Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 20
íþróttir
Sjá bls. 18.
Sex ára gamall drengur
varð undir strœtisvagni
í gœr og
UM hádegisbilið í gser varð bar.a-
slys á Laugarnesveginum. Dreng-
ur á sjöunda ári varð undir stræt-
isvagni og beið bana. Hann hét
Einar Sverrisson, Laugarnesvegi
82.
Slysið varð um klukkan 11.45
fyrir hádegi i gærdag við frysti-
hús S. í. S. á Kirkjusandi. Strætis
vagninn sem var á leið inn að
Kleppi, ók ekki hratt er hann
kom að frystibúsinu Vagnsíjór-
inn hafðj sveigt frá vörubílum
sem stóðu litils háttar út í götuna
og verið var að setja á farþegahús
til flutnings á starfsfólki frysti-
hússins þá er gert yrði matarhlé.
Vagninn var kominn rétt framhjá
þessum bílum og var að mæta
vörubíl er .var á leið til bæjarins,-
er slysið varð.
Vagnstjórinn á strætisvagnin-
um hefur skýrt svo frá við rann-
sókn á aðdraganda slyssins, að
hann hafi heyrt skell, orðið þess
var að eitthvað snerti vinstra
framhjólið og siðan vinstra aftur-
hjólið. Um leið og skellurinn
heyrðist hélt vagnstjórinn að
vagninn hefði farið yfir eitthvað
sem legið hafði á götunni, og
kastazt upp i vagninn, en er
hann varð var við að eitt-
hvað snerti bæði vinstri hjól
vagnsins, nam hann samstundis
staðar.
Þegar vagnstjórinn kom út til
þess að athuga þetta nánar, sá
hann hvar barn lá aftan við vagn-
inn. Hafði það orðið undir bíln-
beið bana
um. Var ekkert lífsmark með því
þar sem það lá á götunni.
Svo virðist sem farpegarnir í
strætisvagninum hafi ekki heldur
séð neitt til ferða barnsins. Og
þeir munu hafa sotið í sætum
sínum, kyrrir í rúma mínútu, áð-
ur en þeir stóðu upp og stigu út
úr vagninum, því þeir munu yfir-
leitt hafa talið að skellurinn hafi
stafað af því að vagninn hafi
snert vörubílinn sem farið var
framhjá um leið og slysið varð.
Þetta hefur a. m. k. komið fram
við vitnaleiðslur í sambandi við
rannsókn þessa hörmulega atburð
ar.
Þannig stóð rannsóknin á slys-
inu í gærkvöldi, að ekki var vitað
hvaðan drengurinn kom, er hann
varð undir bílnum, þó flest bendi
til að hann hafi komið frá frysti-
húsinu. En vera má að einhver
geti upplýst þetta atriði. Vera
má að foreldrar barna þarna í
grenndinni, heyri þau segja frá
því, hvar þau hafi séð Einar ’itla
síðast. Slíkar uppl. eru rannsókn-
arlögreglunni mjög nauðsyniegar,
vegna rannsóknar siyssins. Biður
hún alla þá er hér gætu eitthvað
lagt til málanna, að gera sér við-
vart.
★
Einar litli Sverrisson var
einkasonur Sverris Ágústssonar
flugumferðarstjói'a og konu hans,
og er mikill harmur að þeim hjón
um kveðinn við þennan hörmu-
lega atburð.
Vél, sem
500 kg.
f GÆR sýndi Bergsteinn Berg-
steinsson, fiskmatsstjóri, frétta-
mönnum og fleiri gestum kvik-
mynd um bandaríska vél, sem
skelflettir rækjúr. Kynnti hann
sér þessa vél í sumar, fyrir
beiðni Jóhanns Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra á ísafirði, en
hún var til sýnis í Stavanger í
Noregi. Leizt Bergsteini vel á
vél þersa og ^_í fréttamönnum
eftirfaradi upplýsingar um hana
og notagildi hennar:
Afköst einnar vélasamstæðu
eru 500 kg. af rækju upp úr sjó
á eínni klukkustund. Og er þá
átt við hráa rækju, en ekki
soðna að einhverju leyti eins og
nauðsynlegt er þegar skelflett er
í höndunum. Skv. upplýsingum
um afköst, mun láta nærri að
vélin vinni á við 160—200 manns,
sem handfletta rækjuna, en mun-
urinn er í rauninni meiri, þar
sem 40% af aflanum nýtist, ef
skelflett er í vélinni, en aðeins
23%, þegar rækjan er soðin og
skelflett í höndunum.
Nota þarf mikið vatn, eða ailt að
300 lítra á mínútu, þegar unnið er
með vélinni, og talið er að eins
vel megi nota vel hreinan sjó.
Vélasamstæðunni fylgir sérstök
vél, sem flokkar rækjuna eftir
stærð. Er smæsta rækjan þá
venjulega fryst, en -sú stærri
ýmist fryst eða fullframleidd með
öðrum verkunaraðferðum.
Um möguleikana til rækju-
vinnslu hér á landi, sagði fisk-
matsstjóri, að áreiðanlega væri
hægt að margfalda framleiðsluna
á einu ári, miðað við það að
vélar séu notaðar til að skel-
fletta. Hefðu árið 1957 verið
fluttar út rúmlega 100 smálestir
af rækju frá íslandi og fyrir það
magn fengizt um 4 milljónir
króna í gjaldeyri.
skelflettir
af rækju
Samkvæmt áliti fróðra manna,
mun vera talið að mjög mikið
sé af 'rækju víða hér við land.
Vitnaði Bergsteinn í því sam-
bandi í Jóhann Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóra á ísafirði, sem í
sumar hefur haft samning við
þrjá báta um að veiða rækju.
Vegna lítilla afkastamöguleika i
landi, þar sem skelflett var með
handafli, varð að takmarka veið-
ina þannig, að einn bátur mátti
ekki leggja meira en 800 kg á
land daglega. Voru dæmi til þess
að bátarnir veiddu þessi 800 kg
á tveimur klukkustundum.
Varðandi sölumöguleika á
rækju, sagði fiskmatsstjóri, að
talið væri að mjög vaxandi eftir-
spurn sé eftir skelflettri og fros-
inni rækju á Bandaríkjamarkaði,
bæði í frystum „blokkum" og
plastpokum. Pokarnir eru þannig
útbúnir, að sjóða má rækjuna
hæfilega í þeim.
Rækjuvél sú sem hér um ræðir
er framleidd af The Peelers Co.
í New Orleans, og munu vera í
gangi í Bandaríkjunum um 120
vélar af þessari tegund, sem fyr-
irtækið leigir framleiðendum
fyrir ákveðið gjald á klukku-
stund. Fyrir útlendan markað er
vélin til sölu fyrir um 38 þús.
dali. Höfðu menn frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Englandi og
Hollandi skoðað hana i Stavangri
þegar Bergsteinn var þar á ferð.
En Jóhann Jóhannsson á ísafirði
mun hafa staðið í sambandi við
fyrirtækið í um tvö ár og fylgzt
með þróun þeirri er hefur
átt sér stað á þessum vettvangi.
— Ég held að ekki sé vafi á
því að Islendingar eigi . ..ðæfi
þar sem rækjan er, verði allir
möguleikar nýttir, sagði Berg-
steinn Bergsteinsson að lokum.
Tveir verðir í páfagarði, þar sem atkvæðaseðlar kardinálanna
voru brenrrdir
Gjaldeyrisstaðan í ágúst
óhagstœð um 265 millj. kr
Vaxandi tekjur af varnarliðinu
f SÍÐUSTU Fjármálatíðindum,
er m. a. greint frá því í frétta-
þáttum, að í ágústlok hafi gjald-
eyrisstaðan verið óhagstæð um
265 milljónir króna.
Um þetta er sagt í fréttagrein
um utanríkisviðskipti og gjald-
eyrisstöðu, og segir þar m. a. á
þessa leið:
Duldar tekjur urðu á árs-
fjórðungnum (það er 2. ársfjórð-
ungi) 17 millj. kr. hærri en á
sama tíma 1957, en hækkunin á
rót sína að rekja til aukinna
tekna af varnarliðinu. Á fyrra
hluta þessa árs hefur greiðslu-
jöfnuðurinn orðið óhagstæður um
40,6 millj. kr., en á sama tíma
Firndur í Firðinum
um stjórnmála-
viðlioríið
HAFNARFIRÐI — Landsmála-
félagið Fram heldur fund í Sjálf-
stæðishúsinu n. k. föstudag kl.
8,30. Frummælandi verður Jó-
hann Hafstein alþm., og ræðir
hann um stjórnmálaviðhorfið.
Er Sjálfstæðisfólk hvatt til að
fjölmenna á fundinn og mæta
réttstundis. —G. F
1957 varð hann hins vegar hag-
stæður um 0,6 millj. kr. Mest
hefur gjaldeyrisstaða bankanna
versnað í vöruskiptagjaldeyri eða
um 62 millj. kr.
í lok ágústmánaðar var nettó-
skuld bankanna í erlendum gjald
eyri 147 millj. kr. eða 94 millj.
kr. hærri en í lok sama mánaðar
1957. Að viðbættum kröfum á út-
lönd, en að frádregnum ábyrgð-
um og greiðsluskuldbindingum,
var gjaldeyrisstaðan óhagstæð
um 265 millj. kr.
HAFNARFIRÐI —- Núna í vik-
unni verða reynd hér ný tæki
við uppskipun úr togara, en það
eru færibönd, sem vélsmiðjan
Klettur hefur smíðað fyrir út-
gerðarfyrirtækið ísfirðing hf. Er
hér um algera nýjung að ræða,
sem mikils má af vænta, og mun
einkum spara mikið vinnuafl, en
einnig má búast við að afferm-
ing taki skemmri tíma en verið
hefur. Hingað til hefur, eins og
kunnugt er, verið notuð fiskitrog
til þeirra hluta.
Hin nýju færibönd, sem mein-
Enginn veiði-
þjóínr í landhelgi
SÍÐDEGIS í gær var enginn er-
lendur togari að veiðum innan
fiskveiðitakmarkanna hér við
land.
Frá Landhelgisgæzlunni.
Smjörliki fæst ekki
en kemur væntan-
lega á marðaðinn
— og hækkar
REYKVÍSKAR húsmæður hafa
nú enn orðið þess varar að bær-
inn er smjörlíkislaus orðinn og
hefur verið svo nokkra undan-
farna daga. Ekki var í gærkvöldi
vitað hvenær smjörlíkið kemur
aftur á markaðinn, en talið er að
þegar það verður, muni smjör-
líkið eitthvað hækka í verði, en
það mun vera verðlagningin, sem
vefst fyrir verðlagseftirlitinu, og
af þeim sökum er nú smjörlíkis-
laust í bænum.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðað til fundar í sam
einuðu Alþingi og eru átta mál
á dagskrá. — 1. Fyrirspurn frá
Magnúsi Jónssyni til ríkisstjórn-
arinnar um togarakaup. 2. Þings-
ályktunartillaga um ríkisábyrgð-
ir. Hvernig ræða skuli. 3. Þings-
ályktunartillaga um innflutning
varahluta í vélar til landbúnaðar
og sjávarútvegs. 4. Þingályktun-
artillaga um votheysverkun. 5.
Þáltill. um íslenzka útgáfu
skýrslu um Ungverjalandsmálið.
6. Þáltill. um námskeið í með-
ferð fiskileitartækja. 7. Þáltill.
um aðbúnað fanga. 8. Þáltill. um
hagrannsóknir.
Spilakvöld
á Akureyri
AKUREYRINGAR eriu minntir á
spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna
að Hótel KEA klukkan 9 í kvöld.
ingin er að reynd verði í fyrsta
skipti við uppskipun úr togaran-
um Surprise nk. föstudag, voru
smíðuð eftir tilsögn verkstjórans
í Kletti, Jóns Guðmundssonar,
og voru gerð þar að öðru leyti
en því, að beltin, sem drífa skúff-
urnar, voru fengin erlendis frá.
Þessi tæki, er svipar nokkuð til
síldarfæribanda, eru í þrennu
lagi. Fyrsti áfanginn er ofan af
bryggju og niður á dekk, síðan
er annað band niður i lestina, og
svo hið þriðja eftir henni endi-
langri. Er það nokkru mjórra en
hin tvö, sem eru um 70 sm á
breidd, en öll færiböndin eru
um 30 metrar á lengd. Á hverju
þeirra er mótor, sem drífur belt-
in, og ganga fyrir rafmagni.
Vélsmiðjan Klettur hefur á
seinni árum smíðað mikið af alls
kyns færiböndum og frystitækj-
um, svo sem í hið nýja fiskiðju-
ver hér, á Akureyri og víðar.
Hafa starfsmenn smiðjunnar
hlotið mikla reynslu í þessum
efnum, og má því fastlega vænta
þess að hin nýju tæki reynist
vel og eigi eftir að gerbreyta
löndun úr fiskiskipum hérlendis.
— G. E.
Haustmót í Stykkishólmi
SUS og héraðssamband ungra Sjálfstæðismanna í Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu efna til haustmóts í Stykkis-
hólmi uk. laugardag. Hefst mótið kl. 9 síðdegis.
Á mótii.u munu þeir Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri,
og Geir Hallgnmsson, formaður SUS, flytja ræðu og ávarp.
Ævar R. Kvaran, leikari, les upp og syngur einsöng,
og Hjálmar Grslason, leikari, syngur gamanvísur. Undir-
leik annast Sigiús Halldórsson, tónskáld. Að lokum verður
stiginn dans.
Ný löndunartceki reynd
við uppskipun úr togara