Morgunblaðið - 25.11.1958, Síða 1
20 siður
45. árgangur.
270. tbl. — Þriðjudagur 25. nóvember 1958
Prentsmiðja Morganblaðsin*
De Gaulle fær ítrekað traust
frönsku þjóöarirmar
En kommúnistar stórtapa ötkvæðum
PARÍS, 24. nóv. (NTB-Reuter) — Úrslit frönsku þingkosninganna
á sunnudaginn urðu fyrst og fremst glæsilegur sigur fyrir de Gaulle.
Að vísu hafði hershöfðinginn ekki lýst blessun sinni yfir einum
flokki öðrum fremur, en flokkur sá sem Soustelle stjórnar var þó
talinn hreinræktaðastur Gaullista-flokkur og vann hann mikinn
sigur. — Hins vegar töpuðu þeir flokkar stórlega, sem opinberlega
voru andstæðir de Gaulle, svo sem Kommúnistaflokkurinn og and-
gaullistabandalag það sem Mendés-France veitti forustu. Var flokk-
ur Mendés-France grátt leikinn og náði það hámarki er Mendés-
Franee sjálfur féll í sínu gamla kjördæmi, Eure í Normandy, sem
hann hefur verið þingmaður fyrir síðan 1932.
armannaflokkur Mollets með
15,5%, íhaldsflokkur Pinayes
með 13,7% atkvæða og hinn
Kaþólski flokkur Bidaults með
9,1%.
Næsta sunnudag verður svo
önnur atrenna kosningannaT Á þá
að kjósa heima í Frakklandi 423
Kjósa skal 465 þingmenn til
franska þjóðþingsins. 1 fyrstu
atrennu kosninganna, sem fram
fór í gær náðu af 3000 fram-
bjóðendum aðeins 42 kosningu,
þ. e. fengu hreinan meiíihluta í
sínu kjördæmi.
Þessi 42 þingsæti skiptast
þannig:
íhaldsflokkur .......... 17
Gaullistar Soustelles .... 9
Kaþólski flokkurinn .... 9
Radikalir ............... 3
Jafnaðarmenn ............ 2
Kommúnistar ............. 1
Aðrir .................. 1
Kommúnistar eru enn stærsti
flokkur Frakklands, en misstu
stórlega fylgi frá síðustu kosn-
ingum. í síðustu kosningum fyrir
tveimur árum höfðu þeir 25%
heildaratkvæða en nú aðeins
18,9%. Þýðir þetta fylgistap sem
nemur 1% milljón atkvæða.
Næststærsti flokkurinn reynd-
ist Gaullistaflokkur Soustelles,
sem hlaut 17,6% heildaratkvæða.
Næstir honum koma svo Jafnað-
þingmenn til viðbótar og mun
frambjóðendum nú fækka veru-
lega, því að í flestum kjördæm-
um munu aðeins verða tveir
frambjóðendur, einn kommúnisti
og einn borgaraflokksmaður. —
Mun því hagað svo í flestum til-
fellum, að sá maður verður í
kjöri, sem flest atkvæði hlaut í
kosningunum í gær.
Borgaraflokkarnir eru nú að
skipuleggja herferðina gegn
kommúnistum og munu þeir
sameinast gegn þeim í langflest-
um kjördæmum landsins, svo að
búast má við gð þingfylgi komm-
únista hraki mjög þegar þjóð-
þing Frakka kemur næst saman.
Á föstudaginn hefjast þing-
kosningar í Alsír og eiga að
Ungur stúdent vildi selja
hernaðarleyndarmál
Osló, 24. nóv. —
UNGUR norskur stúdent
hefur gerzt sekur um til-
raun til njósna. Mál hans
þykir eitt stærsta hneykslis-
mál, sem upp hefur komið
í Noregi. Upp um það komst
þó aðeins af tilviljun, vegna
þess að hinn tvítugi stúdent,
Karsten Magnus Gunne-
stad skaut norskan lögreglu
mann niður með skamm-
byssu á götu í Oslo. Hafði
lögreglumaðurinn komið að
honum, þar sem hann var að
brjótast inn í bíl.
Þegar lögreglan fór að rann-
saka mál stúdentsins fann hún í
herbergi hans mikinn hlaða af
leyniskjölum frá norska hern-
um. Hafði Gunnestad verið starf-
andi sem dulmálslesari hjá
norska hernum, er hann gegndi
herskyldu sinni og þá notað tæki
færið til að taka afrit af miklum
fjölda leyniskjala. Hefur komið
í ljós við þessa rannsókn, að ör-
yggisreglum hjá norska hernum
er mjög ábótavant. Fékk Gunne-
stad margsinnis tækifæri til að
vera einn inni í dulmálslykla-
deild norska hersins að nætur-
lagi.
Gunnestad og félagi hans Thor
Ivaas gerðu ítrekaðar tilraunir
til þess að selja útlendum sendi-
ráðum þessi skjöl. Er vitað að
þeir höfðu samband við þrjú aust
ræn sendiráð og tvo hernaðar-
sendifulltrúa. Ekki vildu þeir
kaupa skjölin, en vel má vera að
þeir hafi notað tækifærið, er þeir
fengu þau til athugunar og ljós-
myndað þau.
Það sem vekur einna mest
hneyksli meðal fólks er hve ör-
yggisreglur norska hersins eru í
algerum molum. Kemur í ljós, að
ungum og óreyndum mönnum
hafa verið falin ábyrgðarmikil
störf við notkun dulmálslykla og
að litlar hömlur eða eftirlit hef-
ur verið með þeim. Hefur nú þeg-
ar verið ákveðið að herða á ör-
yggismálum hersins.
standa fram á helgi. Þar á að
kjósa 67 þingmenn á þjóðþing
Frakklands. % hlutar fulltrú-
anna verða að vera Serkir.
Auk Mendés-France féll í kosn
ingunum í gær Joseph Laniel,
sem fyrir nokkru var forsætis-
ráðherra Frakklands. Og ýmsir
aðrir kunnir stjórnmálamenn
eru í hættu, þótt vera megi að
þeir bjargist í kosningunum
næsta sunnudag. Þeir sem hætt
eru komnir eru m. á. Edgar
Faure, Maurice Bourgés-Maun-
oury, Eduard Daladier og Paul
Ramadier, sem allir hafa verið
forsætisráðherrar á síðustu ár-
um. Einnig er Christian Pineau
í hættu, en hann gegndi löngum
embætti utanríkisróðherra síð-
ustu ár.
Jacques Soustelles,
foringi Gaullistaflokksins, sem
varð annar stærsti flokkur
Frakklands í þingkosningun-
um ; gær.
Ráðizt yfir marka-
línuna í Berlín
íruk lýsir yfir
12 mílna land-
helgi
BAGDAD (skv. Times í London).
— Stjórn Iraks hefur lýst yfi*
12 mílna landhelgi en hefur til-
kynnt um leið að hún sé reiðo-
búin að ræða allan réttarágrein-
ing við nágrannaríki sin og leysa
hann á friðsamlegan hátt.
Landhelgi Iraks nær aðeins y(
ir botn Persaflóa, en vel má vera
að ágreiningur rísi upp um land-
helgismörk milli íraks annars
vegar en Kuwait og Persíu hins
vegar.
Ákvörðun íraks um víkkun land
helginnar sýnir að sérstök á-
herzia verður lögð á að koma upp
stórri olíu-útskipunarhöfn suður
af Bazra. Eroi áætlanir þegar til-
búnar um gerð þessarar hafnar.
Végna þess að grynningar eru
miklar á þessum slóðum var hin
áætlaða höfn fyrir utan hina
gömlu landhelgi íraks og var því
nauðsynlegt að lýsa yfir stærri
landhelgi áður en framkvæmdir
gætu hafizt.
Berlín, 24. nóv. (Reuter).
BANDARÍSKA herstjórnin í
Berlín sendi rússnesku her-
stjórninni í Austur-Berlín í dag
mótmæli vegna árásar austur-
þýzkrar lögreglu vestur fyrir tak
markalínu þá, sem skilur á milli
eystri og vestari borgarhlutans.
Atvik urðu sem hér segir:
Þýzkur IjósmyndatÖkumaður,
Ernst Lechner að nafni, 37 ára,
stóð á Potsdamer-torginu. Yfir
torg þetta liggur markalínan.
Stóð ljósmyndarinn í Vestur-
Berlín, en var að taka ljósmynd
af varðstöð austur-þýzku lög-
reglunnar, hinumegin á torginu.
Myndir þessar var hann að taka
fyrir bandarísku sjónvarpsstöð-
ina Columbia Broadcasting Syst-
em.
Allt í einu þustu austur þýzk-
ir lögreglumenn yfir torgið og
skipuðu Lechner að koma með
þeim inn á rússneska hernáms-
svæðið. Lechner neitaði því.
HARGEISA, Somalilandi, 22.nóv.
— Hertoginn og hertogaynjan af
Gloucester eru á ferð um
Somaliland sem sérlegir sendi-
boðar Elisabetar drottningar. —
Hertoginn hélt í dag þrumandi
ræðu yfir skátadrengjum í Har-
geisa, en hertogaynjan lagði á
meðan hornstein að fyrsta
kvennaklúbbnum á staðnum.
Tóku lögreglumennirnir þá frá
honum ljósmyndavélina og hlupu
aftur inn í Austur-Berlín.
Austur-þýzka fréttastofan ADN
gefur aðra lýsingu á atburðin-
um. Hún segir að tveir merín hafi
komið með ljósmyndavél á þrí-
fæti og farið austur yfir marka-
línuna. Þegar lögreglumenn
komu aðvífandi flúðu þeir aft-
ur vestur á bóginn og skildu ljós
myndavélina eftir.
Hneyksli
við jarðarior læs
HOLLYWOOD. — Jarðarför
k|rikmyndaleikarans Tyrone
Powers fór fram á laugardag-
inn frá kapellu í kirkjugarði
borgarinnar. Hefur framkoma
almennings við jarðarförina
Framhald á bls. 2
Aksel Larsen boðið til
heilsubótar til Rússlands
En hann vill fremur stofna nýjan flokk
Stóru flokkarnir vinna á
Bonn, 24. nóv. (Reuter).
JAFNAÐARMENN unnu sigur í
Hessen, en Kristilegi lýðræðis-
flokkurinn í Bæjarnlandi í hér-
aðsstjórnarkosningum þeim sem
fram íóru um helgina. Verður
því engin veruleg breyting á
stjórn þessara héraða. Báðir þess-
ir flokkar unnu nokkuð á og
varð sigur þeirra á kostnað litlu
flokkanna.
Jafnaðarmenn höfðu meiri-
liluta á héraðsþingi Hessens.
Héldu Kristilegir, að þeim
mætti nú auðnast að ná þessu
Itéraði á sitt vald, en svo varð
þó ekki. í kosningunum nú
fengu Jafnaðarmenn 46,9% af
greiddum atkvæðum, en
Kristilegi flokkurinn 32%. —
Munu Jafnaðannenn fá 48 af
96 þingsætum á héraðsþingi
og væntanlega hafa stjórnar-
samstarf við Flóttamanna-
flokkinn.
Kristilegi flokkurinn í Bæj-
aralandi fékk 45,6% greiddra
atkvæða og 110 af 204 þing-
sætum. Jafnaðarmenn fengu
30,9% atkvæða og 64 þing-
sæti. Flóttamannaflokkurinn
hlaut 17 þingsæti. Bajern-
flokkurinn 14 þingsæti og
Frjálslyndi flokkurinn 8 þing
sæti. Talið er líklegast að
Kristilegi flokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn myndi
stjórn saman.
í ár hafa farið fram kosningar
í fjórum héruðum (Lander)
Þýzkalands, Westfalen, Slésvík-
Holstein, Hessen og Bæjaralandi.
Virðist stefna í sömu átt í öllum
þessum kosningum, stóru flokk-
arnir tveir, Kristilegir og Jafn-
aðarmenn auka stöðugt fylgi sitt,
en litlu flokkarnir tapa.
Kaupmannahöfn, 24. nóv.
(Einkaskeyti frá Páli Jóns-
syni, fréttaritara Mbl.).
AKSEL LARSEN hefur sett það
sem skilyrði fyrir stofnun nýs
stjórnmálaflokks, að hann fái
14.355 undirskriftir og áskoran-
ir þar að lútandi. Telur danska
blaðið Information víst, að hann
fái nægilega margar undirskrift-
ir. Mun hinn nýi flokkur nefnast
Sósíalíski þjóðflokkurinn.
Á fundi sem fylgismenn Aks-
els Larsens héldu í Kristjáns-
borgarhöll voru saman komnir
76 gamlir fylgismenn og foringj-
ar úr kommúnistaflokknum. —-
Leggja þeir fast að Larsen að
mynda nýján flokk. Flestir þess-
ir fulltrúar gegna ábyrgðarstöð-
fundur í
Berlín ?
BONN OG WASHINGTON, 24.
nóv. — (NTB). — Mjög er nú
rætt um það meðal stjórnmála-
manna í Bonn, að vestur-þýzka
stjórnin muni æskja þess að hald
inn verði annað hvort ráðherra-
fundur Atlantshafsbandalagsins,
eða að fundur utanríkisráðherra
Bandaríkjanna lýsti því yfir að
lands *g Vestur-Þýzkalands
verði haldinn í Vestur-Berlín.
Þó eru líkurnar á slíkum fundi
taldar heldur minni, eftir að John
Frh. af bls. 2.
um í dönsku verkalýðshreyfing-
unni.
Það verður eitt fyrsta og erfið-
asta verkefni hins nýja flokks að
fá fjármagn til flokksstarfsemi,
einkum þó til útgáu á dagblaði.
í gær flutti Larsen ræðu á
fundi fylgismanna sinna í Ála-
borg. Var hann fjölmennur, enda
þótt hinn nýkjörni formaður
Kommúnistaflokksins, Knud Jes-
persen sé frá Álaborg. Fundar-
menn komust að því að Aksel
Larsen var ekki geðveikur, eins
og Moskvu-mennirnir hafa reynt
að telja flokksmönnum trú um
að hann væri.
Larsen skýrði m.*. frá því í
ræðu sinni, að skömmu áður en
hann var rekinn úr flokknum
hafi honum verið boðið í heilsu-
bótarferð austur til Rússlands.
— En ég vissi ekki til þess að
heilsu minni væri neitt ábóta-
vant, sagði hann.
Efni blaðsins er m.a. :
Bls. 3 Vegurinn til Keflavíkur og
Sandgerðis verði . steyptur
(Tillaga á Alþingi).
— 6 Félagsheimili Hreppamanna á
Flúðum vígt.
— 8 Minnzt Elísar Ó. Guðmunds-
sonar fulltrúa.
— 10 Forystugreinin: Þýðingarmikið
þing Alþýðusambandsins.
Þýzkur leikari hjá Elizabetu
drottningu. (Utan úr heimi).
Frá Sikiley. (Utan úr heimi).
— 11 Skiptar skoðanir um landhelg-
ráðstefnu í laganefnd S. Þ.
— 18 íþróttir.
'k-... — -----— ■ Hr