atvinnurekstrin- um í landinu lífsnauðsyn, að hætt verði að innheimta veltuút- svör með þeim hætti, sem nú er, því að með sama áframhaldi má búast við, að fjöldi atvinnufyrir- tækja verði gerður gjaldþrota á skömmum tíma. Atvinna og góð tíð á Siglufirði SIGLUFIRÐI, 28. okt. — Bæjar- togararnir Elliði og Hafliði los- uðu hér rúm 300 tonn af karfa hvor um og fyrir siðustu helgi. Allur þessi karfi er unninn hér í frystihúsunum og gefur þetta mikla vinnu. Tunnuefni í 40 þús. síldartunnur var losað hér í síð- ustu viku til tunnuverksmiðju ríkisins og verður smiðað úr því í vetur. Hvassafell Iosar hér i dag 2S þús. sildartunnur og Detti- foss lestar hér frosinn fisk. Ein- muna tíð hefur verið hér undan- farið og er öllum bílum fært yfir Skarðið eins og er. Fékk 500 kcý. afla á handfæri AKRANESI, 28. okt. — Fjór- ir reknetjabátar voru á sjó héðan í nótt og lögðu netin í Miðnessjó. Afli var frá 30 til 57 tunnur á bát. Aflahæst var Sigurvon. Ekki hefur lengi sézt eins falleg síld hér og virðist ný síldarganga vera á ferðinni. Síldín var fryst. Sex trillubátar reru héðan í gær í sæmilegu veðri. Trillurnar, sem voru með línu, fiskuðu upp í 800 kg. Ein trillan fékk 500 kg á handfæri og var þar einn á. Ekki var sjóveður fyrir trillurnar í dag, enda vestankylja. Hér var Goðafoss í gær og tók Kínverskir kommúnistar reyna að ,,bjarga and- litinu" — sagði Dulles WASHINGTON, 28. október — Dulles sagði á blaðamannafundi í dag, að Bandaríkjastjórn mundi hugleiða það gaumgæfilega hvort ekki væri rétt að halda áfram kjarnorkutilraunum eftir 31. okt., ef Rússar létw verða af hót- unum sínum um að halda áfram tilraunum þrátt fyrir yfirlýsingu Breta og Bandaríkjamanna um að þeir ætli að hætta tilraunum frá og með mánaðamótunum. Þá mun hefjast í Genf ráð- stefna um stöðvun tilrauna með kjarnorkuvopn og sagði Dulles, að af hálfu Vesturveldanna mundj einskis látið ófreisíað til þess að ná samkomulagi við Rússa um stöðvun tilrauna og eft- irlitskerfi með því að bannið verði ekki brotið. Sagði Dulles, að Rússar væru nú að reyna að færast undan því að efna heit sitt um að gera sitt til þess að samkomulag næðist um bann við tilraunum með kjam orkuvopn. Viðvíkjandi Formósudeilunni sagði DulJes, að kommúnistar vildu bersýnilega ekki hætta á meiri háttar átök. Þeir hefðu nú hætt skothríðinni á smáeyjarnar að nokkru leyti með ákveðnum skilyrðum. Þetta hefðu þeir ber- sýnilega gert til þess að „bjarga andlitinu“, því að það væri ó- mótmælanieg staðreynd, að eftir sjö vikna látlausa skothríð á 300 lestir af hvalkjöti og eitthvað smáeyjarnar hefði hvergi verið af freðfiski á Ameríkumarkað. j bilbug að finna á þjóðernissinn- Hingað komu tvö skip í dag, j um — og kommúnistar hefðu séð Fjallfoss, sem lestar karfamjöl t fram á að tilgangslaust var að og Edda er tekur saltfisk. — O. halda sig við þessa aðferð. Að síðustu minntist hann á Kóreu og tilkynningu Kínverja um að hersveitir þeirra væru farnar úr landinu. Sagði Dulles, að hersveitir S. Þ. væru í Suður- Kóreu til þess að reyna að ryðja veginn til sameiningar N- og S- Kóreu með frjálsum kosningum. Athugasemd frá utanrikisráðu- neytinu í TILEFNI af fregn í einu af dag- blöðum Reykjavíkur um að danska ríkisstjórnin hafi fengið tilboð frá ríkisstjórn íslands varð andi fiskveiðiréttindi Færeyinga við ísland og gagnkvæm rétt- indi íslendinga við Grænland, óskar utanríkisráðuneytið að taka fram, að fregn þessi er með öllu tilhæfulaus; engar slíkar við- ræður hafa farið fram og ekkert slíkt komið til tals innan ríkis- stjórnarinnar. Utanríkisráðuneytið, Árni G. Finnsson Árni G. Finnsson iorm. Stefnis HAFNARFIRÐI. Á sunnudaginn* var haldinn aðalfundur Stefnis, fél. ungra Sjálfstæðismanna, og var hann settur af Birgi Björns- syni fráfarandi formanni. Síðan fór fram stjórnarkjör og var Árni Grétar Finnsson stud. jur. kosinn formaður til næsta árs, og til vara Ragnar Jónsson iðnnemi. Meðstjórnendur eru þau Jó- hanna Helgadóttir skrifstofust., Einar Sigurðsson stud. oecon., Magnús Þórðarson verkstjóri og Ragnar Magnússon iðnnemi. 1 varastjórn eru Guðlaug Kristins dóttir nemandi og Sigurður Þórð arson nemandi. Einnig var kosið í fulltrúaráð. Fundarstjóri var Guðlaugur B. Þórðarson, kaup- maður. Nokkrar umræður urðu eftir að stjórnin hafði verið kosin og tóku margir til máls. Var einkum rætt um félagsstarf Stefnis, svo og ýmislegt varðandi stjórnmála- viðhorfið hér í bænum. Voru um Ástandið væri hins vegar slíkt, að ekki þætti vænlegt að flytjalræður fjörugar og ræðumönnum herinn brott. vel fagnað. — G. E. Framlag til prestseturs- húsa er alltof lágt Frá umrœðum á kirkjuþingi I GÆR var til umræðu á kirkjuþingi áskorun til Alþingis um hækkun styrks til kirkju- verk sjóðsins skal vera það, að styðja sérhvað það, sem verða má til uppörvunar, fræðslu og byggingasjóðs. Var það síðari' uppbyggingar í kristilegu starfi. umræða og hafði séra Jón Ólafs- Flutnirgsmenn þessarar tillögu De Caulle minntist ekki á bandalagið í bréfinu PARIS, 28. okt. — Talsmaður | franska utanrikisráðuneytisins skýrði svo frá í dag, að de Gaulle hefði í bréfi til Eisenhowers og Macmillans lagt til, að lögð verði aukin áherzla á samvinrru og samræmingu stefnu þríveldanna á alþjóðavettvangi. Sagði tals- maðurinn að þetta jafngilti ekki því, að de Gaulle viidi gera ein- hverjar meirj háttar breytingar á skipuiagi Atlantshalsbandalags ins. Talsmaðurinn sagði ennfvemur, að Atlantshafsbandalagið hafi ekki verið nefnt í bréfinu. Hins vegar miði tiíiögurnar að því að efla og styrkja bandalagið — og verði þær bornar undir ful’trúa fleiri þjóða, þegar ráðhevrafund- ur bandalagsins kemur saman í París í desember. Hins vegar hafi ítölsku stjórninni og Spaak, fram- kvstj. bandalagsins, verið kunn- gerðar tillögurnar. son í Holti framsögu fyrir nefnd- inni. Efni áskorunarinnar er það að hækkað skuli framlag til sjóðs ins úr hálfri milljón kr. á ári í eina milljón króna. Var áskorun- in samþykkt sámhljóða. Einnig kom frá nefnd álit um verðlaunasamkeppni um upp- drætti af sveitakirkjum. Séra Þorgeir Jónsson á Eskifirði reif- aði málið fyrir hönd allsherjar- nefndar. Var þetta mál afgreitt með rökstuddri dagskrá og vísað til biskups úl frekari undirbun- ings. I þriðja lagi var til umræðu tillaga til þingsályktunar um starfssjóð hinnar evangelisk- lút- hersku kirkju á íslandi. Hlut- Kvöldvaka Bræðra félagsins í Kjós VALDASTÖÐUM, 26. okt. — Fyrsta Vetrardag efndi stjórn Bræðrafélags Kjósarhrepps til kvöldvöku í samkomuhúsinu að Félagsgarði. Formaður félagsins, Oddur Andrésson á Neðra-Hálsi, setti samkomuna, bauð gesti vel- komna og kynnti dagskráratriði. Þar næst flutti Guðmundur G. Hagalín rithöfundur snjallt er- indi um rithöfundinn Loft Guð- mundssonar. Síðan las Helgi Skúlason leikari upp úr síðustu bók Lofts, Jónsmessudraumnum. Þá tajaði Loftur og las upp kvæði. Var hann að lokum hyllt- ur með ferföldu húrrahrópi. — Voru öll þessi atriði þökkuð með dynjandi lófataki. Að síðustu var stiginn dans. — St.G. sem vísað var til kirkjuráðs, eru þeir Steingrímur Benediktsson, Vestmannaeyjum og Sigurður Gunnarsson Húsavík. Rætt var um rafhitun kirkna í sveitum landsins, en reynslan af rafhitun hefur leitt í ljós að kostnaður er óeðlilega hár mið- að við aðra upphitun. Var 3 manna nefnd falið að ganga á fund raforkumálaráðh. (Herm. Jónassonar) og eru í nefndinni þeir Friðrik A. Friðriksson pró- fastur, Jón Jónsson bóndi á Hofi og Steingrímur Benediktsson, V estmannaeyjum. Þá var samþykkt á kirkjuþingi í gær að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnar og Alþingis að fjár- veiting til byggingar prestseturs- húsa hækki a.m.k. upp í 2 millj. kr. á ári. Það er reynsla síðustu ára, að framlag til prestseturs- húsa sé alltof lágt. Tíunda skólaárið að hef jast í Skóga- skóla SKÓGASKÓLI var settur 1. okt. sl. og kom þá 3. bekkur í skólann, en 1. og 2. bekkur komu 15. okt. Nemendur eru alls 100, 48 piltar og 52 stúlkur, víðs veg- ar að af landinu. Yfir 60 eru þó úr skólahéraðinu, en það er Rang árvallasýslu og Vestur-Skafta- fellssýsla. Athöfnin hófst með því að Sr. Sigurður Einarsson í Holti pred- ikaði. Síðan flutti skólastjóri Jón E. Hjálmarsson, setningar- ræðu og rakti ýmsa þætti í starfi skólans. Kennarar verða í vetur þeir sömu og sl. vetur, nema að Hjördís Þorleifsdóttir lét af störf um og við kennslu hennar tek- ur frú Guðrún Hjörleifsdóttir. Ráðskona mötuneytisins, frú Sig urbjörg Pétursdóttir, hefur lát- ið af störfum, en við taka Auður Guðmundsdóttir og Steinunn Guðmundsdóttir. Skólastjóri gat nokkurra verk legra framkvæmda við skólann, nemendaherbergi höfðu verið máluð, frystigeymsiur mötuneyt is auknar og múrhúðað hafði ver ið viðbótarhúsnæði, sem nýlega var tekið í notkun við skólann. Þá gat hann þess, að þessi skóla- setning væri hin 10. í sögu skól- ans og nauðsynlegt væri að hefja undirbúning að því að minnast 10 ára afmælis skólans, t.d. með því að taka saman af- mælisrit yfir starf hans þessi 10 ár. Að lokum beindi skóla- stjóri orðum sínum til nemenda og hvatti þá til ástundunar í námi og drengilegrar framkomu í hvívetna. Að lokum tók formaður skóla- nefndar, Björn Björnsson, sýslu- maður til máls og árnaði skólan- um heilla. Eisenhower WASHINGTON, 28. okt. — Eis- enhower sagði í ræðu í dag, að Bandaríkjamenn mundu aldrei beita valdi stefnu sinni til fram- dráttar, en þeir muirdu halda her til þess að koma í veg fyrir að önnur ríki skertu hagsmuni Bandaríkjanna með hervaldi. Frakkar vilja ekki fríverzl unarsvæöi PARÍS, 28. okt. — Þegar fund- inum um fríverzlunarsvæðið lauk í dag hafði enn ekki tekizf samkomulag með fulltrúum OEEC-landanna 17 í Maulding- nefndinni hvaða fyrirkomulag yrði á framtíðarviðræðum um fyrirhugað fríverzlunarsvæði. — Hins vegar kom það upp úr dúm um á síðustu stundu, að Frakkar vilja alls ekkert fríverzlunar- svæði, í mesta lagi tollabandalag OEEC-landanna — á víðara sviði en ráðgert hefur verið. Fulltrúar Bretlands og Norð- urlandanna lögðu áherzlu á það, að aðilum fríverzlunarsvæðisins væri mikilvægast að mega ákveða sjálfir tolla sína í við- skiptum við þjóðir utan frí- verzlunarsvæðisins. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.