Morgunblaðið - 16.01.1959, Síða 2
r
é
MORCínVRLAÐIÐ
Föstudagur 16. jan. 1959
Heilladrjúgt spor stigið er Reykja-
víkurbær tók að sér brunatrygg-
ingar á fasteignum bæjarins
Frá umræbum á bæjarstjórnarfundi
i gær
FUNDUR var settur í bæjar-
stjórn Reykjavíkur kl. 17 í gær.
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins var ekki mættur og var því
gengið að afgreiðslu mála með
eðlilegum hætti. Var lokið af-
greiðslu fimm fyrstu dagskrár-
málanna, er Þórður Björnsson
gekk inn í salinn með úttroðna
skjalatösku að vanda. Kvaddi
hann sér óðara hljóðs um það
mál, sem var til umræðu, en það
var fundargerð bæjarráðs frá 9.
janúar. Hafði á þeim fundi bæj-
arráðs verið lagt fram að nýju
og rætt, frumvarp um réttindi
og skyldur fastra starfsmanna
bæjarins. — Kvaðst Þórður vilja
mega vænta þess af bæjarráði,
að það hraðaði þessu máli.
Þá skýrði Þórður Björnsson
frá því, að hann hefði hugsað
sér að víkja nokkuð að máli,
sem væri í fundargerð bæjarráðs
frá 27. desember, en sú fundar-
gerð hefði verið samþykkt áður
en hann kom á fundinn. Það var
fyrsti liður þessarar fundargerð-
ar, sem Þórður óskaði að taka
til máls um, en sá liður er á
þessa leið:
Úr fundargerð bæjarráðs
Lögð fram að nýju greinargerð
borgarlögmanns og bæjarhag-
fræðings, dags. 20. þ. m., um at-
huganir á tilboðum, er bárust
í brunatryggingar bæjarins, svo
og frekari samanburður á tilboð-
unum.
Ennfremur lagt fram bréf frá
borgarstjóra, dags. 22. þ. m., til
Húseigendafélags Reykjavíkur,
svo og bréf félagsins, dags. 22.
þ. m., þar sem skýrt er frá álykt-
un félagsstjórnarinnar um mál-
ið.
Bæjarráð ákveður, skv. umboði
bæjarstjórnarinnar, með 5 sam-
hljóða atkv.:
a ð hafa áfram með höndum
^ starfrækslu og framkvæmda
stjórn trygginganna
a ð lækka brunatryggingarið-
gjöld um 15%
a ð breyta endurtryggingar-
ákvæðum úr 1.25%. í 1.00%.
af tryggingarfjárhæð
að gera á ný endurtryggingar-
samning við félagið Isl.
Endurtryggingu, skv. til-
boði þess, dags. 8. þ. m.
Samtímis því að taka þessa
ákvörðun, lýsir bæjarráð ánægju
sinni yfir mörgum öðrum hag-
stæðum tilboðum og þakkar þau.
Bæjarráð teiur enn fremur
rétt í þessu sambandi að vísa
til ályktunar frá 18. þ. m., um
að verja fé úr Húsatryggingar-
sjóði bæjarins til eflingar bruna-
vörnum og ítrekar fyrri sam-
þykktir um, að þeirri stefnu beri
að fylgja eftir föngum, enda stað-
fest með tilboðunum, að af efld
um og bættum varúðarráðstöf-
unum má jafnan vænta hagstæð-
ari tryggingarkjara, sem leiða
síðan með eðlilegum hætti til
lækkandi tryggingariðgjalda.
Illu bezt aflokið
Óskaði Þórður Björnsson þess
við forseta bæjarstjórnar að
Dagskrá Al/jingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis á venju-
legum tíma. Á dagskrá efri deild
ar er eitt mál.
Dýralæknar, frv. — 3. umr.
Tvö mál eru á dagskrá neðri
deildar.
1. Skipulagning samgangna. —
2. umr.
2. Bæjarstjórn í Hafnarfirði,
frv. — 1. umr. /Ef deildin leyfir/.
hann leitaði eftir samþykki bæj-
arfulltrúa um að hefja umraeð-
ur um brunatryggingamál. —
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri,
kvaddi sér hljóðs og sagði að
bæjarfulltrúum hefði viljað til
það óhapp, að bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins hefði kom-
ið of seint á fundinn og því hefði
þeir misst af ræðu, sem hann
hefði búið sig undir að flytja.
Hvort tveggja væri, að hann
vissi, að það félli bæjarfulltrú-
anum illa, að brenna inni með
ræðu, og eins hefði hann það í
hendi sinni, að fá þetta mál tek-
ið á dagskrá næsta fundar, og
kvaðst borgarstjóri því fyrir sitt
leyti vilja leggja til, að Þórði
yrði veitt leyfi til að flytja þessa
ræðu strax, enda væri það sín
skoðun, að illu væri bezt aflokið.
AUt hnitmiðað
Var nú ósk Þórðar borin und-
ir bæjarfulltrúa og samþykkt að
leyfa honum að flytja eftirmæli
eftir það mál, sem þegar hafði
verið samþykkt í bæjarstjórn-
inni.. Flutti Þórður Björnsson nú
ræðu sína. Gat hann þess í upp-
hafi, að hann ætlaði aðeins að
tala stutt, enda reyndist það
sannmæli, því ræðan tók ekki
einu sinni klukkutíma. Þórður
er ásjálegur maður í ræðustól,
allt virðist hnitmiðað, sem hann
setur fram, jafnvel „mimik“ og
handahreyfingar.
Ræðan fjallaði um brunatrygg-
ingar og gagnrýndi Þórður það,
sem gert hefur verið í þeim mál-
um á vegum bæjarins.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, tók til máls að ræðu Þórð-
ar lokinni. Sagði hann, að Þórð-
ur hefði rakið gang mála frá
sínu sjónarmiði, og væri ástæðu-
laust að fara um mál hans mörg-
um orðum. Þó oft væri ágrein-
ingur í bæjarstjórninni mundu
allir bæjarfulltrúar á einu máli
um fyrirkomulag brunatrygging-
anna, að undanteknum Þórði
Björnssyni einum.
Áhættulaust fyrir bæinn
Borgarstjóri gat þess, að áður
en brunatryggingalögin frá 1954
hefðu verið sett, hefðu bruna-
tryggingar bæjarins verið boðn-
ar út á fimm ára fresti. Áður
en síðasta tryggingatímabil rann
út, árið 1954, hefði verið rætt
um, hvort ekki ætti að breyta
tryggingafyrirkomulaginu. Hefði
þá bezta skipanin verið talin sú,
að bærinn tæki tryggingarnar í
sínar hendur, en endurtryggði
síðan svo fyrirtækið væri áhættu
laust fyrir bæjarfélagið. Þórður
Björnsson hefði hins vegar gefið
í skyn, að bærinn hefði tekið
brunatryggingarnar í sínar hend-,
ur til að komast hjá að taka til-
boði Samvinnutrygginga.
Borgarstjóri vék nokkuð að
þeim akk, sem væri í því að hafa
tryggingarnar í höndum bæjarfé-
lagsins. Það væri handhægt og
sparaði mikið fé, að innheimta
brunatryggingagjöld um leið og
fasteignagjöld og vatnsskatt, en
nú eru öll þessi gjöld innheimt
í einu lagi. Þetta væri hreint
ekki áhættufyrirtæki eins og nið-
urstöður síðustu ára sýndu. —
Heildarupphæð húsatrygging-
anna í ár næmu 6,400 milljónum,
en iðgjöld um það bil 6,4 millj.
Nú hefði það verið ákveðið, að
bærinn semdi við lægstbjóðanda
um endurtryggingu, ef bruna-
tjón færi fram úr 1%». Áhætta
bæjarins væri því um það bil
6,4 milljónir eða svipað og ið-
gjöldin næmu. Nú hefði það sýnt
sig, að brunatjón hefði ekki far-
ið yfir 2 millj. á ári síðustu fimm
árin og reynsla lengra aftur sýndi
svipaðar tölur.
Brunavarnir styrktar með
hagnaði af brunatryggingum
en ekki útsvarsálögum
Borgarstjóri kvað það margra
álit, m. a. sitt, að það væri eðli-
legt ,að brunatryggingar bæjar-
ins stæðu að einhverju leyti
undir brunavörnum í bænum.
Væri það augljóst mál, að þetta
væri bæði bænum og öllum hús-
eigendum í bænum til mikils
hagræðis. Nú lægi fyrir í sam-
bandi við brunavarnir að kaupa
tæki og reisa nýja slökkvistöð.
Eftir þeim leiðum, sem Þórður
Björnsson hefði lagt til, yrði að
taka fé til þessara framkvæmda
með hækkuðum útsvörum. Varp-
aði borgarstjóri fram þeirri spurn
ingu, hvort menn myndu heldur
vilja, að hagnaður af brunatrygg
ingunum stæði undir brunavörn-
unum eða fé til þeirra væri tek-
ið með auknum útsvarsálögum.
Að lokum kvaðst hann sann-
færður um, að það hefði verið
rétt og hagkvæmt spor, sem bæj-
arstjórnin hefði stigið árið 1954,
er ákveðið var að bærinn tæki
að sér brunatryggingarnar.
Er borgarstjóri hafði lokið
máli sínu, sagði Magnús Ást-
marsson nokkur orð og einnig
Þórður Björnsson. Ekki urðu um-
ræður um fleiri mál á fundinum
og lauk honum um kl. 19. Tók
afgreiðsla þeirra mála, sem fyrir
lágu hálfa klukkustund, en ræða
Þórðar Björnssonar og umræður
um hana tóku hálfa aðra klukku-
stund.
Ekkert nema stríð hindr-
ar framsókn kommún-
ismans
sagÖi Mikojan
fréttamönnum
WASHINGTON, 15. jan. NTB-
Reuter. — Eisenhower forseti átti
í dag viðræður við ýmsa áhrifa-
menn um vandamál Þýzkalands
og væntanlegan fund sinn við
Mikojan varaforsætisráðherra
Sovétríkjanna. Grundvölbur þessa
fundar verður lagður á morgun,
þegar Mikojan ræðir við Dulles
utanríkisráðherra.
Mikojan átti í dag fund við
fréttamenn á aðalstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í New York og
svaraði ýmsum spurningum sem
fyrir hann voru lagðar. Hann
lýsti stuðningi sínum við ráð-
stefnu æðstu manna og kvað slíka
ráðstefnu verða að fara fram fyrr
eða síðar. Hann kvað yfirlýsingu
Dullesar um Þýzkalandsmálin á
þriðjudaginn mjög athyglisverða,
en hann hefði ekki komið fram
með neinar jákvæðar tillögur til
lausnar. í sambandi við Þýzka-
landsmálin sagði Mikojan, að
Sovétríkin væru umkringd banda
riskum herstöðvum, og nú væri
verið að fá Vestur-Þjóðverjum
kjarnavopn, þeirri þjóð sem
bandamenn hefðu sigrað í síð-
ustu heimsstyrjöld. Þessum kjarn
vopnum væri beint gegn fyrrver-
andi bandalagsþjóð Bandaríkj-
anna, sagði Mikojan. Hann end-
urtók áskorun sína um frjálsa
samkeppni milli hins kapítalíska
og hipg kommúníska heims, og
sagði að ekkert nema styrjöld
gæti komið í veg fyrir framsókn
kommúnismans.
Fyrr í dag átti Mikojan við-
ræður við Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna.
Þrjú ný dýralœknisum-
dœmi verði stofnuð
Engir dýralœknar í
þau að sér
FUNDUR var settur í sameinuðu
Alþingi kl. 1,30 í gær. Á dagskrá
var eitt mál, hvort leyfa skyldi
fyrirspurnir frá Jóhanni Þ. Jósefs
syni til ríkisstjórnarinnar. Var
það samþykkt samhljóða.
Að loknum fundi í sameinuðu
þingi voru settir fundir í báðum
deildum. Á dagskrá efri deildar
var eitt mál, frumvarp til laga um
breytingu á lögum um dýralækna.
Caitskell
de Gaulle
PARÍS, 15. jan. NTB-Reuter. —
Hugh Gaitskell, leiðtogi brezka
Verkamannaflokksins, átti í dag
hálfrar annarrar stundar viðræð-
ur við de Gaulle forseta Frakk-
lands. Þeir ræddu ýmis alþjóðleg
vandamál. Fundur þessi var hald
inn með mikilli leynd, en eftir
hann sagði Gaitskell fréttamönn-
um, hvað borið hefði á góma.
Hann sagði að þeir hefðu rætt
Alsírvandamálið, samband aust-
urs og vesturs og afstöðu Atlants
hafsbandalagsins til kjarnorku-
varna. Efnahagsmál hefðu alls
ekki borið á góma, sagði hann.
Á fundinum var de Gaulle ein-
samall, en í fylgd með Gaitskell
var brezki sendiherrann í París,
rœðir við
sir Gladwin Jebb. Það er haft
fyrir satt, að Gaitskell hafi beðið
um fundinn við de Gaulle, en hins
vegar er litið svo á, að með já-
kvæðum viðbrögðum sínum hafi
de Gaulle látið í Ijós virðingu
sína flyrir brezka Verkamanna-
flokknum.
Fyrr í vikunni átti GaitskeU
viðræður við franska utanríkis-
ráðherrann, og ræddu þeir m. a.
efnahagsvandamálin.
Óhemju atvinna
við fisk
á Akranesi
AKRANESI, 15. jan. — Tíu línu-
bátar voru á sjó héðan í dag.
Afli þeirra var 4—9 tonn á bát.
Heildarafli 12 báta í gær var 75
tonn. Reknetjabáturinn Svanur
byrjaði að draga netin kl. 7 í
morgun. Fékk hann 40 tunnur og
kom ekki inn með þær.
Óhemju atvinna er við fiskinn
unnið í öllum frystihúsum hér,
og mikill hörgull á fólki. 15 fíl-
efldir skólasr«inar úr gagnfræða-
skólanum fengu leyfi til þess að
ganga í orrustuna á hafnargarðin-
um við að losa togarana.
Unnu þeir hér um bil nótt og dag
og hljóta góðan skilding að laun-
um.
Hið gamalkunna sanddæluskip
Sansu kom hingað kl. 4,30 e.h. í
dag, lá við akkeri úti fyrir þang-
að tii kl. 6,30, að það renndi að
sementsbry ggj unnL — Oddur.
Tregur afli
KEFLAVÍK, 15. jan. — Mjög
tregur afli er enn hjá bátum. 28
bátar voru á sjó í dag og var afli
þeirra almennt frá 5—7 lestir.
Hæstur var Gunnar Hámundar-
son með 8% lest. Afli var svipað-
ur í gær og þá var Gunnar Há-
mundarson einnig hæstur með 8
lestir. — Ingvar.
Ráðstefna
DAKAR, 15. jan. Reuter. — í dag
hófst í Dakar í Vestur-Afríku ráð
stefna frönsku nýlendnanna fjög-
urra í Afríku, sem ákváðu að
verða áfram í franska ríkinu. Á
þessari ráðstefnu verður gengið
frá stofnun bandalags þessara
landsvæða, sem eiga að mynda
eina heild í franska ríkjasamband
inu. 9
Vinningar í Happ-
drættisláni ríkis-
sjoðs
í GÆRKVÖLDI var dregið í
B-flokki Happdrættisláns ríkis-
sjóðs og komu vinningar á þessi
númer: 75.000 kr. á 79220, 40.000
kr. á 59288, 15.000 kr. á 99526 og
10.000 kr. á þessi þrjú númer
12012, 114333 og 145099.
(Birt án ábyrgðar).
landinu til að faka
Var það til 2. umr. Hafði land-
búnaðarnefnd efri deildar gert
allmiklar breytingar við frum-
varpið. Fól það í upphafi aðeins
í sér, að stofnað yrði eitt nýtt
dýralæknisembætti og skyldi sá
dýralæknir staðsettur á Horna-
firði, eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu. í þeim
breytingartillögum, sem landbún-
aðarnefnd efri deildar gerði við
frumvarpið, er lagt til að stofn-
uð verði þrjú ný dýralæknisum-
dæmi.
1. Austur-Skaftafellssýsluum-
dæmi, er nái yfir Austur-Skafta-
fellssýslu og Suður-Múlasýslu
sunnan Breiðdalsheiðar. 2. Vest-
ur-Skaftafellssýsluumdæmi, er
nái yfir Vestur-Skaftafellssýslu
alla og Austur-Eyjafjallahrepp í
Rangárvallasýslu. 3. Barða-
strandarumdæmi, er nái yfir Vest
ur-Barðastrandarsýslu alla, Auð-
kúlu-, Þingeyrar- og Mýrahrepp
í V-ísafjarðarsýslu, en Múla- og
Flateyjarhrepp í Austur-Barða-
strandarsýslu falli undir Dalaum-
dæmi.
í nefndaráliti landbúnaðar-
nefndar segir, að þessi breyting
muni ekki baka ríkissjóði útgjöld
í bráð, þar eð engir dýralæknar
séu til í landinu til að taka við
þessum embættum. Er þáð fyrst
seint á árinu 1959, sem fyrsti fs-
lendingurinn af þeim, sem eru við
nám í dýralækningum, lýkur
prófi. Hins vegar telur nefndin,
að gott Sé, að láta þá, sem við
nám eru, sjá, að verkefni bíða
þeirra að loknu námi.
Breytingartillögur landbúnaðar
nefndar voru samþykktar og
frumvarpinu svo breyttu vísað til
3. umræðu í deildinni.
Á dagskrá neðri deildar voru
tvö mál. Var annað tekið af dag-
skrá, en umræðum um hitt varð
ekki lokið. Var það frumvarpið
um breytingu á lögum um Búnað-
armálasjóð, sem enn lengdi mál
þingmanna, en þær umræður
verða birtar í heild í blaðinu þeg-
ar þeim verður lokið.
Fundi frestað
í Genf
GENF, 15. jan. Reuter. — Þrí-
veldin, sem sitja ráðstefnuna í
Genf um bann við tilraunum með
kjarnavopn, ákváðu í dag að
fresta fundi um einn sólarhring,
þar sem brezka og bandaríska
sendinefndin báðu um meiri
tíma „til undirbúnings".
Rússneski fulltrúinn, sem var í
forsæti í dag, samþykkti beiðni
brezka og banadríska fulltrúans,
og verður því 37. fundur ráðstefn
unnar haldinn á morgun.