Morgunblaðið - 31.10.1958, Síða 19

Morgunblaðið - 31.10.1958, Síða 19
Föstudagur 31. okt. 1958 MORCVHBF4ÐIÐ 19 Merkjasala til styrktar vangefnum n.k. sunnudag Mikill skortur á hælum, dagheimilum o. fl. ins hefur félagsmálarráðherra nú ákveðið, að helmingi af tekjum sjóðsins fyrstu 6 mánuðina verði varið til byggíngarframkvæmda við Kópavogshælið, og bráða- birgðalán verði veitt í sama skyni út á væntanlega fjárveitingu til hælisins úr ríkissjóði á næsta ári. Hafa byggingarframkvæmdir við Kópavogshælið tafizt mjög vegna fjárskorts, en brýn nauðsyn er á að fljótlega verði kom- ið upp fleiri hælum fyrir vangefna. Nú eru slík hæli aðeins til í Kópavogi, fyrir 75 börn og fullorðna, í Skálatúni, fyrir 28 börn, á Sólheimum í Grímsnesi, en þar rekur Sesselja Sigmundsdóttir einkahæli fýrir um 20 börn, og á Stokkseyri, þar sem Símon 'Sigmundsson, bróðir Sesselju, er nú að koma upp einkahæli. Ekki eru til neinar skýrslur um tölu vangefinna á íslandi, en ef gert er ráð fyrir sömu hundraðstölu og á hinum Norðurlöndunum, munu þeir vera um 2000, þar af fjórðungur algerir örvitar. Undanfarið hefur stjórn Styrkt arfélagsins aðallega beitt sér fyrir því að komið verði á stofn dag- heimili eða leikskóla fyrir van- gefin börn í Reykjavík. Sam- kvæmt ósk félagsins hefur fé- lagsmálaráðherra farið þess á leit við fjárveitinganefnd Alþingis, að hún hlutist til um, að tekin verði í fjárlög næsta árs 50 þús króna styrkveiting til Sumargjafar, til þess að reka dagheimili eða leik- skóla fyrir vangefin börn. Einnig hefur félagið í athugun stofnun sumardvalarheimilis fyrir van gefna. En að sjálfsögðu veltur árangurinn af starfi Styrktarfé- lagsins mjög á hversu tekst til um fjáröflun, því flest eru vanda málin, sem úrlausnar bíða, mjög fjárfrek. Handbært fé félagsins nemur nú ca. kr. 40.000.00. Þar af nema áheit og gjafir kr 5.400,00. í stjórn Styrktarfélags vangef- inna eru Hjálmar Vilhjálmsson formaður, Guðmundur Gíslason Aðalsteinn Eiríksson, Sigríður Ingimarsdóttir og Kristín Guð- mundsdóttir. Tillaga de Gaulles um samstarf þrívelda Seðlabankinn endur- kaupi framleiðsluvíxla iZnaðarins NÆ’STKOMANDI sunnudag verð ur fvrsti merkjasöludagur Styrkt arfélags vangefinna, en sá félags- skapur var stofnaður 23. marz sl. Er markmið félagsins að styrkja allt það sem getur orðið vangefnum til aðst'^ar. Hefur fjáröflunarnefnd undir forystu Guðmundar Gíslasonar, múrara- meistara, m. a. fengið leyfi til merkjasölu fyrsta sunnudag i nóvember ár hvert, og hafa merki verið send á um 40 staði um Iand allt. Aðrar fjáröflunarleiðir eru sala minningarspjalda og happdrætti um bifreið, sem vonir standa til að komið verði á fót bráðlega. í gær skýrði Hjálmar Vil- hjálmsson, formaður félagsins, fréttamönnum frá því sem áunn- izt hefur frá þvi félagið var stofn að. Árangurinn af viðræðum stjórnar félagsins við ýmsa al- þingismenn og aðra forráða- menn varð sá, að sett voru í maí í vor lög um aðstoð við vangefið fólk. Samkvæmt þeim eru Styrkt arsjóði vangefinna tryggðar tekjur næstu 5 árin, þar eð í hann rennur 10 aura gjald af hverri öl- og gosdrykkiaflösku, sem seld er hér á landi. Er á- ætlað að tekjur sjóðsins verði ca. 1,5 millj. krónur á ári. Samkvæmt tillögum stjórnar Styrktarfélags- — Frá Alþingi Framhald af bls 6 anir sem stuðli að því að auka þátttöku manna í sjávarútvegin- um. Að sjálfsögðu er það ósk allrar þjóðarinnar að unnt verði á næstu árum að manna fiski- skipin eigin sjómönnum. Frumv. okkar flutningsmanna miðar að því að það megi takast. Ég treysti á fylgi hv. alþm. við frv. og bið hæstv. forseta að lokinni umræðu, að vísa því til hv. sjávarútvegsmálanefndar og til 2. umræðu. Furðiileg athugasemd Skúla Er Sigurður Ágústsson hafði Iokið máli sínu, kvaddi Skúli Guðmundsson sér hljóðs. Kvaðst hann vilja gera athugasemd við þau ummæli Sigurðar, að útgerð- inni hefði hrakað eftir að lögin um Útflutningssjóð o. fl. hefðu gengið í gildi. Þá sagði hann, að ef það væri álit útgerðarmanna, að lögin um Útflutningssjóð hafi orðið útgerðinni til tjóns, gæti komið til mála að fella þessi lög úr gildi! Þá lagði Skúli til að mélinu yrði vísað til fjárhags- nefndar. Hefði átt að vita betur Sigurður Ágústsson tók aftur til máls. Sagði hann að þm. Vestur-Húnvetninga vildi leggja annan skilning í orð sín, en þar væri að finna. Ætti honum þó að vera kunnugt hið sanna í málinu. Nú væru aðeins tveir mánuðir til vertíðar og engin vissa fyrir því, að einn einasti erlendur sjó- maður fengist á fiskiskipin. Hlyti því mikill fjöldi fiskiskipa að liggja í höfn, sem útgerðar- menn hefðu hug á að gera út. Þetta væru áhrif „bjargráð- anna“. Þessu vandamáli hefði einnig verið hreyft er „bjargráð- in“ voru til umræðu í þingdeild- inni á sl. vori, og hefðu þá þegar margir þingmenn verið uggandi um einmitt þessar afleiðingar 55% yfirfærslugjaldsins. Þá vék Sigurður að því, að hann hefði lagt til að málinu yrði vísað til sjávarútvegsmálanefndar vegna þess, að hann vissi, að þar fengi það afgreiðslu. Samkvæmt reynslu frá síðasta þingi væri hins vegar ekki hægt að treysta því, að fjárhagsnefnd afgreiddi málið. Fleiri tóku ekki til máls og var frumvarpinu vísað til 2. umr. með 21 samhl. atkv. og til fjár- hagsnefndar með 14 atkv. gegn 6. PARÍS, 30. okt. — NTB-Reuter. Eisenhower, forseti Bandaríkj- anna, og Macmillan, forsætisráð- herra Breta, hafa svarað tillögu, sem de Gaulle bar nýlega fram um aukið pólitískt samstarf ríkja þeirra, Frakklands, Bret- lands og Bandaríkjanna í mál- efnum þeirra landa sem liggja utan áhrifasvæðis Atlantshafs- ríkjanna. SÍÐASTLIÐIÐ miðvikudagskvöld 29. þ. m. gekkst Almenna bóka- félagið fyrir kýnningu á verkum Guðmundar G. Hagalíns á fsa- firði. Var kynningin með sama sniði og sú, sem haldin var I hátíðasal Háskólans 12. okt. í til- efni af sextugsafmæli rithöfund- arins. Próf. Alexander Jóhannesson flutti ávarp, Andrés Björnsson skrifstofustjóri flutti erindi um Hagalín, en leikararnir Arndís Björnsdóttir, Valur Gíslason og Þorsteinn Ö. Stephensen lásu úr verkum hans ásamt rithöfundin- um sjálfum. Anna Á. Ragnar lék einleik á píanó. Húsfyllir var á kynningunni og hrifning meðal áheyrenda. Umboðsmaður Almenna bóka- félagsins á fsafirði, Matthias Bjarnason bóksali, sá um þessa bókmenntakynningu, og róma þeir, sem vestur fóru vegna hennar, undirbúning hans og móttökur. Almenna bókafélagið hefur í Nemii leggur nið- ur fourstu Jafnað- armannaflokksins RÓMABORG, 30. okt. —Reuter- NTB— Pietro Nenni, sem verið hefur foringi vinstrisinnaða Jafnaðarmannaflokksins ítalska, sagði í dag af sér formennsku í flokknum. Kom þetta eins og reiðarslag yfir fylgismenn flokks- ins. Afsögn Nennis stafar af ósam- komulagi við miðstjórn flokks- ins, en miðstjórnin lýsti því yfir að hún tæki lausnarbeiðni hans ekki til greina. Nokkrir aðrir nánustu fylgis- menn Nennis sögðu sig einnig I dag úr miðstjórn flokksins. Franska utanríkisráðuneylið gaf í dag út tilkynningu um þetta og bar um leið til baka fréttir, sem birzt hafa í blöðum um að de Gaulle legði til að stofnað yrði þríveldaráð innan Atlantshafsbandalagsins. Tillög- ur de Gaulles fjalla um samstarf í málefnum sem snertu ekki sér- staklega NATO-löndin, eins og fyrr segir. hyggju að efna til fleiri bók menntakynninga úti um land framtíðinni. Halla Bachmann kvödd í kvöld HALLA BACHMANN, dóttir Hallgríms ljósameistara Þjóð- leikhússins, sem gerzt hefur kristniboði suður á Fílabeins- strönd Afríku, er nú á förum suð ur þangað. í kvöld verður hún kvödd á samkomu sem KFUK og Samb. kristniboðsfélaganna hér efna til í húsi KFUM og K, klukkan 8,30. Halla mun þar sjálf flytja á- varp, en einnig tala þeir séra Bjarni Jónsson vígslúbiskup og Ólafur Ólafsson kristniboði. Útgerðaríélag ’ \kurevrar ræður 1 * nvian frainkv.stj. Á FUNDI stjórnar Útgerðarfélags Akureyrar h. f. s. 1. mánudag samþykkti stjórnin að ráða Andrés Pétursson sem fram- kvæmdastjóra félagsins. Þar með verða framkvæmdastjórar félags- ins tveir, þar sem Gísli Konráðs- son hefir áður verið ráðinn fram- kvæmdastjóri. Er Andrés þaul- vanur slíkum störfum. Leiðrétting MEÐ grein í Morgunblaðinu í gær misritaðist nafn höfundar, Valdimars Kristinssonar, við- skiptafræðings; var hann nefnd- ur Kristjánsson. F J ÖLMENNUR felagsfundur í Félagi ísl. iðnrekenda vár hald- inn í Leikhúskjallaranum laugar- daginn 25. okt. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: Endurkaup framleiðsluvíxla iðnaðarins Almennur fundur í Félagi ísl. iðnrkenda, haldinn 25. okt. 1958 skorar á ríkisstjórnina að verða við einróma áskorun Alþingis um að vinna að því, að iðnaðurinn fái aukið rekstrarfé með þvi að taka nú þegar upp samninga við Seðlabankann um fyrirkomulag á endurkaupum bankans á.fram- leiðslu- og hráefnavíxlum iðnað- arins. Varahlutir til iðnaðarvéla Fundur í Fél. ísl. iðnrekenda, haldinn 25. okt. 1958 skorar á Al- þingi að samþykkja framkomsa þingsályktunartillögu um inn- flutning varahluta í vélar land- búnaðar og sjávarútvegs með þeirri breytingu að tekin séu upp i tillöguna tilsvarandi ákvæði um innflutning varahluta til iðnaðar- véla. Jafnframt vekur fundurinn at- hygli á því skilningsleysi á þjóð- hagslegu gildi iðnaðarins, að á Alþingi skuli koma fram tillög- ur um fyrirgreiðslu á ákveðnum efnum til landbúnaðar og sjáv- arútvegs, en fjölmennasti atvinnu vegur þjóðarinnar. iðnaðurinn settur hjá um hliðstæð hlunnindi. Heimild Iðnaðarbankans til gjaldeyrisverzlunar. Almennur fundur í Félagi ísl. iðnrekenda, haldinn laugardaginn 25. okt. 1958, beinir eindreginnni áskorun til stjórnar ’ Seðlabank- ans að samþykkja beiðni Tðnaðar banka fslands um heimild til gjaldeyrisverzlunar, þar sem við það mundu opnast möguleikar á stórukinni þjónustu bankans við iðnaðinn. Söluskattur og útflutningssjóðs- gjald Fundur i Félagi ísl. iðnrekenda haldinn 25. okt. 1958 skorar á ríkisstjórnina að standa við gefin fyrirheit um endurskoðun á sölu skattsgreiðslum iðnfyrirtæka vegna þess misréttis og öfugþró- unar, sem innheimta skattsins veldur á ýmsum sviðum og veld- ur iðnfyrirtækjunum sífellt meiri erfiðleikum. Efling Iðnláuasjóðs Fundur í Félagi ísl. iðnrekenda þ. 25. okt. 1958 skorar á ríkis- stjórn og Alþingi að efla Iðnlána- sjóð með ríflegu framlagi og búa jafnframt svo um hnútana, með árlegri tekjuöflun til sjóðsins, að Iðnlánasjóður geti leyst af hendi það þýðingarmikla h'.utverk að vera stofnlánasjóður iðnaðarins, sem honum var ætlað í öndverðu. Bendir fundurinn í þessu sam bandi á frumvarp það, sem nú liggur fyrir Alþingi um að helm- ingur gjalds af innlendum toll- vörutegundum renni til Iðnlána- sjóðs. Fáist frumvarp þetta ekki samþykkt, skorar fundurinn á AX- þingi að leysa fjárþörf sjóðsms á annan hátt. U ngli nga vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi Nýbýlaveg Háaleitisveg Herskálakamp Baldursgötu Nökkvavog IHtdmjm í)íuí)iiji Aðalstræti 6 — Sími 22480. Móðir mín og systir okkar Frú ANNA PÉTURSHÖTTIR andaðist að Elliheimilinu Grund 30. þ.m. Fyrir hönd fjarstaddra systkina. Magnús Sigurjónsson, Jónína Pétursdóttir, Pétur Pétursson. Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir GUÐMUNDUR V. EINARSSON • stýrimaður, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni, Hafnarfirði laug- ardaginn 1. nóv. kl. 2 e.h. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Fyrir hönd aðstandenda. Ingibjörg Magnúsdóttir. Þakka af athug öllum þeim, sem sýndu mér samúð og vinsemd við andlát mannsins míns MAGNÚSAR ÞORKELSSONAR bakara. Sérstaklega þakka ég Sigurði Bergssyni, bakarameist- ara og Bakarasveinafélagi íslands. Margrét Kjartansdóttir Kynníng á verkum Hagalíns á ísafirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.