Morgunblaðið - 31.10.1958, Síða 13
Föstudagur 31. okt. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
13
Sjó&ur stofnaður er stuðli
að jafnvœgi í byggð
landsins
Frumvarp Jbess efnis
lagt fram á Alþingi
ÚTBÝTT hefur verið á: Alþingi
frumvarpi til laga um ráðstafanir
til að stuðla að jafnvægi i byggð
landsins.
Flm.: Magnús Jónsson, Kjartan
J. Jóhannsson, Sigurður Ágústs-
son, Jón Sigurðsson.
Jafnvægissjóður og hlutverk hans
I frumvarpinu segir m. a., að
stofna skuli sjóð, sem nefnist
jafnvægissjóður. Verði sjóðurinn
eign ríkisins.
Hlutverk jafnvægissjóðs sé að
stuðla að jafnvægi i byggð lands-
ins með því að veita lán til efl-
ingar atvinnulífi og til fram-
leiðsluaukningar á þeim stöðum
á landinu, þar sem við atvinnu-
örðugleika er að stríða, en fram-
leiðsluskilyrði þannig, að íbúarn-
ir geti haft sæmilega afkomu í
meðalárferði við þjóðhagslega og
hagkvæma framleiðslu.
Verði sveitarfélag fyrir sér-
stökum áföllum vegna aflabrests
eða af öðrum sökum, skulu þau
sitja fyrir um lán úr sjóðnum.
Lán úr sjóðnum má veita bæði
sveitarfélögum, einstaklingum og
félögum. Lán til hinna síðar-
nefndu aðila verða þó eigi veitt,
nema sveitarstjórn telji viðkom-
andi framkvæmdir vera til at-
vinnuaukningar i sveitarfélaginu.
Heimilt skal sjóðsstjórninni að
krefjast ábyrgðar sveit-arsjóðs, ef
lántaki getur ekki sett viðunandi
tryggingar fyrir láni úr jafnvæg-
issjóði.
Stofnfé og tekjur.
Stofnfé sjóðsins sé:
75 millj. kr. framlag úr ríkis-
sjóði, sem greiðist með jöfnum
greiðslum á næstu 5 árum, í
fyrsta sinn árið 1859.
Fé það, sem við gildistöku þess
ara laga er útistandandi af lán-
um, er veitt hafa verið samkvæmt
20. og 20. gr. fjárlaga til þess að
bæta úr atvmnuörðugleikum í
landinu.
Heimilt skal ríkisstjórninni að
taka lán til greiðslu stofnfram-
lagsins, ef hún telur eigi auðið að
greiða það að fullu af árlegum
tekjum ríkissjóðs.
Tekjur sjóðsins séu:
Vaxtatekjur og árlegt framlag
úr ríkissjóði, eigi minna en 5
'millj. kr. á ári ,og skulu þær
greiðslur hefjast árið eftir að
stofnfjárgreiðslum lýkur.
að Alþinfti kýs hlutfallskosningu
á fyrsta þingi hvers kjörtímabils.
Stjórnin velji sér sjálf formann.
Ráðherra ákveði laun sjóðs-
stjórnarmanna, og skulu launm
og annar kostnaður við starfserm
sjóðsins greiðast úr ríkissjóði
Lánveitingar/
Lán úr jafnvægissjóði skulu
að jafnaði veitt einu sinni á ári,
nema einstök mál krefjist skjótr-
ar úrlausnar á öðrum tímum árs.
Stjórn jafnvægissjóðs skal, áð-
ur en lán er veitt, kynna sér ræki
lega atvinnuástand á viðkomandi
stöðum og rannsaka, hvaða fram
kvæmdir séu líklegastar til þess
að bæta mest afkomu íbúanna.
Stjórn jafnvægissjóðs geri jafn-
framt, þegar ástæða þykir til,
heildaryfirlit yfir atvinnuástand-
ið í landinu og áætlun um æski-
legar atvinnuframkvæmdir í sam
vinnu við Framkvæmdabanka
íslands.
Skylt skal ríkisstofnunum og
embættismönnum að veita stjórn
jafnvægissjóðs sérfræðilega að-
stoð og leiðbeiningar við atnug-
un á atvinnuástandi og mat á
gildi framkvæmda.
Framkvæmdabanki íslands
annist dagleg afgreiðslustörf og
reikningshaid jafnvægissjóðs eft-
ir fyrirmælum sjóðsstjornar gegn
þóknun, s^m ráðherra ákveður.
Endurskoðendur Framkvæmda
bankans annist endurskoðun
reikninga jafnvægissjóðs. Skulu
reikningar sjóðsins birtir árlega
í Stjórnartíðindum.
Kerfisbundin uppbygging.
í greinargerð segir svo:
Með frumvarpi þessu er lagt til
að setja fastar reglur um fram-
kvæmd ráðstafana til atvinnu-
aukningar. Er gert ráð fyrir 15
millj. kr. árlegu ríkisframlagi til
jafnvægissjóðs næstu árin, en til
þessa hefur aldrei verið hægt að
vita með vissu, hvaða fé yrði til
ráðstöfunar nema eitt ár í senn,
og því ekki verið unnt að gera
neinar áætlanir um kerfisbundna
uppbyggingu atvinnulífs á ein-
stökum stöðum, því að til þess
hefði þurft að gera ráð fyiir lán-
veitingum um tveggja eða þriggja
ára skeið.
Þótt lánveitingar af atvinnu-
aukningarfé hafi á undanförnum
árum víða komið að góðum not-
um, er engum efa bundið, að með
kerfisbundnum ráðstöfunum og
skipulagi hefði féð nýtzt enn bet-
ur. Var þetta vel Ijóst þeím
mönnum, sem upphaflega beittu
sér fyrir samþykkt þingsálykt-
unar um ráðstafanir til þess að
stuðla að jafnvægi í byggð lands-
ins, og þeir Gísli Jónsson og Gisli
Guðmundsson, sem voru af fyrr-
verandi ríkisstjórn skipaðir til að
rannska og gera tillögur um þetta
efni, lögðu einmitt í sínu ýtar-
lega og fróðlega nefndaráliti
mikla áherzlu á, að unnið væri
að þessum málum á kerfisbund-
inn hátt.
Reynslan ætti nú ótvírætt að
hafa fært mönnum heim sanninn
um það, að óviðunandi er að hafa
lengur meira eða minna handa-
I hófskennda úthlutun þess fjár,
sem varið er til atvinnuaukning-
ar. í trausti þess, að .sá skiln-
ingur sé til staðar á Alþingi, er
I þetta frv. flutt.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofu- og afgreiðslustarfa. Krafizt
er vélritunarkunnáttu og undirstöðukunnáttu í bók-
færslu. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, merktar: „Heild-
verzlun — 7142“.
HEFI KAUPANDA AÐ
Skrifstofuhúsnœði
2—400 ferm. ÚtborgCín allt að einni milljón.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Einar Sigjurðsson
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767.
2 stúlkur
óskast stirax.
Sunnubuðin
Mávahlíð 2b
Ný sending
Þýzkar kvenhúfur
GLUGGIIMIM
Laugaveg 30.
Mann vantar
á smurstöðina Sætúni 4 og á Olíuhreins-
unairstöðina. Sími 16227.
Höfum fengið
hin mairgeftirspurðu úlpupoplin í ekta
litum. Mjög gott verð.
Verzlunin Perlon
Skólavörðustíg 5 — Sími 10225.
Samkvæmiskjólaefni yfir 40 tegundir
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11.
Vextir og lánstími.
Vextir af lánum jafnvægissjóðs
skulu vera 4% á ári, en lánstím-
ann ákveður sjóðsstjórnin, og má
hann vera mismunandi eftir að- !
stæðum og greiðslugetu.
Heimilt skal sjóðsstjórn að
lengja lánstímann frá því, sem
upphaflega er ákveðið. Ennfrem-
ur skal setja ákvæði í skuldabréf
fyrir lánum sjóðsins þess efnis, að
heimilt sé að stytta lánstímann,
ef afkoma viðkomandi fyrirtæltis
eða sveitarsjóðs leyfir það að
dómi allra sjóðsstjórnarmanna.
Ennfremur skal í skuldabréf-
um fyrir lánum til kaupa á at-
vinnutækjum taka fram, að lánið
sé allt fallið í gjalddaga, ef at-
vinnutæki er flutt burt úr hlut-
aðeigandi sveitarfélagi, nema
sjóðsstjórnin samþykki flutning-
inn.
Stjórn jafnvægissjóðs ákveði
hvaða tryggingar séu viðundandi
fyrir lánum sjóðsins.
Heimilt skal stjórn jafnvægis-
sjóðs við sérstakar aðstæður að
veita fé úr sjóðnum sem óaftur-
kræft framlag, ef óll stjóðsstjórn-
in er því samþykk.
Fimm manna stjórn.
Stjórn jafnvægissjóðs skal skip
uð fimm mönnum, sem samein-
Öll fita hverfur á augabragði með freyð-
andi VIM. Stráið örlitlu á rakan klút,
nuddið rösklega eina yfirferð og hinn
óhreini vaskur er tandurhreinn. Það er svo
auðvelt! Hið freyðandi VIM hreinsar öll
óhreinindi. Hinar þrálátu fiturendur í bað-
kerum og vöskum hverfa. Pottar pönnur,
flísar og málaðir hlutir verða tandur-
hreinir.
Gljáinn kemur fvrr
með freyðandi VIivi