Morgunblaðið - 06.12.1958, Page 15

Morgunblaðið - 06.12.1958, Page 15
Laugardagur 6. des. 1958 MORGVNrtL 4 Ðlh 15 inga, til þess að tryggja lífshags- muni sína varðandi fiskveiðar við strendur lands síns. Hér hefir verið drepið lítil- lega á landhelgismálin í ljósi þeirrar þróunar, sem átt hefir sér stað í stjórnmálum heimsins, einkum undanfarinn hálfan ann- an áratug, og er þá komið að því að athuga síðustu atburði í þróun málsins hér og ástandið í dag. Skal þá fyrst leitast við að svara þeirri spurningu, hvað það er, sem liggur til grundvallar þeim aðgerðum, sem íslending- ar hafa gert undanfarin rúm 10 ár. Ekki gerist þess þörf hér svo oft sem það hefir verið gert ut- anlands og innan að lýsa því ýt- arlega hvernig lífshagsmunir ís- lendinga eru nátengdir fiskveið- unum. Eðli málsins samkvæmt á þetta við fyrst og fremst um fiskveiðarnar á miðunum um- hverfis ísland. ísland er þannig í sveit sett, að það liggur fjarri öðrum lönd- um og landgrunn þess er skýrt afmarkað frá landgrunnum ná- grannalandanna. Raunverulega liggur landið á norðurmörkum hins byggilega heims, en með Golfstraumnum hefir náttúran komið því þannig fyrir, eins og til að bæta upp fátækt lands- ins sjálfs að náttúrugæðum, að í sjónum umhverfis landið eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir auðugt líf, sem eru undirstaða hinna miklu fiskiauðæfa á þess- um slóðum. En þessi auðlind er ekki ótæm- andi. Reynsla okkar á því tíma- bili ,sem hófst með sókn erlendra botnvörpuskipa á íslandsmið fyr- ir meir en 60 árum, hefir kennt okkur, að gengdarlaus ásókn á fiskistofnana getur aðeins leitt til eyðingar þeirra, en þar með væri kippt grundvellinum undan fiskveiðum við ísland. Þess gerist heldur ekki þörf að rekja hér þá þróun, sem átt hefir sér stað í þessum efnum, en árangur hennar hefir verið ljós hverjum þeim, sem vildi sjá og skilja. Gengdarlaus rányrkja er- lendra togara áratugum saman, svo að segja upp í landsteina leiddi til þess ,að þýðingarmikl- ir fiskistofnar voru ofurseldir tortímingunni, ef ekki hefði ver- ið gripið í taumana áður en það var um seinan, en afli fór þá sí- fellt minnkandi á fiskimiðunum umhverfið landið. íslendingar hafa í rauninni hin ák j ósanlegustu skilyrði til að byggja afkomu sína á fiskveið- um. Með réttu má segja, að frá náttúrunnar hendi hafi engin þjóð við norðanvert Atlantshaf önnur eins. Það er ekki aðeins, að fiskimiðin umhverfis landið séu af náttúrunni vel úr garði gerð, heldur er og einnig lega landsins þannig, að ef öll fiski- miðin í Norður-Atlantshafi, frá Nýfundnalandi í vestri til Bar-1 entshafs í austri, eru tekin sem' heild, þá er styttra að sækja á þau öll frá íslandi, en frá nokkru öðru íandi á þessu svæði. Við lifum í heimi, þar sem verkaskipting milli þjóðanna fer sífellt vaxandi. Hin aukna verka- skipting er einmitt megin undir- staðan undir þeirri miklu vel- megun, sem fjölmargar þjóðir, þar á meðal íslendingar lifa nú við. Það grundvallaratriði, sem þessi verkaskipting milli þjóð- anna byggist á er, að hver þjóð stundi þá framleiðslu, sem nátt- úran veitir henni bezt skilyrði til. Þegar á þetta er litið er von að spurt sé: Áttu íslendingar að horfa á það aðgerðalausir, að sá grundvöllur, sem þeir byggja líf sitt á í þessu landi væri eyði- lagður? Og í öðru lagi má spyrja: Er það í samræmi við eðlilega verkaskiptingu milli þjóðanna, að fjarlæg ríki með fjölskrúðugan iðnað og þörf fyrir fiskmeti til að auka fjölbreytni og bæta fæðu þegna sinna sendi fiskimenn sína um langa vegu til veiða á íslandsmið til eyð- ingar þeim fiskistofnum^ sem ís- lendingar byggja afkomu sína á? — Báðum þessum spurningum verður að svara afdráttarlaust neitandi. Auk þeirra raka, sem byggð eru á hinni efnahagslegu nauð- syn eru svo söguleg rök, sem einnig eiga fullan rétt á sér. Áð- ur en samningurinn um þriggja mílna landhelgina var gerður ár- ið 1901 hafði ísland öldum sam- an haft miklu víðari landhelgi, lengst af 15 sjómílur. Nýlendu- staða íslands undir danskri stjórn gerði það hins vegar að verk- um, án þess að íslendingar fengju þar að gert, að breytingar urðu hér á til hins verra, sem að lok- um leiddu til samningsins 1901. Þeim samningi var lögformlega sagt upp árið 1949 og eftir að hann gekk úr gildi tveim árum síðar var ísland ekki lengur bundið af neinum samningum og gat að dómi íslendinga ákveðið landhelgi sína sjálft, innan þeirra takmarka, sem alþjóðalög heim- iluðu. Rök andstæðinga okkar eru þau aðallega ,að í fyrsta lagi sé okkur óheimilt að ákveða vít- áttu fiskveiðilandhelginnar ein- hliða, slíkt verði aðeins gert með sanmingum, og í öðru lagi, að 12 mílna fiskveiðilandhelgi sé óheimil að alþjóðalögum. Þessu er því til að svara, að í langflestum tilfellum hefir land helgi verið ákveðin einhliða. Stundum hefir slíkt framkallað mótmæli annara ríkja, en í framkvæmd hefir slík einhliða ákvörðun verið viðurkennd, og aldrei hefir það skeð fyrr en nú, að beitt hafi verið valdi til að framfylgja mótmælunum. Því verður heldur ekki haldið fram með réttu, að ísland hafi ekki sýnt fullan vilja á samvinnu á alþjóðavettvangi til að finna lausn á landhelgismálunum al- mennt og um fiskifriðunarmál. Þvert á móti má benda á að fyrir frumkvæði íslands hafa þessi mál verið til meðferðar innan Sameinuðu þjóðanna nú um nær 10 ára skeið og ísland hefir tekið þátt í öllum aðgerð- um til verndar fiskistofnunum í Norður-Atlantshafi. Það verður hins vegar að viðurkenna, að árangurifin af öllu þessu starfi hefir ekki orðið mikill, en þar er ekki ísland um að saka. Sannleikurinn er hins vegar sá, að reynsl&n hefir leitt í Ijós viljaskort af hálfu þeirra þjóða, sem telja sig hafa hér mestra hagsmuna að gæta, til að viður- kenna hina algeru sérstöðu ís- lands. Kom þetta ef til vill hvað gleggst fram á ráðstefnunni i Genf. Fyrir Islendinga var því eng- in önnur leið fær en sú ein, að framkvæma nauðsynlegar að- gerðir einhliða ,enda telja ís- lendingar það í öllu samrímast alþjóðalögum og venjum. Af íslands hálfu var þetta sjónarmið sett fram skýrt og af- dráttarlaust í ræðu þeirri, sem formaður íslenzku sendinefndar- innar á ráðstefnunni í Genf, Hans G. Andersen, sendiherra, hélt undir lok ráðstefnunnar, þegar séð varð, að engin niðurstaða fengist, að því er snerti víðáttu fiskveiðilandhelginnar. 1 þeirri ræðu tók hann meðal annars fram, að ísland hefði nú beðið svo lengi með nauðsynlegar að- gerðir í sambandi við fiskveiði- landhelgi sína, að ekki væri með sanngirni unnt að ætlast til, að sú bið yrði lengri. Um hitt atriðið, lögmæti 12 mílna fiskveiðilandhelgi get ég verið fáorður. Alþjóðalaganefndin hafði haft þetta mál sérstaklega til með ferðar um 7 ára skeið án þess að komast að endanlegri niður- stöðu. Samþykkti nefndin loks árið 1956 að vísa málinu til Alls- herjarþings Sameinuðu þjóð- anna, en þingið ákvað aftur að vísa því til ráðstefnunnar í Genf. í lokaskýrslu þeirri um málið, sem lögð var fyrir ráðstefnuna í Genf var nefndin hins vegar sam- mála um það, 1) að reglur um víðáttu land- helgi væru mismunandi, 2) að alþjóðalög leyfa ekki meiri víðáttu en 12 sjómíl- ur, 3) að nefndin, án þess að taka ákvörðun um víðáttu land- helginnar að því marki, við- urkennir annars vegar, að mörg ríki hafa ákveðið víð- áttu landhelgi sinnar meiri en 3 sjómílur og hins vegar, að mörg ríki viðurkenna ekki meiri víðáttu landhelg- innar en þau sjálf hafa á- kveðið fyrir eigin landhelgi. Þessar niðurstöður nefndarinn- ar sýna svo ótvírætt, að eigi verður um villst að hún lítur svo á, að engin viðurkennd alþjóða- regla er til una víðáttu landhelg- innar. í raun og sannleika má segja, að með því að setja málið þann- ig fram hafi nefndin viljað segja eitthvað á þessa leið: Ýms ríki hafa þegar ákveðið landhelgi sína allt að 12 sjómílum og þar verður engu um breytt, enda þótt sum ríki hafi ekki viljað viðurkenna það, en það brýtur hins vegar ekki í bág við alþjóðalög að á- kveða víðáttu landhelginnar 12 sjómílur. « Andstæðingar okkar telja þessa túlkun á niðurstöðum nefndarinnar of frjálslega og raunar ranga. Maður verður hins vegar að gera ráð fyrir því, að nefndin hafi viljað viðurkenna hið raunverulega ástand, þótt það væri að vísu orðað fremur óljóst ög að ekki væri unnt að byggja alþjóðalög á því að banna sumum ríkjum að ákveða land- helgi sína 12 mílur, sem öðrum ríkjum hafði haldizt uppi allt að því hálfa öld, eða meira, enda þótt því hafi verið mótmælt form lega af sumum. Nefndin sýndi það ljóslega, að því er varðaði önnur atriði þjóð- arréttarins, að hún vildi taka fullt tillit til raunveruleikans og var því ekki ástæða til að ætla, að í þessu sambandi viki hún frá þeirri meginstefnu. Til viðbótar þessu .verður svo að geta þess, sem ekki hefir hvað minnsta þýðingu, að á ráðstefn- unni í Genf skeði þrennt, sem hlaut að hafa gagngera þýðingu í þessu sambandi. 1 fyrsta lagi var þriggja mílna -cglunni svokölluðu hafnað af yfirgnæfandi meiri hluta hinna 86 þjóða, sem þar áttu fulltrúa. Meira að segja þær þjóðir, þ. á m. Bretar, sem fram að því höfðu litið á þessa reglu. sem eins kon- ar heilaga reglu lýstu sig reiðu- búna til að yfirgefa hana og fall- ast á 6mílna landhelgi, ef sam- komulag yrði þar um. Á hinn bóginn naut 12 mílna fiskveiðilandhelgi þar meiri stuðnings en nokkur önnur til- laga, sem fram kom um víðáttu landhelginnar, enda þótt hún næði ekki hinu tilskilda atkvæða magni, sem fundarsköp ráðstefn- unnar mæltu fyrir um að þyrfti til þess að tillaga teldist sam- þykkt. í þriðja lagi fékkst svo loks einfaldur meirihluti til fylgis við það sjónarmið, sem sett var fram í tillögu íslands um viður- kenningu á sérstöðu þeirra ríkja, sem byggja afkomu sína að yfir- gnæfandi leyti á fiskveiðum. Þegar á allt þetta er litið verð- ur ekki fram hjá því komizt að viðurkenna, að réttur Islendinga í þessu máli er byggður á traust- um grunni. Þeim mun furðulegra er að skoða hernaðaraðgerðir Breta gegn íslendingum í ljósi þessara staðreynda. Allar aðrar þjóðir, sem senda skip sín til veiða á íslandsmið hafa valið þann kost, enda þótt sumar þeirra hafi að vísu sent formlega mótmæli, að vara skip sín við að fara til veiða innan hinnar nýju 12 mílna fiskveiði- landhelgi. Því skal ekki haldið fram, að þetta jafngildi því, að svo stöddu, að um viðurkenningu á okkar aðgerðum sé að ræða af hálfu þessara þjóða. Það sýnir aðeins, að þær taka fullt tillit til staðreynda lífsins, jafnvel þó staðreyndirnar séu þeim óþægi- legar í bili. Framferði Breta sýnir hins vegar hið gagnstæða. Árum og áratugum saman hafa þeir horft upp á, að þjóðir hafi ákveðið einhliða víðáttu landhelgi sinn- ar, ekki aðeins fiskveiðilandhelg- innar, allt að tólf mílur. Þessu hefir að vísu verið mótmælt af hálfu Breta, en að nokkru sinni hafi til þess komið, að þeim mót- mælum væri fylgt eftir með hernaðaraðgerðum er fráleitt, enda hefði slíkt vafalítið leitt til styrjaldar. Hér var hins vegar talið óhætt að beita vopnavaldi án þess að hætta væri á slíkum eftirköst- um, því að mótaðilinn. íslend- ingar, hefir lýst því yfir, að hann muni ekki mæta vopnuðu ofbeldi með vopnum, enda vopn- laus þjóð. Þetta mun þó endast Bretum til ævarandi vanvirðu. T,Ieð þessu framferði sínu hafa þeir brotið allar reglur velsæmis í samskiptum lýðræðisþjóða og fyrir það ber okkur að sækja þá til saka á hverjum þeim vett- vangi, þar sem talizt getur væn- legt, að sá árangur verði af, að þeir láti af ofbeldi sínu. í þessari baráttu við óvæginn andstæðing er okkur það mikils virði að vera þess fullvissir, að við höfum réttinn okkar megin, enda er það einasta vörn smá- þjóðar að víkja aldrei af vegi réttarins. Við Islendingar finnum mátt- inn, sem með okkur býr vegna öruggrar. sannfæringar um; að við höfum á réttu að standa. Við fögnum því, að þessi réttur er á hraðri leið til fullrar viður- kenningar en við neitum því ekki í dag, að þrátt fyrir það grúfa yfir okkur ógnþrungin ský, vegna þeirrar hættu, sem hern- aðaraðgerðir Breta við strendur íslands hafa fært yfir íslenzka sjómenn, bæði þá, sem með mik- illi hugprýði og óbilandi þraut- seigju halda uppi gæzlu land- helginnar og aðra ,sem stunda störf sín við að færa björg í bú fyrir þá sem í landi dvelja. íslenzkir stúdentar, á þessum fjörutíu ára fullveldisdegi þjóð- ar okkar heitum við því að fella ekki vopnin fyrr en réttur þjóð- arinnar hefir verið viðurkennd- ur og líf íslenzka sjómannsins verður ekki lengur ofurselt öðr- um og meiri hættum en þeim, sem hann ævinlega hefir orðið og mun verða að glíma við vegna skammdegismyrkurs, æðandi storma og öldu úthafsins. Eftir Frédérique Hébrard Hún er listmálari, gift glæsilegum skáld- sagnahöfundi. Þau eru ung, ástfangin og hamingjusöm. En skyndilega dregur ský fyrir sólu. Hann tekur að sér að þýða sögur frægar og stórglæsilegrar ítalskrar kvikmyndastjörnu, og þegar kvikmyndastjarnan birtist sjálf á svið- inu, þykist kona hans sjá grunsamleg teikn á lofti. En voru þau sek eða ekki? Franska skáldkonan Frédériuque Hé- brard, fjallar í þessari bók um framan- greint efni á nýstárlegan hátt, og verð- ur óvænt niðurstaða. Öll frásögnin er ur sjaldgæflega þokkafull. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR Lesið þessa hugljúfu bók í snilldarþýðingu Gísla Jónssonar, menntaskólakennara. Bókin er 164 bls. Verð kr. 98,00. Fyrir þessa bók hlaut höfundur bókmennta- verðlaunin 1957. mmm MUÐÖR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.