Morgunblaðið - 28.01.1959, Síða 1

Morgunblaðið - 28.01.1959, Síða 1
20 síður 46. árgangur Krúsjeff var oð springa af sjálf■ trausti á flokksjjinginu í gær Hann talaði hvorki meira né minna en: 6 klukkustundir Málverk Mugrgs MOSKVU, 27. jan. — Þegar Ni- kita Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna og aðalritari Kommúnistaflokksins, hafði lokið rösklega 6 klukkustunda ræðu sinni á 21. flokksþingi rússneska Kommúnistaflokksins, sem hófst í Moskvu í dag, var hann ákaft hylltur af tvö þúswnd áheyrend- um. Kjarni ræðunnar fjallaði um hina nýju 7 ára áætlun Sovét- ríkjanna, sem Krúsjeff sagði að væri svo stórkostleg, að ekki væri hægt að jafna við neitt í sögu mannkynsins. Þá réðist hann heift arlega á flokksfjendurna, Bulg- anin, Malenkov, Molotoff, Kag- anovich, Sjepilov og Sjukov. I dag geta allir séð hversu skynsam lega miðstjórnin fór að ráði sínu, þegar hún einangraði þessa menn, sagði forsætisráðherrann. Þá skýrði hann frá því að Sovét- stjórnin ynni að því öllum árum að draga úr kalda stríðimu og stofna til stórveldafundar. Hann réðist einnig á júgóslavneska kommúnistaflokkinn og stefnu hans og árásirnar á kommúnista í Arabaríkjunum, en hyllti þó arabisku þjóðernisstefnuna og Nasser og Karsem, hvorn í sínu lagi. Hann lagði áherzlu á að ekki væri im neinn ágreining að ræða milli kínverzka alþýðu- Kosningar ekki nauðsynlegar Þá sagði utanríkisráðherrann, að ekki væri nauðsynlegt að efna til kosninga í Þýzkalandi áður en landið verður sameinað. Saga rxulles annarra landa sýndi, að unnt hefði verið að sameina þau í eitt ríki, þótt engar kosningar hefðu farið fram. Bandaríkin væru 'æmi um þetta. lýðveldisins og Sovétríkjanna, og ekki myndi heldur koma til neinna árekstra þótt kommúnista flokkar þessara ríkja notuðu ó- Krúsjeff líkar aðferðir til að ná sama tak- marki. Krúsjeff lofar Stalín Krúsjeff var einn á mælenda- skrá á fundinum í dag. Hann lof- aði verkamönnum hærri launum, styttri vinnutíma og lægri skött- Sök Rússa Dulles vék einnig að um- mælum Krúsjeffs á mánudag- inn um kalda stríðið og sagði, að það væru Rússar, sem héldu því við. Þær tillögur, sem þeir hefðu borið fram á alþjóðavettvangi, miðuðu ekki að því að draga úr kalda stríð- inu, heldur vinna það. Þá minntist ráðherrann á Kúbu og sagði, að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að kalla heim hern aðarsendinefnd sína þar í landi vegna þess, að stjórn uppreisnar- manna hefði farið þess á leit. Fundur Bagdad- bandalagsins KARACHI, 27. jan. — f dag var rætt á ráðherrafundi Bagdad- bandalagsins um afstöðuna til NATO og SEATO. Ráð Bagdadbandalagsins held- ur fund á morgun til að leggja síðustu hönd á yfirlýsingu að fundarlokum. um, og sagði að ekki liði á löngu þar til beinir skattar yrðu af- numdir í Sovétríkjunum, — og nú væru aðeins 8% af tekjum ríkisins af skattheimtu. Þá full- yrti hann, að Sovétríkin væri mesta iðnaðarframleiðsluland í Evrópu og annað mesta iðnaðar- veldi heims, og ekki myndi líða á löngu þar til Sovétríkin færu fram úr Bandaríkjunum og stór- ykju framleiðslu sína. Krúsjeff fór fögrum .orðum um Stalrn, sem hann sagði að hefði átt mik- inn þátt í þessari öru þróun. Þá skýrði hann frá því að meðal- framleiðsluaukningin samkvæmt hinni nýju 7 ára áætlun væri um 80%. Hægt aS komast hjá styrjöld Krúsjeff minntist nokkrum orð um á síðasta flokksþingið og sagði, að þar hefði verið stigið glæsilegt spor fram á við, þegar lýst var yfir, að unnt væri að komast hjá styrjöld. Sovétríkin líta á það sem skyldu sína að hvetja til stórveldafundar, svo að unnt verði að draga úr spenn- unni og hætta tilraunum með kjarnorkuvopn, sagði hann. — Það er engin ástæða til að ætla að árekstrar verði milli Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna, hélt hann áfram. En óeðlileg sam- skipti þessara landa verða vafa- laust lengi enn. Þýzkalandsmálin Þá gat hann þess, að árásar- pólitík Bandaríkjanna, eins og hann komst að orði, gegn Rauða- Kína, væri sök í spennunni aust- ur þar, en síðan bætti hann við, að nauðsynlegt væri að koma á kjarnorkulausu belti í Austur- Asíu og á Kyrrahafi. f sambandi við Þýzkalandsmál kvað ráðherr- ann mikilvægast að undirrita Framh. á bls. 19 í FYRIRSPURNARTÍMA í brezka þinginu í gær var minnzt á landhelgismálið. Hector Huges, verkamannaþingmaður frá Aber- deen, spurði utanríkisráðherr- ann, hvort stjórninni væri ljóst, að deilumálin um landhelgina kæmu ekki fyrir ráðstefnu S.þ. fyrr en 1960 og á tímabilinu þangað til væru margar hættur á ferðum bæði fyrir fiskiðnaðinn Samsœrí á Kúbu HAVANA, 27. jan. — í Pinar El Rio héraði voru allmargir fyrrum liðsforingjar í her Batista handteknir í dag, þeg- ar upp komst um samsæri gegn hinni nýju stjórn bylt- ingarmanna. Enn er haldið áfram réttar- höldum í Havana yfir fyrrum samstarfsmönnum Batista. Einn þeirra, sem var lögreglu- stjóri, var dæmdur til dauða í dag. Listkynning Mbl. Málverkaprenfanir Helgafells LISTKYNNING Morgunblaðsins byrjar í dag sýningu á nýjum eftirprentunum frá Helgafelli. CARACAS, 27. jan. — Fidel Castro, uppreisanrforingi á Kúbu, horfði í dag, þegar hann var að leggja af stað heim frá Venezúela, á einn bezta vin sinn lenda í einni af skrúfunum á skæmaster- vélinni, sem flutti hann heim, og bíða samstundis bana. — Castro skipaði 10 fylgdar- mönnum sínum að standa og neytendur og hvort utanríkis- ráðherra hygðist gera einhverj- ar ráðstafanir til þess að sam- komulag náist um viðræður og lausn á málinu sem fyrst. Robert Allen, sem nýlega hef- ur tekið við embætti aðstoðar- utanríkisráðherra, svaraði fyrir- spurninni á þá lund, að ríkis- stjórn hennar hátignar hefði held ur kosið, að ráðstefnan yrði hald iix fyrr og hafði sjálf lagt til, að hún yrði haldin 1959, en meiri- hlutinn á Allsherjarþinginu var þeirrar skoðunar, að bezt væri að kalla ráðstefnuna ekki saman fyrr en í marz eða apríl 1960. Brezka stjórnin samþykkti þetta, með hálfum huga þó, og hafði þá lendhelgisdeiluna við Island í huga. Brezka stjórnin hefur æ ofan í æ lýst yfir að hún sé fús til þess að samþykkja bráða- birgðalausn, sagði ráðherrann ennfremur, þangað til málið hef- ur verið afgreitt endanlega á al- þjóðaráðstefnu. Ríkisstjórn ís- lands, hélt ráðherrann áfram, hefur því miður ekki getað fallizt á neinar þær tillögur, sem lagð- ar hafa verið fram. Brezka stjórn in er þess enn reiðubúin að gera bráðabirgðaráðstafanir til að minnka hættuna á átökum við ísland. Myndirnar sem sýndar eru: Fjallamjólk, Þingvallamynd, eftir Jóhannes Kjarval, Gamla búðin eftir Gunnlaug Scheving, Dagrenning við Hornbjarg eftir Jón Stefánsson, Hornaf jörður eft ir Ásgrím Jónsson, Stúlka með fugl eftir Ásgerði Búadóttur, Sjöuntli dagur í Paradís eftir Guðmund Thorsteinsson (Mugg), Áning eftir Kristján Davíðsson og íslandslag eftir Jóhannes Kjarval. heiðursvörð hjá líkinu, þegar það yrði flutt heim til Kúbu, en fór sjálfur með vélinni, sem slysinu olli. Hann sagði hrærður: „Stríðinu er lokið, en dauðinn heldur áfram iðju sinni.“ Þessi vinur uppreisnarfor- ingjans, sem lézt í dag, hét Paco Cabrera og var lífvörð- ur hans og nánasti samstarfs- maður í uppreisninni. Tæknin eyðir þoku PARÍS, 27. jan. — í dag skýrðu franskir vísindamenn frá því, að tilraunir til eð eyða þoku á flug- völlum hefðu borið góðan ár- angur. Hafa þeir gert tilraunir sínar á flugvelli í nágrenni Par- ísar og notað til þess lofttegund- ina propan, sem þeir hafa dreift út í þokuloftið við flugbrautirn- ar. Við það hefur rakinn í þok- unni kristallazt og fallið til jarð- ar sem snjór. Hefur á þennan hátt tekizt að auka skyggni úr 50 fetum upp í 500 fet. ★----------------------—★ Miðvikudagur, 28. janúar Efni blaðsins m.a.: BIs. 3: Segja þarf þjóðinni sannletfc* ann umbúðalaust. (Úr ræðl Björns Ólafssonar). — 6: Batnandi hagur Austfirðinga byggist á samvinnu með hag- fjöldans fyrir augum. — 8: Kvenþjóðin og heimilið. — 9: „Á yztu nöf“ leikrit Þjóðleik- hússins. Af sjónarhóli sveitamanns. — 10: Forystugreinin: Skrípaleikuriiui með varnarmálin. Utan úr heimi: — Berlín —• tvískipt borg. — 11: SAS-hótelið í Höfn. — 12: V-stjórnin fleygði efnahagsmál- unum frá sér óafgreiddum. (Frá Alþingi). — 13: Bókaþáttur. — 18: fþróttir. *----------------------—★ Tillögur Rússa draga ekki úr kalda stríðinu — en miða að því að vinna það WASHINGTON, 27. jan. — Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagði á vikulegum blaðamannafundi sínum í dag, að utan- ríkisráðherrafundur um Þýzkalandsmálin í vor mundi verða gagnlegur. Hann kvaðst vera andvígur þeirri hugmynd, sem heyrzt hefur, að þýzku landshlutarnir geri með sér ríkjabandalag, því rneð því móti mundi Þýzkalandi verða skipt um aldur og ævx. Þá sagði ráðherrann ennfremur, að Rússar hefðu í Genf 1955 fallizt á sameiningu Þýzkalands að undangengnum frjálsum kosningum i landinu, en þeir hefðu gengið á það samkomulag, og ef þeir vildu titthvað annað, þá væri þeim í sjálfsvald sett að koma fram með tillögur í þá átt. Landhelgisdeilan til um- rœðu í brezka þinginu ,Striðinu lokið en.. * 'y >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.