Morgunblaðið - 16.01.1959, Síða 20
V EÐRIÐ
Hægviðri skýjað. Frost 3—10 stig.
Aldarminning
Jóns Magnússonar. Sjá bls. 11.
12. tbl. — Föstudagur 16. janúar 1959
Ljósmyndari blaðsins tók þessa óvenjulegu mynd í gær. Það er Höfðatún, sem liggur þvert
fyrir, en svo sér niður tvær miklar umferðargötur. Laugaveg (t.v.) og Skúlagötu. Bærinn renn-
ur síðan saman við kuldamistrið, þegar f jær dregur.
Sœstrengur yfir Atlantshaf um ísland
Ráðstefna fjallar um málið í París
UM þessar mundir sitja fulltrúar
frá 14 löndum 'innan Aþjóðaflug-
málastofnunarinnar, þar á meðal
fjórir íslendingar, ráðstefnu í
París, þar sem fjallað er um það
hvernig eða hvort lagður skuli
sæstrengur milli Ameríku og Ev-
rópu, eingöngu til afnota fyrir
flugþjónustuna. Ástæðan er sú, að
með tilkomu þotarma og annarra
hraðfleygra flugvéia, verður að
gera ráðstafanir til að hraða
skeytasendingum milli flug-
stöðva.
Fyrir íslands hönd sitja ráð-
stefnuna þeir Agnar Kofoed-Han-
sen, flugmálastj., Friðrik Diego.
deildarstjóri hjá Flugmálastjórn-
inni, Einar Pálsson, skrifstofu-
stjóri Póst- og símamálastjórnar-
innar og Sigurður Þorkelsson yf-
irverkfræðingur.
Hætt hefur verið um, að hinn
nýi sæstrengur verði látinn liggja
frá Bretlandi, yfir Færeyjar, ís-
land og Grænland, til Ameríku
og að Stóra Norræna muni sjá
um lagningu hans, ef löndin sem
nú kosta veðurskipin á norðan-
verðu Atlantshafi fallist á að
greiða kostnaðinn. Áætlað hefur
verið að flugfélögin muni greiða
Ekki mikið vatn
úr fimmtu
borholunni
I GÆR var lokið borun á holunni
við vestanvert Hátún í Reykja-
vik. Er þetta fimmta holan, sem
stóri borinn vinnur. Við þessa
holu höfðu verið bundnar nokkr-
ar vonir, en árangurinn varð ekki
að sama skapi mikill. Úr hinni
rúmlega 700 m. djúpu holu, hef-
ur vatnsmagnið mælzt 1 sekúndu
lítri. Hitinn á botni holunnar
mun vera um 127 stig á Celsíus.
Dr.' Gunnar Böðvarsson tjáði
Morgunblaðinu í gærkvöldi, að af
reynslu þeirri sem nú hefði feng-
izt við borun eftir heitu vatni í
bæjarlandinu, mætti ráða að berg
ið undir bænum væri mjög þétt
og lítið sprungið, og gæti af þeim
sökum faisið eins og í þetta
sinn, að lítill árangur verði af
borun.
Enn verður haldið áfram að
bora hér. Bráðlega verður borinn
settur niður á gatnamótum Lauga
nesvegar og Hátúns, og hafa
menn nokkrar vonir um að þar
fáist heitt vatn.
árlega 1—1,5 milljón dollara af-
notagjald og að sú upphæð, skipt
ist niður á löndin í hutfalli við
afnot.
Loftskeytasendingar milli land
anna báðum megin Atlantshafsins
þykja á þessari öld þotanna full-
seinvirkar. Auk þess kemur það
fyrir að norðuljós trufla hið lífs-
nauðsynlegt skeytasamband
milli flugstöðvanna í þessum
tveim heimsálfum. Helzta lausnin
virðist því vera sú, að leggja
sæstreng til afnota fyrir flug-
þjónustuna, eins og áður er sagt.
Síðdegiskaffi
í Sjálfstæðis-
húsinu
UNDANFARIÐ hefur Sjálfstæðis
húsið eigi verið opið í síðdegis-
kaffitímanum og liggja til þess
þær ástæður, að verið var að
gera ýmsar endurbætur í veitinga
sal. Þar hafa nú verið ,'ögð ný
teppi á gólf, og lagt hefur ver-
ið nýtt „parket" á dansgólfið. Þá
hafa sem kunnugt er verið marg-
ar jólatrésskemmtanir í húsinu
og því ekki unnt að hafa það
opið síðdegis.
Nú eru jólin sem sé um garð
gengin svo og allar jólatrés-
skemmtanir. Komu um 5000 börn
á jólatrésfagnaði í Sjálfstæðishús
inu, um og eftir hátíðarnar.
í dag verður Sjálfstæðishúsið
aftur opnað í síðdegiskaffitíman-
um. Að venju leika þeir Þorvald-
ur Steingrímsson og Carl Billich
sígilda tónlist í kaffitímanum.
Sæmilegur afli
undanfarna daga
SANDGERÐI, 15. jan. — Afli
Sandgerðisbáta hefur verið mjög
sæmilegur undanfarna daga. í
fyrradag var heildaraflinn 130
tonn á 16 báta. Var þá aflahæsti
báturinn Helga frá Húsavík með
12 tonn af slægðum fiski, Hamar
með 14 tonn af óslægðum og Pét-
ur Jóns'son með 13 tonn af óslægð
um.
Aflinn í gærdag var 122 tonn
á 17 báta og var Muninn II. þá
með um 12% tonn af óslægðum
fiski, Pétur Jónsson 12 tonn og
Víðir tæplega 12 tonn, báðir með
óslægðan fisk.
Veður hefur verið ágætt á mið
um bátanna. — AxeL
Tvær freigátur
gæta þriggja
landhelgisbrjóta
í GÆRKVÖLDI voru 3 brezkir
togarar að ólöglegum veiðum
útaf Hvalsnesi. Þarna voru
og freigáturnar Russell og
Duncan, og ennfremur tveir
brezkir togarar, sem veiddu
utan 12 sjómílna markanna.
Allmargir erlendir togarar
voru að veiðum við Suðurströnd
landsins, þar á meðal belgískir,
en togarar þessir voru flestir á
svæðinu frá Meðallandsbugt og
austur að Hvalbak, og utan fisk-
veiðitakmarkanna.
GJOGRI, 16. jan. — Hér hefur
ekkj gefið á sjó síðan um miðj-
an desember, þar til nú þrjá síð-
ustu dagana, að loks heíur verið
hægt að róa. — Afli hefur verið
sæmilegur þessa daga, allstór
þorskur og ýsa. —Regína.
Fjárhagsáœtlun Reykja-
víkurbœjar vœntanlega
tekin til 2. umr. fyrst
í febrúar — Þórði Björnssyni
verður fiíkynnf umræðan með fimm
náffa fresfi
Á FUNDI bæjarstjórnar í gær
varpaði Þórður Björnsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokksins,
þeirri spurningu til borgarstjóra,
hvort gert væri ráð fyrir því, að
fresla umræðum um fjárhags-
áætlun Reykjavíkurbæjar unz A1
þingi hefði afgreitt fjárlög.
Skýrði har.u svo frá, að hann
fengi dagskrá bæjarstjórnar-
Biðskák hjá Frið-
rik og Eliskases
BEVERWIJK, 15. jan. — Sjöunda
umferð skákmótsins hér var
tefld í dag, og varð aðeins einni
skák lokið. Barendregt og Toran
gerðu jafntefli. Biðskákir urðu
hjá Friðriki Ólafssyni og argent-
ínska stórmeistaranum Eliskases,
Van Scheltinga og Van der Berg,
Larsen og Donner og Langeweg
og O’Kelly.
Staðan er nú þessi: Friðrik
Ólafsson og Eliskases 4% vinn-
ing hvor og biðskák, Barendregt
4 v., Van Scheltinga 3% og bið-
skák, Donner og O’Kelly 3 og bið-
skák, Toran 3, Larsen 2% og bið-
skák, Van der Berg 2 og bið-
skák og Langeweg 1 og biðskák.
Friðrik teflir við Van Schelt-
inga í 8. umferð.
Óvcnjogóður afli
á grunnmiðum
SIGLUFIRÐI, 15. jan. — Héðan
verða gerðir út tveir þilfarsbátar
nú í vetur og verða þeir með línu.
Einnig verða nokkrar trillur á
handfæra og línuveiðum.
Undanfarið hefur gefið á sjó
dag hvern og afli verið sæmileg-
ur 3—5 tonn í róðri hjá stærri
bátunum. Er þetta óvenjulegt
fiskirí á grunnmiðum hér á þess-
um tíma árs.
Togarinn Hafliði hefur landað
hér 207 tonnum af fiski, sem
veiddist hér á heimamiðum. Fór
aflinn í frystihúsið og til herzlu.
Hér á Siglufirði er nú vetrar-
ríki hið mesta, sjóþungt mjög,
hægviðri og talsvert frost dag-
lega. — Guðjón.
Þota afgreidd á mettíma
á Keflavíkurflugvelli
KEFL A VIKURFLU G VELLI, 15.
jan.: — í nótt um kl. 2, lenti
hér Boeing 707 farþegaþota frá
Pan American á leið sinni frá
Fylkir seldi fyrir
nær 13.000 pund
í GÆRMORGUN seldi togarinn
Fylkir um 150 lestir af ísfiski í
Grimby fyrir 12.992 pund. Sýnir
þessi ákaflega góða sala vel,
hversu mikill skortur er á fiski í
Bretlandi um þessar mundir.
Skipið hélt síðan til Hull, þar
sem það fer í hina fyrirhuguðu
skoðun, sem látin er fara fram
á nýjum togurum 6 mán. eftir af-
hendingu. Sæmundur Auðunsson
er með togarann í þessari ferð.
París til New York. Flugvéiin
átti að hafa viðkomu í London,
en sakir langvarandí þoku þar
varð að flytja farþegana á skipi
yfir Ermarsund og með járnbraut
til Parísar. Þetta orsakaði 12
tíma töf á brottför flugvélarinn-
ar frá París.
Töfin var hins vegar bætt upp
á leiðinni, því flugtíminn frá Par
ís til Keflavíkur var aðeins tveir
tímar og 53 míriútur. Hér hafði
flugvélin 28 mín. viðdvöl og er
hér um met á afgreiðslutima að
ræða og mun enginn flugvöllur
hafa afgreit.t 707 flugvél á svo
skömmum tíma fyrr. Skemmsti
afgreiðslutími á Azoreyjum er 35
mín. í Keflavík tók flugvélin 40
þúsund lítra af eldsneyti. Flug-
tími héðan til New York var 5
kl.stundir. Farþegar voru 95.
—B.Þ.
funda ekki fyrr en tveim dög-
um fyrir fundi, en samkvæmt
samþykkt bæjarstjórnarinnar
þyrfti tillaga að hafa komið íram
fjórum nóttum fyrir fund til þess
að hún væri tekin til greina. Gæti
því svo farið, að sér yrði meinað
að bera fram tillögu við aðra
umræðu fjárhagsáætlunar bæjar-
ins. Hann hefði ekki sömu að-
stöðu og þeir bæjaríulltrúar, sem
ættu flokksmenn í bæjarráði og
gætu því fylgzt með gangi mála
þar.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, svaraði því til, að það væri
ekki ætlunin, að láta fjárhags-
áætlun bæjarins bíða endanlegrar
afgreiðslu fjárlaga. Hins vegar
væri beðið eftir ákvörðun um
vísitöluna, en gera mætti rað
fyrir, að ríkisstjórnin legði til-
lögur sínar fram á næstunni og
yrði afgreiðslu þeirra væntanlega
lokið í þessum mánuði.Ætti því að
vera hægt að afgreiða fjárhags-
áætlun bæjarins á fyrra fundi í
febrúar, eða á aukafundi fyrr.
Að lokum kvaðst borgarstjóri
skyldi sjá til þess, að bæjarfull-
trúi Þórður Björnsson fengi að
vita með minnst fimm nátta fyrir
vara hvenær fjárhagsáætlun bæj
arins yrði tekin til síðari um-
ræðu.
F ærcyskum sjó-
möinmm enn
böimuð íslandsför
í ÚTVARPSFRÉTTUM í gær-
kvöldi var frá því skýrt, að Fiski-
mannafélagið í Færeyjum hefði
ítrekað bann til félagsmanna
sinna, um að þeir réðu sig á ís-
lenzk fiskiskip. Fara því senni-
lega engir færeyskir sjómenn
með Dronning Alexandrine, sem
fer frá Færeyjum á laugardag
áleiðis til íslands.
5 tíma síðustu
lö kílómetrana
HÚSAVlK, 15. jan. — Jafnframt
því sem Húsvíkingar fagna þeim
bættu samgöngum, sem flugvöll-
urinn hefur fært þeim, harma
þeir hve lítið hefur verið gert í
því, að bæta þjóðveginn frá Húsa
vík og fram á flugvöllinn, sem
er 10 km. frá bænum. f vetur hef-
ur þetta verið sá hluti þjóðveg-
arins hér í sýslunni sem fyrst
hefur verið svo til ófært fram á
flugvöll, þótt greiðfært hafi verið
um allar sveitirnar fyrir framan.
Vegurinn liggur í lægðum und-
ir hæðardrögum, sem af skeflir.
Vegamólastjóri hefur tvö undan-
farin sumur látið mæla fyrir
nýjum vegi á fleiri en einum stað
og vonandi verður nú tekin
ákvörðun um hvar vegurinn á að
liggja og framkvæmdum ekki
slegið lengur á frest.
í dag kom hingað áætlunarflug
vélin frá Flugfélaginu. Hún fór
frá Reykjavík klukkan 9,20 í
morgun og var lent hér á flug-
vellinum kl. 11,20, hafði haft
viðkomu á Akureyri. Farþegarn-
ir komust aftur á móti ekki hing
að inn til bæjarins fyrr en 5 klst.
eftir að þeir komu á flugvöllinn,
eða ki. tæpl. hálf fimm, vegna
ófærðar á veginum, en annars í
björtu og fallegu veðri með 10—
12 stiga frosti. — Fréttaritari.