Morgunblaðið - 07.11.1958, Blaðsíða 12
12
MORGUNHL4ÐIÐ
Föstudagur 7. nðv. 1958
Afgreiðslusfúlka
óskast í vefnaðarvöruverzlun í úthverfi
bæjarins. Herbergi nálægt vinnustað ef
óskað er. Tilb. sendist í pósthólf 955.
Nauðungarupphoð
verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum hér
í bænum föstudaginn 14. nóv. n.k. kl. 1,30 e.h. eftir
kröfu tollstjórans í Reykjavík o. fl. Seld verða alls
konar húsgögn, skrifstofuáhöld, trésmíðavélar,
gólfpússunarvél, ísskápar, skartgripir, fatnaður
og vefnaðarvara, alls konar upptækar vörur og vörur
til lúkningar aðflutningsgjöldum. Ennfremur verða
seldir húsmunir, barnaleikföng, barnaföt, útistand-
andi skuldir o. fl. tilheyrandi nokkrum dánar- og
þrotabúum.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Keykjavík.
f JT
Arni Bjarni
minning
HINN 1. þ. m. lézt hér í bæ
Árni Bjarni Hannesson, 18 ára
að aldri. Hann var fæddur 4. okt.
1940, sonur hjónanna frú Hlífar
Bjarnadóttur og Hannesar Árna-
sonar póstbifreiðastjóra. Hann
var elztur 5 sona þeirra hjóna og
er, sem geta má nærri, þungur
harmur kveðinn að þeim með
láti þessa unga manns. Árni heit-
inn var greindur vel og gáfaður,
en tilfinninganæmur, með við-
kvæma lund og hjarta, sem fann
sárt til með öðrum, einkum þeim,
sem bágt áttu og minni máttar.
Dýravinur var hann mikill og
einn þeirra, sem helzt ekkert
aumt mátti sjá. Eins og títt er
um greinda menn, sem slíka
lund hafa, var æskan honum á
ýmsan hátt erfið og baráttusöm.
Viðkvæmt hjarta hans brá á
ýmsa vegu við umhverfi og erfið-
leikum, sem að sóttu, og ef til
vill ekki alltaf á þann hátt, sem
hentugast og affærasælast var
fyrir hann sjálfan. Æskumenn,
sem þannig eru, hafa ekki enn
Hannesson
Rinso-sápulöður er mýkra
— gefur beztan árangur
Milljónir kvenna um allan heim vita, að þær geta
reitt sig á hið sápuríka Rinso. Rinso nær hvergi
ögri af óhreinindum úr grómteknustu fötum.
Rinso fer svo vel með þvottinn, þvær lýtalaust
og fötin verða sem nú fer vel með hendumar
Það er af því, að hið freyðandi Rinso-löður er
sérstaklega sápuríkt, — þetta mjúka löður skilar
þvottinum tandur hreinum hvað eftir annað.
Rinso hið s&puríka er sérstaklega
hentugt, þegar þvegið er i þvottavélum.
RINSO þvær lýtalaust —
og kostar yður minna!
fierzt svo sem skyldi og síðar
verður nauðsynlegt í lifsbarátt-
unni. Árni heitinn stóð í þeirri
baráttu, er hann féll frá, svo
mjög fyrir aldur fram. Hann
virtist á undanförnum mánuðum
vera að eignast meira af þeim
þroska og baráttuþreki, sem við-
kvæmur maður öðlast að æsku-
árum loknum. Undanfarna vetur
hafði hann stundað nám við
Menntaskólann í Reykjavík, en í
sumar og vetur hafði hann unnið
daglaunavinnu og hugðist gera
það til áramóta, en lesa því næst
undir 5. bekk utanskóla síðari-
hluta vetrar. Við vinir hans
glöddumst yfir þeirri ætlun hans
og einbeitta vilja, því að gáfur
hafði hann góðar og var á sínum
rétta stað í námi, ef hann gat
óhindraður gefið sig að því, en
nú er hann horfinn af sjónar-
sviðinu, rétt í þann mund, er
hefjast skyldi handa og undir-
búningur að ævistarfi hafinn
með nýjum dug.
Um stuttan tíma dvaldist Árni
á heimili okkar hjóna og varð
hann okkur einkar kær sakir
ljúfmennsku sinnar og glaðværð-
ar.
Vér, vinir foreldra hans og
hans, erum þungum harmi slegn-
ir við skyndilega brottför hans.
Hryggðin verður enn sárari er
við minnumst viðkvæmrar lund-
ar hans, sem þjáðist oft í bar-
áttu, sem vafalaust var miklu
erfiðari og sárari honum en oss
grunaði. Við hugsum með sökn-
uði til unglings, sem bar í barmi
góðviljað og gíaðlynt hjarta —
var reglulega góður drengur í
sér, eins og sagt er í daglegu
tali. Við blessum minningu hans
og sendum foreldrum hans og
nánustu ástvinum hans hlýjar og
einlægar samúðarkveðjur og biðj
um Guð að styrkja þau á erfið-
leikastundu og blessa framtíðina
og minningu látins sonar.
G. Þ.
★
Hve örstutt er bil milli blíðu og
éls
og brug*” -'r lánið frá
m<- elds.
HVE i um við ekki til
vanmáti^- oKkar mannanna
barna, er við skyndilega og al-
gjörlega óvænt heyrum, að ung-
ur maður í blóma lífs sins og
sem var í fullu fjöri fyrir stundu
er hrifinn burt frá ástvinum og
kunningjum. Við skiljum ekki
þá vizku hins almáttuga Guðs,
getum ekki trúað að hann hefði
þurft að haga atvikum svo, að
einmitt ungur maður og gáfaður
sé kallaður burt. En við htljótum
að sætta okkur viff, aff vegir
Guðs eru órannsakanlegir. Þess-
ar hugsanir flugu gegnum hug
mér, er ég heyrði óvænt lát ungs
vinar, Árna Bjarna Hannessonar.
Ég hafði hitt hann glaðan og
hressan nokkrum dögum áður en
hin óvænta fregn barst mér.
Árni Bjarni var fæddur 4.
október 1940, en lézt hinn 1. nóv.
sl. Ég man hann sem lítið barn
á hné móður sinnar, efnilegan og
skýran, kátan og fjörugan. Ég
fylgdist með honum á bernsku-
árunum, sem óvenju greindu
barni. Alltaf var hann með hin-
um allra hæstu eða hæstur í
barnaskólanum og virtist eiga
óvenju létt með allt nám. Hann
var blíður og góður og vildi allt
fyrir alla gera. Sérstaklega kom
þó blíða hans fram við dýrin og
alla þá, sem minni máttar voru
og hjúkraði hann þar og hjálp-
aði eftir mætti. Ég fylgdist með
honum vaxa úr grasi og verða
ungan æskumann, ótrauðan í
námi sínu, fyrst í gagnfræða-
skóla og síðan í menntaskóla.
Hann var dulur að eðlisfari og
fáir gátu skyggnzt í innstu sál-
arfylgsn hans, en þó fann ég, að
þar brauzt um ungur eldmóður.
Þar var glímt við hinar torfáðnu
gátur lífsins, gátur um tilkomu
þess og tilgang og þar var smátt
og smátt að mótast lífsviðhorf
ungs manns.
Við hjónin dvöldum með Árna
Bjarna og fjölskyldu hans um
tíma á þessu æviskeiði hans og
kynntist ég honum e. t. v. nánar
en margir aðrir kunningjar hans.
Ég fann þá glöggt, að hið blíffa
barnseðli hans var enn ríkasti
þátturinn í skaphöfn hans, og
mátti hann enn ekkert aumt sjá.
Nú er Arni Bjarni skyndilega
horfinn sjónum okkar, sem eftir
lifum, en við vitum, að hann
bíður handan hins skynjanlega
heims.
Mikill harmur er nú kveðinn
að foreldrum hins látna og
bræðrum hans; foreldrum, sem
sköpuðu börnum sínum fjrrir-
myndarheimili og væntu mikils
af hinum efnilega syni.
Guð gefi þeim styrk til að
sætta sig við dóm hins almáttka
föður.
Kristján Sigurðsson.
BamafæSan „Baby O. K.“ inni
heldur fjörefni og steinaefni I
réttu hlutfalli •— og er fram-
leidd af vísindalegri nákvæmni
Baby O. K. nr. I er fyrir jörn
frá 0—6 mánaða.
Baby O. K. nr. 6 er fyrir börn
frá 6 mán. til 4 ára aldurs,
og er jafnframt ágæt „di-
æt“ fæða. —
PILTAR y
' : éí’ jwjí ffq/í úmisíúni /j^/
piif .ég hrincjíhð. /f//: >
tyrfon tis/7K/n/or>\
\4>.tjterr*rr/ 8, \
Simi 15300
Ægisgotu 4
Nýkomnar
loftpressur