Morgunblaðið - 14.12.1958, Side 13

Morgunblaðið - 14.12.1958, Side 13
Sunnudagur 14. dés. 1958. MOROVNBLAÐIÐ 13 Blaðaummæli: .... „Ahus Stiftstidende" (Dr. Börge Friis) .Páll ísólfsson, dómorgan- isti í Reykjavík hefir leikið inn á orgelplötu, sem hefir heppnast frábærilega vel, forleiki og fugur Bachs í c-moll, es-dur og d-moll, hina dása.mlegu tokkötu og fugu í d-moll og einnig aokkra sálmaforleiki, .... íslendingseðli Páls leynir sér ekki, því að hann hefir ríka hneigð til að gæða túlkun sína björtum hljómblæ og leikrænum áhrifum ....“. „The Grammophone" (R.F.): .... „Páll ísólfsson hefur um tuttugu ára skeið verið organisti við Dómkirkjuna í Reykjavík...Áhugi hans á Bach hlýtur að ná langt aftur í tímann, því að í æsku stundaði hann tónlistarnám í Leipzig og í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar var hann aðstoðar-organleikari við Tómasarkirkjuna.Bezt hefir tekist í hinni frægu tokkötu og fúgu í d-moll, þar er góður sveiflutaktur og sýnir orgelleikarinn góðan skilning á tónlist- inni ....“. Sígild jólagjöf fyrir alla er unna fagurri tónlist. Verð aðeins kr. 220.00. Fálkinn hljómplötudeild Jólabækur vandlátra bókamanna, sem ánægju hafa af þjóðlegum fróðleik og merkum ævisogum Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði verð kr. 235,00. Skrifarinn á Stapa eftir Finn Sigmundsson verS kr. 185,00. Bókfellsútgófan Þjóðsögur og munn- mæli eftir Dr. Jón Þorkelsson verð kr. 175.00. P'áll allra mestu í sólfsson organleikurum veraldar Dr. einn af Eiguleg ferðabók Eftirfarandi er úr ritdómum ýmsra mætra manna um hina nýju ferðabók Vigfúsar Guðmundssonar, Fram- tíðarlandið: Erlingur Davíðsson í Degi: Vigfús er víðförlastur allra fslendinga. Hann ferðaðist ekki aðeins umhvtrfis jörðina, heldur langtum meira í mörgum lengri og skemmri ferðum í öllum álfum heims. Báðar ferða- bækur hans hafa þann meginkost að vera ritaðar af frásagnar- gleði góðs sögumanns.----Þótt Framtíðarlandið sé hvorki í reyfara- né fræðibókastíl, er bókin bæði fróðleg og skemmti- leg. Það leiðist engum meðan hann fylgir höfundi um Suður- Ameríku. Ég ræð mönnum óhikað til fararinnar.------- Andrés Kristjánsson í Tímanum: -------Frásögn Vigfúsar er einstaklega nærfærin og sann- færandi.-----Vigfús fer um lönd og borgir, athugull vökull og leitandi, skarpskyggn á nýlundur og sérkenni lands og fólks, en í frásögninni skynja lesendurnir hann sjalfan að baki sem leiðbeinanda í för, sem lesandinn er þátttakandi í. Þetta eru höfuðkostir góðs sögumanns.------ Aðalkostur þessarar ferðabókar er lifandi og tildurslaus frá- sögn, sem kemst óvenjulega nærri lesandanum í látleysi sínu. Málfar höfundarins er gott.---Hann ritar eðlilegt talmál eins og það gerist bezt á tungu sveitafólks, og hann ann móður- máli sínu og forðast erlendar slettur. -------Það verða ekki mörg ár þangað til ferðabækur Vig- fúsar verða tsldar sérstæðar og í fremstu röð íerðabóka, er íslendingar hafa ritað um fjarlæg lönd.---- Jónas frá Hriflu í Mánudagsblaðinu: — — — Ferðabækur Vigfúsar eru skemmtilegar og fróð- legar, því að maðurinn er athugull og segir sína sögu á máli gamalla sveitsmanna, sem hafa kunnað að lesa biblíuna, forn- ritin og stórskáld undangenginna áratuga. Síðasta bók hans heitir Framtíðarlandið og er um Suður-Ameríku. Þar kemur fram landnámshugur Vigfúsar. Hann sér með glöggu auga gestsins hundruð milljónir manna, sem gera sér undirgefin hin sífrjóu fiumskógalönd, þar sem sumarblíðan er jafn- gömul eilífðinni. Jón Helgason í Frjálsri þjóð: -------Yfir óravíðar sléttur Argentínu, um háfjallaskörð Andesfjalla-------um fátæklegar götur hinnar fornu höfuð- borgar Inkanna lá leið Vigfúsar, og frásagnargleði hans leynir sér ekki, þegar hann hermir frá öllum þeim undrum og stór- rnerkjum, sem fyrir augu hans bar.------ Dr. Sigurðui Þórarinsson í Vísi: -------Að vanda hefir Vigfús verið naskur að grafa upp landa og hann vann að þessu sinni það afrek að grafa upp suður í Paraná (Brasilíu) afkomendur þeirra íslendinga, er þangað fluttu fyrir nærri öld síðan. Kaflarnir um þetta fólk réttlæta einir saman útgáfu þessarar ferðabókar, þó að ekkert væri annað.-------Fyrri ferðabók Vigfúsar flaug út, og spái ég því, að svo fari einnig um þessa fróðlegu og frágangs- snotru bók. Spá Sigurðar er að rætast. Það verða sennilega nokk- uð margir á næstu árum, sem iðrast eftir að hafa ekki notað tækifærið á jólaföstunni 1958 til þess að eignast Framtíðarlandið. Leirbrennslan Glit Óðinsgötu 13B. Ke»ramik til jólanna Kertastjakar, margar gerðir Ilmkertastjakar Kápur — Kápur ♦ Seljum á mánudag og þriðjudag Kvenullarkápur með 20% afslætti. Hafnarstræti 4, sími 13350

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.