Morgunblaðið - 04.01.1959, Qupperneq 8
MORGVTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 4 ían. 1959
Fróðleiksmolar úr sögu landhelg-
isgæzlunnar í byrjun aldarinnar
f JÚLÍMÁNUÐI fyrir 53 árum
hóf ritið Ægir göngu sína hér i
Reykjavík. Það var Matthías
Þórðarson ritstjóri, sem réðst í
það stórvirki að hleypa fyrsta ísl.
sérgreinar tímaritinu af stokkun-
um. Ægi var þegar í vöggu ákveð
inn vettvangur og skyldi það vera
fiskveiðar og farmennska. í hin-
um gömlu Ægis-blöðum má finna
ýmsan fróðleik varðandi land
helgisgæzluna hér við land. í þá
daga voru að sjálfsögðu dönsk
herskip sem gæzluna höfðu með
höndum. Margir fulltíða menn
kannast við nöfn á nokkrum þess-
ara herskipa, en þau hétu m. a.
Hekla, Heimdallur, Beskytteren,
og ísiands Falk.
Matthías Þórðarson stýrði blaði
sínu vel, það verður ljóst við að
blaða í gegnum hin gömlu blöð
Ægis. Hann var skeleggur tals-
jmaður um hvert það mál er
snerti fiskveiðar landsmanna,
vildi efla þær á alla lund og
gerði að sínum orðum í ávarpi til
landsmanna orð brezka ferða-
mannsins: „að væru fiskveiðarn.
ar almennilega stundaðar þd
gætu þær orðið ótæmandi auðs-
uppspretta fyrir landið“.
Síðan heldur Matthías áfram
„Fiskigrunnin kringum landið
eru að minnsta kosti 1600 fer-
milur og eins og gefur að skilja
ættu þau að vera sem mest notuð
af okkur sjáifum, þar sem við
eigum margfalt betri aðstöðu
hvað snertir nærveru þeirra, og
við ættum að geta fært okkur
þau svo vel sjálfir í nyt, að við
gætum flutt útlendingum okkar
eigin fisk, fiskaðan af okkur sjáif-
um, á okkar eigin miðum, á eigin
skipum, í stað þess að þeir sækja
hann mest hingað sálfir og ekki
ósjaldan þar að auki fara í bága
við landslög og rétt með yfir-
gangi sinum og ofbeldi".
Þegar árgöngunum af Ægi frá
1905 til vorsins 1909 er flett má
á nokkrum stöðum rekast á
greinarkorn er fjaila um land-
heigisgæzluna meðfram strönd-
um landsins. Hún var þá eðlilega
i höndum danskra yfirvalda, en
Þetta er málverk af Heklu á gæzlusiglingu undan íslandsströndum. Málverkið er í eigu Péturs
Sigurðssonar forstjóra Landhelgisgæzlunnar. Danskur listmálari Locher að nafni, sem var með
skipi hér við land málaði myndina og telur Pétur að ströndin í baksýn eigi að vera undir Jökli.
Heklu var 1300 tonna herskip, með 3000 hestafia véi, gekk allt að 17 mílur, var mjög vel vopnuð.
yfirmönnunum á varðskipunum
gekk misjafnlcga vel að hafa
hendur í hári veiðiþjófanna, og
er að sjá sem persónulegur áhugi
varðskipsforingjanna fyrir gæzlu
starfinu hafi þar nokkru ráðið.
Þessar greinar bregða upp
myndum af hinni hörðu baráttu
sem fiskimenn þeirra tíma, áttu
við að etja í viðureign við er-
lenda veiðiþjófa, sem tóku ekki
hið minnsta tillit til hinna litlu
fiskiskipa og báta.
Hér fara á eftir glefsur úr Ægi,
eru það greinarkorn er fjalla á
einn að annan veg um landhelgis-
gæzluna eins og hún var á fyrstu
árum þessarar aldar. Er fróðiegt
að rifja upp þessa gömlu þætti
Rúmlega 400 erlend fiskiskip
YFIRFORINGJAR varðskip- arfærum landsmanna. Á þessum
anna gáfu stjórninni árlega,
að enduðum gæzlutíma þeirra
hér við land, skýrslur yfir til-
högun og árangur ferðar-
innar, ásamt mörgum mikil-
vægum upplýsingum um fiski
veiðar útlendra sem innlendra
við ísland, með bendingum
um margt, sem þeir álíta að
geti orðið til framfara. f ágúst
1905 birti „Ægir“, að fengnu
leyfi stjórnarráðsins útdrátt
úr skýrslu P. A. Grove, er var
skipherra á varðskipinu
Heklu, árið 1904:
„Um miðbik síðustu aldar voru
landhelgisgæzlunnar. Þó erlendir briggskipin „St. Thomas“, „St.
sjómenn hafi stundað veiðar hér Croix“ og „Ornen“ og barkskip-
við land í yfir 650 ár, þá kveður »Saga varðskip við ísland um
fyrst nokkuð að ráði að land- sumartímann, en þar eftir komu
helgisgæzlunni kringum alda- eimskipin „Fylla , „Diana“ og
mótin síðustu, því Bretar hófu
hér botnvörpuveiðar upp úr 1890.
Hekla tók 25 sama árið
„Varðskipið Hekla hefur haft
hér strandgæzlu í fjögur ár. Sum-
arið 1902 kom hún hér fyrst upp
í stað Heimdalls, sem verið hafði
frá 1895. Hekla er orðin nafn-
kunn fyrir dvöl sína hér við land
og sérstaklega í sumar. Ægir
álítur sér skylt að geta helztu
atriða, er snerta veru hennar hér
uppi.
Sá, sem fyrstur stýrði henni
hér við land var Com. R. Hamm-
er, sá er áður var hér við mæl-
ingar á Diönu í 3 ár. Árið 1903
stýrði henni Com. A. Evers, að-
stoðarforingi Valdimars prins og
sem síðustu ár stýrði Heimdalli,
með hinum núverandi ‘Noregs-
konungi, sen» næstráðandi yfir-
foringja. í fyrra stýrði henni
Com. P. A. Grove, og í ár capt.
Bchack og capt. Tuxen.
Botnvörpungaveiði Heklu hef-
Ur verið misjöfn þessi ár, eða
með öðrum orðum aldrei náð
annarri eins upphæð eins og í
sumar. Árið 1902 voru hér við
land teknir 5 botnvörpungar,
1903 8 botnvörpungar, 1904 átta
botnvörpungar, að viðbættum
þe' n, sem Beskytteren hefur tek-
ið hvort ár fyrir sig.
Árið 1901 síðasta ár Heimdalls
(Com. Hovgaard) voru teknir
hér 3 botnvörpungar og er þess
getið til þess að minna á, hvað
mönnum er gjarnt að vera mis-
jafnir í dómum sínum um menn,
þar sem undirskriíuð var beiðni
frá fleiri hundruð mönnum um
að fá slíkan dugnaðarmann aftur.
En capt. Tuxen, sem tók jafn-
marga á helmingi styttri tíma
fékk ákúrur hjá
fyrir starf sitt.
Hekla handsamaði í sumar
þessa 24 botnvörpunga, sem getið
er í töflunni, en þar fyrir utan
tók Beskytteren einn, Wien, sem
í skýrslunni stendur, og sýslu-
maðurinn á Patreksfirði 1.
Viðvíkjandi öðrum aðgjörðum
Heklu í sumar má geta þess að
nærfellt 70 sjúklingar hafa fengið
læknishjálp og meðöl um borð, og
eru það fleiri en nokkru sinni
áður. Ennfremur gerði Hekla
(capt. Tuxen) sér beinlínis ferð
með sjúka og fátæka konu af
Önundarfirði til ísafjarðar, til að
leggja inn á sjúkrahúsið, og koma
henni undir læknishendi. Enn-
fremur bjargaði Hekla norskri
skonortu, sem lá stýrislaus úti
fyrir Vestfjörðum og hafði farm
til Isafjarðar. Hún dró hana inn
á Dýrafjörð.
Ráðherrann kom því til leiðar að
Hekla var hér tveimur mánuðum
lengur en áður, en næsta ár kem-
ur annað skip í stað hennar, en
ætlast er til að hún verði hér uppi
3 mánaða tíma með undirforingja
efni á sumrin. Hekla hefur 125
menn um borð og er það 50 mönn
um minna en ætlast er til og hún
hefur rúm fyrir. Kolaeyðsla var
í sumar 1680 tonn og er því út-
gerðin dýr. Þessi grein birtist í
Ægi í des. 1905 og fylgdi grein-
inni taflan til hægri.
„Ingolf" og voru þau til skiptis
í 30 ár, frá 1865—1895 varðskip
hér.
Til loka þssa tímabils voru all-
ar fiskveiðar reknar með netum,
línum og lóðum.
Eftir 1890 hófu Englendingar
blaðamönnum flatfiskveiðar með botnvörpum
| við strendur landsins. Flatfiskur
veiðist mest á fiskisviðunum
næst landinu, og þetta varð til-
efni til þess, að botnvörpungar
skutust inn á landhelgissvæðið
og brutu þannig lögin með því
að fiska þar. Einnig spiltu þeir
tíma voru fiskveiðar landsins i
miklum uppgangi; yfirga^igur
botnverpla varð því oft orsök til
þess, að bátafiskveiðarnar, sem
eru mikilvægustu fiskveiðar
landsmanna, urðu að hætta í
miðjum klíðum.
Nú tóku Englendingar ár frá
ári að lengja veiðitímann. Veru-
tími varðskipsins hér við land
var því lengdur upp í 7% mánuð
og til þess veitt 49,000 kr. auka-
tillag úr ríkissjóði. Þetta dugði í
tveggja ára tíma, en botnverplar
lengdu ennþá veiðitímann við ís-
land og árið 1904 fiska þeir árið
um kring við ísland, en þó eru
þeir færri á veturna.
Um 180 botnverplar fiska við
ísland nú, þar af eru 150 enskir
en 30 frá öðrum þjóðum, en þó
munu þeir fleiri verða, því að
þýzki botnverplaflotinn stækkar
stórum, og 10 stór skip með 10
mílna hraða, sem fiska eiga við
ísland, eru í ár í smíðum í Geeste
múnde og grendinni. Frakkar
hafa nú 8 skip hér við land og
fiskveiðar þeirra, eins og Hol-
lendinga og Belga magnast stór-
um og allt bendir til þess að, að fs
landi steðji meiri voði en nokkru
sinni áður.
Það eru Englendingar, sem
mestir eru uppvöðsluseggir í land
helgi og ónýta oft með miklu of-
og eyddu tíðum netjum og veið- Ibeldi veiðarfæri landsmanna og
einkum þá, þegar þeir vita, að
varðskipið er ekki við land.
Auk þess stunda Norðmenn
þorskveiðar með lóðum, og nú á
aíðustu tímum síldveiðar með
reknetum fyrir Norðurlandi.
Þessar veiðar hafa í síðustu 2 ár
aukist svo stórkostlega, að í ár
veiddu um 100 skip á vart 2 mán-
uðum 85,000 tn. af síld, sem er
1,200,000 kr. virði. Venjulega er
síldin veidd utan landhelgi, veið-
ar þessar kæmu því ekki til
greina, ef veiðin væri ekki þeg-
ar í stað flutt í land og verkuð
þar. Hvort þetta viðgengzt eftir-
leiðis er komið undir löggjöf-
inni íslenzku, en hvað sem öðru
líður, er eftirlit með fiskveiðun-
um nauðsyn. Ennfremur eru það
einkum Norðmenn, er stunda
hvalveiðar í stórum stíl við ís-
land og eru þar búsettir.
Þorskveiðar með línum, venju-
lega fyrir utan landhelgi, stund-
uðu 150 franskar skonnortur með
um 3000 skipverja; 100 færeyskir
kútterar, skipshafnir um 1200
menn og um 130 íslenzkir kútter-
ar, skipverjar um 2000. Ennfrem-
ur stunda 2000 íslenzkir bátar
veiðar við stréndurnar. Verðmæti
þessa árlega afla er sem hér seg-
ir: hvalveiðar 2 milljónir kr.
frönsku línuveiðarnar 3,5 millj.
kr. og veiði Færeyinga 1 milljón.
íslendingar flytja út fisk fyrir
5 milljónir kr. árlega auk þess
sem neytt er innanlands.
Ekki er hægt að ákveða hversu
mikils virði botnverpingaveiðin
er, en að líkindum er hún meira
virði en allt hitt samanlagt.
Þess er áður getið að Færey-
ingar stunda af kappi miklar
fiskiveiðar hér við land, en ann-
arra danskra veiða er ekki get-
ið. En sú er sök þess, að nær eng-
ir stunda fiskveiðar hér frá Dan-
mörku, þótt íslenzk lög heimili
öllum dönskum þegnum jöfn
réttindi innan landhelgi.
Vegna ftfnna miklu hagsmuna,
sem útlendar þjóðir hafa af fisk-
veiðum þessum, hafa Frakkar,
þegar um langt árabil haft tvö
herskip, sem stöðuskip hér á
sumrum. Englar (Bretar) hafa
í 6 árin síðustu sent hingað stórt
varðskip 3% mán. á ári, en Þjóð-
verjar hafa 2 síðustu árin sent
hingað fregnsnekkju í stuttan
leiðangur.
Að vernda strendur íslands
gegn þessum mikla fiskimanna-
sæg frá öllum þjóðum, sem eink-
um á vorin og haustin leita upp
að landinu á eftir fiskinum, er
harla erfitt á allri þessari löngu
strandlengju ,sem auk víkna og
fjarða er 240 mílur danskar. Ef
vörn þessi ætti að vera alfull-
Botnvörpungar handsamaðir og sektaðir af Heklu í sumar
Dag. Nafn skipsins Merki Hvar tekinn Sektarupphæð
28/3 Jeria G.Y. 496 Við Vestm.eyj. 1080 kr.
— Ullapool G.Y. 1123 — 1080 —
29/3 Bernard J.Y.M. 23 — 360 —
31/3 Cavalier H. 544 — 1440 — Afli og veiðarfæri tekin
5/4 Atalanta A. 165 Við Portland 1080 —’ sama
— Calabria G.Y. 50 — 1440 — sama
30/4 Straitcona A. 218 Reykjavíkurh. 306 —
— Straitblane 4. 431 — 306 —
2/5 Chrysolithe H. 499 N. af Reykjan. 1440 — Afli og veiðarfæri tekin
3/5 Livingston H. 496 Við Portland 1080 — Keypti afl. veiðaf. tekin
6/5 Lord Kitsheneh H. 8 — 1440 — Afli og veiðarfæri tekin
— Touqet B. 2920 — 1050 — sanr
13/5 King Kanuth G.Y.1124 Við Ingólfsh. 1350 — sama
18/5 Augusta P.G. 106 — 1080 — Keypti afl. veiðaf. tekin
— Augsbourg B.B. 46 — 1080 — sama
— Burhave P.G. 98 — 1080 — sam?
— King Edvard S.N. 382 Við Portland 1080 —
25/5 Magdebourg B.B. 44 — 1080 — Afli og veiðarfæri tekin
30/5 Blance Nez B. 2800 — 1050 — sama
9/6 Golden Glaem H. 269 Patreksfirði 1350 — sama
Swan H. 700 Aðalvík 1800 — sama
Wien B.B. 38 Við Ingólfsh. 225 —
30/10 Queen Alexandrr H. 530 Við Garðssk. 1500 — Afli og veiðarfæri tekin
— Seagull H. 494 — 2500 — sama
2/11 Cavalier H. 544 Við Vestm.eyj. 360 —