Morgunblaðið - 04.01.1959, Page 19

Morgunblaðið - 04.01.1959, Page 19
Sunnudaerur 4 ian. 1959 M0KGTJNTÍT4Ð1Ð 19 Verzlunarskóli Islanas fœr aukið húsrými LENGI hefur verið þröngt um Verzlunarskóla íslands í gamla skólahúsinu við Grundarstíg. f framtíðinni mun nýju skólahúsi ætlaður staður á Háaleiti, en þörf in fyrir aukið húsrými nú þegar er svo brýn, að ákveðið hefur verið að reisa viðbótarhúsnæði á ióð skólans, við Þingholts- strætið, og verður því hægt að nota það ásamt gamla húsinu. Teiknað hefur verið skólahús og fjárfestingarleyfi fyrir byrjunar framkvæmdum fékkst síðastliðið sumar. Fyrsti áfanginn í byggingarmál unum verður tvær hæðir og kjall ari, en fullbyggt verður húsið fjórar hæðir. Á fyrstu hæð verð- ur samkomusalur, þar sem hægt verður að sýna kvikmyndir og skuggamyndir, á annarri hæð verða fjórar kennslustofur og í kjallara er gert ráð fyrir fatá- hengjum, geymslum og veitinga- sal, þar sem nemendur geta m.a. neytt nestispakka sinna. Þegar þessi hluti byggingarinn- ar er fenginn, mun verða hægt að taka við 100 nemendum í við- bót við þá, sem nú stunda þar nám. Veitir ekki af auknu hús- rými, sem bezt sést á því að undanfarin ár hafa um tvö hundr uð unglingar gengið undir inn- tökupróf árlega, en aðeins er hægt að taka við um 60—70 nýj- um nemendum. Lélegar pósfsamgöngur við Mývafnssveit Grímsstöðum, við Mývatn, 27. des. TÍÐARFARIÐ fór að versna, þeg- ar kom fram í desembermánuð. Setti þá niður allmikinn snjó svo þung færð var orðin á flestum vegum, og víða var að verða ófært öllum bílum. Treglega hef- ur því gengið að koma jólapósti áleiðis. Nýjustu blöð, sem hingað hafa borizt frá Reykjavík, eru frá 16. þ. m. Á Þorláksmessu kom hlákubloti, sem hefir haldizt síð- an, og hafa því vegir víðast orð- ið sæmilega færir. Annars bregður okkur Mývetn- ingum ekki við tregar póstgöng- ur. Síðastliðið sumar fór áætl- unarbíll daglega frá Akureyri til Mývatnssveitar. Með honum var pósturinn ekki sendur frá Akur- eyri, heldur var hann látinn fara til Húsavíkur og þaðan aðeins tvisvar í viku til Mývatnssveit- ar. Það eru þó þrjár áætiunar- ferðic í hverri viku milli Húsa- víkur og Mývatnssveitar, en það er víst talið nægilegt fyrir okkur að fá póstinn tvisvar í viku. Þetta fyrirkomulag er okkur með öllu óskiljanlegt og oft mjög óþægi- legt. Eins og kunnugt er, dvelst fjc'Jdi af ferðamönnum hér í sveit inni yfir sumarir énuðina. bæði innlendir og fjöldi af útlend- ingum. Mikið af bréfapósti er sent til þessara ferðamanna á hótelin, en oft eru viðtakendur farnir, þegar pósturinn að lok- um berst hingað. Góður afli hjá Isafjarðarbátum ÍSAFIRÐI, 3. janúar: — fsafjarð- arbátar hafa róið i gær og í dag og hefur afli þeirra verið sæmi- legur. Áhafnir bátanna eru hinar sömu og verið hafa síðan í byrj- un nóvember, en Alþýðusamband Vestfjarða veitti leyfi til að bát- arnir reru nú eftir áramótin og fengju sjómenn sömu kjör og samið verður um. Undanfarið hafa fsafarðarbátarnir aflað mjög vel, einkum út af Kögrinu, en afli togara fyrir vestan hef- ur hins vegar verið mjög lélegur. Gæftir hafa ekki verið góðar. Togarinn Svalbakur kom hing- að inn í gær með slasaðan mann. Hafði hann fengið blokk í höf- uðið, en var talinn úr allri hættu í dag. f gærkvöldi kom togarinn Elliði hingað með mann, sem hafði skaddazt mjög mikið á hendi, er topprúlla losnaði í gálga togarans. Gamlárskvöld var mjög rólegt hér á ísafirði. Norð autsan-þræs- ingur var á og kalt, enda var fó!k lítið úti við. Fjorar brennur loguðu fyrir ofan bæinn, ein í Skutulsfirði og Oin i Hnífsdal. J.P.H. LC»VfK GIZURARSON héraðsclóinslögmaður. Klapparstíg 29. — Sími 17677. Hlýindin, sem voru hér fram í nóvemberlok, höfðu þau áhrif á trjágróður, að reyniviður var á sumum stöðum kominn að því að laufgast á ný. Víða sá á græna brodda laufblaðanna sem ætluðu að fara að brjótast út í dagsljósið. Sama er að segja um birkið. Hætt er við að þetta hafi slæmar af- leiðingar fyrir trén í vetur. Sama sagan er um annan gróður. f Vog- um sáust útsprungnir túnfíflar 27. nóvember. Þetta er mjög fá- gætt hér um slóðir. Þess er rétt að geta, að í túnihu í Vogum er dálítill jarðhiti. Komst undan hákarli eftir 16 tíma sund Lourenco Maroques, Mósambík, 3. jan. Reuter. SKIPBROTSMAÐUR frá Suð- ur-Afríku sagði frá þvi i dag, hvernig hann reif sig lausan úr skolti risahákarls eftir 16 tíma sund, og komst á land með blóðið fossandi úr opnu sári á kviðn- um. Eric Sutti, 33 ára gamall og tveggja barna faðir, sagði frá raunum sínum í sjúkrarúmi, en þar er verið að gera að sárum hans á kviði og fótleggjum. Hann kvaðst hafa farið á fiskveiðar með vini sínum, 26 ára gömlum, Peter Murray að nafni, en þeir eiga báðir heima í Jóhannesborg. Þeir fóru til veiða á nýársdag, en bát þeirra hvolfdi. Báðir voru þeir með björgunarbelti og reyndu að ná landi. Sól var að setjast og þeir héldust í hendur meðan þeir syntu, en í dögun komust þeir að raun um, að þá hafði borið af leið og voru komn- ir á slóðir, þar sem mikið er um hákarla. „Eins og hundur með rot(u“ Þeir náðu sandrifi og þar skildi Sutti vin sinn eftir, en hann var þá þrotinn að kröftum. Sutti reyndi að synda til lands, rúm- lega 6 kílómetra leið. Aðeins spölkorn frá ströndinni réðst að honum hákarl, sem þegar tætti af honum fötin og reif gat á kvið hans. „Hann skók mig eins og hundur skekur rottu", sagði Sutti. Hann barðist um á hæl og hnakka, og skyndilega synti hákarlinn aftur til hafs og kom ekki aftur. Sutti neytti síðustu krafta til að komast í land og hélt með báðum höndum fyrir blæðandi kviðsárið. Hann óttaðist að aðrir hákarlar mundu koma á vettvang þegar þeir fyndu blóð þefinn. Sextán tímum eftir að bátnum hvolfdi staulaðist hann loks á land og gekk tæpa tvo kílómetra til flotastöðvar, þar sem hann var settur í flugvél og honum flogið til sjúkrahússins í Lour* enco Marques. Félaginn horfinrt Leitað var með fiugvélum og bátum að Murray félaga hans, en hann hefur ekki fundizt ennþá, og er óttazt að hann hafi drukkn að. Hákarlar hafa orðið æ skæðari við strendur Suður-Afríku síð- ustu árin, og stofnað lífi margra fiskimanna og sundmanna í hættu. A. m. k. fimm manns hafa orðið þeim að bráð undanfarið ár. Margt hefur verið gert til að bægja þeim frá landi, m.a. hefur verið beitt vélbyssum og djúp- sprengjum gegn þeim. Cóðir gripir vígðir í kirkju Óháða safnaðar- á jóladag ins Á JÓLADAG var vígt nýtt altari, nýr prédikunarstóll og nýr skírn- arfontur í kirkju Óháða safnaðar- ins í Reykjavík. Fyrir jólin var einnig gengið frá lýsingu í kirkj- unni og er hún nú langt komin. Er gert ráð fyrir að hún verði vígð í vor. Fyrir messu á jóladag afhenti Jón Árnason skírnarfontinn fyrir hönd Bræðralags safnaðarins og Ekki hnífstunga L. STORR ræðismaður hefur komið að máli við Mbl. vegna fréttar um að í ölæði hafi komið til átaka milli tveggja manna í námubænum í Meistaravík. Var Svíi fluttur þaðan í sjúkrahúsið á Keflavíkurflugvelli eftir að hann hafði verið illa særður vegna hnífsstungu, að því er fregnir hermdu. L. Storr ræðismaður segir þess- ar fregnir hafa verið orðum aukn ar og það svo, að hinn sænski maður hafi alls ekki verið særð- ur með hnífsstungu. Aftur á móti hafði hann meiðzt innvortis vegna hnefahöggs, en afleiðing- ar þess komu ekki fram fyrr en á næsta degi. Storr ræðismaður sagði Svíann vera á góðum bata- vegi og myndi hann brátt fara af hinum bandaríska herspítala. Kvaðst Storr sjálfur hafa átt ýtarlegar viðræður við báða mennina, þann særða og þann sem sló. formaður safnaðarins, Andrés Andrésson veitti gjöfinni viðtöku. Skírnarfontinn gerði Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, og var hann vígður með því að safnað- arprestur skírði þrjú börn upp úr honum. Hinn nýja prédikunarstól smíð- aði Björn Þorsteinsson, trésmíða meistari, sem einnig gaf kirkj- unni stólinn. Sr. Emil Björnsson prédikaði og þakkaði hann þessar rausnar- legu gjafir. Fjöldi manns var við jólamessuna og var kirkjan full- skipuð. 14. eða 15. f ebrúar? f GÆR birtist hér í blaðinu frétt um landsleiki fslands í hand- knattleik gegn Danmörku, Nor- egi og Svíþjóð. Var frétt þessi tekin upp úr Ekstrabladet i Kaup mannahöfn. Handknattleikssambandið upp- lýsir nú að frétt þessi sé eigi rétt nema að því leyti, að landsleik- urinn við Norðmenn fari fram 10. febrúar í Oslo og landsleikur við Dani fari fram 12. febrúar í Helsingör. Síðan sagði Ekstra- bladet að iandsleikurinn við Svía verði í Boras hinn 15. febr. HSÍ upplýsir að það sé ekki endan- lega ákveðið. Vilja íslendingar að leikur þessi fari fram 14. febr. Mun þetta standa í samningum nú — en skylt er að sjálfsögðu að hafa það sem sannara reynist og leiðréttist þetta hér með. Lokað vegna jarðarfarar mánudaginn 5. janúar 1959. Borgarþvottahúsið h.f. Móðir okkar, tengdamóðir og amma GUÐRtJN KRISTÓFERSDÖTTIR Hverfisgötu 76B lézt í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur föstudaginn 2. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Synir, tengdadætur og bamabörn. Maðurinn minn GRfMUR GRfMSSON Bragagötu 36, andaðist föstudaginn 2. janúar. Jarðarförin ákveðin síðar. - Guðrún Guðbjartsdóttir. Útför eiginkonu minnar og móður okkar ARNBJARGAR SIGMUNDSDÓTTUR sem andaðist þann 27. des., fer fram þ-riðjudaginn 6. jan. kl. 10,30 árdegis frá Fossvogskirkju. Athöfninni verður útvarpað. Daníel Daníelsson, Jóna Olsen, Magnús Daníelsson, Páll Daníelsson. Faðir okkar KARL ANDRES JÓHANNESSON er andaðist í Elliheimilinu Grund 29. des. verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 6. jan. kl. 1,30. Klara Karlsdóttir, Auðun Karlsson, Valborg Karlsdóttir, Jón Karlsson. Maðurinn minn INGI BJARNASON efnaverkfraiðingur, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 10,30. Blóm eru afþökkuð, en bent á Barnaspítalasjóð Hrings- ins. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Steinunn Bjarnason. Maðurinn minn og faðir okkar ÓLAFUR ELfSSON forstjóri, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 6. jan. n.k. kl. 2 e.h. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. Gyða Björasdóttir og börn Útför fósturföður míns JÓHANNESAR HJARTARSONAR fyrrum skipstjóra, fer fram frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 6. janúar kl. 1,30. Ásta Jónsdóttir. Alúðarþakkir flytjum við öllum þeim, sem aðstoðuðu okkur og vottuðu okkur samúð vegna andláts og jarðar- farar sonar okkar og bróður VÉSTEINS Valborg Ólafsdóttir, Gísli Guðmundsson og böra, Kópavogsbraut 37. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móðúr og fósturmóður okkar ÓLAFAR BALDVINSDÓTTUR Sérstaklega viljum við þakka Eskfirðingum. nær og fjær, ógleymanlega aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Elín Jónsdóttir, Brynja Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.