Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 2
2 MORCriNTiJ.AÐlÐ Sunnudagur 4. jan. 1959 Hin alvarlega stjórnarkreppa Finna Rússar heita hótunum og þvingunar- aðgerðum til að fá kommúnista í stjórn Kekkonen forseti leggur áherzlu á að þjóðin verði að ávinna sér traust Rússa STJÓRNARKREPPA hefur nú staðið í Finnlandi í einn mánuð. Sama daginn og vinstri stjórnin féll á Islandi, þann 4. desember sl. gekk Fagerholm forsætisráð- herra á fund Kekkonens forseta og baðst lausnar. Það var bænda- flokkurinn sem rauf stjórnarsam- starfið og höfðu ráðherrar hans, þeirra á meðal Virolainen utan- ríkisráðherra þegar gengið úr stjórninni. Það er óhugnanlegt, að stjórn- arkreppan hjá Finnum, einni helztu bræðraþjóð okkar íslend- inga stafar af utanaðkomandi á- hrifum. Rússar reyna nú að nota heljartök sín á Finnum til að koma finnskum kommúnistum inn í ríkisstjórn landsins. Ef allt væri með felldu myndi þessi norræna lýðræðisþjóð snú- ast einbeitt og sameinuð gegn svo ósæmilegum afskiptum er- lends stórveldis af innanlands- stjórnmálum. En Finnar eru eins og milli steins og sleggju. Þeir eru mjög háðir Rússum efnahágslega, samn ingsbundnir til að sýna þeim „vináttu" og eiga ætíð yfir höfði sér að hið austræna stórveldi láti varnarsáttmála landanna koma til framkvæmda, þ.e. hernemi Finnland. Vegna alls þessa geta þeir ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Lýðræðisöflin reyna að veita þegjandi mótspyrnu gegn upp- töku kommúnista í ríkisstjórnina. Mönnum er enn í fersku minni, að kommúnistar gerðu tilraun til valdaráns vorið 1948, þegar flokksmaður þeirra Leino var innanríkisráðherra. Þrátt fyrir það er svo komið vegna hótana Rússa og þving- unaraðgerða, að innan eins lýð- ræðisflokksins hins svonefnda Bændaflokks vex þeirri skoðun fylgi, að taka verði kommúnista í ríkisstjórn. Kekkonen forseti, sem í raun réttri á að vera ópóli- tískur þjóðhöfðingi Finna, var forðum foringi Bændaflokksins og stjórnar honum enn á bak við tjöldin. Hann virðist orðinn þeirr- ar skoðunar, að ekki verði komizt hjá að láta undan kröfum Rússa um að taka kommúnista í ríkis- stjórnina. Hefur Kekkonen flutt útvarpsræður til þjóðarinnar um það að Finnar verði að kosta kapps um „að vinna aftur traust Rússa“. Þykjast menn skilja, hvað forsetinn á við með þessu. Enn hefur Bændaflokkurinn þó ekki komið opinberlega fram með kröfu um þátttöku komm- únista í ríkisstjórninni, en hann hefur hindrað myndun nýrrar ríkisstjórnar. ★ Ein helzta orsök ógæfu Finna er klofningurinn í Jafnaðar- mannaflokknum. Þar sauð allt upp úr í persónulegum deilum í fyrra og í þingkosningum, sem fóru fram í sumar buðu tveir armar flokksins fram hvor í sínu lagi. Þetta varð til þess að komm- únistar unnu nokkuð á og juku þingmannatölu sína úr 43 í 50 og urðu stærsti flokkur finnska þjóðþingsins með fjórðung af 200 þingsætum. Eftir þennan kosningasigur kommúnista er enginn vafi á því, að Rússar ætluðust til þess að kommúnistar yrðu aðiljar að næstu ríkisstjórn Finnlands. En svo fór þó ekki. Þvert á móti varð sigur kommúnista til að tengja alla lýðræðisflokkana saman. Þann 29. ágúst myndaði Fager- holm foringi Jafnaðarmanna- flokksins stjórn með þátttöku allra flokka nema kommúniáta og þess flokksbrots, sem hafði klofnað út úr Jafnaðarmanna- flokknum. Að þessari nýju stjórn áttu aðild Jafnaðarmenn, Bænda- flokkurinn, Frjálslyndi flokkur- inn, íhaldsmenn og sænski þjóð- flokkurinn. í stað þess að taka kommúnista í stjórn hafði þunga miðja finnsku ríkisstjórnarinnar færzt til hægri og íhaldsflokk- urinn fékk í fyrsta skipti aðild að henni. Það var ekki liðin vika frá myndun ríkisstjórnar Fager- holms, þegar Lebedev sendiherra Urho Kekkonen, forseti Finna. Rússa í Finnlandi fór á brott úr landinu austur til Moskvu og hef- ur ekki látið sjá sig síðan í Finn- landi. Sama er að segja um sendi herra Kína. Hann hvarf einnig á brott. Nokkru síðar hófu rúss- nesk blöð með Pravda í broddi fylkingar harðorðar árásir á Finna. Sögðu þau að með mynd- un Fagerholms-stjórnarinnar — hefðu Finnar rofið vináttutengsl- in við Rússland. Nú væru aftur komnir til valda í Finnlandi auð valdsinnar og heimsvaldasinnaðir fjandmenn Sovétríkjanna. ★ Alvarlegast var þó, að Rússar neituðu finnskri verzlunarsendi- nefnd leyfis til að ferðast til Moskvu, þótt viðskiptasamningar milli landanna rynnu út. Jafn- framt riftuðu Rússar samningum við Finna um kaup á ýmsum framleiðsluvörum, þeirra á meðal samningum um smíði á stórum ísbrjót og nokkrum flutningaskip um. Þau samningsrof höfðu bráð lega í för með sér vinnustöðvun í verksmiðjum og skipasmíða- stöðvum og hefur atvinnuleysi aukizt við það í Finnlandi. Frá því Finnar urðu að greiða Rússum stríðsskaðabætur á árun- um eftir heimsstyrjöldina hefur atvinnulíf þeirra verið miðað við að framleiða fyrst og fremst iðn- varning sem Rússar sækjast eft- ir. Þeir hafa lítinn markað fyr- ir þessa framleiðslu annarsstað- ar og eru þannig orðnir háðir Rússum. Allra síðustu ár hafa Finnar þó gert ítrekaðar tilraunir til að verða minna háðir Rússum. Þeir hafa leitað inn á vestræna mark- aði og komið á hjá sjálfum sér víðtæku innflutningsfrelsi. ★ f byrjun síðasta árs kom nokk- ur afturkippur í efnahagsmál vestrænna landa. Hann fólst að~ allega í því að úr sölu á iðnvarn- ingi dró og varð á þeim lækk- aði nokkuð. Þetta hefur enn auk- ið á erfiðleika Finna. Þeir áttu örðugra en nokkru sinni fyrr að selja framleiðslu sína vestur á bóginn og einbeittu sér því enn meir en áður að því að framleiða fyrir rússneska markaðinn. Hins vegar stóðust rússneskar vörur verr en áður samkeppnina við innflutningsvörur frá Vestur- Evrópu. Rússneskar vörur hættu að seljast í Finnlandi, enda bæði lakari og dýrari en sömu vörur innfluttar frá Vestur-Evrópu. Sem dæmi um þessa þróun má nefna að árið 1947 fluttu Finnar inn 15 þúsund fólksbíla frá Rúss- landi, en sl. ár aðeins um 3000. Rússland hafði árið 1957 verið efst á blaði allra innflutnings- landa Finnlands, en á sl. ári kom- ust bæði Bretland og Vestur- Þýzkaland upp fyrir það á list- anum. Það varð því samtímis að út- flutningurinn jókst til Rússlands og innflutningurinn þaðan minnk aði. Afleiðingin varð jafnvægis- leysi í gjaldeyrismálunum. Finn- ar eignuðust mikið af rússnesk- um rúblum, sem almenningur vildi ekki nota. Skuld þeirra í vestrænum og tékkneskum gjald l eyri fór hins vegar stöðugt vax- andi. Menn voru þó ekki sérlega ugg andi yfir þessari þróun. Rússar hafa viðurkennt á undanförnum árum, að þeim kæmi vel að fá finnskar iðnaðarvörur og því fall izt á með vissu millibili að færa rúblueignir Finna yfir í ýmsan annan gjaldeyri. Væntu Finnar að þeir myndu gera svo enn. ★ En nú gerðist það að Rússar settu Finnum úrslitakosti. Þeir yrðu að auka kaupin í Rússlandi og eyða gjaldeyriseign sinni. Til frekari áherzlu riftu Rússar ýms um vörukaupum í Firmlandi, sem þeir höfðu áður ákveðið. — Eru menn ekki í nokkrum vafa um að þessar ákvarðanir Rússa eru í sambandi við það að kommún- istar hafa ekki fengið sæti í finnskri ríkisstjórn. Rússar telja Finna ekki vinsamlega þjóð nema kommúnistar fái aðild að ríkisstjórninni og því leggja þeir hindranir í veginn. Þeir hafa jafn vel neitað að yfirfæra rúblueign Finna í tékkneskar krónur, sem þeir hafa þó alltaf gert og komið Finnum vel. Þetta þýðir að Finnar eru til- neyddir til að gera ráðstafanir til aukinna vörukaupa í Rússlandi. í reyndinni mun það koma fram sem eins konar skattgreiðsla til Rússa. Er það sama reynslan og flestar aðrar þjóðir hafa af vöru- skiptaverzlun við Rússa. Finnar verða nú annað hvort að setja takmarkanir við innflutningi frá Vesturlöndum, eða leggja sér- staka nýja tolla á vestrænan inn- flutning, sem aftur verður varið til að greiða niður verð á rúss- neskum innflutningsvörum. — í heild mun þetta hafa í för með sér hækkað vöruverð, sem al- menningur verður að greiða. , ★ Otal margar tilraunir hafa ver- ið gerðar í desember til mynd- unar nýrrar stjórnar í Finnlandi án þátttöku kommúnista. Enn hafa þær allar farið út um þúf- ur, og er nú helzt um það rætt að mynda verði utanþingsstjórn. Á meðan eykur Kekkonen for- seti áróður sinn fyrir því að Finnar geri sérstakar ráðstafanir til „að ávinna sér aftur traust Rússa“. Hefur hann tekið það skýrt fram í tveimur útvarpsræð um er hann hefur flutt finnsku þjóðini, að hann muni hiklaust beita valdi sínu til að viðhaldið verði vináttu við Rússa. í ræðu sinni um miðjan desem- ber sagði Kekkonen, að utanríkis stefna Finnlands hefði að vísu ekkert breytzt og að stjórn Fag- erholms, sem varð að fara frá, hafi viljað viðhalda vináttu- tengslum við Rússa. En það er ekki nóg, sagði hann, — Rússar hafa þrátt fyrir allt fengið grun- um að finnska þjóðin sé að magna upp fjandskap að nýju við Þá. Eina ástæðan fyrir grun Rússa, sem Kekkonen forseti nefndi, var að finnsk blöð hefðu upp á síðkastið tekið upp óvin- samlegri stefnu gegn Rússum, m. a. með birtingu á æviminningum gamalla kommúnista, sem nú hafa sagt skilið við stefnuna, en ljóstra nú upp um undirróðurs- starfsemi félaga sinna og afskipti EINS og flestum mun kunnugt, bauð Ríkisútvarpið íslenzkum tónskáldum til samvinnu á liðnu ári í sambandi við 150 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar. Á veg- um afmælissjóðs Ríkisútvarps- ins var heitið verðlaunum fyrir þau ný lög við kvæði Jónasar, sem dómnefnd teldi bezt. Var heitið verðlaunum fyrir tvo flokka: Annarsvegar fyrir lög við eitthvert hinna styttri kvæða Jónasar, en hins vegar fyrir um- fangsmeiri tónverk við ljóða- flokka eða lengri kvæði. í byrj- un vetrardagskrár voru úrslitin svo kunngjörð: Hafði Sigurður Þórðarson söngstjóri hlotið 1. verðlaun í flokki laga við lengri kvæðin fyrir „Formannsvísur", en Hallgrímur Helgason 2. verð- laun fyrir „Skólaglettur“. — Fyr ir lög við hin styttri kvæði Jón- asar hlaut Jón Leifs 1. verðlaun fyrir „Sólsetursljóð" og Jón Ás- geirsson 2. verðlaun fyrir „Occi- dente Sole“. — Skúli Halldórsson hlaut aukaverðlaun fyrir laga- flokk sinn við ástarljóð eftir Jón- as, eða þýdd af honum. Stíilka verður fyrir strætisvagni UNGLINGSSTÚLKA, Þórhildur S. Blöndal, Réttarholtsvegi 70, slasaðist mikið í gærdag um kl. 3 á strætisvagnabiðstöð skammt frá mótum Bústaðavegar og Réttarholtsvegar. Varð slys þetta með nokkuð ó- venjulegum hætti, og sýnir að nauðsynlegt er fyrir fólk að fara gætilega á biðstöðunum, er hinir stóru og þungu vagnar koma þar við. Var vagninn að nema stað- ar, en rann lítilsháttar til á hálk- unni og varð Þórhildur fyrír vagninum. Eitthvert horn neðan til á vagninum hafði komið á læri telpunnar og við það tættist lær- vöðvinn mjög mikið. Var hún þeg ar flutt í slysavarðstofuna og varð að gera þar allumfangs- mikla læknisaðgerð. Á f jórða hundrað vistmenn VISTMENN á Elliheimilinu Grund voru í árslok 335. Voru konum í miklum meirihluta eða 247 á móti 88 körlum. Á Elli- og dvalarheimilinu Ási í Hveragerði voru 24 vistmenn í árslok, 13 konur og 11 karlar. Á árinu komu 115 nýir vist- menn á Elliheimilið Grund, 38 fóru þaðan og 77 dóu þar. Rússa af innanlandsstjórnmálum Finna. Skýrði Kekkonen frá því að rússneskir leiðtogar hefðu sér- staklega kvartað undan slíkum blaðaskrifum. Þau væru litin mjög óhýru auga í Sovétríkjun- um. Forsetinn taldi að með þessu og öðru ónefndu háttalagi hefðu Finnar vakið grun Rússa um að verið væri að grafa undan góðu nábýli þessara þjóða. Það er stað- reynd, sagði hann, að Rússar bera ekki sama traust til Finna og áður. Það þýðir hvorki að 1 halda því leyndu né að afneita i því. Þetta traust sagði hann að Finnar yrðu að ávinna sér aft- ur. Taldi hann að með því einu væri hægt að varðveita sjálf- stæði Finnlands og friðinn. Hitt skilgreindi forsetinn ekki nánar, hvernig Finnar ættu að vinna traust Rússa. En til þess virðist aðeins ein örugg leið, —. að kommúnistar verði teknir inn í ríkisstjórnina. Öll þau lög og tónverk, sem verðlaun hlutu, verða flutt í dagskrá Ríkisútvarpsins kl. 20,20 í kvöld. — Karlakór Reykjavík- ur, Sigurveig Hjaltested, Guð- mundur Guðjónsson og Guð- mundur Jónsson syngja „For- mannsvísur" eftir Sigurð Þórð- arson, undir stjórn höfundar. — Guðmundur Jónsson syngur „Skólaglettur" eftir Hallgrím Helgason, með undirleik Fritz Weisshappel, sem einnig annast allan annan píanóundirleik í þess um tónverkum, — Þjóðleikhúss- kórinn undir stjórn Róberts A. Ottóssonar syngur „Sólseturs- ljóð“ eftir Jón Leifs. „Occidente Sole“ eftir Jón Ásgeirsson er sungið af Þuríði Pálsdóttur, og svo er að lokum lagaflokkur við ástarljóð Jónasar: „La Belle“, „Sæunn hafkona", „Man ég þig mey“ og „Sólsetursljóð", samin af Skúla Halldórssyni, fluttur af Þuríði Pálsdóttur, Kristni Halls- syni og kammerhljómsveit undir stjórn Hans Antolitsch. Ríkisútvarpið vill vekja at- hygli hlustenda á þessum dag- .skrárlið, sem hefst eins og áður er sagt kl. 20,20 í kvöld. — Vil- hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri mun flytja ávarp, og Óskar Hall- aórsson cand. mag. les ljóðin, er verðlaunaíögin eru samin við. — Rússneska eldflaugin Framh. af bls. 1. ríkjamanna eins og smágerð, nákvæm vasaúr. „Auðvitað vit- um við ekki hve oft Rússum hef- ur mistekizt“, sagði Oberth. „Það er ekki svo mikið eggjahljóð í Rússum, áður en eggin koma“. Oberth kvað það nú ekki langt undan, að hægt yrði að senda menn til tunglsins. Oberth, sem er einn af brautryðjendum í eld- flaugasmíði, hefur nú lagt eld- flaugar á hilluna og snúið sér að heimspeki. Kenneth Gatland, varaforseti brezka geimfarasambandsins, lagði í dag til að Sameinuðu þjóð- irnar settu alþjóðareglur um geimflug og rannsóknir á öðrum hnöttum. Hann kvað það vera orðtak vestan hafs, að sá sem réði tunglinu hefði jörðina á valdi sínu, og þess vegna væri tími til kominn að Sameinuðu þjóðirnar tækju tunglið til með- ferðar. Hann sagði ennfremur, að vestrænum þjóðum bæri nú að hefja víðtæka samvinnu um geimrannsóknir, og væri sjálf- sagt að bjóða Rússum þátttöku í slíkri samvinnu, ef þeir kærðu sig um. Sagði hann, að Bretar væru nú að gera rannsóknir á sérstöku tunglfari, sem flutt gæti menn til tunglsins. VerSlaunalögin viS kvœði Jónasar Hallgrímssonar leikin í Úfvarpinu í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.