Morgunblaðið - 07.11.1958, Page 20
V EÐRIÐ
V-stinningskaldi. — Skúrir.
Hiti 1—3 stig.
Ptrpittfrlto
255. tbl. — Föstudagur 7. nóvember 1958
Járntjaldsríkin
Sjá grein Stevensons á bls. 8.
Andvirði togaranna 15 ekki innifalið
í 6 milljón dollara bónbjargaláninu
Washington-ferð Vilhjálms Þórs ekki véfengd
ÖLL stjórnarblöðin játa
með þögn sinni í gær, að
frásögn Morgunblaðsins í
fyrradag af hinni nýju bón-
bjargaför Vilhjálms Þórs
til utanríkisráðherra Banda
ríkjanna er sönn. Erindi
Vilhjálms í Washington nú
er að fá á vegum utanríkis-
ráðuneytisins þar 6 millj.
dollara að láni. Með því
verði, sem dollararnir yrðu
seldir á íslandi jafngildir
það nær 160 milljónum ís-
lenzkra króna.
j Ef bónbjargaferðin ber til-
setlaðan árangur bætist enn við
skuldirnar, sem V-stjórnin hef-
ur stofnað til erlendis. Við fjár-
lagaumræðuna upplýstist, að
þær samsvöruðu áður með geng-
inu fyrir bjargráð 618,5 millj.
króna. Ef 160 milljónir bætast
við verða þetta 775—780 millj.
íslenzkra króna.
! Ef marka má ummæli Lúð-
víks Jósefssonar á Alþingi í
fyrradag nær þessi geipi-upp-
hæð þó ekki til lánanna í togar-
ana 15, sem hann sagði Vilhjálm
Þór hafa verið að leita eftir að
undanförnu. Lúðvík talaði raun-
ar eftir getu á sem mestri huldu,
en hann gat einungis um tilraun-
ir til lánaútvegana í þessu skyni
í Vestur-Þýzkalandi, Hollandi og
Belgíu, auk Bretlands, sem hann
sagði vera úr sögunni. Banda-
ríkin nefndi hann alls ekki. Tog-
aralánið þarf eflaust að verða
sem svarar 100—200 millj. kr.
Sá „smá“-skildingur er eftir
frásögn Lúðvíks fyrir utan 6
milljón-dollara bónbjarga-lánið.
V-stjórnin hefur ekki sóma-
tilfinningu til að gera Alþingi og
landslýðnum grein fyrir öllu
þessu lántökubraski. Menn verða
því nokkuð að geta sér til um
fyrirætlanir stjórnaririnar eftir
þeim takmörkuðu heimildum,
sem síast út úr stjórnarherbúð-
unum. Víst er að skuldaaukning-
in verður nú æ ískyggilegri og er
fróðlegt að bera hana saman við
það, að á nær þriggja ára valda-
tíma stjórnar Ólafs Thors 1953
—1956 jukust opinberar skuldir
erlendis einungis um 130 míllj.
króna.
Geislun ryks í andrúms-
loftinu hefir aukizt
mjög hér á landi
eftir kjarnorkutilraunir Rússa fyrir
norðan heimskautshaug
FYRIR rösklega mánuði var hér
byrjað að gera mælingar á geisl-
un ryks í loftinu, en slíkar mæl-
ingar eru framkvæmdar út um
heim allan. Um þessar mundir
er geislun ryks í loftinu yfir
landinu mikil eins og komið
hefur fram við mælingar í öðrum
löndum og stafar þessi óvenju-
lega geislun frá kjarnorku-
sprengjutilraunum Rússa fyrir
norðan heimskautabaug í byrjun
októbermánaðar.
Mælingar þessar eru fram-
kvæmdar á vegum Eðlifræði-
stofnunar Háskólans sem próf-
essor Þorbjörn Sigurgeirsson
veitir forstöðu. Þessar rannsókn-
ir eru þannig framkvæmdar, að
uppi á Rjúpnahæð, er lofti dælt
í gegnum þar til gerðan síu-
pappír, en síðan er farið með
hann suður I rannsóknarstofu
prófessors Þorbjörns í háskólan-
um. Þar er síupappírinn settur
w
4
Nýstárleg kvöldvaka
Hringsins
1 KVÖLD kl. 8,30 efnir Hringur-
inn til kvöldvöku í Sjálfstæðis-
húsinu til ágóða fyrir barnaspít-
alasjóð. Eins og kunnugt er,
vinna kvenfélagskonur ötlulega
að því að koma upp nýjum
barnaspítala og þarf til þess mik-
ið fjármagn eins og gefur að
skilja. Undanfarið hefur verið
unnið að því að reisa viðbótar-
byggingu við Landsspítalann og
er ráðgert að hluti af henni verði
tekinn undir nýjan barnaspítala.
Starfsemi kvenfélags Hrings-
ins hefur ávallt mætt miklum
skilningi og velvild bæjarbúa,
enda kunna þeir að meta það
starf sem unnið er. Mikil nauð-
syn er á því, að nægilega stórum
og fullkomnum barnaspítala
verði komið upp í höfuðstaðn-
um hið fyrsta.
Vetrarstarfsemi Hringsins hefst
að þessu sinni með fjölbreyttri
kvöldvöku, sem konurnar hafa
vandað vel til. Þar verður m.a.
tízkusýning og verða sýndir kven
kjólar frá ýmsum tímum, en um
leið syngur Sigríður Hannesdótt-
ir o.fl. gamanvísur um hvern kjól
og hafa vísurnar verið samdar
sérstaklega að þessu tilefni.
Gamall og góðkunnur borgari
Hefir ekki landað
I hér áður
í SAMBANDI við löndun togar-
1 ans „Luna“ hér sl. þriðjudag
gætti þess misskilnings í frásögn
blaðsins, að togarinn hefði landað
; hér áður. Það hefur hann ekki
gert, þótt hann hafi komið hing-
að fyrr. Togarinn hafði hreppt
slæmt veður og lá afli hans undir
1 skemmdum.
Frá tízkusýningunni
Reykjavíkur syngur einnig gam-
anvísur. Síðan verður frumsýnd-
ur nýr íslenzkur gamanþáttur,
eftir kunna höfunda, þá verða
inn í geigerteljara og þar fer
fram mæling á geislainnihaldi
ryksins úr andrúmsloftinu sem í
síupappírnum situr, en það er
svo fínt að það kemur ekki fram
nema í beztu smásjám.
Það eru svonefndir Betageisl-
ar, sem eru elektrónur, sem
geigerteljari telur. Þegar byrjað
var á þessum mælingum í októ-
berbyrjun, var geislamagnið í
rykinu, sem er venjulega mjög
lágt, ekki mikið. Kringum 18.
október fór geislamagnið að auk-
ast hér. Kemur það einnig heim
við mælingar í nágrannalöndun-
um, er tilkynnt hafa vaxandi
geislainnihald ryksins og sé það
samkvæmt síðustu fréttum um
10 sinnum meira en undir venju
legum kringumstæðum. Sú tala
er svipuð því sem hér hefir
mælzt síðustu dagana.
Prófessor Þorbjörn Sigurgeirs
son skýrði tíðindamanni Mbl. frá
þessum mælingum í gær. Gat
hann þess, að jafnvel þó geislun
ryksins í andrúmsloftinu hafi
aukizt svo mikið sem raun ber
vitni, þá sé ekki nein hætta á
ferðum fyrir heilsu fólks.
Þá gat próf. Þorbjörn þess, að
um síðustu áramót hefði Veður-
stofan byrjað að taka sýnishorn
af regnvatni fysir hann einnig
með tilliti til geislamælinga á
því, þegar aðstæður eru til þess
að hefja kerfisbundnar mælingar
á því. Páll Theódórsson eðlisfræð
ingur, annast mælingar þessar.
Einnig kvaðst prófessor Þor-
vera tilbúinn að hefja mælingar
á strontium, en til þess þyrfti
að koma á samstarfi við atvinnu
deildina um efnagreiningu.
Vilhjálmur Finsen
Haustmót
í Vestmannaej jum
S.U.S. og F.U.S. í Vestmannaeyj-
um efna til haustmóts þar annað
kvöld. Jóhann Hafstein, alþingis-
maöur, flytur ræðu á mótinu,
og auk þess verður flutt stutt
ávarp.
Guðmundur Guðjónsson syng-
ur einsöng og Hjálmar Gíslason
syngur gamanvísur. Undirleik
annast Guðjón Pálsson. Að lok-
um verður stiginn dans.
AKRANESI, 6. nóv. — Slátrun
stóð yfir á sjöundu viku í haust
í sláturhúsi Sláturfélags Suður-
lands að Hurðabaki í Reykholts-
dal. Var alls slátrað tæplega
15,000 fjár, hátt á þriðja hundrað
hrossum og 50 kúm. Kroppþungi
dilka reydnist tæplega í meðal
lagi og telja margir að það stafi
af hinum sífelldu þurrkum í sum-
ar og harðindum, sem héldust
fram eftir öllu vori.
Vilhj. Finsen gefur Blaða-
mannafél. ísl. stórgjöf
skömmu afhenti Vilhjálmur Finsen fyrrverandi sendiherra
og ritstjóri stjórn Blaðamannafélags Islands 25 þúsund kr. gjöf
til Menningarsjóðs félagsins. — Skal þessi upphæð lögð í sérstak-
an sjóð, er beri heitið „Blaðamannasjóður Vilhjálms Finsen“.
Arlegum vöxtum hans skal varið til styrktar íslenzkum blaða-
manni til utanfarar til að kynnast erlendri blaðaútgáfu og blaða-
mennsku. —
Stjórn sjóðsins skulu skipa
tveir menn úr stjórn Blaða-
mannafélags íslands með aðal-
ritstjóra Morgunblaðsins sem
oddamann við úthlutun styrks
úr sjóðnum. Styrkúthlutun fer
fram árlega hinn 7. nóvember, á
fæðingardegi gefanda, í fyrsta
sinn 7. nóvember 1959.
Með þessari höfðinglegu gjöf
sendi Vilhjálmur Finsen hjartan-
legar kveðjur til allra íslenzkra
blaðamanna.
Stjórnir Blaðamannafélags Is-
lands og Menningarsjóðs félags-
ins hafa sent Vilhjálmi Finsen
innilegar þakkir fyrir gjöfina og
þann hlýhug og ræktarsemi, sem
bak við hana liggur.
Mikið hókaval hjá Helga-
felli fyrir jólin
Stjórnmálanám-
skeið á Sauðár-
króki
SAMBAND ungra Sjálfstæðis-
manna og Víkingur, F.U.S. á
Sauðárkróki efna til stjórnmála-
námskeiðs á Sauðárkróki nú um
helgina. Á námskeiðinu verða
flutt erindi, málfuhdir haldnir
og kvikmyndir sýndar. Nám-
skeiðið hefst í kvöld kl. 8,30, og
flytur Jón E. Ragnarsson erindi
um ræðumennsku. Auk hans
munu þeir Jónas Rafnar og Birg-
ir ísl. Gunnarsson flytja erindi
á námskciðinð. Öllum Sjálf-
stæðismönnum er heimil þátt-
taka á námskeiðihu.
SPILAKVÖLD verður í Bifröst á
laugardagskvöld og hefst kl. 8,30.
Birgir ísl. Gunnarsson flytur
ávarp, síðan verður spilað, og
eftirhermur, tónlist og loks dans loks mun hljómsveit leika fyrir
stiginn til kl. 2 eftir miðnætti. I dansi.
BÓKAÚTGÁFAN Helgafell hef-
ur allmargar bækur í undirbún-
ingi nú fyrir jólin. Þegar er
komið á markaðinn Kvæðasafn
Magnúsar Ásgeirssonar. Þá er
von á Skálholti Guðmundar
Kambans í tveim bindum og Borg
arættinni eftir Gunnar skáld
Gunnarsson. Verður hún mynd-
skreytt af Gunnari syni hans.
Þórbergur Þórðarson sendir frá
sér þriðja bindi sjálfsævisög-
unnar og nefnir það Rökkur-
óperuna. Þá kemur út annað
bindið af ævisögu Halldórs Lax-
ness eftir Peter Hallberg. Ragn-
heiður Jónsdóttir sendir frá sér
nýja skáldsögu, og sömuleiðis
kemur út stór skáldsaga eftir
óþekkta skáldkonu austan úr
Lóni. Þesita er nokkuð af því, sem
við gefum út eftir eldri höfunda,
sagði Ragnar Jónsson við frétta-
menn í fyrradag.
Yngri höfundar.
Fyrr á þessu ári gaf Helgafell
út nokkrar bækur eftir yngri höf
unda, og enn er von nokkurra
bóka frá ungum höfundum. Á
næstunni er von á skáldsögu eftir
Jóhannes Helga og ljóðabókum
eftir þrjú ung ljóðskáld, þá Sig-
urð A. Magnússon, Jón frá Pálm-
holti og Dag Sigurðsson. Þá er
og von á síðara bindinu af Sól-
eyjarsögu eftir Elías Mar.
Þýtt og þjóðlegt.
Enn ber að nefna bók eftir
Ge.v’ r'rieg, um mann hennar
Nordahl Grieg, sem kemur á
markaðinn bráðlega. Sömuleiðis
tvö síðustu bindin af þjóðsögum
Sigfúsar frá Eyvindará. Þá mun
Helgafell gefa út myndabók um
Nínu Tryggvadóttur listmálara.
Forlagið hefur einnig lagí í út-
gáfu á sögu eftir Laxness í enskri
þýðingu. Er það Ungfrúin góða
og húsið (The Honour of the
House) í þýðingu Kenneths Chap
manns, en henni fylgir grein um
skáldið eftir Kristján Karlsson.
Barnabækur
Af barnabókum Helgafells nú
fyrir jólin má nefna nýja útgáfu
af Krakkar mínir komið þið sæl,
eftir Þorstein Ö. Stephensen með
myndum eftir Halldór Pétursson
ag Dýrasögur Þorgils gjallanda,
með teikningum eftir Kjartan
Guðjónsson.
kvöhl
verður haldið n. k. m.„. .xudag
á vegum Ferðadeildar Heimdall-
ar. Þeir Heimdellingar, sem hafa
hug á því að taka þátt í skemmt-
uninni vinsamlegast hafi sam-
band við skrifstofu félagsins í
Valhöll við Suðurgötu, sími 17102
ekki síðar en kl. 5 e. h. n. k.
laugardag.