Morgunblaðið - 27.11.1958, Side 10

Morgunblaðið - 27.11.1958, Side 10
10 MORCUWItLAÐIÐ Fimmtudagur 27. nóv. 1958 ÞAÐ mun óhætt að fullyrða, að nú sé sá timi sem frímerkjasafn- arar hafi hvað mestan áhuga á, að hugsa um söfn sín, jafnvel þótt komið sé nærri jóium, en það er óneitanlega ákjósanlegur tími, þegar dagur er stuttur að sýsla við frímerkjasöfnun að loknu dagsverki. Vitað er að aldrei áður hefur verið eins mik- 111 áhugi ríkjandi í frímerkja- söfnun hér á landi sem nú, og má það m. a. þakka Félagi frí- merkjasafnara, og er það ánægju legt að vita hve margir unglingar hafa byrjað söfnun frímerkja, sem getur orðið þess valdandi, að mörg ágætis söfn verði til hér á landi áður en mörg ár líða. XJngu safnarar! Verið vandvirkir í byrjun og safnið aðeins hrein- um og ógölluðum frimerkjum, þá munu söfn ykkar verða verð- mætari strax á byrjunarstigi. ISl Ný íslenzk frimerki. Innan fárra daga eða eins og tilkynnt hefur verið, verða gefin út 1. desember, tvö frímerki með mynd af íslenzka fánanum og eru verðgildi þeirra kr. 3,50 og kr. 50,00. — Litir þessara merkja eru fagrir, þótt blái liturinn beri merkin ofurliði en fáninn okkar er fagur hvar sem er, enda eru íslenzk frímerki með mynd af fánanum ávallt mjög eftirsótt og þykja fegúrst frímerkja okkar. Það er ekki víst að öllum frí- merkjasöfnurum finnist lögun 50 kr. merkisins smekkleg og einnig hafa safnarar talað um hátt verð- gildi núna rétt fyrir mesta út- gjaldamánuð ársins, en 50 króna frímerki eru nauðsynleg á ýmsar póstsendingar, peningabréf, póst- ávísanir, böggla og þung bréf sem sendast eiga loftleiðis til út- landa, vegna þess að póstburðar- gjöld hafa hsekkað allverulega hin siðari ár. Þá verða gefin út tvö ný frí- merki þann 9. des. nk., en verð- gildi þeirra eru 2 og 4 krónur, með mynd af gamla stjórnarráðs- húsinu við Lækjartorg, því mik- ið þarf af 2 krónu frímerkjum m. a. á jólabréfin sem send verða innan póstumdæmis Reykjavík- ur. Frímerki þessi eru prentuð hjá þekktu fyrirtæki í Sviss, sem prentar frímerki fyrir fjölda ann arra þjóða og er það í fyrsta sinn, sem íslenzk frímerki eru prentuð þar i landi, en Svisslend- ingar eru þekktir fyrir hvers konar vandaðar litprentanir og þá m. a. á frímerkjum. Þessi nýju 2 og 4 króna merki eru ein- lit, 2 kr. merkið grænt og 4 kr. merkið rauðbrúnt og hefur lita- val þeirra tekist með ágætum og merkin prentuð á vandaðan papp ír. Það er því ánægjuefni að fá tilbreytni í íslenzka frímerkjaút- gáfu. að bera saman verð það á ís lenzkum merkjum sem nú er þar skráð og verðið í síðustu útgáf- um. MICHEL verðlistinn getur um töluverðar verðhækkanir á íslenzkum og erlendum frímerkj- um og í flestum þeirra verðlista er ég hefi lauslega litið yfir, hafa eldri útgáfur af íslenzkum merkjum hækkað töluvert. Þá skal aðeins getið íslenzka verðlistans „íslenzk frímerki", sem út er gefin af ísafoldarprent- smiðju, en þetta er í annað sinn Sænska merkið útgefið 20. þ. m. til minningar um Selmu Lagerlöf. sem hann kemur út. Söfnurum ber ekki saman um verð það á íslenzkum merkjum sem þar er skráð og þótt ýmislegt hafi verið lagfært frá fyrri útgáfu, þá vant- ar mikið á, að verðlisti þessi sé þannig úr garði gerður, að vel Nýtt Canada-frímerki megi við una fyrir íslenzka frí- merkjasafnara. Ef t. d. borin er saman verðskráning í listanum (1959) á 25 kr. Alþingishússmerk inu, sem út var gefið 1952, og stimplað á útgáfudegi, þar sem það er virt á 60 krónur og svo þegar AFA skráir þetta sama merki á 35 danskar krónur (marg faldað með 3), þá renna á menn tvær grimur, um eftir hverjum þeirra skal farið ef um kaup Sameinuðu þjóðirnar gefa út snemma á næsta ári tvö ný flugfrímerki og er þetta mynd af öðru þeirra. eða sölu á þessu fyrstadagsum- slagi er að ræða. Erlend frímerki. — Mikið af nýjum frímerkjum hafa komið út síðustu vikur en að þessu sinni verður aðeins fárra þeirra getið hér, en að vanda, birtast hér myndir af nokkrum nýjum er- lendum merkjum. Filippseyjar gáfu nýlega út minningarfrí- merki í tilefni 50 ára afmælis há- skóla eyjanna. Svíþjóð gaf út frí- merki til minningar um Selmu Lagerlöf. Kanada og Bandaríki N-Ameríku með mörg ný merki. Og einnig skal þess getið hér, að af útgáfum Brússel sýningar- merkjanna, hafa Rúmeníu og Vatikan merkin hækkað allveru- lega undanfarnar vikur. Það hefur átt sér stað, að fylgi- bréf innlendra bögglapóstsend. inga hafa látið lit á þann hátt, að þegar frímerkin af þeim hafa verið fjarlægð með þeim aðferð- um sem safnarar nota, þ. e. að bleyta þau upp í vatni, þá hefur rauður litur komizt í frímerkin. Þetta á þó ekki við allar tegundir fylgibréfa, en stjórn Félags fri- merkjasafnara átti nýlega tal við póststjórnina um þetta mál og var því vel tekið, að þetta skyldi lagfært. Mörg önnur mál sem varða frímerkjasafnara bíða úr- launsar félagsins og væntir stjórn þess, að áframhaldandi samvinna geti orðið milli ís- lenzku póststjórnarinnar og Fé- lags frímerkjasafnara. — J. Hallgr. Ný frímerki frá Bandaríkjum Norður-Ameríku. MED CATERPILLAR BATAVELUM Það fer enginn tími til spillis í óþarfa vafstur við vélina, sé CATKRPILLAR í bátnum. — CATERPILLAR DIESEL BÁTAVÉLIN er örugg og spar- neytin. Hún er teiknuð og framleidd með það fyrir augum að færa bátinn heilan í höfn, og erfiða á fullri ferð í langan tíma án þess að slá nokkurn tíma feilpúst. Hver olíudropi er hreinsaður með olíufilterum, svo að allar olíuleiðslur eru á- vallt hreinar og tryggja því betra aðrennsli. Hvernig sem báturinn vaggar og veltur eru allir mikilvæg- ir hlutar vélarinnar ávallt vel smurðir úr hreinsaðri olíu með þrýstismurdælu. Engrar sérstakrar gæzlu er þörf meðan verið er við veiðar, þannig að allir menn geta verið á dekki. Vér aðstoðum og leiðbeinum yður við val réttrar teg- undar í bátinn. — Leitið nánari upplýsinga. ij< Frímerkjaverðlistar. Um þá nýju erlendu frímerkjaverðlista (1959), sem *ú hafa flestir borizt hingað er margt að segja og ekki ber verðskráningu íslenzkra frí- merkja í þeim saman, en hér skal aðeins stiklað á stóru. T. d. eru margar breytingar í AFA og FACIT listunum og er fróðlegt Annars var það mjög virðingar vert framtak að ráðast í útgáfu á íslenzkum frímerkjalista, en til þess að hann nái útbreiðslu og komi fyllilega að notum, þarf gagnger endurskoðun að fara fram á verðskráningu þeirri er þar getur. wnpmrasqaaanE? JÍMMw Háskólafrímerki Filippseyja, AvmtM * 1*1111 ti’PIM N Einkaumboðsmenn: Heildverzlunin Hekla h.f. Hverfisgötu 103, sími 11275

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.