Morgunblaðið - 18.11.1958, Síða 9
Þriðjudagur 18. nóv. 1958
m o r n i n l 4 ð i b
9
AKUREYRARKIRKJA 18 ára
Hinn 17. þ. m. eða í gær, var Akureyrarkirkja
18 ára gömul. 1 sumar og haust hefir verið unnið að ýmis
konar lagfæringum í kringum kirkjuna, svo og hefir Eyrar-
landsvegurinn verið lækkaður og breikkaður. Er að öllu þessu
mikil prýði og auðveldar og bætir umferðina. Myndin sýnir
nluta Eyrarlandsvegai- og svæðið norðan og vestan við
kirkjuna. — (Ljósm. vig.)
Hlustað
á útvarp
FOSTUDAGINN 7. þ. m. flutti
dr. Sigurður Þórarinsson, jarð-
fræðingur erindi er hann nefndi
sitt af hverju um Kötlugos.
Rakti hann sögu Kötlu frá fyrstu
tíð, og eftir þeim heimildum, sem
til eru, hefur Katla gosið 15 sinn-
um svo menn viti og er tímabil
milli gosa 40—60 ár eða þar um.
Nú eru 40 ár síðan hún gaus og
má því búast við að „hún komi“
hvenær sem er og það með litlum
fyrirvara. Þó taldi dr. Sigurður
að samkvæmt þeim frásögnum
er prestar o. fl. hafa eftir sig
látið komi ætíð jarðskjálftar í
grennd eldfj-allsins nokkrum
klukkutímum áður en jökulhlaup
ið hefst og öskugosið. Dr. Sig-
urður segist hafa fundið öskulag,
gamalt, frá Kötlu hér í nágrenni
Reykjavíkur, kvaðst hann hafa
rakið þetta lag um Suðurlands-
undirlendið. Svo miklu hefur
Katla þá spúð frá sér af ösku
yfir Rangárvalla- og Árnessýslur
og víðar, að ekki kvað 'Sigurður
neitt gras hafa komizt upp úr
jörð það sumar og engir kúa-
hagar verið. Þessu sama kvað
hann fólk verða að búast við ef
óhagstæð veðrátta verður næst
er fjallið gýs, sem sagt, að helztu
landbúnaðarhéruð okkar leggist
í auðn um hríð. Slíkitr óvættur
er Katla og er rétt að gera sér
fulla grein fyrir því að einhvern
tíma á næstu árum gýs hún,
hvort það verður að sumri eða
vetri veit enginn, heldur ekki
í hvaða átt æskan berst. En sjálf-
sagt virðist að bændur á Suður-
landi safni nú heyfyrningum sem
mest, til þess að vera við öllu
búnir.
★
Gaman var að ferðasögu frú
Sigríðar Björnsdóttur frá Mikla-
bæ, er hún fór með Ceres frá
Sauðárkróki til Reykjavíkur,
haustið 1907. Ég var í Reykjavik
þetta haust og man vel eftir sög-
unni af hinu hræðilega veðri er
skipið lenti í á Húnaflóa og vest-
ur fyrir Horn. Sagði mér maður
er var með skipinu, að er veðrinu
loks slotaði og sá til lands, þá
hefði skipið verið komið svo
langt norðvestur í haf, að vatnað
hefði upp í miðjar hlíðar vest-
fjarðafjalla. Ef til vill hefur
Ceres verið hætt komin er hún
slapp fyrir Hornstrandir, en þetta
fór nú allt vel að lokum. Frúin
sagði vel frá og var þetta skemmti
legur þáttur.
★
Fyrir Alþingi liggur nú frum-
varp til laga um framlengingu
starfstíma herra Ásmundar Guð-
mundssonar, biskups um allt að
5 ár, eða þar til hann verður 75
ára. Herra Ásmundur er maður
á bezta aldri hvað heilsu og
starfsþrek og starfsáhuga snertir.
Af því að um þetta frumvarp
hefur verið getið í útvarpsfrétt-
um og það rækilega rakið, finn
ég ástæðu til þess að geta þess
hér. Flestir hafa mælt með því,
að frumvarp þetta næði fram að
ganga, nema nokkrir þingmenn
Framsóknarflokksins, hver sem
ástæðan kann að vera. Það virð-
ist alveg sjálfsagt, að lögin um
starfstíma embættismanna og
starfsmanna á opinberum skrif-
stofum séu endurskoðuð. Öll
skynsamleg rök mæla með því að
sjötugir menn með fulla starfs-
orku og starfslöngun fái að
halda áfram í fimm ár með full-
um launum ef heilsa og áhugi
helzt. Hitt er jafnsjálfsagt og
nauðsynlegt að menn fái að hætta
með eftirlaunum er þeir hafa
náð 65 ára aldri ef heilsa og þrek
er bilað. Þessi lagabreyting
mundi spara ríkinu mikið fé, því
fjöldi embættismanna og starfs-
manna vill og getur unnið fullt
verk langt fram yfir sjötíu ára
aldur.
★
Laugardagsleikritið Marty eftir
P. Chafsky var skemmtilegt og
vel samið útvarpsleikrit. Það er
þýtt af Magnúsi Pálssyni, leik-
stjóri var Helgi Skúlason. Nokk-
uð spillti þó hávaðasöm músík
sem oftast dundi á hlustendum og
það oft svo að varlá eða ekki
heyrðist það, er leikendurnir
sögðu. Þessi eilífa músík með
töluðu máli, jafnvel meðan verið
er að lesa morgunbænir, er mér
óskiljanleg.
Á sunnudaginn hófust erindi
(flokkur) um gríska menningú.
Fyrsta erindið:Um leiklistí Aþenu
flutti dr. Jón Gíslason, skólastj.
Var það mjög fróðlegt og gott
erindi. Tel ég víst að mörgum
þyki gott að fá þennan fræðslu-
flokk erinda um hámenningu
Hellena og að þeir sem á hlusta
fái þar mikinn og staögóðan fróð-
leik, sem þeir geti búið að um
langa hríð.
TÍr
Eins og ég bjóst við ætlar
þáttur Sveins Ásgeirssonar Vog-
un vjnnur og vogun tapar, að
verða mjög vinsæll. Yfirhöfuð ma
margt gott um þáttinn segja. Það
verð ég þó að segja, að ekki finnst
mér rétt að menn fái að halda
áfram getraununum eftir að þeir
hafa ekki getað svarað, eða hafa
svarað rangt. Það verður að vera
skilyrðislaus regla að þá séu
menn úr leik og tapa fé því, er
þeir kunna að hafa unnið. Undan-
tekningar mega engar vera, því
þær skapa fordæmi, sem ekki
verður auðvelt að komast fram
hjá. Strax á öðru kvöldi var til-
kynnt, að maður einn fengi að
halda áfram, þótt hann heíði ekki
getað svarað öllum spurningun-
um. Að vísu var spurningin erfið
og maðurinn hafði staðið sig vel,
rn það var ekki nægiiigt. Spurn-
i.-garnar eiga að vera þungai. !\
d. ei „próf“ það, sem garðyrkju-
maðurinn er að taká allt of létt.
Mcigir vel menntaðii garðyrkju-
ii'enn vita allt um girrækt, svið-
ið eða efnið allt of þröngt og
enginn vandi fyrir gáíaðan og
menntaðan fagmann að svara
rétt. Það væri eðlilegt, að flestir
töpuðu, þeir er halda út til enda,
en útlit er fyrir að flestir eigí
að vinna. — Hinn liður þáttarins,
að leita eins af þremur, er satt
segir, hver hann er, er líka góður
en óþarflega hrottalegur var eirn
spyrjandinn á sunnudagskvöldið
var. Hann fór út fyrir ramma
sjálfsagðrar kurteisi.
★
Á mánnudaginn ílutti Helgi
Tryggvason, kennari, ágæta hug-
vekju um skóla og kristinsdóms-
fræðslu. í stuttu máli verður efni
ræðunnar ekki rakið. Þó vil ég
geta þess, að hann kvað húsnæði
það, er Kennaraskólinn hefur allt
of lítið og þröngt.
Páll Kolka, héraðslæknir, flutti
! skemmtilegt og fróðlegt erindi
er hann nefndi Kandidat á vest-
urvegum. Var það frásögn, eða
öllu heldur, svipmyndir frá dvöl
hans í New York á yngn árum.
Vann þar í sjúkrahúsum og mun
hafa verið fyrsti læknirinn er
stundaði framhaldsnám þar í
landi. Frásögn Páls læknis var
Um 1780 tonn af
karfa bárust
í SÍÐUSTU viku lönduðu 6 tog-
arar karfa af Nýfundnalandsmið-
unum, alls rúmlega 1780 tonnum.
Yfirleitt voru togarar þessir 14
daga í veiðiförinni, en slíkt má
teljast mjög gott, og fullfermi
eru þeir með eftir 3ja—5 daga
veiðar. Hér á heimamiðum hefur
aflinn verið tregur undanfarið
og frátafir vegna storma á djúp-
miðunum.
Togararnir sen* lönduðu eru:
Marz 321 tonn, Hallveig Fróða-
dóttir 306, Jón forseti 326, Úran-
us 297, Austfirðingur 260 og í
gærdag var verið að losa um 270
tonn af karfa úr Fylki.
Ekki er von á fleiri togurum af
fjarlægum miðum fyrr en á mið-
vikudaginn.
Næsta löndun á ísfiski í Þýzka
landi er á morgun, mánudag, en
: þá landar þar togarinn Vöttur
sem er með um 200 tonn af mjög
sæmilegum fiski héðan af heima-
1 miðunum.
fjörug og lifandi og eru slíkií
útvarpsþættir vel þegnir og vin-
sælir.
Á föstudaginn var útvarpað
bókmenntakynningu sr. Sigurðar
Einarssonar. Gekkst Alm. bóka-
félagið fyrir kynningu þessari 2.
þ. m. og fór hún fram í hátíðasal
Háskóla íslands. Sér; Siguiður
er löngu þjóðkunnur rnaður,
mjög snjall mælskumaöur, golt
skáld og ætíð framarlega ' flokki,
hvar sem hann tekur sér stöðu.
Þar er enginn meðaimaður né
lognþoka. Ræða Guðmundar
skálds Daníelsson var röggsamleg
og kröftug, líkti hann séra Sig-
urði við spámennina Amos og
Esajas og Pál postula. Minna
mátti kannske gagn gera. Þó gæti
ég vel trúað því um sr. Sigurð,
að hann væri reiðubúinn -til að
gerast pislarvottuT fyrir sína trú
frekar en flestir aðrir menn. Svo
er skap hans mikið og sannfær-
ingarkraftur.
Þorsteinn Jónsson.
NÁUNGI nokkur í Hammerfest i
Noregi var um daginn dæmdur
í 60 daga fangelsi fyrir að
stela 220 krónum. Maðurinn er
gamall kunningi lögreglunnar,
því að hann hefir oft áður brotið
af sér. — Þegar dómurinn var
lesinn upp yfir honum, breiddist
gleðibros yfir andlit hans, og
hann hrópaði: Beztu þakkir — ég
bjóst við að fá ekki minna en
tvö ár!
KEPPNl
eignast?
1. Rafmagnseldavél (PHILCO) frá O. J. & Kaaber hf.
2. Strauvél (BABY) frá Heklu hf.
3. Hrærivél (KENWOOD) frá Heklu hf.
Innan skamms munum vér bjóða öllum landsmönnum þátt-
töku í verðlaunakeppni.
Vér munum aðeins leggja fyritr yður 6—10 mjög auðveldar
spurningar sem þér eigið að svara — og senda öll svörin til vor
að lokinni keppni. Nauðsynlegt er að skrifa greinilegt nafn og
heimilisfang á spumarseðilinn.
Verði mörg svör rétt, verður dregið um verðlaunin, og nöfn
þeirra sem þau hljóta hirt að lokinni keppni.
VERÐLAUNIN ERU:
1. PHIILCO rafmagnseldavél
2. BABY-strauvél
3. KENWOOD-hrærivél
Vér munum birta spumingar í öllum daghlöðum bæjarins
næstu fjóra sunnudaga (nema í Vísi á mánudögum) og er sama
úr hvaða blaði þér klippið spurnarseðilinn- — Verðlaun verða
afhent 3. janúar 1959.
Svör verða að berast fyrir kl. 12 á hádegi 2* janúar n.k.
Fyrsta spurningin verður birt 23- nóvember, og væntum vér
þess að allir verði með.
Tryggingamiðstöðin h.f.
Aðalstræti 6 — Pósthólf 1412.
VERfiLAUIIIA
Langar yður til að