Morgunblaðið - 22.01.1959, Síða 12
12
MORGVHfíL4Ð1Ð
Fimmtudagur 22. jan. 1959
Grímudansleikur
lyrir börn verður í Templarahöllinni Fríkirkjuveg
11, sunnudaginn 25. jan. kl. 4,30.
Verðlaun veitt fyrir skemmtilegasta búninginn.
Aðgöngumiðar í dag og á morgun kl. 6—7 að Frí-
kirkjuveg 11.
Öll börn velkomin. „SVAVA".
Keflvíkingar
Dansskóli Hermanns Ragn-
ars tekur aftur til starfa
föstudaginn 23. jan. í Aðal-
veri. Nernendur, sem voru fyr
ir jól, mæti á sömu tímum og
þá, en byrjendur 7—11 ára
kl. 7 e.h. Verð til viðtals í
Aðalveri föstud. 23. janúar
frá kl. 2 e.h.
Hermann Ragnar
Stefánsson, danskennari.
Frá skattstofu Heykjavíkur
Allir þeir, sem fengið hafa send eyðublöð undir
launauppgjöf eða hluthafaskrár, eru áminntir um að
gera skil nú þegar.
Áríðandi er, að fá öll eyðublöðin til baka, hvort
sem eitthvað er út að fylla eða ekki.
Skatfstjórinn í Reykjavík
Vélbátur
Vélbáturinn Ottó RE 337, ca. 60 tonn með 110 hest-
afla June Munktel vél, er til sölu eða leigu, ef við-
unandi boð fæst. Báturinn er nýyfirfarinn, búinn
nýjum dýptarmæli og gúmmíbjörgunarbát. Línuspil
getur fylgt. Tilvalinn til handfæraveiða, á þorskanet
og reknet. Til sýnis við Grandagarð.
Semja ber við
JÓHANNES LÁRUSSON, lögfræðing
Kirkjuhvoli — Sími 13842 — heima 24893.
Verkamannafélagið DAGSBRÚN
Félagsfundur
verður Í Iðnó föstudaginn 23. þ.m. kl. 8,30 síðdegis.
Fundarefni: Stjórnarkjörið.
Félagsmenn sýni skírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
Kosning
.tjómar, varastjórnar, stjómar Vinnudeilusjóðs, endur-
skoðenda og trúnaðarráðs Vmf. Dagsbrúnar fyrir árið
1959 fer fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu 1
skrifstofu félagsins dagana 24. og 25. þ.m.
Laugardaginn 24. janúar hefst kjörfundur kl. 2 e.h. og
stendur til kl. 10 e.h.
Sunnudaginn 25. janúar hefst kjörfundur kl. 10 f.h. og
Stendur til kl. 11 e.h. og er þá kosningu lokið.
Atkvæðisrétt hafa eingöngu aðalfélagar sem eru skuld-
lausir fyrir árið 1958. Þeir sem enn skulda, geta greitt
gjöld sín meðan kosning stendur yfir og öðlast þá atkvæð-
isrétt. Inntökubeiðnum verður ekki veitt móttaka eftir
að kosning er hafin.
Kjörstjóm Dagsbrúnar.
Ólafur Agnar Schram
húsgagnasmiður, fimmtugur
MERKILEGA getur manni fund-
izt tíminn hafa verið fljótur að
liða, er maður litur til baka, og
finnst mér merkilegt að verið
geti rúm 40 ár síðan nýr leik-
og starfsfélagi bættist í hóp okk-
ar sveitabarnanna.
Við höfðum svo sem sögur og
sagnir af því hversu fín og merki
leg með sig börnin frá þeirri
miklu Reykjavík væru oft og
hversu mjög þau litu oft niður
á sveitabörnin og fáfræði þeirra.
Þessi drengur, Agnar, svo sem
við vöndumst við að kalla hann,
var þá alls ekkert merkilegur
með sig þegar til kom, freknótt-
ur rétt eins og við og ekki síður
feiminn við okkur, en við við
hann. En hann kunni að „sjtoppa"
gjörð, en það höfðum við ekki séð
gjört fyrr.
Honum komu að vísu ýmis
störf og hættir ókunnuglega fyr-
ir sjónir, enda lentum við saman
í því starfi, sem m. a. s. þá var
rétt að hverfa úr þjóðlífinu, en
það var að sitja hjá kvíaám. Til
slíks þóttu svona drengir, 8—10
ára, mátulegir, ef fullorðnir
rétt komu þeim á lagið. Vitan-
lega var mikill munur á götum
Reykjavíkur og gljúpu hrískjarr-
inu, enda fór Agnar margan koll-
hnísinn fyrst í stað, en hann
þóttist aldrei of góður til að læra,
hvorki það né annað, og varð því
brátt öllum kær.
Ólafur Agnar Schram er fædd-
ur í Hafnarfirði 12. des. 1908.
Móðir hans var Húnvetningur,
Signý Guðríður Ólafsdóttir Guð-
mundssonar frá Brandagili í
Hrútafirði og Agnesar Jóhannés-
dóttur Ólafssonar frá Brekku-
læk í Miðfirði. Faðir hans var
Benedikt Friðriksson Schram,
sjómaður á Sauðárkróki, sonur
Carls Friðriks Schram, bónda á
Bakka í Vatnsdal, sonar Christi-
ans Gynters Schram, kaupmanns
á Skagaströnd, er dó 1839 og er
að líkum sá fyrsti með þessu
nafni hér á landi.
Norður kom Agnar í fóstur til
móðurbróður síns, Magnúsar Ól-
afssonar, er þá bjó að Ytri-Torfu-
stöðum í Miðfirði.
Magnús var hægur maður og
kom því fljótt auga á hæfileika
í þá átt hjá frænda sínum, því að
snemma bar á því, að Agnar væri
glöggur á form hluta, handlaginn
vel og hneigður fyrir allt slíkt.
Það fór því svo að Agnar hóf
nám hjá Kristjóni Ólafssyni, hús-
gagnasmíðameistara í Reykjavík,
og lauk sveinsprófi 1932.
Gæfu hafði Agnar ekki aðeins
sótt í gott fóstur til frænda síns
að Torfustöðum, heldur kynntist
hann þar Stefaníu Lárusdóttur,
Jónssonar Jakobs Árnasonar, sem
átti eftir að verða honum styrk-
ur förunautur og gengu þau í
hjónaband árið 1931.
Ekki var fyrirferð þeirra hjóna
mikil á neinn hátt, eða útsláttar-
semi, en heimilisumhyggja því
meiri svo sem uppkomnir synir
þeirra bera vel merki um.
Garðar, kennari, er þeirra
elztur, þá Haukur, bifreiðasmið-
ur, þriðji Magnús, skrifstofumað-
ur, og fjórði Friðrik Agnar, sem
enn er ófermdur, en líklegur til
að hafa smekkvísi og hagar hend-
Fustafæði
tökum menn í fastafæði. Verð kr. 300.
á viku.
Austurbar
• Sími 19611.
Saumavélamóforar
Mótorar fyrir iðnaðarrsaumavélar óskast
til kaups. Uppl. í síma 22450.
Skuldabréf
ca. 400 þúsund kr. Veðskuldabréf til sölu. Tilboð
sendist Motrgunblaðinu fyrir laugardag 24. þ.m.
merkt: „400 þús.“.
I ðnaðarhúsnœði
100—150 ferm. húsnæði vantar fyrir Iéttan iðnað.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 26. þ.m. merkt:
„150“.
ur sem faðir hans, þó máske á
annan hátt Verði.
Nú eru tveir synirnir farnir að
heiman, giftir og þar komin
barnabörn öllum til gleði.
Langamman er líka á heimili
þeirra hjóna, móðir Stefaníu:
öldruð kona, þrotin að heilsu og
kröftum og er það stærra fram-
lag til samfélagsins en mörg
heimili vilja á sig leggja, að
hjúkra blessuðum gamalmennun-
um á heimilum sínum, þá þau
eru orðin börn í annað sinn, en
það er líka persónulýsing á þeim
er það gjöra og gjöra það vel.
Það munu tæpast mörg hjón
samhentari en Agna- og Stefanía
í þessu sem öðru og hefur heim-
ili þeirra borið og ber greinileg-
an blæ þess.
Eftir að Agnar hætti störfum
hjá lærimeistara sínum, vann
hann um árabil í húsgagnavinnu-
stofu Friðriks Þorsteinssonar, en
síðan hjá „Guðjóni og Hannesi"
allt til þessa dags.
Þegar flett er blöðum sögunn-
ar ber ætíð mest á nöfnum þeirra
er staðið hafa í einhverjum for-
ystuhlutverkum, en á milli lín-
anna liggur saga hins hljóðláta
þegns, sem ekki hefur gjört hróp-
andi kröfur til annarra, heldur
til sjálfs sín, saga hins vamm-
lausa manns, sem hávaðalaust
vinnur af alúð og trúmennsku:
húsbónda sínum, heimili sínu og
þjóðfélaginu. Agnar er einmitt
einn slíkra manna og það gleym-
ist oft að þakka þeim.
Það er og alveg í samræmi við
allt framansagt, að margir og það
þótt gamlir bernskuvinir væru,
vissu ekki um þetta afmæli fyrr
en það var löngu liðið hjá, en
engan veit ég, sem þau hjón
þekkir, að ekki muni af alhug
vilja taka undir heillaóskir mínar
til Agnars og fjölskyldu hans, við
þennan æviáfanga og flytja kæra
þökk fyrir samfylgdina.
Heill þér fimmtugum, gamli
vinur.
Ingþór Sigurbjs.
30 ára afmæli
Bjargar
á Eyrarbakka
UM síðustu helgi hélt Slysavarna
deildin „Björg“ á Eyrarbakka
upp á 30 ára afmæli sitt méð
samsæti í samkomuhúsinu á
staðnum. Var samsætið eins fjöl-
mennt og húsrúm leyfði og svign-
uðu borðin undan stórmyndar-
legum veitingum Kvenfélagsins
á Eyrarbakka sem sá um þær.
Margar ræður voru fluttar, m.a.
flutti Guðbjartur Ólafsson, for-
seti Slysavarnafélags íslands
ræðu um leið og hann afhenti
formanni deildarinnar og stjórn-
anda hófsins, Guðlaugi Eggerts-
syni, borðfána Slysavarnafélags-
ins að gjöf frá félaginu. Oddviti
Eyrarbakkahrepps, Vigfús Jóns-
son, hélt einnig stutta ræðu svo
og presturinn séra Magnús Guð-
jónsson sem einnig stjórnaði al-
mennum söng. Henry Hálfdánar-
son afhenti við þetta tækifæri
tveim öldnum sjómönnum á Eyr-
arbakka, þeim Árna Helgasyni
og Jóni Helgasyni, heiðurspening
Sjómannadagsins fyrir langa og
gifturíka sjómensku.
Á eftir voru svo ýms skemmti-
atriði svo sem upplestur Óskars
Magnússonar kennara. Nýjasta
kjóltízkan var einnig kynnt
þarna af karlmönnum. Ennfrem-
ur voru sungnar gamanvisur og
sýndir smáleikþættir bæði af
Svavari Benediktssyni og fleir-
um.
Að lokum var svo dansað fram
á nótt undir fjörugri harmon-
ikumúsik þeirra Svavars Bene-
diktssonar og Sigurðar Þorláks-
sonar frá Reykjavík. Skemmtun-
in var deildinni til mikils sóma
og öllum viðstöddum til óbland-
innar ánægju.
Císli Einarsson
héraðsd'iinslög nia jur.
Málflulniiif{;sskriffttofa.
í/augavegi 20B. — Sími 19631.