Morgunblaðið - 07.11.1958, Blaðsíða 3
Föstudagur 7. nóv. 1958
MORCVTSBL 4 ÐIÐ
3
Ríkisstjórnin vill hafa hervarnir en engar
varnir til öryggis almennum horgurum
Fádœma ábyrgðarleysi,
dœmi á Vesturlöndum
Frá umræðum um öryggismál á bæjar
stjórnarfundi
A BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær var lögð fram tillaga frá Al-
freð Gíslasyni (K) um að loft-
varnanefnd yrði lögð niður. Er
það rökstutt í tillögunni, að með
því að ríkið hafi nú hætt fjár-
framlögum til ráðstöfunar vegna
ófriðarhættu og er þess vænzt,
segir í tillögunni, að loftvarnar-
nefnd geri að lokum grein fyrir
starfi sínu, hjúkrunargögnum og
öðrum útbúnaði svo og tillögum
sínum, ef einhverjar eru, varð-
andi skipun þessara mála fram-
vegis.
Flutningsmaður fylgdi þessari
tillögu úr hlaði og átaldi mjög
loftvarnarnefnd fyrir aðgerðar-
leysi og skakkar aðferðir við
loftvarnirnar. Kvað flutnings-
maður loftvarnir ekki lengur
hyggjast á dýrum tækjum,
heldur á þjálfun hjálparsveita,
lærdómi í hjúkrun og aðhlynn-
ingu sjúkra, enda ætti slíkt að
vera skyldunámsgrein í skólum
landsins.
Borgarstjóri tók til máls og
sagði að tillaga Alfreðs væri stað
festing á áður framkomnum til-
lögum frá flokki hans um að ör-
yggisráðstafanir borgaranna gagn
vart ófriðarhættu eigi að vera
sem minnstar. Borgarstjóri tók
fram, að ráðstafanir vegna ófrið-
arhættu væru faldar í tvennu, í
fyrsta lagi hervörnum og í öðru
lagi borgaralegum vörnum, eða
öryggisstofnunum fyrir almenn-
ing ef til ófriðar kæmi. í flest
öllum löndum er hvorttveggja,
bæði hervarnir ög borgaralegar
varnir. Eru borgaralegu varnirn-
ar taldar sjálfsagðar og varið til
þeirra miklu fé, bæði í hlutlaus-
um löndum og eins löndum inn-
an Atlantshafsbandalagsins og
víðar. Hins vegar kvað borgar-
stjórinn það vera stefnu komm-
únista hér á íslandi og raunar
annarsstaðar, að hin frjálsu lönd
ættu að vera óvarin, en það væri
meira heldur en það sem kommún
istar ætluðust til. Það væri ekki
nóg með það að þeir vildu að ís-
land væri opið og óvarið öllum,
Hjálmar frá Hofi
ÞESSI mynd af Hjálmari Þor-
steinssyni frá Hofi átti að fylgja
grein þeirri eftir dr. Richard
Beck, er birtist í blaðinu í gær
um nýjasta vísnasafn Hjálmars,
„Munarósir", en féll niður vegna
mistaka. Grein dr. Becks nefndist
„Hugþekkt vísnasafn“ og fer
hann þar viðurkenningarorðum
um Hjálmar, sérstaklcga hafi
stakan verið skáldinu fylgispök
í blíðu og stríðu.
ofurselt hverri fjandsamlegri
krumlu, sem til þess kynni að
seilast, heldur ætluðust þeir
einnig til þess, að borgararnir, al-
þýða manna, börn, konur og gam-
almenni, væru algerlega óvarin
og engar öryggisráðstafanir gerð
ar til þess að vernda líf þeirra
og heilsu, ef til ófriðaraðgerða
kemur. Kvað borgarstjóra sig
furða á því ábyrgðarleysi sem
reyndur læknir sýndi með slíkri
tillögu og þeirri ræðu, sem hann
hefði flutt.
Ríkisstjórnin, hervarnir
og öryggisvarnir
Borgarstjóri sagði, að ríkis-
stjórnin sjálf hefði markað að-
stöðu sína gagnvart hervörnum
á þann hátt, að verja skyldi land-
ið og væri þess að minnast, að sú
ákvörðun hefði verið tekin af
núverandi ríkisstjórn, skömmu
eftir að hún kom til valda 1956,
að erlent varnarlið skyldi vera
hér og tekið fram, að það væri
vegna ófriðarhættu og ískyggi-
I legs ástands í heimsmálum. Þann.
ig hefur ríkisstjórnin gengið inn
á það, að hervarnir skuli hafa.
Þetta gerði ríkisstjórnin, þrátt
fyrir kosningabombur sínar um
brottrekstur varnarliðsins og það
hefur komið fram í ræðu bæði
forsætisráðherrans og utanríkis-
ráðherrans, að öll ríkisstjórn-
in hafi staðið að þessari ráð-
stöfun, svo ekki getur Alþýðu-
bandalagið, flokkur flutnings-
manns þessarar tillögu hér, bor-
ið flokk sinn undan ábyrgð á
þessari ráðstöfun, sagði borgar-
stjóri.
En öðru máli gegnir um afstöðu
ríkisstjórnarinnar gagnvart vörn-
um borgaranna. Hún vill hafa
hervarnir en engar borgaralegar
varnir, því að á sama tíma og hún
samþykkir að hafa hér erlent
varnarlið, gerir hún sig seka um
það dæmalausa ábyrgðarleysi að
fella niður af fjárlögum framlög
til öryggisráðstafana fyrir borg-
arana sjálfa. í fyrstu fjárlögun-
um, sem ríkisstjórnin lagði fram,
var felld niður sú 1 milljón
króna, sem lögð hafði verið til
þessara öryggisráðstafana, en sú
upphæð hafði verið veitt á fjár-
lögum, síðan árið 1951. í gild-
andi fjárlögum er þetta á sama
veg að fjárveitingin er felld nið-
ur. Ríkisstjórnin hefur til engra
viðræðna fengizt við bæjaryfir-
völdin um þetta mál. Vitaskuld
er rétt og sjálfsagt, að ríkisstjórn-
in og bæjarfélögin hafi samstarf
um þessi mál, en allt verður erf-
iðara um vik, þegar ríkisstjórnin
skerst úr leik, en íslenzka ríkis-
stjórnin er ein allra ríkisstjórna
á Vesturlöndum, sem sýnir full-
komið skeytingarleysi um al-
mcnnar varnir borgaranna, ef til
ófriðar kemur.
Loftvarnarnefnd
stofnuð með lögutn
Borgarstjóri tók fram, að loft-
varnir væru engin uppfinning
bæjaryfirvaldanna í Reykjavík,
heldur væri þessum málum skip-
að með lögum og það tekið fram,
hvernig loftvarnarnefndin skyldi
vera skipuð. Samkvæmt þessu
hefur verið sett á stofn loftvarn-
arnefnd hér í Reykjavík og hefði
Reykjavíkurbær lagt henni til
fé, svo sem lögskylt væri, oftast
750 þús. kr. á ári, en þessi upp-
hæð hefði verið lækkuð eftir að
framlag ríkissjóðs var fellt niður.
sem er e/ns-
Eru öryggisráðstafanir óþarfar?
Stundum heyrist að öryggisráð
stafanir séu óþarfar nú á tímum
kjarnorkualdarinnar en þessu er
allt öðru vísi varið. Borgarstjóri
tók fram að hann teldi orðið „loft
varnir“ villandi, því að sízt af
öllu væri einungis átt við varnir
gegn árásum úr lofti, heldur væri
átt við miklu víðtækari varnir
borgaranna. Borgarstjóri minnti
á að á s.L ári hefði komið hingað
framkvæmdastjóri og yfirmaður
borgaralegra varna innan Norð-
ur-Atlantshafsbandalagsins en sá
maður væri þekktur úr styrjöld-
inni af sérstakri reynslu í þessum
málum.
Þessi sérfræðingur NATO, sem
ferðast um og lítur eftir loftvörn
um í löndum innan Atlantshafs-
bandalagsins, kynnti sér það sem
hér hefur verið gert af loftvarna-
nefnd, og kvað upp þann dóm,
að allt það sem gert hefði verið
væri nothæft og í fullu gildi,
þannig að ráðstafa mætti
því við jafnvel meira verði en
það hefði verið keypt fyrir, ef
svo sýndist. Taldi hann skipu-
lag gott en í ýmsum greinum
þyrfti að gera meira. Borgarstjóri
las nokkuð upp úr áliti þessa
manns um loftvarnir en hann
segir m.a. svo:
„Öðru hverju eru settar fram
fullyrðingar, sem oft ná tals-
verðri útbreiðslu, um að almenn-
ingsvarnir séu ekki annað en
tíma- og peningaeyðsla, vegna
þess, að ekkert sé hægt að gera
til varnar kjarnorkuárás.
Slíkar fullyrðingar eru ekki
annað en vonleysishjal, en þær
geta valdið talsverðum ruglingi
og torveldað varnarstörf. Nú er
það svo, að við lifum á tímum
kjarnorku, hvort sem okkur lík-
ar það betur eða verr. Ekki þýðir
annað en að horfast í augu við
staðrenydirnar og laga sig eftir
aðstöðum. Og með því að enn
lifum við í ófullkomnum heimi,
verður ekki hægt að útiloka
möguleikana fyrir styrjöld.
Ekki er það heldur til nokkurs
gagns að segja, að afleiðingar
styrjaldar yrðu svo hræðilegar,
að ekki sé til þess hugsandi.
Ekert gagnar að stínga höfðinu
í sandinn og loka með því aug-
unum. Hitt er sönnu nær, að ógn-
irnar verða ekki eins miklar, ef
skynsamlega er við brugðizt. Því
umfangsmeira sem vandamálið
er, þeim mun meiri nauðsyn ber
til þess að gera sér það ljóst, að
skipa hverju atriði sinn sess og
ráða fram úr hverjum vanda fyr-
ir sig.
Þegar vandamálið er athugað
rækilega, verður það deginum
ljósara, að þegar undan eru skil-
in ný tæknileg atriði, svo sem
helryk, að meginmunurinn á af-
leiðingum venjulegra sprenginga
og kjarnorkusprengingu er sá,
hversu hinar síðari eru aflmeiri.
Af þessu leiðir það rökrétt, að
verkefnið er stærra, og því er
þörf á að auka almenningsvarnir
sem því svarar“.
Þá gat borgarstjóri einnig um
upplýsingar sem þessi sami sér-
fræðingur hafði gefið í sérstöku
bréfi, en þar tæki hann fram að
í flestum löndum NATOværuloft
varnir skipaðar með lögum,
þar sem ákveðið væri um
skipun þessara mála og skyldur
ríkisins og annarra aðila.
Væri talið ógerlegt að ein-
stök bæjarfélög gætu borið
kostnaðinn og í Bretlandi greiddi
ríkissjóður 75% af öllum kostn-
aði en bæjarfélög 25%, en í flest-
úm löndum greiðir ríkið helming
en fylki sem þar eru og bæjar-
félög skiptu eftirstöðvum til
helminga. Ef um sérstakar stór-
felldar ráðstafanir er að ræða,
svo sem byggingu loftvarna-
byrgja eða kaup meiri háttar
björgunartækja, þá er slíkt kost-
að af ríkissjóði að öllu leyti.
Starf loftvarnanefndar
Borgarstóri sagði, að ásakan-
irnar á loftvarnarnefnd, sem
komið hefðu fram frá kommún-
istum væru ómaklegar og
ósannar. Kvað borgarstjóri loft-
varnarnefnd hafa gert ýtarlega
grein fyrir störfum sínum árið
1956 en þrátt fyrir þetta álit og
álit sérfræðings NATO, sem áður
var um getið, hefði ríkisstjórnin
sýnt það fádæma ábyrgðarleysi
að fella niður framlag sitt til
loftvarna.
Rakti borgarstjóri nokkuð
störf og verkefni loftvarnar-
nefndar. Það er verkefni
loftvarnarnefndar, að leggja frá
rótum drög að ráðstöfunum til
varnar almenningi hér í Reykja-
vík, ef til loftárásar kæmi. í
þessu sambandi hefur mjög
margt verið aðhafzt. í kjallara
Heilsuverndarstöðvarinnar er
gert ráð fyrir að hafa megi aðal-
stöðvar öryggisráðstafanna og
j þeirra manna, er veita skulu for
I ustu hjálparstarfsemi í bænum,
ef loftárásir eru gerðar. Hefur
þar verið komið fyrir síma-
skiptiborði með leiðslum sem
tengja má bæjarkerfinu, svo og
öðru nauðsynlegu, sem til þarf í
þessu sambandi. Þá hefur loft-
varnarnefnd komið upp aðvörun-
arkerfi í bænum og voru keypt-
ar rafknúnar loftvarnarflautur
til þess.
í samráði við Landssíma fs-
lands, hefur nefndin athugað all
ýtarlega skipulagningu fjarskipa
þjónustu í þágu loftvarnanna og
tryggt fyllstu not af bæjar- og
landssímakerfinu. Og ennfremur
hefur loftvarnarnefnd keypt
mikið og fullkomið talstöðva-
kerfi, tvær fastar stöðvar og 8
hreyfanlegar.
Einn stærsti þátturinn í störf-
um loftvarnarnefndar eru hjúkr-
unar- og líknarmál. Er ætlunin
hafa allt að 1000 sjúkrarúm til
ráðstöfunar fyrir fólk sem kynni
að slasast í loftárás, en að áliti
lækna er talið unnt, ef í nauðir
rekur, að koma fyrir um 200 særð
um mönnum í sjúkrahús hér í
bænum. Ráðstafanir hafa verið
gerðar til að koma upp bráða-
birgðasjúkrarúmum í nágrenni
bæjarins og verið athugaðir þeir
staðir í nágrenningu þar sem
unnt væri að koma fyrir slösuðu
fólki, svo sem í Reykjalundi, Hlé
garði, Laufarási, Vífilstöðum og
| Laugarvatni.
Þá hafa verið ráðstafanir gerð
ar til að stofnsetja allt að 8
slysavarðstofur sem flestaj: yrðu
í skólahúsum, til aðgerða vegna
minniháttar meiðsla og til bráða
birgðaaðgerða. Síðan rakti borg-
arstjóri, hvað keypt hefði verið
af alls konar gögnum, sjúkra-
rúmum og öllu sem tilheyrir að-
hlynningu sjúklinga, auk þess
lækningatæki, hjúkrunargögn,
sjúkrabörur, sáraumbúðir og
hreinlætis- og sóttvarnarvörur
og ótal margt fleira. Allt eru
þetta vörur, sem halda verðgildi
sínu, þó ekki komi til nota vegna
ófriðaraðgerða og hafa raunar
sjálfstætt gildi, ef eitthvað sér-
stakt ber til, til dæmis farsóttar-
faraldur á borð við inflúenzuna
1918, ellegar mænusóttina 1955,
en þá komu einmitt tæki loft-
varnarnefndar, svo sem öndun-
artæki, að mjög miklu gagni og
urðu til mikillar bjargar.
Þá hefur loftvarnarnefnd gert
víðtækar ráðstafanir í sambandi
við eldvarnir, sem eru mjög
mikilsverður þáttur í öryggis-
vörnunum. Þá hefur verið rann-
sökuð þörf á loftvarnarbyrgjum
og gerðar áætlanir um það, en í
sambandi við það hefur bænum
verið skipt í hverfi og athugað
Framh á bl». 19
STAKSTIINAR
Engin athugasemd
I fyrradag flutti Morgunblaðið
þá fregn að enn væru íslending-
ar í nýrri bónbjargarferð til
Bandaríkjanna til þess að fá þar
6 milljón dollara lán. Ríkisstjórn-
in hefur, allt síðan hún kom til
valda, haldið sér „ofansjávar"
með svo miklum og tíðum lán-
tökum, að slíkt hefur ekki þekkzt
áður, enda hafa ríkisskuldirnar
tvöfaldazt í tíð núverandi ríkis-
stjórnar.
f gsar gerðu stjórnarblöðin
enga athugasemd við þessa fregn
Morgunblaðsins og gefur það tU
kynna að þau treystist ekki tU
að mótmæla henni.
Það vekur athygli í þessu sam-
bandi, að Vilhjálmur Þór, aðal-
bankastjóri, sá sem í ferðinni er
af hálfu ríkisstjórnarinnar, talar
við Dulles, utanríkisráðherra,
um lántökuna og gæti það gefið
til kynna að ekki þýði að leita
eftir lánum handa fslendingum
hjá bönkum eða öðrum fjármála-
stofnunum, en það talar sínu
máli. Þegar fulltrúi fslendinga,
sem er í lántökuerindum, leitar
til utanríkisráðherra lands, þá er
það í rauninni hið sama og biðja
um aðstoð hjá viðkomandi stjórn-
arvöldum. Ekki er að efa það að
öll ríkisstjórnin og þar með
kommúnistar standa á bak við
þessa nýju beiðni ríkisstjórnar-
innar um aðstoð hjá Bandaríkja-
stjórn.
Móðgun
við íslenzka æsku
f Þjóðviljanum í gær er stór
fyrirsögn sem hljóðar þannig:
„Okkar stefna er stefna hvers
frjálshuga æskumanns". Er sagt
í upphafi greinarinnar að þessi
orð standi í ávarpi æskulýðsfylk-
ingarinnar, sem gcfin var út á
stofnþingi hennar. Nokkuð er
um liðið síðan æskulýðsfylking-
in, eða ungmennafélagsskapur
kommúnista, var stofnaður, en
þessi orð voru þá þegar ekki í /
neinu gildi og eru það sízt af
öllu nú. Stefna kommúnista get-
ur ekki verið stefna frjálshuga
æskumanns. Sá flokkur sem
mælir bót og beinlínis leggur sig
niður við að verja kúgun æsku-
manna í mörgum löndum getur
ekki kennt sig við frjálshuga
æsku og talið að sín stefna sé
hennar stefna. f löndum komm-
únista eru milljónir af æsku-
mönnum kúgaðir og vafalaust
þola þeir kúgunina enn verr ea
aðrir. Þegar kommúnistar segja
að stefna þeirra sé „stefna hvers
frjálshuga æskumanns“, er það
móðgun við íslenzka æsku.
Fölsk umhyPína 4
1 forystugrein Þjóðviljans f
gær er verið að leggja Alþýðu-
flokknum lífsreglurnar og sagt,
að ef hann haldi áfram starfsemi
sinni á einn eða annan veg, sem
Þjóðviljanum ekki líkar og nán-
ar er tiltekið, þá sé hætta á að
flokkurinn „leysist upp“. Það má
segja, að annað eins og þetta sé
fölsk umhyggja, því hvað hefur
verið markmið kommúnista gagn
vart Alþýðuflokknum á undan-
förnum árum, annað en að hann
einmitt „leysist upp“. Kommún-
istar hafa róið að því öllum ár-
um að eyðileggja Alþýðuflokk-
inn og það er óneitanlegt að þeim
hefur orðið betur ágengt en AI-
þýðuflokknum er hollt. Þeir
hafa tvisvar sinnum bitið stórar
sneiðar út úr Alþýðuflokknum.
Sú blóðtaka, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur orðið fyrir af völdum
kommúnista og undirróðursstarf-
semi þeirra, hefur gert flokkinn
svo fölan á lit, eins og hann er
nú. 1 öllum löndum telja komm-
únistar jafnaðarmenn sina verstu
óvini og keppinauta. Eins er því
farið hér. Kommúnistar í öllum
löndum reyna eftir megni að
eyðileggja jafnaðarmannaflokk-
ana og hafa þau átök farið á
ýmsa vegu.
s
*