Morgunblaðið - 13.11.1958, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.11.1958, Qupperneq 9
FimmtiiVlaeur 13. nóv. 1958 mOKClTSBLAÐlb 9 75 ára i dag: Péfur Magnússon frá Eyri EINN af hinum gömlu og góðu Kjósverjum er 75 ára í dag, eins og yfirskriftin bendir til. Hann er fæddur að Laxárnesi í Kjós, 13. nóvember 1883. Voru for- eldrar hans hjónin Ingileif Jör- undsdóttir og Magnús Jónsson. Bjuggu þau í Laxárnesi, þar til I þau fluttu að Eyrarkoti (nú Eyri) árið 1908. Pétur vandist snemma algengri sveitavinnu, enda lið- tækur í bezta lagi. Var hann kappsfullur við verk, og sparaði sig hvergi. Magnús faðir hans fór til sjós á vertíðum, eins og þá var al- gengt um sveitamenn, er þeir höfðu náð nokkrum þroska. Voru þeir lengi á sjó saman, Guðmundur á Valdastöðum og Magnús. Héldu þeir þá til í Kláþparholti á Vatnsleysuströnd. Voru þeir tveir á 4 manna fari. Farnaðist þeim vel, enda sam- Magnús Vernharðs■ son sextugur SEXTUGUR er í dag, Magnús Vernharðsson, starfsmaður hjá Eimskipafélagi fslands h.f. Magn- ús er maður kyngöfugur í alla ættiiðu og þó öllu framar í föð- urætt. Standa að honum þeim megin fræðimenn miklir og fyr- irhyggjumenn, búmenn góðir og auðmenn; er fólk flest fastlynt, stórbrotið um skapsmuni, fas og framkvæmdir allar, ótrautt til fjárafla og fjárgæzlu, en þó við rausn og höfðingskap jafnan. Hefir Magnús erft í ríkum mæli flesta þessa kosti ættar sinnar. Magnús hefir alla tíð verið ein- dreginn fylgismaður sjálfstæðis- stefnunnar, og því hafa stefn- ur eins og sósialismi og sam- vinnuhreyfingin, — ef stefnur skyldi kalla, — ekki átt upp á pallborðið hjá honum. Þrátt fyrir sextugsaldurinn er Magnús enn hinn sprækasti, svo að vel gætu þess vegna birzt af honum trúlofunarfregnir í blöð- unum þessa dagana, ef eigi væri hann frábitinn öllu slíku. Magnús hefir alla ævi mjög haft yndi af ferðalögum, bæði utanlands og innan, enda gerzt svo víðförull um sína daga að slíks eru fá dæmi um íslending. í dag mun Magnús enn leggja land undir fót og verða fjarverandi úr bæn um. Vinir hans og kunningjar árna honum eigi að síður allra heilla vegna þessa merkisdags í lífi hans. — Vinur. Sex nýjar brýr í f jórum sýslum AKRANESI, 11. nóv. — í vor og sumar hefur Kristleifur Jóhann- esson frá Sturlureykjum, eins og undanfarin ár, unnið að brúar- smíði. Hann hefur haft 10 til menn í þjónustu sinni, eftir þörfum á hverjum stað. Smíðað- ar hafa verið 6 brýr í 4 sýslum. Fyrsta brúin var byggð yfir Geirsá í Reykholtsdal, 14 m löng, önnur yfir Kaldá hjá Húsafelli í Hálsasveit, 14 m., sú þriðja yfir Þverá í Norðurárdal, hjá Her- mundarstöðum, 13 m. löng, og sú fjórða og lengsta þessara brúa yfir Kaldá hjá Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi í Snæfells- nessýslu, og er hún 30 m. að lengd. Fimmta brúin var byggð yfir á Fellsströnd, nálægt Litlu- tungu, 15 m. löng og sú sjötta yfir ána Skraumu í Hörðudal, báðar í Dölum. Hún er 18 m. löng og byggð yfir djúp gljúfur, svo að 15 m. eru frá brúnni niður að vatnsborði Skraúmu. Búizt er við, að brúarsmíðinni yfir Skraumu ljúki í þessari viku. — Oddur. hentir mjög og báðir hinir mestu dugnaðarmenn. Var Magnús sér- staklega hneigður fyrir ýmsan veiðiskap. Hygg ég að slíkt hafi einnig búið með Pétri, en hann átti síður kost á að stunda hann, sökum þess, að útróðrar lögðust þá smám saman niður, þegar Pét- ur hafði aldur til þess að fara á sjó. Enda var nóg að starfa í sveitinni, þar sem fólki fór þá líka smáfækkandi, og því óhæg- ara að fara að heiman. Árið 1909 kvs^ntist Pétur Guð- rúnu Ólafsdóttur frá Bæ, ágætri og dugmikilli konu. Hófu þau búskap að Eyri sama ár, en árið 1938 fluttust þau til Reykjavíkur. Síðan Guðrún andaðist 1944, hefir Pétur búið með dóttur sinni. Meðan Pétur átti heima hér í sveitinni, reyndist hann bezti nágranni og hinn ágætasti starfs- maður í málefnum sveitar sinnar. Hann var mörg ár í stjórn Bræðra félags Kjósarhrepps, og var þar, sem annars staðar, traustur og góður félagsmaður. Alllöngu áð- ur en Pétur flutti til Reykjavík- ur, hafði hann lært trésmíði, hjá hinum dugmikla ágætismanni Guðmundi Þórðarsyni frá Neðra- Hálsi. Þá iðn hefir Pétur stundað síðan hann flutti til Reykjavík- ur. Vann hann lengi hjá Eyjó'lfi Jóhannssyni framkvæmdastjóra. Pétur er mikill iðjumaður, og vinnur nú dag hvern við smíðar sem ungur væri. Pétur á he.ima á Nönnugötu 9 í Reykjavík og býr þar með Ólafíu dóttur sinni, sem fyrr segir. Annað barn þeirra hjóna var Magnús, en hann dó á bezta aldri. Var þá hálfnaður með nám við háskólann í Stokk- hólmi. Var hann talinn hinn mesti efnismaður, sem miklar vonir voru tengdar við. Pétur er einn af þessum traustu og góðu félögum, sem ávinningur er að vera með, glaður og reifur í vinahópi. Traustur og áreiðan- legur í orðum og athöfnum. Pét- ur er sannur Sjálfstæðismaður. Og ég hygg að önnur sjónarmið í stjórnmálum hafi ekki gripið hug hans enn sem komið er. Gamla og góða kynningu þakka ég af heilum hug, og óska Pétri heilla og blessunar, það sem enn er ófarið. — St. G. Sendill Okkur vantar duglegan sendil. Vátryggingafélagið hf. Klapparstíg 26. Stúlka óskast til afgreiðslustarfar strax. Upplýsingar kl. 2—4. Austurbar Sími 19611. íbúB Óska eftir að taka á leigu 2ja til 3ja herb. íbúð. Uppl. á Skoda verkstæðinu sími 32881. FiR KAUPANDI AÐ 3ja-4ra herb. íbúð Otb. kr. 200 þús. Tilboð merkt: „lbúð — 7261“ sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld. VANTAR 2ja-3ja herb. íbúð STRAX. KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, hljómsveitarstjóri. Bólstaðarhlíð 35 — Sími 33755. Árshátíð STÚDENTAFÉLAGS IIÁSKÓLANS verður í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst kl. 7. Aðgöngumiðar seldir þar kl. 3—5 í dag. STJÓRNIN. Cóð 2ja herbergja ihúb í nýju fjölbýlishúsi, til leigu, um óákveðinn tíma. Tilboð send ist fyrir laugardag, merkt: „Fyrirframgreiðsla — 7254“. Ungur maður, sem hefur bíl- próf, óskar eftir vinnu til jóla. — Æskilegt að fæði og húsnæði geti fylgt. Tilb. merkt: „Ungur — 18 — 7258“, legg- ist inn á afgr. Mbl., fyrir 14. þessa mán. Vil kaupa nú þegar, 150 stk. af hænu- ungum, sem eru að komast í varp. Upplýsingar í síma 12622. — Tapazt hefur Stáleldhússtóll með rauðu áklæði, á leiðinni vestur úr bæ að Álfheimum. — Uppl. gefnar í síma: 22185. Tek að mér að sníða og sauma barnafatnað, Björg Ólafsdóttir Ægisgötu 10. Sími 12657. Þvottapottur Óska eftir að fá keyptan kola- kyntan þvottapott. Upplýsing- ar í sima 50726. Heimavinna Stúlka óskar eftir heimavinnu. Helzt við léttan saumaskap. Þarf að vera sniðið. — Margt annað kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl., fyrir laug- ardag, merkt: „Heimavinna ■ 7259". — Sem ný miðstöbvar eldavél til sölu á tækifærisverði. ■ Upplýsingar í síma 19625. — Saumavél til sölu Til sölu er sem ný verkstæðis-. vél, fyrir gróf efni. Upplýsing ar £ síma 13866, eftir kl. 7 á kvöldin. — Piano Notað ameriskt píanó (Estey), til sýnis og sölu á Bárugötu 15, efri hæð (alla eftirmið- daga). — Volkswagen bifreið model 1955, til sölu. Tækifæris- verð. Sími 24291 eða 34051. Dugleg stúlka óskast í eldhús Kleppsspítalans. — Upplýsingar hjá ráðskonunni, milli kl. 3 og 5 e.h. Sími 34499. Jeppi óskast Willy’s jeppi ’46—‘47, með blæj um eða lélegu Kristinshúsi, ósk ast til kaups. Uppl. í síma 12867, eftir kl. 8 á kvöldin. Bifvélavirkjar óskast Tilboð með upplýsingum, Iegg- ist inn á afgr. blaðsins fyrir laugardagskvöld, merkt: — „Starfsamur — S — 7260“. Kuldaúlpur í miklpu úrvali. Laugavegi 116 og Austurstræti 10 Citroen bifreið til sölu. Selst ódýrt eða í skiptum fyrir 4ra manna bíl, eldra en 46 model kemur ekki til greina. Má vera ó gangfær, Uppl. í síma 15013, eftir kl. 3 eftir hádegi. Tilboð óskast í nýju Praktica FX2 myndavél. Linsa: Tessar 2,8/50. Tilboð sendist í Box 458. Kuldastigvél kvenna og karla. — Volksvragen árg. 1956, til sölu, keyrður 25100 km. — Upplýsingar í sima 18127. — Barnavagn (Itkin), sem nýr. Grár, á há- um hjólum. Verð kr. 2.200,00 Til sölu að Selvogsg-unni 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.