Morgunblaðið - 22.01.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.1959, Blaðsíða 1
20 síður Frumvarp um stöðvun verðbólgunnar lagt fram á Alþingi Verðbólguvöxtur um 20-30 prósent sé ekki að gert Hver vill 270 visitölustig eftir nokkra mánuði ? MINNIHLUT AST J ÓRN Al- þýðuflokksins lagði fram á Alþingi í gær frumvarp til laga um niðurfærslu verðlags og launa o. fl. Er þar um að ræða „hinar raunhæfu ráð- stafanir", sem Hermann Jón- asson viðurkenndi í uppgjaf- arræðu sinni á Alþingi 4. des. sl., að láðst hefði að gera, þeg- ar bjargráðin voru lögfest á sl. vori. Um það er tekið svo til orða í greinargerð hins nýja frumvarps: „Því var í raun og veru skotið á frest til haustsins að ráða fram úr nokkrum hluta þess vanda, sem við var glímt, þegar löggjöfin um útflutn- ingssjóð var sett á sl. vori. En þegar fram á haustið kom, reyndist vandamálið mun meira en ætlað hafði ver ið, þar eð kaupgjald hækkaði á sl. sumri mjög verulega um- fram þá kauphækkun, sem fólst í löggjöfinni um útflutn- ingssjóð“. Enn segir, að vegna þróun- arinnar á sl. vori, bendi allt til þess, að víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds, mundu verða „örari og örari, þegar fram í sækti, og að þró- unin myndi stefna í átt að 20—30% verðbólguaukningu á ári hin næstu ár, ef ekki yrðu gerðar gagngerar ráð- stafanir til stöðvunar á verð- bólgunni“. En eins og kunnugt er hef- ur aukningin frá 1946 verið h. u. b. 10% á ári að meðal- tali, svo að breytingin frá setningu bjargráðanna er sannarlega geigvænleg. Efni blaðsins cr m.a.: Fimmtudagur 22. janúar Bls. 3: Nýfundnalandsmiðin björguðu togaraútgerðinni. — 6: 15 ára athafnaleysi kommún- ista í stjórn Dagsbrúnar. — 8: Vetrarríki á Norðurlandi. — 9: Opið bréf til Andrésar Eyjólfs- sonar og Páls Zophaníassonar. —• 10: Forystugreinin: Óhjákvæmileg læknisaðgerð. Rosselini stríðir í ströngu. (Utan úr heimi). — 11: Bros og blíðuhót — en engar tillögur til lausnar alþjóða- deilum. — 13: Bridgeþáttur. h> 18: Á skíðum í Skálafelli. (íþróttir) t frv. ríkisstjórnarinnar er t FYRSTA LAGI gert rá» fyrir að kaupffreiðsluvísitalan verði 175 stig frá 1. febrúar. Ákvæð- ið um þá kaupgreiðsluvísitölu er miðað við það, að launþeg- ar, bændur og allar aðrar stétt ir, afsali sér af tekjum sínum sem svarar til 10 vísitölustiga, eða 5,4% af núgildandi kaupi eða tekjum. í ÖÐRU 1.AG1 eru i frv. í sam- ræmi við það, ákvæði um lækkun á innlendum landbún- aðarafurðum, fiskverði, iðnað- arvöru, verzlunarálagningu o. s. frv. t ÞRIÐJA LAGI er gert ráð fyrir hliðstæðri lækkun á margs konar þjónustu. t FJÓRÐA LAGI er gert ráð fyr- ir því, að vísitalan lækki um 17 stig vegna aukinna niður- greiðslna vöruverðs og verð- lækkana. Hins vegar lækki hún, eins og fyrr segir, um 10 stig vegna lækkunar tekna launþega og framleiðenda. Hér fer á eftir greinargerð sú, sem fylgdi frumvarpinu: Stöðva verður hina ugg- vænlegu þróun Vegna þeirrar uggvænlegu þró- unar, sem varð í kaupgjalds- og verðlagsmálunum á sl. ári, og þess voða, sem fyrir dyrum er, ef áfram yrði haldið á þeirri braut, vill ríkisstjórnin ekki leggja til, að gerðar verði nú ráð- stafanir, er leiða mundu til frek- ari hækkunar verðlags. Þess vegna er í þessu frv. gert ráð fyrir, að tilkostnaður framleiðsl- unnar verði lækkaður, svo sem nauðsynlegt er, til þess að bætur á gjaldeyrisverðmæti útflutnings ins geti haldizt óbreyttar. Athug- un hefur leitt í ljós, að það gæti orðið, ef kaupgreiðsluvísitalan yrði 175 stig frá 1. febrúar nk. Frá 1. febrúar til 30. apríl skal verðlagsuppbót á laun miðast við 175 stiga kaupgreiðsluvísitölu. í sambandi við þá lækkun tekna, sem af þessu hlýzt, ákvað ríkis- stjórnin fyrir síðustu áramót að auka niðurgreiðslur á ýmsum innlendum afurðum, sem svaraði til 13 stiga lækkunar á vísitölu framfærslukostnaðar. Ákvæðið um kaupgjaldsvísitölu 175 er við það miðað, að launþegar, bændur og allar aðrar stéttir afsali sér af tekjum sínum sem svarar til 10 vísitölustiga eða 5.4% af núgild- andi kaupi eða tekjum. í sam- ræmi við það eru í frumvarpinu ákvæði til lækkunar á verði hvers konar vöru og þjónustu, svo sem innlendum landbúnaðar- afurðum, fiskverði, iðnaðarvöru, verzlunarálagningu, hvers konar gjöldum og töxtum o. s. frv. í framhalifi af þessum almennu verðlækkunarráðstöfunum er þess vænzt, að vísitala fram- færslukostnaðar, sem 1. janúar sl. lækkaði úr 220 stigum í 212 stig, lækki fram til 1. marz nk. niður í 202 stig, en það svarar til kaupgreiðsluvísitölu 185 sam kvæmt núgildandi reglum. Ef vísitalan hefur ekki lækkað nið ur í 202 stig 1. marz nk., mun ríkisstjórnin auka niðurgreiðsl- urnar þannig, að vísitalan verði þá 202 stig. Eftirgjöf vísitölustiga yrði því aldrei meiri en 10 stig. Sú 27 stiga lækkun kaupgreiðslu- vísitölu, sem frumvarpið hefur í för með sér, á þess vegna að því er 17 stig snertir rót sína að rekja til aukinnar niðurgreiðslu Framh. á bls. 19 Stormar í Evrópu LUNDÚNUM, 21. jan. — Stormar hafa geisað í Vestur- Evrópu undanfarinn sólarhring og valdið spjöllum á mannvirkj um. Skip hafa verið í hafsnauð, en ekki er vitað um tjón á mönnum á sjó úti. Hins vegar hafa um 30 menn farizt vegna stormanna í Frakklandi. HAVANA, 21. janúar. — Humberto Sori Marin, landbúnað- arráðherra byltingarstjórnarinnar á Kúbu, sagði í dag, að „stríðsglæparéttarhöldin“ mundu hefjast á íþróttaleikvang- inum í Havana á fimmtudag. Eitt fyrsta málið, sem tekið verður fyrir, fjallar um afbrot herráðsforingja nokkurs í her Batista, sem ákærður verður fyrir að hafa látið drepa 108 uppreisnarmenn leiða lögregluforingja einn á aftökustað. dregnir fyrir dómstólana. — Á myndinni hér að ofan sjást uppreisnarmenn leiða lögregluforingja einn á aftöðustað. Mikojan segist ekki hafa orðið hrœddur, er kviknaði í SAS-vélinni Eisenhower rœðir heimsókn hans: Von- andi fékk hann réttan skilning — Nixon boðið til Rússlands WASHINGTON, 21. janúar. — Á fundi sínum með blaðamönnum í dag ræddi Eisenhower, Bandaríkjaforseti, um heimsókn Mikojans, varaforsætisráðherra Sovétríkjanna. Forsetinn sagði, að Banda- ríkjamenn mundu koma til móts við Rússa, þegar þeir kæmu fram með sanngjarnar tillögur til að draga úr spennunni í alþjóðamál- um, en þeir gætu alls ekki fallizt á, að rússnesku tillögurnar einar miðuðu í samkomulagsátt. Forsetinn kvaðst vona, að Mikojan færi heim til Rússlands með réttan skilning á Bandaríkjamönnum og landi þeirra og vonandi hefði hann sannfærzt um eindreginn friðar- vilja bandarísku þjóðarinnar. Aðspurður sagði Eisenhower, að vafa- laust væru margar ástæður fyrir því, að Mikojan hefði komið til Bandaríkjanna, m. a. sú, að hann hefði viljað ganga úr skugga um, hvcrt rétt væri, að bandaríska þjóðin stæði einhuga á bak við stjórnina í utanríkismálum. Loks sagði forsetinn, að Mikojan hefði boðið Nixon, vara- forseta Bandaríkjanna, í heimsókn til Sovétríkjanna. Ekki kvaðst hann vita, hvort hann færi eða ekki. Ásakanir í lokin Skömmu áður en Mikojan fór frá Bandaríkjunum ásakaði hann bandaríska utanríkisráðuneytið um að halda kalda stríðinu til streitu. Hafði hann þá skömmu áður átt sjö stundarfjórðunga samtal við Dillon, varautanríkis- ráðherra. Mikojan sagði, að bandaríska utanríkisráðuneytið kæmi í veg fyrir verzlunarvið- skipti milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. — Utanríkisráðu- neytið svaraði á stundinni. Tals- maður þess, Lincoln White, sagði, að Mikojan hefði notað gestrisoi Bandaríkjamanna til að bera fram fullyrðingar, sem enga stoð ættu í veruleikanum. Þá ásakaði Mikojan Banda- ríkjastjórn um að halda fast í gamla stefnu, en gat þess að við- ræðurnar við Dulles og Eisen- hower hefðu bæði verið gagn- legar og vinsamlegar. Nauðlenti Þegar flugvél Mikojans var komin um 200 mílur frá Ný fundnalandi, kviknaði í einum hreyflanna og sneri hún sam stundis við. Flugvélin var frá SAS-flugfélaginu. — Skömmu síðar bilaði annar hreyfill vél- arinnar og varð hún að fljúga á tveimur hreyflum til Ný- fundnalands. Þar nauðlentl hún í bandarískri bækistöð í hríðarveðri og gekk lcndingin vel. Mikojan og aðrir farþegar voru í góðu skapi, þegar þeir gengu úr vélinni. Þeir gistu i flugstöðinni í nótt sem leið, en höfðu áður skoðað mannvirki þar. Bækistöð þessi er liður í aðvörunarkerfi fyrir Norður- Ameríku, ef koma skyldi til skyndiárásar frá Sovétríkjun- um. Á leið til Hafnar í dag sendi SAS aðra vél til Nýfundnalands. Hún heitir Yngvi víkingur. Þegar sérfræðingar höfðu gengið úr skugga um, að hún væri í ágætu lagi, var enn haldið af stað, og þegar síðast fréttist var vélin á leið til Kaup- mannahafnar. Hún er væntanleg þangað með morgninum. Rúss- nesk þota sækir ráðherrann og Framh. á bls. 2 Ástandið í Argen- tínu skánaði i gær Andrúmsloftið er samt lævi blandið BUENOS AIRES, 21. jan. — í dag fór lífið hér í borg að komast í eðlilegar skorður eftir allsherjarverkfallið, sem verið hefur undanfarna þrjá daga. Eins og kunnugt er, voru það Peronistar og kommúnistar, sem stóðu að allsherjarverkfallinu og hugð ust með því knýja stjórnina til að segja af sér. En það tókst ekki. Stjórnin var föst fyrir og kallaði út varalið lög- reglu og hermanna og nú er allt með kyrrum kjörum í höfuðborginni, nema hvað sprengdar voru um * 100 sprengjur í úthverfum borg- arinnar, einkum við járn- brautateina og samgöngumið- stöðvar, því verkfallsmenn leggja höfuðáherzlu á að lama samgöngurnar. Margir verkalýðsleiðtogar og gamlir Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.