Morgunblaðið - 16.01.1959, Qupperneq 3
Föstudagur 16. jan. 1959
MORGTJNBLAÐIÐ
3
Kommúnistar geta ekki rætt
landhelgismálið
grípa
til
rogs og
án Jbess að
blekkinga
Eindæma heimskulegar árásir Þjóð-
viljans á Ólaf Thors og Sjálfstæðis-
flokkinn
tJÓÐVILJINN ræðst í gær á
Ólaf Thors, formann Sjálfstæðis-
flokksins með offorsi út af því
að Sjálfsíæðisflokkurinn bar
fram tillögu um það á sínum
tíma að Bretar yrðu kærðir fyr-
ir Atlantshafsbandalaginu, vegna
herhlaups þeirra á Islandsmiðum.
Er þessi árás kommúnista gerð
af því tilefni, að í fyrradag var
rædd á Alþingi tillaga Ólafs
Thors um að islenzkum skipum
skuli einnig bannaðar allar tog-
veiðar innan hinna nýju fisk-
veiðitakmarka.
Gamalt rógsmál
Kommúnistar hafa hér enn
tekið upp gamalt rógsmál á hend-
ur Sjálfstæðisflokknum og for-
manni hans. „Þjóðviljinn“ hefur
dylgjað um það mánuð eftir
mánuð, að Sjálfstæðismenn
gengu erinda Breta með kröfu
sinni um að þeir yrðu kærðir
fyrir Atlantshafsbandalaginu. Er
hér um furðulega heimskulegan
málflutning að ræða af hálfu
kommúnista. Enginn viti borinn
íslendingur trúir því, að krafa
Sjálfstæðisflokksins um að Bret-
ar verði kærðir fyrir NATO og
þess krafizt að samtökin hindri
ofbeldi þeirra við strendur ís-
lands, sé fram komin til þess
að þóknast brezkum stjórnvöld-
um. Þvert á móti sjá allir að hér
eru hagsmunir íslands fyrst og
fremst hafðir fyrir augum. Fyrir
Sjálfstæðismönnum vakti að
koma í veg fyrir, að Bretar beittu
vopnavaldi á íslandsmiðum.
Lúðvík tók undir tillögu
Sjálfstæðisflokksins
Sannleikurjnn er líka sá, að
hinn 23. desember sl. datt það
upp úr Lúðvík Jósefssyni í grein
í Þjóðviljanum að Atlantshafs-
bandalagið hefði átt að fyrir-
skipa Bretum að hætta ofbeldis-
aðgerðum sínum hér við land.
Komst Lúðvík Jósefsson þá m. a.
að orði á þessa leið:
„Það er aðeins eitt, sem At-
lantshafsbandalagið getur gert og
hefði átt að gera ótilkvatt fyrir
4 mánuðum síðan: Að fyrirskipa
Bretum að hætta þegar í stað
ofbeldisaðgerðum sínum hér við
land.“
Hér tekur Lúðvík Jósefsson
alveg upp þá kröfu, sem Þjóð-
viljinn hefur mest rógborið
Sjálfstæðisflokkinn og Ólaf
Thors fyrir. Kommúnistablaðið
heldur raunar áfram að gera
þetta, eftir þessa yfirlýsingu Lúð-
víks, því að strax daginn eftir
segir Þjóðviljinn m. a. orðrétt:
„Með einkennilegum hætti hef-
ur orðið samferða hér heima her-
ferð Ólafs Thors og Sjálfstæðis-
flokksins um, að íslendingar ættu
að leita halds og trausts fyrir
hernaðarárás Breta, einmitt í
þessum sömu samtökum" —
þ. e. a. s. Atlantshafsbandalag-
inu, sem Lúðvík Jósefsson krafð-
ist af daginn áður „að fyrirskip-
uðu Bretum að hætta þegar í
stað ofbeldisaðgerðum".
Það sem Lúðvík heimtar 23.
desember, er notað til ófrægingar
á hendur Sjálfstæðisflokknum og
Ólafi Thors!
í gær endurtekur svo komm-
únistablaðið enn svívirðingar sín-
ar um Ólaf Thors fyrir að hafa
flutt tillögu um, að Atlantshafs-
bandalagið hindraði hernaðarað-
gerðir Breta við íslandsstrendur.
Ekki farsæl vinnubrögð
Þetta eru vissulega ekki farsæl
vinnubrögð í miklu velferðar-
máli, þar sem mikið veltur á
þjóðareiningu. Er þetta enn ein
sönnun þess, hvílík óheilindi og
ósannsögli hafa mótað öll skrif
Þjóðviljans um landhelgi^mólið.
Til þess er vissulega eng-
in ástæða að fara að rökræða
þá firru Lúðvíks Jósefssonar og
Karls Guðjónssonar að það
myndi spilla málstað íslands út
á við, ef íslenzkum togveiðiskip-
um yrði algerlega bannað að
stunda togveiðar innan 12 mílna
fiskveiðitakmarkanna. Miklum
meirihluta íslendinga er það
áreiðanlega ljóst, að með því
að samþykkja tillögu Ólafs
'rors sýndu íslendingar um-
heiminum á ótvíræðan hátt, að
þeir eru reiðubúnir að færa
fórnir til þess að vernda fiski-
Presley
lifir
enn
BONN 14. jan. — Talsmaður
Bandaríkjahers í V-Þýzkalandi
kvaddi blaðamenn á fund sinn
í dag til þess að skýra frá því,
að fregnir um að rokkstjarnan
Elvis* Presley, sem gegnir nú her
þjónustu í Þýzkalandi, hefði far-
izt í flugslysi, væru staðlausir staf
ir. í morgun barst fregnin út eftir
að þyrilvængja frá hernum fórst í
snjóstormi. Var Presley syrgður
mjög, því að hann á marga að-
dáendur meðal æskunnar i Þýzka
landi sem annars staðar. En Pres-
ley lifir enn, sagði talsmaður hers
mið sín. Enda þótt íslenzkum tog-
veiðiskipum væru með öllu bann-
aðar veiðar innan 12 mílna tak
markanna, þyrfti það heldur
ekki að binda hendur okkar til
langframa.
Á það má að lokum benda, að
það sýnir ábyrgðarleysi komm
únista, að þeir skuli ekki geta
rætt landhelgismálið í heild eða
einstakar tillögur sem snerta það,
án þess að grípa til rógs og blekk-
inga. Slíkur málflutningur mun
áreiðanlega eklti auka trú þjóð-
arinnar á vilja kommúnista til
þess að bera hinn íslenzka mál-
stað í landhelgismálinu fram til
sigurs.
Ungur sjómaður í aðgerð. —
Sjá nánar í grein á SUS-síðu
(bls 8). —
500,000 kr. vinningur hjá
Háskólanum á heilmiða
ENN var happdrættishjóli Há-
skólahappdrættisins snúið í gær-
dag, en þá hófst 26. happdrættis-
árið með því að dregnir voru
alls 412 vinningar, að upphæð
rúmlega ein milljón króna. Af
þeirri upphæð voru 500,000 kr.
hæsti vinningurinn, og kom hann
á heilmiða nr. 38,896, sem seldur
var í umboði Guðrúnar Ólafs-
dóttur og Jóns St. Arnórssonar
hér í Reykjavík.
Næst hæsti vinningurinn, 50
þús. krónur, kom á hálfmiða nr.
16,189, sem er í umboðunum á
Hofsósi og Siglufirði.
10 þús. kr. vinningar komu á
þessa miða: 23568, 40790 og
46712. — 5000 kr. vinningar komu
á þessa miða: 933, 4481, 37759.
Þá voru veittir alls 4 5000 kr.
aukavinnir ' þessum drætti:
Á fyrsta miðann, sem út var dreg
inn, nr. 3088, á miðana sitt hvoru
megin við hæsta vinninginn, nr.
38895 og 38897 og á síðasta mið-
ann, sem út var dreginn, nr
40406.
Skrifstofustjóri Happdrættis
Háskóla Islands, Páll H. Pálsson,
skýrði Mbl. svo frá í gær, að enn
hefði viðskiptavinum happdrætt-
isins fjölgað verulega á þessu
nýbyrjaða happdrættisári. Við-
bótin, 5000 miðarnir, seldust upp
á svipstundu. Er hundraðstala
seldra miða nú hærri en nokkru
sinni fyrr, eða yfir 95%.
Svona þarf þetta líka að vera,
svo happdrættið geti staðið í full-
um skilum við viðskiptamenn
sína, því í ár mun happdrættið
greiða alls 16,8 millj. kr. í vinn-
ingum til viðskiptamannanna.
Sakfelldur í Hæstarétti eftir
sýknudóm í undirrétti
I HÆSTARETTI er genginn dóm-
ur í máli, sem höfðað var gegn
Arnþóri Einarssyni Kópavogs-
braut 2 í Kópavogi, fyrir að hafa
ekið bíl undir áhiifum áfengis.
í undirrétti var hinn ákærði sýkn
aður af ölluru kröfum ákæru-
valdsins. Hæstiréttur var á öðru
máli, því hann sakfelldi manninn
og dæmdi hann. Sjálfur hafði
hann viðurkennt, að hafa neytt
áfengis og einnig var það sam-
dóma álit vitna, að hann hefði
verið undir áhrifum áfengis.
Maðurinn hafi neitað að sér væri
tekið blóð til rannsóknar.
í forsendum dóms Hæstaréttar
er aðdragandi máls þessa rakinn
og þar segir m. a. á þessa leið:
Dómur:
Hafþór Guðmundsson, fulltrúi
bæjarfógetans i Kópavogi hefur
kveðið upp hinn áfrýjaða dóm.
Eftir að bifreið sú, sem ákærði
ók, hafði lent í árekstri við aðra
bifreið á Reykjanesbraut aðfara-
nótt 22. september 1957, var
ákæroi fluttur á lögreglustöðina
í Reykjavík. Kvaðst hann þá ekki
vera undir áhrifum áfengis og
synjaði þess, að blóðsýnishorn
væri ur honum tekið samkvæmt
23. gr. þágildandi bifreiðalaga nr.
23/1941, og var slík rannsókn lát-
in undan falla vegna andmæla
hans.
Þegar rannsóknarlögreglan tók
skýrslu af ákærða hinn 23. sept-
ember 1957, lýsti hann því í
fyrstu, að hann hefði hvorki neytt
áfengis á dansskemmtuninni í
Silfurtunglinu né heldur um
kvöldið, áður en hann fór þangað.
Eftir að Haraldur Haraldsson,
sem var samferðamaður ákærða
á dansskemmtunina, hafði gefið
lögreglumönnum skýrslu um á-
fengisneyzlu ákærða bæði í Silf-
urtunglinu og áður en þangað
var farið, breytti ákærði fram-
burði sínum á þá leið, að hann
hefði drukkið eitt glas af gin-
blöndu, áður en hann fór í Silfur-
tunglið, og haft með sér þangað
ginblöndu í vasafleyg, sem hann
hafi neytt af á skemmtuninni.
Hafi hann fundið lítils háttar til
áfengisáhrifa, en þau hafi verið
horfin, er hann tók að aka bifreið
inni, enda hafi þá verið liðnar
2—3 klukkustundir, frá því að
vasafleygurinn var tæmdur.
Þrír lögreglumenn, þeir Eyþór
Magnússon, Kristján Jóhannesson
og Hellert Jóhannesson, komu é
árekstrarstaðinn á Reykjanes-
braut, meðan ákærði var þar
staddur. Hafa þeir borið vætti um
ástand ákærða þá og unnið eið að
framburði sínum.. Lýsa þeir því
al'ir, að ákærði hafi verið undir
áhrifum áfengis, hann hafi verið
reikull í spon og áfengislykt af
honum. Eyþór og Kristján kveða
málfar hans hafa verið óskýrt og
Heliert kveður hann hafa verið
voteygðan. Hallgnmur Jónsson,
sem var varðstjóri á lögreglu-
stöðinni, þegar komið var með
telji ákærða hafa verið undir
áhrifum áfengis, en þó lítið,
Ákærði hefur viðurkennt
áfengisneyzlu, eins og að framan
segir, en neitað því, að honum
væri tekið blóð til rannsóknar.
Samkvæmt því og með skírskot-
um til framangreindra vitna-
skýrslna verður að telja sannað,
að ákærði hafi ekið bifreið í um-
rætt skipti undir áhrifum áfeng-
is. Hefur hann með því brotð
gegn ákvæðum 1. mgr. 23. gr.
bifreiðalaga nr. 23/1941 sbr. 38.
og 39. gr. sömu laga og 2. gr.
laga nr. 6/1951 og einnig gegn 2.
mgr. 4. gr. sbr. 14. gr. umferðar-
laga nr. 24/1941, en framangreind
lög voru í gildi, þegar brotið var
framið. Síðan hafa lög þessi verið
numin úr gildi og varðar brot
ákærða nú við 2. mgr. 25. gr. um-
ferðarlaga nr. 26/1958 sbr. 80. og
81. gr. sömu laga, en þó svo, að
samkvæmt 2. gr. laga nr. 19/1940
verða ákærða ekki gerð þyngri
viðurlög en orðið hefði eftir hin-
um eldri lögum. Þá varðar brot
ákærða einnig við 1. mgr. 24. gr.
sbr. 45. gr. áfengislaga nr. 58/
1954. Þykir refsing ákærða hæfi-
lega ákveðin 1000 króna sekt til
ríkissjóðs, og komi varðhald 6
daga í stað sektarinnar, ef hún
greiðist ekki innan 4 vikna frá
birtingu dóms þessa. Þá þykir og
rétt að svipta ákærða ökuleyfi
3 mánuði.
Ákæröa ber að g*eiða allan
S [\KSTEI Wli
„Vakti sársauka‘
Tíminn birti sl. laugardag me3
auðsærri velþóknun hluta úr for-
ystugrein Dags. Þar segir m. a.:
„Það vakti nckkra furðu og
enn fremur sársauka, að Alþýðu-
flokkurinn skyldi á þann hátt
upphefja hið nána samstarf við
Framsóknarflokkinn, sem mynd-
að var fyrir siðustu kosning-
ar---------
Mun hér sízt ol sterklega að
orði komizt um sársauka Fram-
sóknarmanna. Sárindin lýsa sér
nú daglega í dálkum Tímans.
Hann fjölyrðir t. d. í forystu-
grein sinni í gær um þau orð
Emils Jónssonar, að „óformlegra
samstarf milli f!okka“ en Sjálf-
stæðismanna og Alþýðuflokks nú
„getur varla hugsast". Af þessu
tilefni segir Tíminn:
Vafalaust er það alveg satt
hjá forsætisráðherranum, að eng-
ir sérstakir formlegir samningar
munu um stjórnarsamstarfið milli
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins fremur en var milli
húsbænda og hjúa í gamla daga“.
Hér þarf ekki að fara í graf-
götur til hvaða „gömlu daga“ er
vitnað og hver var þá húsbóndi
og hjú. Hræðslubandalagsdagarn
ir og húsbóndaréttur Framsóknar
þá falla Tímanum ekki úr minnL
Eystein „rekur í
rogastanz“
„Sársauki“ Eysteins Jónssonar
var svo mikill enn sl. miðviku-
dag, þegar hann flutti ræðu í
Framsóknarhúsinu, að hann auð-
sjáanlega gleymdi því, að hús-
bóndavaldi hans yfir Alþýðu-
flokknum er lokið. Tíminn hefur
eftir honum m. a.:
„En hvað rak Alþýðuflokkinn
til þess að koma þessari áætlun
Sjálfstæðisflokksins fram? Marg-
ir eiga erfitt með að skilja það.
Með því hafa þeir rofið um-
bótabandalagið. Þeir voru væg-
ast sagt ekki kosnir á þing til
þess að kljúfa það og gera stjórn-
arsamstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn um að leggja niður kjör-
dæmin.
Þetta eru þvilikar aðfarir, að
marga rekur i rogastanz------.
Furðulegt er, að menn skuli telja
sér leyfilegt að nota umboð sin
með þessum hætti“.
Hætt er við, að Eystein Jóns-
son eigi eftir að reka í rogastanz
yfir fleiru en þessu á næstu mán-
uðum. Þó að Eysteini þyki það
„furðulegt“ þá eru það ótrúlega
margir, einnig í hans eigin
flokki, sem fagna því, að hús-
bóndavaldi hans yfir málefnum
þjóðarinnar er nú lokið.
ákærða þangað, befur borið það j kostnað sakarinnar í héraði og
og staðfest fyrir dómi, að hann fyrir Hæstarétti.
Tíminn þegir
Þjóðviljinn skýrir í fyrradag
frá þeirri rannsókn á viðskipta-
háttum Esso, sem Morgunblaðið
gat um sl. sunnudag, að sérstak-
ur dómari hefði verið settur til
að rannsaka. Þjóðviljinn segir
m. a.:
„Hins vegar kom í ljós fyrir
nokkru, að Esso hafði um all
langt skeið selt íslenzkum aðil-
um--------hernámsbenzín, sem
engin opinber gjöld höfðu verið
tekin af, og þó að sjálfsögðu á
fullu verði. Þegar farið var að
rannsaka málið munu ráðamenn
Esso hafa sagt, að þetta hafi ver-
ið gert af hagkvæmnisástæðum,
og i staðinn hafi jafn mikið magn
af benzíni því sem Olíufélagið
flytur inn frá Sovétríkjunum
verið látið renna til herstöðvar-
innar. Hafi því ekki verið um
neinar auðgunaraðgerðir að
ræða, og ríkið hafi ekki tapað
neinu í sköttum. Þessi staðhæf-
ing mun hins vegar ósönnuð enn
— og auk þess væru slík viðskipti
skýlaust lögbrot, jafnvel þótt fé-
lagið hefði ekki haft af þeim
gróða“.
Athygli vekur, að Tíminn gerir
i gær enga athugasemd við þessa
frásögn Þjóðviljans.