Morgunblaðið - 31.10.1958, Síða 9
Föstudagur 31. okt. 1958
M O R Cl ' V TtL 4Ð I Ð
9
Vitsmunir og tilfinningar
Hólar — Skálholt — Þingvellir — Reykjavík
ÁGÆTAR umræður fara nú fram
í landi um málefni, sem þjóðinni
er annt um, og hún ræðir af góð-
um og þjóðlegum hita. Er það um
biskupsstóla og kirkjuskipan.
t>ótt blær umræðnanna sé nokk-
uð veraldlegur, skiptir það ekki
mestu, heldur hitt, að það hef-
ur sýnt sig, að okkur lítiitrú-
uðum íslendingum stendur ekki á
sama um andlega og trúariega for
ystu og kirkjuleg málefrii Svo
efast ég emnig um, að leikir ræði
þessi málefni af meiri veraldar-
hyggju en hinir lærðu.
Eins og ég hef áður sagt í blaða
grein, er ég eindreginn stuðn-
ingsmaður þess, að biskupsstólar
verði endurreistir á Hólum og í
Skálholti. Önnur tilhögun er mér
óhugsanleg og raunar óbærileg.
Þessi tilfinning fyrir erfðum og
sögu þjóðarinnar er mótuð í
barnssál af þeirri kynslóð, sem
nú er að byrja að finna fyrir
landsstjornarlúa. Svo mun farið
mörgum af jafnöldrum inínum.
Hitt er mér svo ljóst, að málefnið
á heima í tilfinningalííi mínu en
ekki „vitsmunum“. í Morgbl,-
frásögn af kirkjuþingi 22. okt.,
er það haft eftir ágætum biskupi
okkar, að staðsetning biskups-
setra skuli rædd frem.ur af vits-
munum en af tiiíinnmgu. Er ég
las þetta, minntist ég atviks fyrir
einum 7—8 árum. Ég liafði ritað
í Mbl. grein, sem m. a. fjaiiaði
um endurreisn biskupsstólanna
fornu og endurreisn Aiþingis á
Þi-ngvöllum. Fáum dögum seinna
hitti ég á götu í Reykjavík vin
minn og gamlan kennara, Bryn-
leif heitinn Tobíasson, sem var í
mesta máta þjóðlegur og vitur
maður. Hann ávítaði mig nokk-
uð fyrir skrifin, og við ræddum
máiefnið af dálitium hita. Er ég
hafði sagt rök mín og sjónarmið
og vitnaði tii skoðanakönnunar,
sem ég hafði gert um þessi mál
í bændaskólanum um nokkur ár,
sagði Brynleifur eitthvað á þessa
leið: Ég viðurkenni að tilfinn-
ingar mínar eru þér sammála,
en vitsmunirnir eru öndverðir og
þeim verður að hlyða.
Eftir því, sem þessi mál hafa
þróazt síðan, þá er ljóst, að tii-
finningar ráða meiru um málefna
þróun en „vitsmumr', enda mun
það vera hin algiida staðreynd í
sögu mannsins. ekki sízt á sviði
trúmála og siðgæðis. Og einmitt
þessvegna verður hlutverk and-
legrar kirkju svo veigamikið. Bak
við tilfinningahita dugmikillar
þjóðar verður að standa heilbrigt
og kristilegt siðgæði. „Vitsmuni"
kirkju og kristindóms gef ég hins
vegar fremur lítið fyrir. Ég trúi
ekki af vitsmunum, ég trúi vegna
hljóms, sem ómar inni í sál minni.
Sá er ómælanlegur og lýtur ekki
lögmálum rökræðna.
Það er vafalaust rétt hjá herra
biskupnum og fylgjendum hans
í þessu máli að kirkjan þarfnast
starfsmanns við hlið stjórnar-
valda og þar sem „slagæð þjóð-
arinnar slær örast“, en ég er
þeirrar skoðunar, að sá erils-
þjónn presta og kirkjumála eigi
ekki að vera biskup, heldur dug-
mikill og prestlærður ráðuneyt-
isstjóri í kirkjumálaráðuneytinu.
Biskuparnir á Hólum og í Skái-
holti þurfa að lifa og starfa í and-
anum, í svipuðu umhverfi og í
svipuðu andlegu loftslagi og
menn kynnast og skynja t. d. í
hinum beztu Benedikt-klaustrum
kaþólskum, þó með frjáislegu
formi þjóðkirkjunnar.
Ég er helzt þeirrar skoðuna;
nú, að öll kirkjuskipan purfi að
endurskoðast. Vegna breyttra
pjóðhátta og samgangna er ekki
þörf eins margra kirkna og áður,
og prestar búa víða við svipaðar
aðstæður og silungur i uppþorn-
aðri tjörn, og því er ekki að
undra, þótt fáir sæki um inn-
göngu í prestaskólann.
Hvernig væri að safna kenni-
mönnum saman á 10—15 kix-kju-
staði í landinu, mynda frjáls-
leg „klaustur" í lúterskum anda.
Hvert „kirkjuból'1 yrði miðstöð
trúarlífs. Þar myndu hinir stóru
söfnuðir byggja kirkjumusteri
með tign og fegurð. Samfélag
klerkanna mundi stuðla að fé-
lagslegum átökum í trúariífi,
kennslumálum og vísindastörf-
um. Sjálfsagt væri að hafa ung-
lingaskóla á hverju „kirkjubóii“
einnig fullkomin bókasöfn, lestr-
arsali cg frjálsa kennslu fyrir
þroskað fólk. Þá væri mikil menn
ingarbót að því að fækka kirkju-
görðum og eignast fáa skrúðgarða
í stað aragrúa aí vanhirtum
kargagörðum. Biskupssetrin
yrðu svo ,,höfuðból“ hins and.'ega
og trúarlega lífs í landinu. Ég
þykist viss um, að við hér vestan
lands myndum fremur kjósa og
sækja guðsþjónustur til eins slíks
kirkjubóls, sem þjónaði 3—4 sýsl
um, þar sem hópur kennimanna
í sameiningu skapaði lxelgi og
trúarlíf, heldur en í þær feg-
urðarsnauðu bjálkakirkjux’, sem
við bixum nú við.
Þetta var hugmynnd, sem mig
langaði að koma á framíævi nú
í sambandi við umræðurnar um
kirkjumálin.
Við skulum koma málefnum
kirkjunnar sem fyrst á rétta
braut, því að annað stórmál, sem
þjóðin mun einnig fagna og ræða
um og framkvæma, bíður á næsta
leiti, þ. e. endurreisn Alþingis á
Þingvöllum. í því máh biunda
tilfinningar þjóðarinnar líkt og
í aðdraganda stórbyltinga, og þar
verður sá helzti vandinn að
greiða „vitsmunum“ smáskilding
til að víkja örlítið úr vegi, eins
og alltaf hefur þurft að gera í
stórmálum.
Gunnar Bjarnason.
Ueynf verði að finna ráð
til að fyrirbyggja vot-
heyseitrun
Frá umrœðum
á Alþingi
Á DAGSKRÁ sameinaðs þings í
fyrrad. var til umræðu till. til
þingsályktunar um ráðstafanir
til að greiða fyrir votheysverkun
og öðrum heyverkunaraðferðum,
sem að gagni megi koma í óþurrk
um. Tillaga þessi er flutt af 7
Framsóknarmönnum. — Fyrsti
flutningsmaður Ágúst Þorvalds-
son,* gerði grein fyrir tillögunni
en að máli hans loknu kvaddi
Magnús Jónsson sér hljóðs.
Skýrði hann svo frá, að á Alþingi
1955 hefði 1. þ.m. Árnesinga flutt
tillögu, sem mjög hefði gengið í
sömu átt og sú tillaga er hér
væri til umræðu. Hefði sú til-
laga verið samþykkt og fram-
kvæmd falin Tilraunaráði ríkis-
ins, Verkfæranefnd landbúnaðar
ins og Búnaðarfélagi íslands.
Beindi hann þeirri fyrirspurn til
Ágústs, hvort hann hefði aflað
sér vitneskju um hvað gerzt
hefði í því máli. í þeirri tillögu,
sem til umræðu væri, væri gert
ráð fyrir að fela sömu aðilUm
framkvæmdina ,en það hefði litla
þýðingu ef þeir hefðu ekkert
gert. Þá bað Magnús flm. einn- 1
ig að upplýsa hversvegna þeir
sæju ástæðu tíl að taka málið
upp.
Páll Zóphóníasson tók næstur
til máls og ræddi einkura um
orsakir grasleysis, og heyverk-
unaraðferðir almennt. Jón Sig-
urðsson sagði að tillaga þessi
virtist ekki hafa mikið að segja,
því að atriði þau, er hún fjallaði j
um mundu að miklu leyti í fram- i
kvæmd. Eitt atriði kvað hann þó i
órannsakað í þessu sambandi, en j
það er hvernig hægt væri að
fyrirbyggja votheyseitrun í
skepnum, aðallega sauðfé. Yrðu
mjög margir bændur fyrir
skakkaföllum af þessum sökum
og sumir hefðu misst allt að 50%
fjárstofns síns. Það væri því eðli
legt að bændur kveinkuðu sér
við að leggja í aukna súrheys-
verkun, meðan ekki væri fundin
ráð til að fyrirbyggja þessa
veiki. Lagði Jón til, að tilrauna-
stöðinni á Keldum yrði falið að
leitast við að finna einhver ráð
til að fyrirbyggja tjón af þessum
sökum. Ef hægt væri að finna
upp meðal við þessari veiki, þá
væri þar með tryggð almenn
votheysverkun.
Ágiist Þorvaldsson tók aftur til
máls. Kvað hann fyrri tillöguna
einkum hafa verið um nýjar hey
verkunaraðferðir, en tillaga, sem
nú væri á dagskrá fjallaði um
votheysverkun og aðrar heyverk
unaraðferðir, er að gagni megi
koma í óþurrkum. Þá kvaðst
hann ekki vita hvað rannsakað
hefði verið samkvæmt fyrri sam-
þykkt Alþingis. í
Magnús Jónsson talaði aftur
j og tók undir ummæli Jóns Sig-
I urðssonar um nauðsyn þess, að
uppræta hættur í sambandi við
votheysverkun. Þá sagði Páll
Zóphóníasson nokkur orð um
votheyseitrun, en fleiri tóku ekki
til máls. Var samþykkt með 28
samhljóða atkv. að vísa málinu
til allsherjarnefndar og var um-
ræðum þar með frestað.
'Vukið víðskiptin. —
Auglýsið í Morgunhlaðinu
Sí m i
2-24-80
IMý íbúð i vesturbænum
Höfum til sölu nýja íbúð, næstum fullgerða, í Haga-
hverfinu. íbúöin er 140 ferm., 5 herbergi, eldhús, bað,
skáli o.fl.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
NÝ
vöndub 3ja herbergja íbúð
' steinhúsi í einu af nýju hverfum bæjarins til sölu.
■turar svalir eru á íbúðinni. Útb. kr. 200 þús.
IMýja fasteignasalan
Bankastræti 7.
Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546.
V É LAM E N N
Áhugasamur og duglegur vélstjóri eða vélvirki með
,óðri þekkingu á dieselvélum getur fengið fasta
xtvinnu á dieselverkstæði voru. Reglusemi og stund-
ísi áskilin. Skriflegar umsóknir sendist Morgun-
jiaðinu fyrir 5. nóvember merkt: „Diesel — 7135“.
Bræðtvrnir Ormsson h.f.
Til leigu
Verzlunarhúsnæði við Langholtsveg. f húsinu geta verið
4 verzlanir. Skilyrði góð fyrir veitingastofu, nýlendu-
vöruverzlun, bakarí, fiskbúð, efnalaug, viðtækja eða raf-
magnsvinnustofu o.m.fl. Jafnframt er til leigu á sama
stað ca. 185 ferm. iðnaðarhúsnæði í kjallara. Athugið
hina mörgu möguleika.
Upplýsingar gefnar ekki í síma
Eignamiðlun
Austurstræti 14, I. hæð.
Tilkyrming t
atvinnuleysisskráfimgu
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga nr. 52
frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningarstofu Reykjavíkur-
bæjar, Hafnarstræti 20, dagana 3. 4. og 5. nóvember þ.á.,
og eiga hlutaðeigendur, er óska að skrá sig samkvæmt
lögunum að gefa sig fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h.
hina tilteknu daga. .
Óskað er eftir að þeir sem skrá sig séu viðbúnir að
svara meðal annars spurningunum:
1, Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
BORGARSTJÓRINN I REYKJAVlK.
ReyKjavík 30. oktober 1958.
MÁLNING
Hörpusilki
hvítt — svart — mislitt.
Mattolux
Japanlakk
penslar,
málningarúllur og bakkar
^JJela
&Co,
iffL r v la^nuóóon
Hafnarstræti 19 — Símar 13184 og 17227.