Morgunblaðið - 14.12.1958, Síða 4

Morgunblaðið - 14.12.1958, Síða 4
4 MORCVNBL4Ð1Ð Sunnudagur 14. des. 195S. Sól yfir Blálands byggðum Felix Ólafsson: SÓL YFIR 1 BLÁLANDS BYGGÐUM — 184 bls. — Bókagerðin Lilja, Keykjavík 1958. Pílagrímur á slóð Páls postula i Grikklandi árið 1951 var ég ein- ■r tvær vikur samferða erki- biskupi koptakirkjunnar í Eþíó- píu, elskulegum og málhreifum náunga, sem hafði mikinn áhuga á norraenum málefnum. Þegar hann heyrði að ekki væri til forn-orþódox kirkja á íslandi, hafði hann við osð að nauðsyn- legt væri að senda trúboða norð- ur þangað. Raunin varð hins vegar sú að íslendingar urðu fyrri til að senda trúboða til Eþíópíu. Er nú risin íslenzk kristniboðsstöð í landi hins þeldökka og viðmóts- GfllMBERQ ER HISTORIESKRIVNINGENS H. C. ANDERSEN Mestur bókviðburður um langt skeið á norrænum bókamarkaði! VERALDARSAGA GRIMBERGS Glæsilegt stórverk um athafnir og frama mannkynsins frá örófi alda fram til nú- tíðarinnar. Kynnið yður þetta glæsilega og hugþekka ritverk. Mannkynsaga sem ekki er þuri fræði, en skrifuð svo að hún verður bezti skemmtilestur. Veraldar- saga Grimbergs verður alls 16 bindi hvert um 512 bls. Bindistærðin er 13x20 cm. Öll bindin verða því um 8000 bls. með um 3400 myndum auk 60 uppdrátta og meira en 100 litmyndir. Veraldarsaga Grimbergs er gefin út í 15000 eint. af Politikens Forlag í Dan- mörku. Vegna mikillar forsölu í Danmörku er verkið algerlega þrotið hjá út- gefanda. Herlendis verða aðeins fáanleg um 250 eintök. Aðalútsölu verksins hér annast Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8, sími 14527 og Bókhlaðan, Lauga- vegi 47, sími 16031. Þá, er hug hafa á að eignast verkið, viljum vér hvetja til að tryggja sér eintak nú þegar. Ég undirrit.......óska að þér sendið mér 1. bindi „Grimbergs Verdenshistorie" og síðan hvert bin^i um leið og þau koma út. Verð 1. bindis er kr. 88.90. Nafn Heimili Sendist til: Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8. Sími............ BókhlöSunnar, Laugavegi 47. Bók'averzlun ísafoldar Austurstræti 8 Bókhlaðan Laugaveg 47 góða preláta. Kopfakirkjan mun vera ein elzta kirkja í heimi og hefur lengi verið ríkiskirkja Eþíópíu. Eigi að síður lifir stór hluti landsmanna enn í heiðni, og hafa Norðurlandakirkjurnar tekizt á hendur að boða þeim kristni. Fyrstir komu Svíar, síð- an Norðmenn og loks fyrir fimm árum íslendingar. Kristniboðið nýtur óskoraðs stuðnings keisar- ans, sem sjálfur er koptiskrar trúar, enda er hér elcki einung- is um trúboð að ræða, heldur einnig skólahald og líknarstarf, sem teljast má næsta aðkallandi, þar sem ekki er nema einn inn- lendur læknir í Eþíópíu enn sem komið er. Felix Ólafsson kristniboði hef- Felix Ólafsson. ur skrifað bók um reynslu sína og raunir í Konsó-héraði í Eþíópíu, en þar var íslenzka kristniboðsstöðin reist undir um- sjá hans. Konsó er eitt afskekkt- asta hérað landsins: þar var hvorki skóli né sjúkrahús þegar íslenzku hjónin komu á vett- vang. í „Sól yfir Blálands byggðum“ lýsir Felix dvöl sinni í landinu, fyrst í Addis Abeba og síðan í Konsó. Dregur hann upp ljósa mynd af byrjunarerfiðleikunum, tortryggni innfæddra, hinum hægfara kynnum sem leiddu til varanlegrar vináttu við marga íbúana. Hann segir frá byggingu trúboðsstöðvarinnar og rekstri hennar, baráttunni við trúarsiði íbúanna, sem voru á valdi ein- kennilegrar djöfladýrkunar, er á margan hátt svipar til andakukls- ins á íslandi á þessari öld. Þessi djöflafaraldur er ekki ýkjagam- all í Eþíópíu, en virðist eiga furðusterk ítök í fólkinu, sem lifir í stöðugum ótta við hina ásæknu anda. Það verður tæpast sagt um Konsómenn, að „hver sé sæll í sinni trú“, enda þótt þetta vanhugsaða orðtæki sé oft notað í staðinn fyrir rök gegn trúboði kristinnar kirkju. En Felix Ólafsson lætur sér ekki nægja að rekja reynslu sína á hinum ókunnu slóðum, þótt hún sé bæði lærdómsrík og oft skemmtileg, heldur lýsir hann líka landi og þjóð, rekur í stuttu máli sögu Eþíópíu og hinnar merkilegu keisaraættar, sem rek- ur upphaf sitt til drottningarinn- ar af Saba og Salómós konungs. Hann dregur upp skýra mynd af hrikalegu landslagi Eþíópíu, lýs- ir ýmsum sérkennilegum sið- venjum, skýrir frá helztu þjóð- flokkum landsins og kynnir les- andann fyrir ýmsum merkilegum einstaklingum. Bókin er hressilega skrifuð. Stíllinn er léttur og einfaldur, en sums staðar dálítið viðvanings- legur. Höfundurinn hefur næmt auga fyrir því sem skoplegt er, þótt stundum skjóti hann raunar yfir markið í viðleitninni við að vera fyndinn: „En á milli Dirra Dawa og Addis Abeba komumst við í slíka hæð, að ég óttaðist um afdrif bláu himinhvelfingar- innar!“ Frásögnin er atburðarík og lif- andi, en stundum hrasar höfund- urinn um heimspekilegar vanga- veltur, sem eru sumar hverjar næsta hjákátlegar. Á bls. 51 seg- ir hann t. d.: „Rússar reka sjúkra hús í höfuðborginni, og ekki vant ar það, að kommúnistar reki fræðslustarfsemi. En hver vill halda því fram, að kommúnistar eða Rússar séu með þessu að reka kristniboð? Kristniboð er út- breiðsla kristianar trúar“. Þetta er alveg rétt, eh upplýsingarnar eru óþarfar, því mér vitanlega hefur því hvergi verið haldið fram að kommúnistar reki kristni boð. Hins vegar mætti til sanns vegar færa að þeir rækju trú- boð ,og þykir mér sennilegt að hið erlenda orð „mission“ hafi ruglað höfundinn í ríminu. Það er miklu víðtækara en íslenzka orðið kristniboð. A öðrum stað segir: „Kristniboð er óhugsandi án kristniboðsvina og kristni- boða, sem geta ekki látið vera að leita að hinu týnda, til þess að það mætti öðlast frelsi" (68), og verður einnig að telja þeirri yfir- lýsingu ofaukið. Þó finnst mér það vafasöm staðhæfing að „mannkynssagan sé hluti af kristniboðssögunni" en ekki öf- ugt, eða hvað um mannkynssög- una áður en kristin trú kom til skjalanna? Að slíkum agnúum slepptum geymir bókin merkilega sögu í öllu sínu yfirlætisleysi, sögu um áræði, dugnað, þrautseiglu, trú- arvissu og bjartsýni kornungra hjóna sem leggja upp í langa ferð til framandi þjóðar, setjast að meðal frumstæðra og tortrygg- inna manna, vinna vináttu þeirra og virðingu, ala tvö börn í þessu þægindalausa umhverfi og leggja grundvöll að merkilegu starfi, sem á eflaust eftir að verða ó- töldum einstaklingum til bless- unar. Felix og Kristín kona hans eru komin heim til íslands til nauðsynlegrar hvíldar, en í Konsó starfa nú önnur kristni- boðahjón, Benedikt Jasonarson og Margrét Hróbjartsdóttir, á- samt Ingunni Gísladóttur hjúkr- unarkonu sem starfað hefur þar nokkur ár. „Sól yfir Blálands byggðum". er ein margra ferðabóka ís- lenzkra og erlendra höfunda, sem út koma þessa dagana, en hún er frábrugðin þeim flestum. Hér eru engar lýsingar á glæfraferðum eða stórkostlegum mannraunum, hér er ekki heldur frásögn af þindarlausum hlaupum stað úr stað, land úr landi, þar sem meg- inmarkmið höfunda virðist vera að komast yfir sem mest og telja upp sem flest. Hér er bók sem minnir meira á lygna og djúpa á. Við fáum marghliða mynd af ókunnu landi, sögu þess og þró- un, lífsvenjum fólksins, löstum þess og kostum. Bókin er í senn ferðasaga og þjóðlífslýsing. í „Sól yfir Blálands byggðum*4 eru 20 ágætar myndir á sérstök- um myndapappír og frógangur allur til fyrirmyndar, nema kápu myndin, sem minnir helzti mikið á ævintýrabók handa ungling- um. Sigurður A. Magnússon. HÖFUM 0PNAÐ kjörbúð að Langholtsvegi 130. Gjörið svo vel og reynið viðskiptin. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.