Morgunblaðið - 13.11.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.11.1958, Blaðsíða 10
10 M O R C T’N fí 14 Ð I Ð Fimmtudagur 13. nóv. 1958 Utg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 35.00 á mánuð; innaniands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. NEYÐARKÖLLIN AF STRANDSTAÐNUD/I EGAR núverandi ríkis- stjórn var að undirbúa valdatöku sína gaf hún mörg loforð og stór. Flest hafa þau verið svikin eins og almenn- ingi er kunnugt. Við eitt hefur þó verið staðið. Það er að skáka Sjálfstæðisflokknum og mönnum hans alls staðar frá völdum og yfirráðum á vegum hins opinbera. Þetta hefur verið framkvæmt af bandalaga-stjórninni. En samtím- is þessu eru blöð og málpípur hinna sömu stjórnarflokka sí og æ að útmála það að öll ósköpin, sem skeð hafa á valdatíma þess- ara msnna séu hinum vaioalausu Sjálfstæðismönnum að kenna, rétt eins og þeir hafi mestu ráðið þegar búið var að setja þá frá öllum völdum. Þetta mun einkum stafa af því, að fátt gott hefur fylgt vinstri stjórninni. Flest hefur þar stefnt til niður- dreps á framtíðarvegi bjóðfélags- ins. Þar má einkum minnast á: ægilegustu útgjaldahækkun, sem sögur fara af, ásamt til- svarandi skuldahækkun hjá er- lendum þjóðum. í kjölfarið hefur svo fylgt, að eðlilegum hætti, ofboðsleg hækkun á öllu verð- lagi með samsvarandi vísitölu- og kaupskrúfu. Þrátt fyrir öll erlendu lánin hrúgast upp gjald- eyrisskuldir við erlenda banka og fyrirtæki, svo engin sambærileg dæmi finnast áður eftir upplýs- ingum aðalbankastjóra Seðla- bankans Vilhjálms Þórs. Á þessum vegi eltir hver draug urinn annan með sívaxandi áhrif um eins og stundum gerðist í gamla daga. Og stjórnarherrarnir, sem sjálfir hafa vakið upp aila þessa drauga hamast við að reyna að koma sér vel við þá, en ráða ekkert við þá. Þeir magnasí allir því meira, sem að þeim er betur hlúð, af feðrum þeirra og fóstr- um. Glötunarleiðin er hlaupin svo óðfluga, að hið óumflýjanlega strand eða hrap getur ekki verið langt undan. Það er þess vegna gripið til þess ráðs að sjálfir sakaraðilarnir gera sitt ýtrasta til að reyna allar hugsaniegar að- ferðir til að kenna saklausum mönnum um öll ósköpin. Og það einmitt hinum sömu, sem þeir hæla sér af, að hafa tekið af öil völd. Hér gildir enn hið gamla, að sagan endurtekur sig. Þegar „vinstri stjórnin" fyrri, sem hafði völd á fjórða tug þess- arar aldar, var búin að starfa tæp 5 ár, þá var hennar skip að brotna við strandklettana. Alþýðuflokk- urinn var búinn að bjarga sér af fleytunni, rétt eins og bau dýr gera, sem eru svo vitur, að sjá strandið og væntanlegan dauða á næstu grösum. Foringjar Framsóknar voru því einir til stjórnar, þegar synt þótti að strandið varð eigi umflúið. Þá sendu þeir út neyðarkall til Sjálfstæðismanna, svo sem al- þjóð er kunnugt. Þeir báðu um björgun frá algerri tortímingu. Sjálfstæðismenn hafa fyrr og síðar verið góðviljaðir og hjálp- fúsir við nauðstadda menn. Þeir komu því til bjargar eftir upp- gjöfina 1939. Vildu þó sumir lofa draslinu að sökkva svo sem það hafði til unnið. Nú er sama sagan að gesast. En henni er ekki eins langt kom- ið. Stýrimaðurinn á fjármála- skútunni er hinn sami og fyrri daginn, eða Eysteinn Jónsson. Hann sendi út hið skerandi neyð- arkall 1939 og á síðasta vori byrj aði sama sagan. „Hvað vilja Sjálf stæðismenn?" hrópaði hann. Og það neyðarkall hefur hann marg oft endurtekið síðan, í Alþingi, á fundum, í Tímanum og í út- varpinu. Allir viti bornir menn sjá og skilja, að í þessu neyðar- ópi felst margt, en þó einkum þrennt. í fyrsta lagi það, að nú sé hin yfirlætisfulla vinstri stjórn ráðalaus og verði að fá hjálp eins og í gamla daga. Annað það, að helzt væri hjálpar að vænta frá Sjálfstæðismönnum. Og í þriðja lagi það, að nú séu allir draug- arnir, sem upp voru vaktir orðnir svo magnaðir, að ekkert sé hægt við þá að ráða, nema þeir menn komi til aðstoðar, sem fyrr og síðar hafa varað við draugahers- ingunni, en bandalagaherrunum þótti mestu varða að setja frá völdum og ráðum, þ. e. gera þá áhrifslausa eins og þeir hrósa sér mest af. ★ En nú er búið að koma þannig fram við Sjálfstæðismenn og þá stefnu sem þeir hafa fyrr og síðar fylgt, þ. e. stefnu ráðdeiídar og sjálfsbjargar, að ekki er víst að þeir verði eins fúsir til hjálpar við gjaldþrotaliðið eins og þeir voru 1939. Þeir bíða átekta og vilja gjarn- an að glæfraliðið hlaupi á leiðar- enda og gangi sér til húðar. Þeir sjá og skilja og vita, að núverandi stjórnarherrar haga sér nákvæm lega eins og sá forstjóri, sem stefnir sínu fyrirtæki vitandi vits út í gjaldþrotafenið. Hann gerir allt til þess að raka fjármunum og fríðindum til sín og sinna á meðan eitthvað er að hafa í eign- um, tekjum, iánum og ábyrgðum. Hann veit að þrotið er óumfiýj- anlegt. Að því hlýtur að reka Og honum er ljóst, að skiptaráðand- inn verður að taka við þrotabú- inu. Slíkur maður lætur sér í léttu rúmi liggja, þó- litlu verði að skipta, og þó hvers konar örðug- leikar steðji að þegar svo er komið. Á sama veg hugsa þeir, sem mestu ráða í „vinstri" stjórninni. Þeir vita, að Sjálfstæðismenn hljóta að komast í hina erfiðu að- stöðu skiptaráðandans. Og Sjálf- stæðismenn vita þetta líka. Þeir munu því ekki haggast neitt, þó að þeir fái nokkrum sinnum enn að heyra neyðarkallið af strandstaðnum, hrópað með hækk andi rödd, og vaxandi vesal- mennsku. Þeir ábyrgðarlausu ráðleys- ingjar, sem sigla fjármálaskipi þjóðarinnar beint að strandklett- unum mega vita það, að einhverj- ir hásetanna muni yfirgefa flak- ið áður en það brotnar í spón, eins og gerðist forðum daga. Þeg- ar þar að kemur er nógur tími til að gefa um það fyrirmæli, hvernig réttast sé að fara með strandið. Samningur Maríu Callas við Metropolitan ógiltur Þab er hægt oð setja óperur á svið annarsstaóar, svarar söngkonan NÝLEGA barst tilkynning um það frá Metropolitanóperunni, að forráðamenn óperunnar hefðu ákveðið að ógilda samninginn við ítölsku sópransöngkonuna Maríu Callas. Framkvæmdastjóri óper- unnar, Rudolf Bing skýrir svo frá, að horfið hafi verið að þessu ráði, þar sem óperusöngkonan hafi neitað að hlíta ákvæðum samningsins. Metropolitan hefir augastað á söngkonunni Leonie Rysanek frá Vínarborg til að taka við óperu- hlutverkum, sem Maríu Callas voru ætluð, á þessu leikári. —★— Óperufélögum í Bandaríkjun- um og Evrópu hefir þótt María Callas mjög duttlungafull, og hefir því æði oft slegið í brýnu milli hennar og forráðamanna óperufélaganna. Talsmaður Metropolitanóper- unnar segir, að María Callas hafi fyrir nærri ári undirritað samn- ing fyrir yfirstandandi leikár. Hún krafðist þess, að í samningn um yrði sérstakur listi yfir þær óperur, sem hún ætti að syngja í. Þann 27. okt. sl. tilkynnti Call- as Metropolitanóperunni, að hún vildi ekki syngja í La Traviata, en sú ópera var einmitt ein af þeim, sem voru sérstaklega nefndar á listanum í samningn- um. —★— ■ Marla Callas er nú I hljóm- leikaför um Texas. Er henni bár- ust fregnir af því, að samningur hennar við Metropolitan hefði verið ógiltur, kvaðst hún vera mjög hissa á þessum viðbrögð- um Bings framkvæmdastjóra: — Vafalaust verða margir New York-búar, sem hefir langað til að hlusta á mig syngja, fyrir vonbrigðum végná þessarar á- kvörðunar framkvæmdastjórans. Ég hefi reynt að skapa list, en herra Bing vill ekki hafa sam- starf við mig. Ég get ekki sagt annað við hann en það, að hægt er að setja óperur á svið annars staðar en í Metropolitan! —★— Sópransöngkonan hefir þegar fengið skeyti frá Lyrisku óper- unni í Chicago, og eru forráða- menn þar mjög áfram um að ráða Callas til óperunnar. Bjóða þeir henni sömu laun og henni stóðu til boða við Metro- politan. . „La Callas" — tjaldið fellur — Synirnir snúa baki viö feðrum sínum — og flýja land ÉG ANN ÞÉR sem föður mín- um. Þegar ég les verk þín, held ég, að mér skiljist, hverju þú vildir sá, og hvað þú vildir leggja rækt við. En þegar mér verður ljóst, hvað rís af verkum þínum — myrkvi, sem á ný ógnar Evrópu — þá gleðst ég yfir því, að vegir okkar skyldu skiljast. Ungi maðurinn, sem ritaði föð- ur sínum svohljóðandi bréf, er sonur hins nýlátna menningar- málaráðherra Austur-Þýzkalands, Jóhannes R. Becher. Sonurinn sneri baki við föður sínum ár- ið 1949, flúði land og hefir síð- an unnið í verksmiðju í Englandi. Er faðirinn var jarðaður var ekkert barna hans viðstatt. ★ Becher yngri er einn af mörg- um sonum, sem ekki hafa getað umborið feður sína, sem verið hafa ráðamenn í flokksklíkunni í Austur-Berlín. Bert Brecht, einn atkvæðamesti leikritahöfundur í Þýzkalandi, varð fyrir því, að sonur hans, Stefán, sneri baki við honum. Þótti syninum faðir- inn gerast kommúnistum allt of handgenginn. Sonurinn vildi ekki láta segja sér fyrir verkum, flúði og skrifaði föður sínum biturt xveðjubréf, sem sýndi ljóslega, að sonurinn var einnig — eins og faðirinn á sínum tíma — reiðu búinn til að standa móti straumn- um. Stefán Brecht, sem nú býr í Bandaríkjunum, hefir eitt sér til huggunar: Nú vita menn, að á sínum síðustu æviárum þýddi Bert Brecht í laumi ljóð ung- verskra andkommúnista. Ef til vill hefir faðirinn skilið son sinn betur en hann þorði að láta uppi vegna flokksagans. Húsameistari hinna glæsilegu bygginga, sem reistar hafa verið við Stalín-Allee í Austur-Berlín, prófessor Werner Henselmann, varð einnig að sætta sig við, að sonurinn vildi ekki búa í komm- únisku þjóðfélagi. Sonurinn vildi heldur lifa í lýðfrjálsu landi, þó að sá kostur veitti honum ekki þá yfirburði, sem frægð föðurins veitti honum heima fyrir. Það fór á sömu leið fyrir Rud- olf Leonhard, einum af forráða- mönnum austur-þýzka kommún- istaflokksins. Sonur hans, Wolf- gang, flúði árið 1949 frá Austur- Berlín og gaf síðar í sjálfsævi- sögu sinni vægðarlausa lýsingu á hinu kommúniska þjóðfélagi. ★ Mischa Benjamin, einkasonur Hildu Benjamin, ráðherra í Aust- ur-Berlin, kvað hafa ætlað að flýja til Englands til að geta stundað nám í Oxford. Góðkunn- ingi Mischa, vestur-þýzki rit- htifundurinn Heinz Berg, segir svo frá, að „Rauða-Hilda“ hafi orðið að beita öllum sínum á- hrifum til að koma í veg fyrir slíkt hneyksli. Henni tókst að telja son sinn á að fara „af frjálsum vilja“ til náms við há- skólann í Moskvu. Æðsti maður Austur-Þýzka- lands, Otto Grotewohl, á einnig í erfiðleikum með son sinn, sem ekki vill ganga í kommúnista- flokkinn. Margir telja, að föðurn- um stafi jafnvel nokkur hætta af þessari ákveðnu afstöðu sonar- ins. Ekki fór betur fyrir Hermann Kastner, sem á sínum tíma var varaforseti. Sonur hans flúði til Vesturlanda. ★ Átakanlegast er þó, er faðirinn sýnst gegn syni sínum og skirrist jafnvel ekki við að láta draga soninn fyrir lög og dóm, af því Frarnh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.