Morgunblaðið - 07.11.1958, Síða 10
10
MORGVHnr. 4 ÐIÐ
Föstudagur 7. nóv. 1958
.iutiMiifrifr
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 2.00 eintakið.
SPILABORG BLEKKINGANNA ER
HRUNIN TIL GRUNNA
FYRIR kosningarnar sumar-
ið 1956 dreifði Hræðslu-
bandalagið, þ. e. banda-
lag Alþýðuflokksins og Fram-
sóknarflokksins um að brjóta
kosningalög og stjórnarskrána,út
svokallaðri „stefnuskrá umbóta-
flokkanna" um land allt. Hverj-
um einasta kjósanda var sendur
pési með rauðlitaðri fyrirsögn á
forsíðu, sem hafði inni að halda
loforð þessara flokka um það,
sem þeir myndu gera, ef þeir
fengju völdin að kosningunum
loknum.
Þessi stefnuskrá hófst á stjórn-
málayfirlýsingu Hræðslubanda-
lagsflokkanna. Er einkar fróð-
legt að rifja nú upp örfá atriði
hennar.
„Nú vetrður að brjóta
í blað“
Hér verða aðeins rakin nokk-
ur atriði hinnar almennu yfir-
lýsingar Hræðslubandalagsins. í
stjórnmálayfirlýsingu hennar seg
ir m.a. á þessa leið:
„Nú verður að brjota í blað í ís-
lenzkum stjórnmálum. Ef ekki
verður gripið fast í taumana,
mun skapast algert öngþveiti í
efnahags- og fjármálalífi þjóðar-
innar. Af því hlytist stöðvun
framkvæmda, atvinnuleysi og
upplausn, sem reynast mundi
gróðamönnum og einræðissinnum
hinn bezti jarðvegur fyrir stefnu
sína.
Þess vegna ber nú brýna nauð-
syn til þess að tekin sé upp ný
stefna í efnahagsmálum þjóðar-
innar. Um hana eiga allir frjáls-
lyndir umbótarmenn að samein-
ast“.
Þær þúsundir íslendinga sem
hafa „stefnuskrá umbótafíokk-
anna“ í höndum geta borið þessi
fyrirheit saman við efndirnar. Þá
verður það þegar ljóst, að þetta
plagg er marklausasta stefnuskrá,
sem nokkur stjórnmálaflokkur
eða stjórnmálasamtök á íslandi
hafa nokkru sinni gefið út.
Málefnasamningur
Hræðslubandalagsins
Þegar lokið er stjórnmálayfir-
lýsingu stefnuskrárinnar kemur
yfirlýsing um „grundvallaratriði"
þess málefnasamnings, sem Al-
þýðuflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn gerðu með sér fyrir
kosninga. • •
Fyrsta atriði þessa málefna-
samnings er að samstarf skuli
komið á milli væntanlegrar ríkis-
stjórnar þessara flokka og sam-
taka verkalýðs og iaunþega,
bænda og annarra framleiðenda
um meginatriði kaupgjalds og
verðlagsmála. Megintakmarkið
með þessu samstarfi skal vera að
koma á „heilbrigðu fjármála-
kerfi.“
Þetta grundvallaratriði mál-
efnasamningsins efndu Hræðslu-
bandalagsflokkarnir þannig, að
þeir tóku kommúista með sér í
ríkisstjórn, þvert ofan í svardaga
sína um það, að með þeim skyldi
aldrei unnið. Þeir hafa í öðru
lagi efnt þetta giunavallaratriði
UTAN UR HEIMI
Vid hvaö voru l>eir hræddir?
Eftir Edward Crankshaw
málefnasamningsins þannig, að
fullkomin upplausn, gengishrun
og þjóðgjaldþrot vofir yfir.
Annað grundvallaratriði mál-
efnasamningsins er, að tekið skuli
upp „eftirlit með öllu verðlagi í
landinu", að sjálfsögðu í þeim til
gangi að halda verðlaginu niðri
og tryggja kaupmátt launa.
Efndir: Stórfelldari verðlags
hækkanir og verðbólgukapphlaup
en nokkru sinni fyrr. Verzlunar-
álagning var að vísu lækkuð í
bili, en hefur verið hækkuð aftur
eftir að Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga og kaupfélögin kröfð
ust þess, að sýnt var að verzlun
varð ekki rekin með hinum nýju
verðlagsákvæðum.
Þriðja grundvallaratriðið var
að tryggja hallalausan ríkisbú-
skap.
Efndir: Stórfelldur hallarekst-
ur hjá ríkinu.
Allt svikið
Fjórða grundvallaratriðið var
um, að bankakerfið skyldi end-
urskoðað „meðal annars með það
fyrir augum að hindra pólitíska
misnotkun bankanna. Fjármagni
bankanna skyldi beina „að fram-
leiðslu atvinnuvegunum og öðr-
um þjóðnýtum framkvæmdum“.
Efndir: Nýr banki stofnaður og
nokkrir Alþýðuflokksmenn.Fram
sóknarmenn og kommúnistar
skipaðir í bankaráðs- og banka-
stjórastöður. Aldrei meiri skortur
en nú á fjármaghi i þágu „Fam-
leiðslu atvinnuveganna og ann-
arra þjóðnýtra framkvæmda"
Fimmta grundvallaratriðið:
„Starfsræksla fyrirtækja, er
vinna úr sjávarafla landsmanna
skal endurskipulögð með löggjöf
í því skyni að sjómönnum og út-
vegsmönnum verði tryggt sann-
virði aflans.“
Efndir: Ekki sýndur litur á a"í
efna þetta fyrirheit og engin lög-
gjöf sett í þessa átt.
Sjötta grundvallaratriðið: „Út-
flutningsverzlun með sjávaraf-
urðir skal endurskipulögð með
löggjöf í því skyni, að markaðs-
skilyrði nýtist sem bezt og sjó-
mönnum og útvegsmönnum verði
tryggt rétt verð“.
Efndir: Engin skiplagsbreyting
gerð á útflutningsverzlun með
sjávarafurðir, en löggjöf sett um
stjórnskipaða nefnd, sem hafi yf-
irstjórn þessara mála. Nefndin
skipuð ári eftir að lögin voru sett
og í hana settir þrír skrifstofu-
menn, sem hvorki hafa nokkra
reynslu né heldur vit á útflutn-
ingsverzlun með sjávarafurðir.
Sjöunda grundvallaratriðið:
„Þjóðhagsáætlun skal samin ár-
lega“.
Efndir: Engin þjóðhagsáætlun
samin og hvergi örlar á viðleitni
til þess að efna þetta síðasta
grundvallaratriði í málaefna-
samningi Hræðslubandalagsins.
Að sinni verður stefnuyfirlýs-
ing Hræðslubandalgsins ekki
rædd nánar. En það fólk, sem hef
ur hana með höndum ætti að lesa
hana gaumgæfilega einmitt nú
Því mun þá áreiðanlega verða
það ljóst, að spilaborg hinna
miklu blekkinga Hræðslubanda-
lagsins er hrunin til grunna.
RUSSNESKUR rithöfundur hef-
ur haldið fram rétti sínum til
að hegða sér eins og einstakling-
ur. Starfsfélagar hans hafa lýst
því, að enginn slíkur réttur sé
til og þeir refsa honum fyrir of-
dirfsku hans. Þetta er kjarni
Pasternak-málsins. Við erum
blindir af reiði, réttmætri og
æskilegri reiði, sem e. t. v. getur
áorkað einhverju. En reiðin er
ekki naagileg. Við verðum að
reyna að gera okkur betur grein
fyrir því, sem gerzt hefur í
Moskvu. Og, ef við getum það,
munum við komast að raun urn,
að boðskapur Zivagos læknis var
ætlaður okkur öllum.
★
„Mikill skynsamur og athugull
maður gekk fram hjá þessum
stóra, ömurlega og gráa hópi.
Hann horfði á alla þessa vesældar
legu samlanda sína — og hann
sagði, með daufu brosi, ljúfri en
djúpri og ásakandi röddu, með
angistarsvip og kvalinn í hjarta
sínu:
Líf ykkar er bágt, vinir m:nir.
Slíkt líf er til skammar.
Þetta eru lokaorð hinna dá-
samlegu minninga Gorkis um
Chekov. Og síðustu dagana hafa
af smáfugli, en reita síðan af hon-
um fjaðrirnar úr því að fuglinn
getur ekki flogið.
Við verðum að skyggnast
dýpra en stjórnmálamennirnir,
eins og Chekov gerði fyrir 50
árum. Hann fyrirleit einræðið.
En hann réðist ekki beint gegn
því. Hann beindi máli sínu til
mannsins sjálfs.
Svo var það Pasternak, sem
ritaði hina rismiklu skáldsögu
sína til þess m. a. að segja:
„Líf ykkar er bágt, vinir mín-
ir. Slíkt líf er til skammar.
Ég hugsa -til þeirra manna og
kvenna, sem gerðu þennan mikla
mann útlægan úr samtökum sín-
um, sviptu hann nafnbótinni
Sovét-höfundur, bönnuðu honum
að vinna fyrir daglegu brauði
með ritstörfum.
Ég sé þá fyrir mér — I löngum
fylkingum, kunnug andlit: Margu
þeirra hef ég hitt og rætt við,
einn eða tveir eru persónulegir
kunningjar mínir. Sumir eru
jafngóðir menn og þú finnur hvar
sem er. Margir þjást á dögum
Stalins, stundum báru þeir
menn, sem vita allt um Paster-
ak og allt um kúgunarnvald
flokksins á sviði listanna. Hvers
vegna greiddu þeir líka atkvæði?
„Stundnum," svo að ég vitni aft-
ur í Gorki um Chekov," heyrist
skothvellur frá gráleitri þvög-
uni: Ivan eða Treplev hefur séð
hvað honum ber að gera og hann
hefur svipt sig lífi“. Enginn skaut
sig á þessum fundi rithöfunda-
samtakanna. Allir greiddu at-
kvæði á sama veg.
Við hvað voru þeir hræddir?
Hræddir um, að það mundi frétt-
ast? Ég held, að þeir séu ekki
hræddir við Síberíu lengur. Sem
samstæð heild búa þeir yfir ógur-
legu afli. Það er að vísu hægt að
beita þá og fjölskyldur þeirra
þvingunum og meiðingum. En
þeir eru ríkisstjórninni of mikil-
vægir til þess að hún gereyði
þeim. Jafnvel þótt þeim finnist,
eins og sumum finnst e. t. v., að
ákvörðun sænsku akademíunnar
hafi miðazt að því að auka „kalda
stríðið“. Jafnvel þótt þeim finnd-
ist, að Sholokhov eða I.eonov
hefði frekar verðskuldað Nobels
verðlaunin en Pasternak; jafnvel
þótt þeim finnist Pasternak hafa
hlaupizt undan merkjum með því
að þakka verðlaunin og ætla sér
að taka við þeim — þrátt fyrir
allt þetta: Hvernig gátu þeir feng
ið sig til þess að reka góðan mann
út í óbyggðir, fordæma samstarfs
mann (sem þeir vissu allir að
er snillingur)? Hvernig gátu
þeir rekið hann út í yztu myrkur
— og skipað sér í flokk með úr-
hrökum á borð við Zaslavsky og
Semichastnys? Ástæðan getur
aðeins verið ein: I sálardjúpi
sínu trúa þeir því líka, að ekki
sé til neitt, sem heiti einstakling-
ur — að einhver töframáttur í
þjóðfélaginu hefur það yfir ein-
staklingana, sem skapa það. Og
meðan þeir trtúa þessu, verður
alltaf til Krúsjeff.
Boris Pasternak
þessi orð komið aftur og aítur
upp í huga minum, þegar ég
minntist örlaga þess manns, sem
að mínum dómi er mesta
skáld Rússa síðan Chekov leið.
Ég hugsaði alls ekki til þeirra
manna, sem taldir eru stjórna
Ráðstjórnarríkjunum, til Krús-
jeffs, flokksstarfseminar, hinnar
dapurlegu og ófrjóu framkvæmd-
ar Ráðstjórnarvaldsins.
★
í Rússlandi hefur verið eins
konar einveldisstjórn í margar
aldir. Og þessi stjórn verður þar
líka um ókomin ár. Krúsjeff gerir
sitt bezta til þess í hlutverki sínu
sem nýr keisari. Hann veit. að
undir stjórn Stalins lamaðist allt
andlegt atgervi landsmanna
nema á ákveðnum sviðum — og
þetta er honum ekki að öllu leyti
að skapi: Andann verður að
leysa úr fjötrunum, en jafnframt
verður að halda honum í skefj-
um. Þetta vill ekki takast — og
hefur aldrei tekizt. En það hindr-
ar ekki — og mun aldrei hindra
rússneskt einræðisvald frá því
reyna að láta það takast. Tilfinn-
ingar okkar gagnvart Krúsjeff
hvað þessu viðvíkur eru líkast
því sem okkur væri innan brjóst,
ef við sæjum barn skera vængi
hlekki sína með tign. Þegar Stalin
lézt flýttu þeir sér nær allir að
láta í ljós skoðanir sínar á að-
búnaði listarinnar í Rússlandi,
sumir voru ómyrkir í máli — og
meira en það. Og aðrir voru nógu
hugrakkir til þess að bjóða á-
gangi flokksins byrginn, en þeir
sáu, að þíðviðrið stóð ekki lengi
— og strax tók að sortna aftur
í álinn. Og þannig gekk þar til
sl. sumar, er Krúsjeff talaði til
þeirra persónulega, lokkaði þá,
stældi við þá — og ógnaði þeim
ekki sjaldnar enn þrisvar. Samt
sem áður greiddu allir atkvæði
með brottrekstri Pasteraks úr
samtökum þeirra, eða, enda þótt
svo hefði ekki verið — létu óátal-
ið, að tilkynnt var, að hann hefði
verið rekinn með samhljóða at-
kvæðum. Hvers vegnan?
★
Ég ræði ekki um þá fáu, sem
eru samvaxir skipulaginu, ekki
um þá, sem eru falir — né hina,
sem öfundin í garð afburðar-
mannsins hefur borið ofurliði.
þeirra líkar eru til í öllum lönnd-
um — enda þótt slíkir menn
njóti ekki verndar ríkisvaldsins.
Ég tala aðeins um góða menn,
hjartagóða menn, sem einnig eru
í hópi fremstu rithöfuda —
+ KVIKMYNDIR *
Stjörnubíó: Tiu hetjur.
Á STRÍÐSÁRUNUM unnu her-
mennirnir margir hetjudáðir, sem
fáar sögur hafa farið af. Ein-
staklingar og flokkar tóku að sér
árásarferðir á hendur óvinunum,
sem voru svo hættulegar og djarf
ar, að mestar líkur voru fyrir því
að þessir menn kæmu aldrei aftur
úr slíkum leiðöngrum. Ameríska
kvikmyndin „Tíu hetjur“, segir
frá einum slíkum leiðangri. Fá-
mennur flokkur enskra her-
manna, undir stjórn Stingers
majors, fer á húðkeipum inn á
höfnina í Bordeaux á Frakklandi,
þar sem mörg herskip Þjóðverja
liggja, og festa við skipin í húmi
næturinnar, segulsprengjum. —
Nokkrir drukknuðu á leiðinni,
aðrir voru handsamaðir eftir að
hafa unnið verk sitt og síðan
skotnir, en aðeins tveir komust
af. En tilganginum var náð. Her-
skipin sprungu í loft upp um það
leyti, sem hetjurnar voru skotnar.
Það er geysimikil spenna í
mynd þessari og hún er afbragðs
vel gerð og leikin, enda fara
þarna með aðalhlutverk þeir Pose
Ferrer, er leikur Stinger major
(og hefur einnig annast leik-
stjórnina) og Trevor Howard, er
leikur Thompson kaptein. Ev leik
ur þeirra og reyndar fleiri, af-
burðagóður. — En myndin er auk
þessa bráðfyndin á köflum, full
góðri enskri kímni. Ego.