Morgunblaðið - 27.11.1958, Blaðsíða 1
24 síður
«5. árgangtir.
272. tbl. — Fimmtudagur 27. nóvember 1958
PrentsmiSja MorgunblaSsina
Cromyko fór með leynd fil
Austur-Berlínar
Rœddi þar við kommún-
istaleiðtogana um fram-
tíð borgarinnar
BERLÍN, 26. nóv. — Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, hefur heimsótt Austur-Berlín með mikilli leynd. Frá
þessu var skýrt í dag. Stjórnmálafréttaritarar eru þeirrar
skoðunar, að ráðherrann hafi skýrt austur-þýzku stjórninni
frá fyrirætlunum Sovétstjórnarinnar í sambandi við fram-
tíð Berlínar.
Tilkynningin um komu Gromykos til Berlínar var lesin upp
í austur-þýzka útvarpið eítir að ráðherrann var farinn frá borg-
inni í dag.
Eru að hefjast nýjar of-
sóknir á Molotov-klíkuna
fáolotov hefur verið kallaður heim til
Moskvu
Gromyko
Frá París berast þær freghir,
að fastaráð Atlantshafsbanda-
lagsins hafi á fundi sínum í dag
lýst yfir stuðningi sínum við
stefnu vesturveldanna í Berlínar-
málum.
Alþjóðamál
I tilkynningu austur-þýzka út-
varpsins var sagt frá því, að
Gromyko hefði rætt við leiðtoga
landsins um alþjóðleg vandamál
auk Berlínarmálsins. — Meðal
þeirra Þjóðverja, sem hann
Tvö flugslys
LOMESTONE, MAINE, 25. nóv.
— Benzínflutningaflugvél af
gerðinni C-135, sem er risastór
þota, steyptist í dag til jarðar
skömmu eftir að hún hóf sig til
flugs af herflugvelli hér í
grennd. Af 7 manna áhöfn fórust
6. Sl. laugardag steyptist
sprengjuþota til jarðar á sömu
slóðum. Áhöfnin, 4 menn, fórst
öll.
Hætta kjarnorku-
tilraunum?
Washington, 26. nóv. —
Á FUNDI sínum í dag með
fréttamönnum sagði Dulles
m.a., að ef ekki næðist sam-
komulag á Genfarráðstefn-
unni um bann við tilraun-
um með kjarnorkuvopn,
gæti svo farið, að Bandarík-
in mundu upp á eindæmi
stöðva slíkar tilraunir um t.
d. þriggja ára skeið.
ræddi við, voru Grotewohl og
Ulbricht, aðalritari.
Dulles um
Berlínarmál
Talsmaður Eisenhowers Banda
ríkjaforseta sagði í kvöld, að for-
setinn mundi ræða Berlínarmál-
ið við Dulles, utanríkisráðherra,
á sunnudaginn kemur. Þá munu
þeir einnig ræða fleiri alþjóða-
vandamál, sagði talsmaðurinn.
Á fundi sínum með blaða-
mönnum í gær um utanríkismál
gaf Dulles þá yfirlýsingu, að
ekkert benti til þess, að Rússar
hefðu í hyggju að einangra
Berlín aftur og banna samgöng-
ur til borgarinnar á landL Þá gat
ráðherrann þess ennfremur, að
Vesturveldin hafi ekki í hyggju
að gefa eftir í Berlín og ekki
kæmi til mála, að þau létu rétt
sinn vegna ágangs kommúnista.
Þá gat ráðherrann þess, að Vest-
urveldin mundu aðeins ræða við
fulltrúa austur-þýzku stjórnar-
innar með þeim skilyrðum, að
þeir væru eins konar „agentar“
fyrir Sovétstjórnina. En Vestur-
veldin gætu alls ekki samið við
austur-þýzku stjórnina um mál,
sem heyra undir Sovétstjórnina
að réttu lagi.
LONDON, 25. nóv. — Það vakti
athygli í neðri deild brezka
þingsins í dag, að Skotlandsmála
ráðherrann upplýsti, að hver sem
væri — jafnvel Rússar — mundu
geta keypt skozka smáeyju, sem
auglýst hefur verið til sölu.
PAFAGARÐI, 25. nóv. — Jó
hannes páfi XXIII veitti Paul
Henri-Spaak, framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins, áheyrn
í dag.
Krúsjeff
neitar
Lundúnum, 26. nóv. —
í BRÉFI til Vesturveldanna
í dag hafnar Krusjeff, for-
sætisráðherra Sovétríkj-
anna, þeirri tillögu Vestur-
veldanna, að tilraunum með
kjarnorkuvopn verði hætt í
eitt ár til bráðabirgða, eða
á meðan reynt er að koma á
fót öruggu eftirliti með því,
að bannið sé haldið.
— Kaupmannahöfn.
DIPLÓMATAR frá vestur-
löndum, sem nú eru staddir
í Genf á ráðstefnum, eru
þeirrar skoðunar, að vænta
megi nýrra hreinsana í
Kreml. Þeir hafa veitt eftir-
tekt stanzlausum árásum í
Moskvuhlöðunum á Molo-
tov, Bulganin og Shepilov
og þykjast þess vissir, að
þetta þýði aðeins eitt: að
Krusjeff muni nú ganga
milli bols og höfuðs á þess-
um fyrrverandi samstarfs-
mönnum sínum.
Fullyrt er, að Mao sé undrandi
á afstöðu Molotovs til utanríkis-
mála og hafi skýrt Krúsjeff frá
þessu. Eins og kunnugt er, þá
gegnir Molotov sendiherraem-
bætti Sovétríkjanna í Mongólíu.
Búlganin, Molotov, Malenkov,
Kaganovits og Shepilov hafa all
ir verið reknir úr embættum sín
um og fluttir á „afvikna“ staði,
þar sem þeir geta ekki verið
Krúsjeff skeinuhættir, en þó
virðist svo sem Krúsjeff sé ekki
ánægður með, að þeir skyldu
ekki hafa fengið þyngri refsingu
en raun ber vitni.
Fréttamenn segja, að Molo-
tov hafi reynt að vinna kín-
versku kommúnistaleiðtogana
á sitt band. Hefur hann kom-
izt í samband við Peking með
aðstoð kínverska sendiherr-
ans í Mongólíu. Sumir halda
því fram, að liann hafi jafn-
vel skroppið til Peking í sum
ar. í þeirri ferð hafi Molotov
skýrt Mao frá hugmyndum
sínum, þær hafi komið flatt
upp á Mao, sem aftur skýrði
Krúsjeff frá þeim. Varð Krú-
sjeff þá yfir sig reiður. Molo-
tov var kallaður til Moskvu
ekki alls fyrir löngu, en ekki
er vitað um erindi hans þang-
að.
Demókratar
vinna enn á
ALASKA, 26. nór. — Talið er,
að demókratar hafi unnið mik-
inn sigur í kosningum þeim, sem
fram fóru í dag. Hafa þeir fengið
kosinn ríkisstjóra, annan öldung-
ardeildarþingmanninn og þing-
mann til fulltrúadeildarinnar —-
og jafnvel er búizt við að þelr
fái einnig annan þingmann öld-
undadeildarinnar.
V erkamannaflokkurinn brezki vill
hlutlaust svœði í miðri Evrópu
LUNDÚNUM — í stefnuskrá
sinni fyrir næstu þingkosningar
gerir brezki Verkamannaflokk-
urinn það heyrinkunnugt, að
hann vill stórt, hlutlaust svæði
í miðri Evrópu. Þau lönd, sem
þessa svæðis, eru: Þýzkaland
allt, Pólland, Tékkóslóvakía og
Ungverjaland. Eru þessar tillög-
ur byggðar á fyrri tillögum Gait-
skells um sama efni.
Af öðrum atriðum í stefnu-
flokkurinn vill, að séu innan skránni má nefna:
Landhelgismálið enn
til umrœðu á þingi Sþ.
*
Fulltruar Líbanons og Túnis styðja ísland
NEW YORK, 26. nóv. — Frétta-
ritari Mbl. í aðalstöðvum S.Þ. í
New York símar í kvöld, að full-
trúar Kína, Spánar og Suður-
Afríku hafi í dag lýst því yfir, að
þeir væru fylgjandi því, að efnt
verði til sérstakrar landhelgisráð
stefnu í sumar. Fulltrúi Líbanons
Viðræður
de Gaulles op;
Adenauers
PARÍS, 26. nóv. — í dag urðu
þeir á eitt sáttir, Adenauer og de
Gaulle, um það að reyna að finna
einhverjar leiðir til þess, að efna
hagssamvinna geti tekizt milli
þeirra landa, sem aðild eiga að
hinum frjálsa markaði og land-
anna ellefu, sem eru í Efnahags-
samvinnu Evrópu.
Þeir Adenauer og de Gaulle
ræddust við í Bad Kreuznach og
er fyrrnefnt atr. um efnahagsam-
vinnuna í tilkynningu, sem gefin
var út í dag að viðræðunum lokn
um.
Stjórnarkreppa yfir-
vofandi i Finnlandi
HELSINGFORS, 26. nóv. — í
gær ræddi Kekkonen forseti
Finnlands við formenn allra þing
flokka, en sagt er að stjórnar-
kreppa sé yfirvofandi í landinu.
— Fagerholm, sem er foringi
Jafnaðarmanna, myndaði sem
kunnugt er samsteypustjórn í
ágústlok og stóðu að henni allir
flokkar nema fólks-demókratar
og óháðir jafnaðarmenn. Varð
vinstri flokkunum mest ágengt í
þingkosningunum í sumar, en
meðal stjórnmálamanna í Hel-
singfors hefur verið litið svo á,
að stórn Fagerholms væri meira
hægri sinnuð en úrslit kosning-
anna hefðu gefið tilefni til.
Skýrði Kaupmannahafnar-út-
varpið frá því í dag, að stjórnin
heði átt erfitt uppdráttar, vegna
þess að Ráðstjórnin hafi verið
jmjög kuldaleg í hennar garð og
þrengt að henni á viðskiptasvið
inu upp á síðkastið.
sagði, að stjórn sín teldi einhliða
stækkun landhclginnar löglega.
Fulltrúi Túnis lýsti yfir samúð
með aðgerðum íslendinga. Bæði
Líbanon og Túnis virðast fylgj.
að efnt verði til nýrrar ráðstefnu,
án þess að taka fram, hvenær
bezt væri að halda hana. — Full-
trúi Mexikó mótmælti þriggja
mílna landhelginni. Hann sagði,
að næsta Allsherjarþing gæti
ákveðið víðáttu landhelginnar.
S jónvarp á kostnað
strætisvagna
LUNDÚNUM — Segja má, að
sjónvarpið hafi tekið fyrir alla
umferð á kvöldin í úthverfum
Lundúna. — Það er forstjóri
strætisvagna borgarinnar, sem
skýrði frá þessu. Síðustu sjö ár-
in hefur farþegaflutningurinn
með strætisvögnum borgarinnar
minnkað um 21% og kennir for-
stjórinn sjónvarpinu um.
1) Kommúnista-Kína fái aðild
að SÞ, Matsu og Quemoj-eyj-
arnar falli í hendur kommún-
istum og Formósa verði hlut-
laus, undir vernd SÞ.
2) Engíendingar hætti einhliða
tilraunum með kjarnorku-
vopn.
3) Efnahagsráði verði komið á
fót fyrir Austurlönd og landa-
mæri ríkjanna fyrir botni
Miðjafðarhafs verði tryggð
með alþjóðasamningi. Meðal
þeirra mála, sem efnahags-
ráðið á að fjalla um, er gróð-
inn af olíuvinnslunni.
|Hí>r0UíiiIbItói&
Efni blaðsins er m.a. ;
Bls. 3: Svikin við forsetakjörið . . 4
(Frá umræðum á þingi ASÍ).
Bls. 6: Átökin um Berlín (Erl. yfir-
litsgrein.
Bridgeþáttur.
Hæstaréttardómur um útsvars-
skyldu.
— 8: Bókaþáttur (Krotað í sand).
Kennum unga fólkinu að meta
íslenzka hestinn.
— 9: 40 þús. farþegar með Viscount-
vélum F. I.
— 10: Frímerkjaþáttur.
— 11: Kvenþjóðin og heimilið.
Kvikmyndaþáttur.
— 12: Forystugreinin: Ótryggur at-
vinnugrundvöllur.
Vestur-Berlín — vekur frelsis-
vonir A-I»jóðverja.
— 13: Samtal við íslendinginn Gunn-
ar S. Thorvaldson, fulltrúa
Kanada í laganefnd Sþ.
— 14: „Aldahvörf í Eyjum“ (Ágrip af
útgerðarsögu).
Frá útför höfðingja Zígauna 1
Svíþjóð.
— 15: Nýtt iðnaðarhverfi í Rvík.
Fimm íslenzkar bækur gefnar
út í Noregi.