Morgunblaðið - 27.11.1958, Qupperneq 11
Fimmtudagur 27. nóv. 1958
MORCUNBLAÐIÐ
11
°9
heirniliÉ
Hér eru þrír hálfsíöir ballkjólar frá frægum tízk ahúsum. Kjóllinn frá Ricci er rómantískur, svart-
ur organdíkjóll me3 hvítum leggingum og lausum stráblómum. Grés sýnir glæsilegan stórrósótt-
an kjól, sem dreginn er upp yfir aSra öxlina. En Balmain hefur sveipaS dropóttum mússuiínsbút
utan um sýningarstúlkuna og virSist halda kjólnum saman meS einni einustu slaufu.
Dppskrift:
Bakaðir, fylltir
t ó m a t a r
4 miSIungsstórir tómatar (ekki
of þroskaSir).
Fylling: — 1 miSIungsstór lauk-
ur, 1 matsk. smjörl., 100 gr
skinka eSa reykt kjöt, salt. pip-
ar, 1 matsk. brauSmylsna, 1
matsk. smjörl.
Tómatarnir eru skornir i tvennt
og holaðir að innan með skeið,
helmingunum siðan hvolft til
þess að þeir þomi. Laukurinn er
saxaður látinn krauma í fitu á
pönnu, innmatnum úr tómötun-
um bætt út í, ásamt smátt skornu
kjötinu, salti og pipar. Þetta er
soðið í nokkrar mínútur. Tómat-
helmingarnir eru síðan fylltir,
brauðmylsnunni stráð yfir og
smjörl. biti látinn á hvern helm-
ing. Látið í smurt eldfast fat
og bakað við góðan hita í 10 mín.
Svonaáað
ALLAR húsmæður vilja gera sér
húsverkin eins létt og hægt er.
Sama gildir um það, hvernig
fægja á silfur og aðra hluti úr
málmi sem fylgja heimilinu. Kop-
ar og messingmuni sem standa
frammi, er bezt að fægja með
klút, sem gegnvættur er fægilegi
og þurrka síðan yfir með mjúku
„vaskaskinni“. Sumir vilja lika
bera yíir þur.nt gegnsætt lakk.
Silfurmuni, sem aðeins eru
notaðir nokkrum sinnum á ári,
er bezt að vefja í mjúkan silki-
psppír og stinga þeim siðan i
* KVIKMYNDIR +
WIKAi BLADIÐ YKKAR
34-3-33
Þungavinnuvélar
ALLT 1 RAFKERFIÐ
Bílaraftækjaverzlun
Halldórs Ólafssonar
Rauðarárstig 20. — Simi 14775.
Forstofuherbetgi
til leigu að Kirkjuteig 7, uppi.
DlVAlN til sölu á sama stað.
Gamla bíó:
Samvizkulaus kona
ÞETTA er bandarísk sakamála-
mynd tekin í litum. Ungur vín-
ekrueigandi frá Napadalnum,
Paul Hochen, verður ástfanginn
af ungri léttúðardrós, Phyllis að
nafni, er hann kynnist í nætur-
klúbb í Los Angeles. Hann kvæn-
ist stúlkunni og fer með hana
heim á búgarð sinn. En ekki líð-
ur á löngu unz hún hefur tekið
sér elskhuga og þróast með henni
það áform að ryðja eiginmanni
sínum úr vegi, svo að hún geti
notið auðæfa hans með elskhug-
anum í ríkum mæli. — Kvöld
eitt, er maður hennar kemur
heim, situr hún fyrir honum og
hyggst skjóta hann til bana, en
skýtur í misgripum vin hans,
silfur
plastikpoka. Plastikpokanum er
síðan lokað á þann hátt að papp-
ír er lagður yfir opið og strau-
jámi síðan rennt yfir. Hitinn
bræðir plastikpokann saman.
Silfur sem oftar er notað er
þvegið við og við úr vatni með
ammoníaki (ein matskeið í 5 lítra
vatns). Þá þarf ekki að fægja
það eins oft.
Þó er ekki hægt að komast
alveg hjá þvi að fægja, en þá er
bezt að taka allt fram í einu.
Bezt er að setja upp gamla ónýta
hanska, dagblöð lögð á e'dhús-
borðið, klútur og fægilögur tek-
sem var í fylgd með honum. —
Lögreglan kemst í málið og Paul
tekur sökina á sig til þess að
bjarga konu sinni. Móðir Pauls,
gömul kona, veikist hastarlega
út af atburði þessum og dó
skömmu síðar með þeim hætti að
grunur lék á um að tengdadóttir
hennar, Phyllis, hefði orðið
henni að bana með því að gefa
henni inn of stóra lyfjaskammta.
Phyllis var að vísu saklaus i
þessu efni, en var þó dæmd fyrir
það, henni varpað í fangelsi. —
Hún þrætti alltaf fyrir það að
hafa átt þátt í dauða gömlu kon-
unnar, en nú leysti hún frá skjóð-
unni og sagði allt hið sanna —
hún hefði skotið vin manns-
ins síns og dró ekki dul á að
skotið hefði verið ætlað eigin-
manninum.
Mynd þessi er að vísu engin
öndvegismynd, en þó um margt
allgóð. Rod Steiger, er fer með
hlutverk Pauls, gerir því prýði-
leg skil, en hins vegar er leikur
Diönu Dors í hlutverki Phyllis
ósköp lítilfjörlegur og fé ég ekki
skilið þá aðdáun, sem útlit þess-
arar leikkonu hefur vakið.
Ego.
inn fram. Ef silfrið er flúrað, er
ágætt að nota mjúkan bursta.
Kopar og messing-hlutir. Eldri
fægilögur hreisaður af með benz.
íni (eldfimt). Fægilögur borinn
á aftur, þurrkaður af með mjúk-
um klút og loks nuddað með
dagblaðapappír.
Messing sem ekki gljáir (mikið
notað nú til dags í lampaskerma
o. fl.) er nuddað með mjúku
skinni. Flugnablettum má ná af
með steinkolsnafta, en sé borið
þunnt lag af vaselíni á skermana.
setjast flugur ekki á þá.
Tin-munir eru þvegnir úr sápu
vatni og þurrkaðir vandlega. Séu
rispur í því, er hægt að slípa þær
með mýkstu stálull sem hægt er
að fá, en í sömu átt og það vóir
upphaflega slípað. Loks er tinið
fægt með silfurfægilegi. Gamalt
tin má ekki fægja.
Silfur á að fægja úr fægilegi
eða fægivökva, mt 3 mjúkum
klút. Á flúrað silfur er notaður
mjúkur bursti. Að lokum er silfr
ið þvegið út heitu sápuvatni og
þurrkað vel.
Smíðajárn er hreinsað með
benzíni og nuddað á eftir með
mjúkum klút.
s. KV I K MY N D I R ■>
Fréttir trá Lundúnum
Cat on a hot tin roof (Köttur
á heitu blikkþaki), kvikmynd
gerð af Metro-Goldwyn-Mayer
Picturses Ltd., eftir hinu fræga
leikriti Tennessee Williams. Leik
ritið var sýnt hér í London fyrir
nokkru og er nú komið á kvik-
myndatjaldið með Elizabeth
Taylor, Paul Newman og Burt
Ives í aðalhlutverkunum. Ég fór
að sjá myndina með dálitlum
vafa, því að ég var hrædd um að
Elizabeth myndi ekki ráða við
hlutverkið, en varð ekki fyrir
vonbrigðum. Hún gerir hlutverk-
inu prýðileg skil og sýnir glögg-
lega þessa ástríðufullu ungu eigin
konu, sem berst fyrir ást sinni til
manns síns, sem hefur orðið kyn-
ferðislega fráhverfur henni síðan
vinur hans dó. Húr. dregur seim-
inn eins og Suðurríkja Banda-
ríkjamenn gera og maður skynj-
ar ósjálfrátt hitann. Tengda-
faðirinn, „Big Daddy“, sem alltaf
hefur heldur verið upp á kven-
höndina, hefur verið hættulega
veikur, en rétt fyrir afmælisdag-
inn sinn fengið þá staðfestingu
frá læknum að hann sé úr allri
hættu. Staðfestingin er fölsk,
hann er með ólæknandi krabba-
mein, en enginn þorir að segja
honum það, nema Brick, drykk-
feldi uppáhaldssonurinn hans,
sem neitar að sofa hjá konunni
sinni. Eldri sonurinn Cooper, sem
er leiðinlegur lögfræðingur, bíð-
ur eftir auðæfum föður síns.
Kona hans á barn á hverju ári,
en Brick og Maggie eru barnlaus,
svo þeim fimist sjálfsagt að þau
erfi óðalseignina.
Maggie sárbiður Brick að koma
til sín sem fyrr, gera sig ófríska,
það muni gleðja „Big Daddy“ í
sorgum hans. Brick heldur áfram
að drekka og áfram að sofa á
legubekknum í hjónaherberginu.
Big Daddy veit að hann muni
deyja fljótlega. Gooper hefur
þegar dregið upp afrit af erfða-
skránni fyrir sjálfan sig, þegal*
Maggie lýsir því yfir að hún
gangi með barni! Big Daddy verð
ur himinlifandi. Bvick veit að
Maggie hefur visvitandi logið, til
þess að bjarga sóma þeirra og
óðalseigninni og þetta kvöld sef-
Elizabeth Taylor sem Maggie
í kvikmyndinni „Cat on a hot
roof“: „Að búa með manni,
sem maður elskar getur verið
einmanalegra en búa alein —
ef sá, sem maður elséar, elsk
ar mann ekki á móti“.
ur hann ekki á legubekkrum!
Myndin er yfirleitt vel gerð, en
dálítið breytt frá leikritinu. Paul
Newman gefur góða mannlýs-
ingu af Brick, sem er eitt af erí-
iðustu hlutverkum leiksins.
Maggie: „Ég skal segja þér, hvað þau ætla að gera. Strika okk-
ur út úr erfðaskránni, nú þegar við vitum að Big Daddy mun
deyja úr ólæknandi krabbamcini. . .“